Morgunblaðið - 07.04.1968, Síða 10

Morgunblaðið - 07.04.1968, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. APRÍL 1968 Erlendur Jónsson skriíar um BÓKMENNTIR GRÍSK MENNING Will Durant: GRIKKLAND Hlð FORNA, fyrra bindi. 343 bls. Jónas Kristjánsson íslenzkaði. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Reykjavík — 1967. GRIKKLAND hið forna er læsilegt rit og fróðlegt og allvel fallið til að vekja víðtækari áhuga á því efni, sem það fjall- ar um. Höfundurinn er gæddur bæði þrótti og þrautseigju til frá sagnar. Og þekking hans er sjálfsagt hafin yfir allan vafa. Hann er menntaður sagnfræðing ur og spakur á mannleg örlög. Saga hans er saga þjóða. sem lifðu sínu lífi í önn hversdags- ins. Þannig sér Will Durant rök liðinna alda: einnig hetjuskap fornaldar. En Durant er ekki aðeins mik- ill grúskari. Hann er líka ferða- maður, nútímamaður. Hann hef- ur sjálfur kannað söguslóðir þær sem hann lýsir. Sjái hann ekki fyrir sér sögusviðið eins og heimamaður, þá skoðar hann það að minnsta kosti með glöggu gests auga. Með köflum minnir rit hans á túristasagnfræði. Að hætti ferðabókahöfunda tekur hann lesandann með sér í hring- ferð um sögusviðið. Líklega er sá hluti þessarar bókar einna fróðlegastur, en jafnframt óað- gengilegastur fyrir þann, sem ókunnugur er á slóðum grískrar sögu. Höfundinn ber svo hratt yfir, hann nefnir svo margar borgir og svo margar eyjar og svo marga menn, að frásögn hans kann að brenglast í höfði Iþess, sem hyggst lesa bókina eins og blaðagrein. Grikkland hið forna er ekki alþýðlegt rit á forna vísu, heldur á nútíma- vísu. Auðsjáanlega miðar höf- undur við, að lesandinn sé að minnsta kosti lítillega kunnugur efninu, þegar hann tekur sér bókina í hönd og byrjar lest- urinn. Aðgengilegastar og skemmti- legastar í þessari bók þykja mér hugleiðingar þær, sem höfundur hefur skrifað almennt um efni sitt, t.d. um daglegt líf fólksins í Grikklandi hinu forna, menn- ing þess, listir og skemmtanir. j Maður sem svo hefur sökkt sér niður í bókmenntir Hellena, getur gert sér í hugarlund, hvernig fólkið lifði og hrærðist frá degi til dags, hvernig það bjó, hvernig það starfaði, hvað það át og drakk, hvérnig það skemmti sér, hvað það vissi, hvað það grunaði, hverju það trúði og svo framvegis. j / Og Durant er gæddur nógu fjörlegu ímyndunarafli og hæfi- legu áræði til að láta hugann reika þannig aftur í tímann og draga saman almenn dæmi af mörgum sundurleitum heimild- um. Þá verður ekki skrifuð svo bók um Grikki hina fornu, að stjórnmálum þeirra sé ekki gerð nokkur skil. Lýðræði sitt munu Grikkir ekki hafa talið neitt heimsundur. En það vekur samt engu minni aðdáun nútíma manna, sem líta á þvílíkt stjórn- arform eins og hver önnúr tækni leg þægindi nútímans. Durant segir frá uppruna þess og þró- un og skýrir eðli þess. Við Is- léndingar ættum að skilja það betur en margir aðrir. Þjóðveldi okkar til forna kann að hafa verið ekki ólíkt lýðræðinu í grísku borgríki. Durant gerir grein fyrir hvernig hellensk menning þr-ó- aðist samhliða veldi Grikkja, hvernig þeir ruddu sér til rúms í hinum forna heimi kring- um Miðjarðarhafið, hvernig þeir auðguðust á siglingum og verzl- un, hvernig þeir ferðuðust og urðu smám saman heimsborgar- ar og fyrirmynd annarra manna. Frægð og auglýsing var snar þáttur í þjóðlífi þeirra eins og gerist nú á dögum. Þeir áttu sínar pop-stjörnur. Líklega hafa íþróttamenn aldrei verið dáðari í veröldinni, svo dæmi sé tekið. „Vér skulum ekki ímynda oss“ segir Durant, „að Grikkir hafi almennt sökkt sér niður í Aisc- hýlos eða Platon. Öllu heldur líktust þeir venjulegum nútíðar- mönnum og höfðu áhuga á íþrótt um, og hinir mestu íþróttagarp- ar voru þeirra átrúnaðargoð." Og Durant vitnar til Odyss- eifskviðu: „Af engum hlut hefur maður meiri frægð, meðan hann er uppi, en af þeim íþróttum er hann má fremja með höndum sín um eða fótum.“ Og hégóminn og tildrið það — það er ekki nýtt af nálinni. Snyrting grískra kvenna lýsir Durant svo: „Sérhver hefðardama á heilt vopnabúr af speglum, hárnálum, nælum töngum, kömbum, ilm- flöskum og k'Tukkum með and- litsíarða og smyrslum. Vangar og varir eru málaðar með stauk- um af sinnóber eða alkannarót. Augnabrúnir eru burstaðar upp ur lampasóti eða muldu antímóni Augnalok eru skyggð með anti- móni eða koli. Augnahár eru dökklituð og síðan smurð með blöndu úr eggjahvítu og amm- oníakkvoðu. Smyrsl og vökvar eru notaðir til að eyða hrukkum, freknum og öðrum hörundslýt- um. Olía úr trjákvoðu er notuð til að eyða svitalykt, og sérstök ilmsmyrsl eru notuð á sérstaka líkamshluta: Sannar hispurskon- ur nota pálmolíu á andlit og brjóst, bergmyntu á augabrúnir og hár, blóðbergsseyði á kverk- ar og kné, myntu á arma, myrru á fætur.“ Þetta er ekki klén romsa. En svona miklar dömur voru grísk- ar konur orðnar fyrir tvö til þrjú þúsund árum. Upptalning- in er stórfróðleg. Náttúrlega ber ekki svo að skilja, að grískar fornkonur hafi verið hégómlegri en konur í öðrum löndum og á öðnum tímum. í rauninni er fólk- ið alltaf og alls staðar eins. Eðl- ið er hið sama. Einungis ytra borðið fer eftir aðstæðunum. En einmitt þannig gefur þessi lýsing tvennt til kynna: að grísk ar konur höfðu ríf fjárráð, því snyrtidót er á öllum tímum rán- dýrt; og að þær höfðu líka yfr- inn tíma til að dútla við útlit sitt. Snyrting líkamans er éf til vill ekki annað hégóminn ein- ber. En slík fegrun er þá samt sem áður menningarlegur hé- gómi, því hún fylgir menning andans og hvort tveggja út- krefur hið sama: tíma og pen- inga. Frjálsa menn í Grikklandi forna skorti hvorugt. Á sama hátt og velferðarþjóðfélag nú- tímans byggist á vélaafli, þann- ig byggðist hið forngríska þjóð- félag á þrælahaldi. Grikkir töldu líkamlega vinnu ekki samboðna frjálsum mönnum og verður skömm þeirra á erfiðinu varla betur lýst en með þessum orð- um Xenófons, sem Durant tilfær ir í bók sinni.: „Hinar lágu handíðir, sem svo eru nefndar.........eru í litlum metum í menningarríkjunum, og ekki að ástæðulausu. Þær út- slíta líkamlega öllum þeim sem við þær fást, jafnt verkamönn- um sem verkstjórum, sem neyð- ast til að sitja tímunum saman ellegar húka heila daga fyrir framan eldsofninn. Og samfara líkamlegri þreytu kemur veikl- un sálarinnar, en þessar lágu handíðir taka allar stundir þeirra sem við þær fást, svo að þeir hafa engar tómstundir til samneytis með vinum sínum eða til þjónustu við ríki sitt.“ Svona tala nú ekki aðrir en forhertir iðjuleysingjar. En kyrr setumenn voru Aþenar ekki þrátt fyrir óbeit á vinnu. íþrótt- ir voru þeirra eftirlæti. Og her- mennska var þeim lífsnauðsyn. Þannig fundu þeir orku sinni viðnám. Menning Hellena — bókmennt ir, listir og heimspeki — allt var þetta forréttindi manna, sem þurftu ekki að vinna hörðum höndum fyrir daglegu brauði sínu. En iðjuleysið bar líka feigðina í sjálfu sér. Þrælahald- ið var engin eilífðarvél. Þetta fyrra bindi Grikklands hins forna endar á þáttum af grískri myndlist og húsagerðar- list. Fróðlegt er að bera saman, það sem Durant segir annars veg ar um það efni, og hins vegar það sem hann skrifar um gríska lifnaðarhætti á víð og dreif í bók sinni. „Engir annmarkar geta skyggt á þá staðreynd, “ segir hann, „að grískir listamenn skópu hinn „klassíska stíl“.“ En hvernig varð sá stíll til? Tignarlegur, einfaldur og þó skrautlegur — þannig kem- Ur hann okkur fyrir sjónir nú. Það er ekki fyrr en við höfum einnig fræðzt um lifnaðarhætti þjóðar þeirrar, sem mótaði þenn an stíl, að okkur skilst, að sumt, sem kemur okkur nú fyrir sjón- ir sem skrautið eitt, sumt af því varð í rauninni til sem hvers- dagsleg nauðsyn, enda þó síðari tíma menn öpuðu það eftir af fordild og misskilningi. Jónas Kristjansson hefur snú- ið þessari bók til vandaðs ís- lenzks máls. Sízt ber að lasta það verk hans. Þó get ég ekki að þvi gert, að ég felli mig ekki alls kostar við sum orð hans, einkum samsett: orð eins og: grindargripur, karlmannafólk, fílsbein (hinagð til kallað fíla- bein), vígfýsi. Margar og góðar myndir prýða þetta bindi, flestar af grískum fornminjum og lista- verkum. Boðað er, að nafnaskrá og landabréf muni fylgja síðara bindi. Að öllu saman lögðu er bókin svo úr garði gerð, að óhætt er t.d. að benda skólanemendum á hana, það er að segja þeim, sem hafa svo mikinn áhuga á sögu, að þeim nægja ekki námsbækur- nar einar. Erlendur Jónsson. Verkamannafélagið Dagsbrún [DA6_SBP0WJ /\5a|funcju r verður í Iðnó mánud. 8. apríl 1968 kl. 8,30 sd. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Onnur mál. Félagsmenn eru beðnir að mæta og sýna skírteini við innganginn. STJÓRNIN. Afmæliskveðja til dr. Jóns E. Vestdals sextugs JÓN E. VESTDAL er maður harðduglegur, úrræðagóður, út- sjónasamur og drengur góður. Hér verður ekki rakin sagan af Sementsverksmiðju ríkisins, en þessi búskaparlega mikilvæga verksmiðja er verk dr. Jóns og saga hennar í raun og veru saga dr. Vestdals, svo langt sem hún nær. Undirbúningsárin og bar- áttuárin voru stundum hörð, en fylgt var fast eftir, og nú síðast eignaðist verksmiðjan eigið skip og stórrbotin flutningatæki á landi. Og dr. Jón á eftir að bæta við þessa sögu, sögu athafna og atorku. Um áratuga skeið hefur dr. Jón verið formaður íslenzk-þýzka menningarfélagsins Germaníu, Eins er um Germaníu eins og Sementsverksmiðjuna, að saga Germaníu á þessu tíma- skeiði er í raun og veru saga dr. Jóns. Fyrir tæpum tveimur ár- um skipulagði hann sjö daga heimsókn dr. Max Adenauers og tuttugu annarra nafnkunnra Þjóðverja hingað til lands og misseri síðar ellefu daga heim- sókn 19 nafnkunmra íslenzkra manna til Þýzkalands og voru báðar ferðirnar til mikils sóma. Dr. Jón hefur staðið á bak við sýningar á íslenzkum lista- verkum víða í Þýzkalandi og sýningar á þýzkum listaverk- um hér heima. — Hann hef- ur stuðlað að því að nafn- kunnir íslendingar flyttu kynn- ingarfyrirlestra um íslenzk mál- efní í Þýzkalandi og tekið á móti mörgum þýzbum. listamönnum, vísindamönnum og stjórnmála- mönnum. Hér heima hefur Ger- manía undir stjórn dr. Jóns haldið uppi kvikmyndasýningum þar sem sýndar hafa verið þýzk- ar frétta- og menningarkvik- myndir og nokkrum sinnum á ári hverju, m. a. um jólin, hafa verið haldnar hér skemmtisam- komur yrir Þjóðverja og íslend- inga. Einnig hefur komið út um margra ára skeið ársritið „ís- laind“ en það er ritað á þýzku og gefið út af Germaníu, ásamt þýzk-íslenzku félögunum í Ham- borg og Köln. Allt þetta starf hefur verið tímafrekt, en unnið af alúð eins og allt sem dr. Jón tekur sér fyrir hendur. Gott er af því að vita að dr. Jón E. Vestdal er ekki nema sextugur í dag. Hann á eftir að gera margt, sem til framfara horfir hér á landi og í samskipt- um okkar við vini okkar í Þýzka landi. Hann er einn þeirra manna, sem íslenzk þjóð stendur í þakkarskuld við. Pétur Ólafsson. Bdrðdælir muno ekki slíkt flóð í Skjólfandafljóti HÚSAVÍK, 5. apríl. — í hlák- unni fyrir tæpum mánuði kom mikið jakahlaup í Skjálfanda- fljót, en það náði þá ekki að ryðja sig sem kallað er. Við bæ- inn Hlíðskóga er í fljótinu eyja, sem nefnist Valley. Við eyjuna hlóðst upp jakastífla og síðan krap svo áð rennsli í kvíslinni vestan eyjarinnar stöðvaðist al- veg og er svo enn. Austari kvísl- in hefur einhvern framgang yfir eyjuna, en þó mjög takmarkað og rennur ekki í sínum eðlilega farvegi. Undanfarið hefur alltaf verið að hækka í fljótinu og gætir hækkunarinnar nú allt fram undir Lundarbrekku. Fljótið flæðir yfir bakka sína á um 10 km. svæði og víða upp að vegum beggja megin fljótsins. Vegurinn að vestan er alveg ófær, en aust- anmegin hefur enn verið fært. Engar teljandi skemmdir hafa orði’ð af þessu flóði ennþá, en tæpt stóð að það ylli tjóni á bæn um Sandvík. Vatnið hefur flætt inn í kjallara skólahússins á Stóruvöllum. Slíkt flóð sem þetta muna Bárðdælir ekki í Skjálfanda- fljóti. Það er undir tíðarfari komið hvernig fer þá þiðna tek- ur, því að komi örar hlákur er hætt við tjóni, sem ekki er gott að varast eða koma í veg fyrir. SPB. Skilningur frumkristninnar ú upprisunni í 2 útvurpserindum SÉRA Jakoto Jónsson dr. theol. mun flytja erindi í útvarpið, dagana 7. og 15. apríl. Erindið nefnist „Skilningur frumkrist- ínnar á upprisunni“. Dr. Jakob mun þar gera grein fyrir því hvernig hinir fyrstu kristnu Htlu á upprisu Krists og leitast m.a. við að svara þessum spurningum: Hvernig á að Hta á heimi’ldirnar? Hvernig eru frá- sagnir samtvinnaðar boðskapn- um? Er boðskapurinn túlkaður RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 10*100 eins af öllurn höfundum, og hafa allir lagt sömu áherzluna á sömu atriðin? Hefur boðskapur- inn tekið breytingum frá því atburðirnir gerðust og þar til frásögnin um þá var skráð? Hvaða straumar og stefnur hafa ráðið mestu um mótun frásagn- anna? Dr. Jakob Jónsson er sérfræð- ingur í nýja-testamentisfræðum, og auk þesis gaeddur þeim eig- inleika að geta rætt um vísinda- leg efni á þann hátt að allir hafa gagn og ánægju af. Fyrri hluti erindisins verður fluttur á Pálmasunnudag, 7. apríl, og hefst kl. 13.15. Síðari hlutanum verður útvarpað á annan í páskum og hefst kl. 13.15.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.