Morgunblaðið - 30.05.1973, Side 16
16
MORGUN'BLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1973
JtorgwfrWrilr
Otgefandl hf. Árvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthlas Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltról Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjórl Björn Jóhannsson.
Auglýsinsastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100.
Augfýsingar Aðalstræti 6, simi 22-4-80.
Askriftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasðlu 18,00 kr. eintakið.
þeirra, Þjóðviljinn, uppi
stanzlausum áróðri gegn
þessari heimsókn, dembir
fúkyrðum yfir gesti þeirra
Magnúsar og Lúðvíks og
finnur komu þeirra hingað
til lands allt til foráttu. Heið-
arlegra hefði verið af Magn-
úsi Kjartanssyni og Lúðvík
Jósepssyni að leggjast ein-
faldlega gegn því, að fundur
forsetanna yrði haldinn hér
í stað þess að etja undirtyll-
um sínum fram með þessum
hætti. En heiðarleg afstaða
af því tagi er þeim bersýni-
lega ekki að skapi, a.m.k. ekki
GESTI BER AÐ GARÐI
¥ dag koma til íslands tveir
* háttsettir gestir, þeir
Richard Nixon, forseti Banda
ríkjanna og Georges Pompi-
dou, forseti Frakklands. Þeir
eru hingað komnir í boði rík-
isstjórnar íslands og dveljast
hér á landi í tæpa tvo sólar-
hringa til þess að ræða sam-
eiginleg vandamál landa
sinna og samskipti Banda-
ríkjanna og Evrópuríkja.
Koma forsetanna tveggja
hingað til lands er heiður
fyrir okkar litlu þjóð og mun
bera margvíslegan ávöxt fyr-
ir fsland. Augu umheimsins
beinast að höfuðborg lands
okkar næstu tvo daga og um
leið vekja okkar málefni og
vandamál meiri athygli en
ella. En jafnvel þótt svo væri
ekki, er fslandi sómi sýndur
með þessari heimsókn og
ekki er að efa, að meginþorri
íslendinga mun sýna forset-
unum tveimur þá gestrisni,
sem þjóðinni er í blóð borin.
Heimsókn af þessu tagi
fylgir mikið umstang.
Hundruð erlendra frétta-
manna koma til landsins til
þess að fylgjast með fundi
forsetanna tveggja og víð-
tækar öryggisráðstafanir eru
gerðar þeirra vegna. í því
sambandi hefur vakið nokkra
athygli sú sérstæða tegund
af gestrisni, sem annað aðal-
málgagn ríkisstjórnarinnar
hefur sýnt gestum okkar.
Þeir Magnús Kjartansson og
Lúðvík Jósepsson hafa staðið
að því, ásamt öðrum ráð-
herrum í ríkisstjórninni, að
bjóða þá Nixon og Pompi-
dou velkomna til fundar-
halda hér á landi. En á sama
tíma heldur einkamálagagn
þegar hégómagirnd þeirra er
annars vegar.
íslenzka þjóðin mun ekki
þola það, að fámennur hóp-
ur ofstækismanna og uppi-
vöðsluseggja verði henni til
skammar með þeim hætti er
varð, þegar Rogers, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
kom hingað í heimsókn. Þess
vegna verður að krefjast
þess, að fullnægjandi örygg-
isráðstafanir verði gerðar og
slík einbeitni og festa sýnd
óróaseggjum, að þeir hafi
hægt um sig. Ef það tekst
ekki verða ráðherrar komm-
únista kallaðir til ábyrgðar,
en ekki undirtyllur þeirra.
TVÖ OSKYLD MÁL
U*inar Ágústsson, utanríkis-
■ ráðherra, lét í Ijós þá
skoðun á blaðamannafundi
er hann efndi til í gær að
landhelgismálið og öryggis-
mál þjóðarinnar, væru tvö
óskyld málefni. Þetta er al-
veg rétt hjá utanríkisráð-
herra og með þessum orðum
hefur hann undirstrikað
hversu fáránleg sjónarmið
þeirra óábyrgu aðila
eru, sem halda því fram,
að vegna innrásar brezka
flotans a íslenzkt yfir-ur af ofbeldi Breta í okkar
ráðasvæði eigi ísland að
segja sig úr Atlantshafs-
bandalaginu.
Deila við Breta vegna út-
færslu íslenzkrar fiskveiði-
lögsögu er ekkert nýtt. Og
við höfum áður orðið fyrir
því, að brezki flotinn væri
sendur inn fyrir fiskveiðitak-
mörkin til þess að vernda
brezka veiðiþjófa. Slíkar
deilur höfum við jafnan unn-
ið að lokum með því að beita
skynsemi, þrautseigju og þol-
inmæði og með því að beita
þeim baráttuaðferðum, sem
munu duga okkur bezt, nú
sem fyrr.
Öryggi íslenzku þjóðarinn-
ar og málefni, sem að því
lúta, spanna yfir miklu víð-
tækara svið en landhelgis-
málið. Við gerðumst aðilar
að Atlantshafsbandalaginu
vegna þess, að reynslan
sýndi okkur í heimsstyrjöld-
inni síðari, að hlutleysi er
engin vörn, vegna þess, að
okkur, ekki síður en öðrum
þjóðum í okkar heimshluta
er hætta búin af miklu her-
veldi í austri, og vegna þess,
að við vildum eiga þátt í því
að varðveita þær lýðræðis-
legu hugsjónir, sem vestræn-
ar þjóðir byggja á. Auðvit-
að eru okkur það mikil von-
brigði, að ein þessara þjóða
skuli aftur og aftur beita
okkur ofbeldi. En um þessar
mundir er einmitt að koma í
ljós, að aðild okkar að Atlants
hafsbandalaginu er okkar
mesti styrkur í baráttunni
gegn ofbeldi Breta. Það er
aðild okkar að Atlantshafs-
bandalaginu öðru fremur,
sem hefur valdið því, að aðr-
ar þjóðir hafa þungar áhyggj-
garð. Og það hefur glögglega
komið í ljós síðustu daga, að
hjá Atlantshafsbandalaginu
eru meiri líkur á, að á rödd
okkar sé hlustað vegna ofbeld
is Breta en í öðrum alþjóða-
samtökum. Þeir, sem krefjast
úrsagnar íslands úr Atlants-
hafsbandalaginu vegna síð-
ustu atburða 1 landhelgisdeil-
unni, ættu fremur að setja
fram kröfu um að Bretar
yrðu reknir úr því fyrir að
fótum troða þær hugsjónir,
sem Atlantshafsbandalagið
byggir á. Þeir hinir sömu
ættu samkvæmt þeirra eigin
röksemdafærslu einnig að
krefjast þess, að ísland segi
sig úr samtökum hinna Sam-
einuðu þjóða vegna þess, að
ein í þeirra hópi hefur beitt
ísland ofbeldi. Og með sömu
röksemdafærslu hljóta þeir
einnig að krefjast úrsagnar
íslands úr öðrum þeim al-
þjóðasamtökum, sem ísland
og Bretland eiga sameigin-
lega aðild að.
Allir sjá, að slíkar aðgerðir
væru fáránlegar. Það er jafn
fráleitt, að við hverfum
úr Atlantshafsbandalaginu
vegna ofbeldis Breta og
ef við segðum okkur úr Sam-
einuðu þjóðunum. En kannski
er það æðsta ósk þeirra, sem
þannig tala, að ísland ein-
angrist gersamlega. A. m. k.
væri eftirleikurinn hægari
fyrir stórveldið í austri sem
nú eins og oft áður hefur her-
skipaflota á hafinu við ís-
land, enda þótt sá floti eigi
hingað ekkert erindi. Að
þessu ættu þeir að huga, sem
láta glepjast til þess að
hlaupa eftir áróðri kommún-
ista um úrsögn úr varnar-
bandalagi frjálsra þjóða.
Orðsendingin til
öryggisráðsins
1 DAG afhenti dr. Gunnar G.
Schram, varaíastafuUtrúi Islands
hjá Sameinuðu þjóðunum, for-
seta öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna svohljóðandi orðsend-
ingu:
Samkvæmt fyrirmælum ríkis-
stjóm-ar minnar, leyfi ég mér að
vekja athygli yðar á alvarlegum
árásaraðgerðum, sem Bretland
hefur haft í frammi gegn landi
mínu, Islandi.
Hinn 19. maí s.l. stefndi ríkis-
stjóm Bretlands þremur her-
skipum inn í fiskveiðilögsögu
Islands, greimilega í þeim tilgangi
að aðstoða og hvetja brezka tog-
ara til að veiða þar í blóra við
íslenzk lög og reglugerðir. Her-
skipin hafa síðan verið innan lög
sögunnar og ólöglega hindrað Is-
land við framkvæmd reglugerða
varðandi verndun og eftirlit með
veiðum á svæðum undan strönd-
um þess. Við þessar ólögmætu
aðgerðir hafa brezku herskipin
notið aðstoðar herflugvéla,
þyrlna og fimm skipa á vegum
brezku stjómarinnar.
Ríkisstjórn fslands álítur þessa
innrás brezkra herskipa inn á
svæði íslenzkrar fisikveiðilögsögu
vera fjandsamlega aðgerð og ský
lausa skerðingu á fullveldisrétt-
indum ísfemds og brot á sáttmála
Sameimuðu þjóðanna.
Hér er um að ræða hernaðár-
cdfeeldi og þar með árás gegn
lýðveldinu íslandi skv. skilgrein-
ingu 39. greinar sáttmálans og
þar af leiðandi friðarrof í þess-
um hluta heimsins.
Með því að beita sjóher innan
íslenzkrar lögsögu er Bretland
að beita valdi i þvi skyni að kúga
rikisstjórn Íslands og hir.dra is-
lenzku þjóðina í að neyta rétt-
inda sinna yfir sjávarauðlindum
innan fiskveiðibeltisins, sem um-
lykur landið. Þessi kúgun geng-
ur greinilega í berhögg við álykt
anir allsherjarþingsins nr. 1803
(XVII) og 2625 (XXV). Hún er
einnig skýlaust brot á ákvæðum
ályktunar allsherjarþingsins nr.
3016 (XXVII), þar sem tekið er
fram, að aðgerðir ríkja, sem ætl
aðar eru 111 að þvinga önnur
ríki, sem vinna að þvi að neyta
yfirráðaréttar sína yfir náttúru-
auðæfum sínum, bæði á landi og
í hafimu undan ströndum sínum,
eru brot á sáttmálamum. Hér hef
ur verið sýnt fram á, að grund-
völlur er fyrir aðgerðum af hálfu
öryggisráðs Sameinuðu þjóð.
anna.
Ég leyfi mér, herra fonseti, að
beina athyglli yðar að eftirfar-
andi staðreyndum, sem eru mik
ilvægar 1 máli þessu.
Hinn 1. september 1972 var
fiskveiðilögsaga íslands stækkuð
úr 12 mílium í 50. Þessá .kvörð-
un var byggð á þeirri kunnu
staðreynd, að fiskveiðar undan
ströndum fslands eru algert skil-
yrðd tilveru íslenzku þjóðarinnar.
Ekkert annað sjálfstætt riki er
eims háð fiskveiðum og ísland.
Þetta má greinilega marka af
þeirri staðreynd, að 80% af út-
flutningsverðmætum landsins
byggjast á fiskveiðum, sem eru
eini verulegi atvinnuvegur lands
ins og að kalila má eina náttúru-
auðlimdin, sem ísienzka þjóðin
hefur tök á að hagnýta. Eftirldt
og skipulag á þessum mikilvæga
þætti efnahagslífs landsins er
því lífsnauðsyn fyrdr íslenzku
þjóðina.
í ljósi þessa verður að skoða
þá ákvörðun að færa fiskveiði-
lögsögu íslands út í 50 milur.
Hér er um að ræða lögmætar til
raunir lands tii að ná stjórn á
eimu auðlindum sínum, í fullu
samræmi við meginreglur, sem
lýst hefur verið yfir í fjölda á-
lyktana allsherjarþingsins, svo
sem vitnað hefur verið í hér að
framan. Staðreynd er, að 32 full
valda ríki hafa nú lýst yfir lög-
sögu og eftirliti yfir fiskveiðum
undan ströndum sínum út fyrir
12 mílur, og framkvæma slikar
regiur án afskipta eða ofbeldis
af hálfu anmarra ríkja.
Ríkisstjórn Bretlamds hefur
mótmælt 50 mílna fiskveiðilög-
sögu Islands og skotið málinu til
Aiþjóðadómstólsins á grundvelld
orðsendingaskipta miMi rdkis-
stjórna ísiands og Bretlands ár-
ið 1961.
Samkomulag það, sem byggð-
ist á orðsendingaskiptum þess-
um, var lýst ógilt með einróma
ályktun Alþingis Islendinga hinn
15. febrúar 1972, þar sem það
hafði þjónað tilgangi sínum, enda
vr.r það á sinum tima gert við
þær aðstæður, að brezk herskip
voru á íslandsmiðum.
Þessi ákvörðun var tilkynnt
brezku ríkisstjóminni meira en
sex mánuðum fyrir útgáfu hdnn-
ar nýju fiskveiðilögsögu hinn 1.
september 1972, en áður hafði
verdð tilkynnt um fyrirætlun
þessa hinn 31. ágúst 1971. Þar
af leiðandi er ísland ekki lengur
bundið af hinum tálmandi ákvæð
um samkomulagsdns við Bretland
frá árinu 1961.
Ennfremur vid ég beina athygli
yðar að þeirri staðreynd, að
samningsumleitamir voru vel á
veg komnar milli rikisstjórnar Is
lands og ríkisistjórnar Bretlands
um heimiid fyrir Breta til veiða
innan hinnar nýju 50 mílna lög-
sögu, er ákvörðun var tekin um
að senda brezku herskipin á vett
vang.
Ríkisstjóm íslands harmar
mjög þá stað: eynd, að rikisstjóm
Bretlands ákvað að grípa tii vopn
aðrar Ihlutunar, í stað þess að
reyna frekar með samkomulags
umleitunum að leysa máldð á
friðsamlegan hátt.
Ríkisstjórn mín hefur ávallt
verið og er enn fús tiil að ná
friðsamlegri lausn í máld þessu
með samningaviðræðum miili
æðstu manna beggja rikja.
Að lokum áskilur ríkisstjóm
Islands sér rétt fdi að skjóta
hinni vopnuðu innrás brezkra
herskipa inn í íslenzka fiskveiði-
lögsögu síðar formlega fyrir ör-
yggisráðið í því markmiði að ör-
yggisráðið beiti viðeigandi að-
gerðum í málinu.
Þess er hér með óskað, að
bréfi þessu verðd dreift sem op
inberu skjali öryggisráðsiins.
Reykjavík, 29. maí 1973.