Morgunblaðið - 30.05.1973, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAl 1973
31
Gróska í skíðastarfi
Ármanns
— um 5000 vinnustundir í sjálf boða-
liðavinnu á Bláf jallasvæðinu
Innanfélagsmót Skíðadeildar
Árnianns fór fram á skíðasvæði
félagsins í Bláfjöllum 1. og 13.
maí s.l. og lauk þar með keppnis
tímabili þessa árs. Segir í frétt
frá skíðadeild Ármanns að tima
bilið hafi verið eitt hið árangurs
ríkasta i sögu félagsins. I innan
héraðsmótum hafi unglingar úr
keppnisliði félagsins aukið verð-
launahlutfail sitt iir 30% í fyrra
í um 70% í ár og fuUorðnir hafi
bætt sinn hlut úr um 60% i
fyrra i um 80% í ár, auk þess
sem þeir hafi unnið tvær
sveitakeppnir með miklum yfir
burðiun. Sé þessi árangur félags
ins sannarlega hvatning til þess
að slaka hvergi á og halda
áfram á sömu braut, en hinum
Reykjavikurfélögunum jafn-
framt viðvörun um það, að bet-
ur má ef duga skai á næsta
keppnistímabili.
1 frétt skíðadeildari'rmar seg-
ir að þjálfari félagsins í vetur
hafi verið James Major, ungur
Baindaríkjamaður, sem kom hitng
að til landsins skömmu eftir ára
mótin, gagngert í þeim til'gangi
að þjálfa ÁrmannsUðið. Hafi
hann unnið mikið og gott starf,
sérstaklega- að því er snertir
þjálfun unglinganna og standi
féliagið í mikilli þakkarskuld
við hann.
Skíðaæfingar hafi verið nokk
uð reglulegar, aðeins truflaðar
af veðri stöku sinnum siðan í
nóvembermánuði. Fyrst hafi
þær verið haldnar þrisvar 1
viku. Auk skíðaæfinigajnna hafi
verið þrekæfiingar tvi.svar í
viku.
Siðan segir í frétt Ármenn-
inganna:
„Ármenningar eru mjög á-
nægðir með þá aðstöðu, sem skap
azt hefur i Bláfjöllúm. Þeir hafa
unnið miikið starf við lagfær-
ingu á skíðasvæði sinu þar,
byggt l'ítinn skála, sem reynzt
hefur ómetanleg aðstaða fyrir
framkvæmd skíðamóta í vetur,
komið upp þremur skýlum fyrir
keppendur og starfslið, iagt
simakerfi um svæðið tiil þess að
auðvelda framkvæmd móta og
rekstur fjögurra skíðalyftna,
sem að vísu eru nokkuð frum-
býlingslegar, en standa þó fylli-
lega fyrir sínu. Á sumri kom-
anda verður unnið að frekari
endurbótum á aðstöðu félagsins
og e.t.v. verður ráðizt í bygg-
ingu varanlegri og afkastameiri
skíðailyfltna, en þar standa ein-
virkt styrkjakerfi og óaðgengi-
leg lánskjör mjög í veginum.
Ármenningar vona þó, að úr
muni rætast í þeim efmium og
eru fúsir tiil þess að leggja hart
að sér við að hrinda þessu
áhugamáli sinu í framkvæmd.
Þess má geta að Ármenningar
hafa þegar lagt fram yflir 5000
vinnustundir I sjálfboðavinnu
við það að koma upp núverandi
aðstöðu sinni i Bláfjölium."
Þátttakendur í innamfélags-
mótinu voru allis 60, þar af 15
fullorðnir og 45 unglingar.
Brautir fullorð'nna voru 40 hlið
með 240 metra flallhæð í stórsvig
inu og 36 hliið með 110 metra
falihæð I sviginu. Voru farnar
tvær umferðir í báðum greinum.
Brautir ungliniga 11 ára og eldri
voru 33 hlið með 180 metra fall-
hæð í stórsvi'ginu og 33 hlið
með 110 metra faillhæð í svigiinu.
Brautir barna 10 ára og yngri
voru 25 hlið með 130 metra fal'l
hæð í stórsvigiinu og 25 hlið með
90 metra fallhæð í sviiginu. Ungl
ingar og böm fóru eina umferð
í stórsvigi en tvær i sviiginu.
Helztu úrsMt urðu þessi :
STÓRSVIG
Kvennaflokkur sek.
Áslaug Sigurðardóttir, 164,4
Hrafnhildur Helgadóttir 179,4
Karlaflokkur
James Major 134,8
Guðjón Ingi Sverrisson 135,7
Arnór Guðbjartssom 142,7
Stúlkur 13—15 ára
Guðrún Harðardóttir 69,0
Guðbjörg Árnadóttir 70,0
Drengir 15—16 ára
Stefán Sæmundsson 62,9
Sigurbjami Þórmuindsson 64,9
Kjartan Bjargmunidsson 78,6
Drengir 13—14 ára
Björn Ingólfsson 60,1
Helgi Óskarsson 65,6
Öm Sæmundsson 68,5
Stúlkur 11—12 ára
Steinunn Sæmundsdóttir 61,1
Berglind Friðþjófsdóttir 79,9
Drengir 11—12 ára
Jónas Ólafsson 63,9
Kristinn Siigurðsson 65,3
Árni Þór Ámason 66,4
Stúlkur 10 ára og yngri
Ása Hrönn Sæmundsdóttir 49,8
Þórunn Egilsdóttlr 54,8
Auður Pétursdóttir 55,2
Drengir 10 ára og yngri
Rikhard Sigurðsson 45,8
Sigurvegarar í flokki fullorðinna á Ármannsmótinu: Guðjón Ingi
Sverrisson, Áslaug Sigurðardóttir og James Major.
Kormákur Geirharðsson 52,0
Guðmundur Inigason 58,3
SVIG
Kvennaflokkur sek.
Áslaug Sigurðardóttir 81,3
Hrafnhildur Helgadóttir 84,0
Karlaflokkur
Guðjón Ingi Sverrissom 70,0
Arnór Guðbjartsson 70,3
Þorsteinn Geirharðssom 73,3
Stúlkur 13—15 ára
Guðbjörg Árnadóttir 87,7
Guðrún Harðardóttir 88,5
Drengir 15—16 ára
Stefán Sæmumdsson 76,2
Sigurbjarni Þórmundsisan 104,4
Drengir 13—14 ára
Bjöm Ingólfsson 73,2
Hilmar Gunnarsson 74,0
Heigi Óskarssom 77,4
Stúlkur 11—12 ára
Steimunn Sæm undsdótttr 85,8
Berglind Friðþjófsdóttir 92,7
Drengir 11—12 ára
Krstinn Sigurðssom 75,2
Helgi Geirharðsson 77,0
Lárus Guðmundssom 79,7
Stúlkur 10 ára og yngri
Ása Hrönn Sæmundsdóttir 65,0
Auður Pétursdóttiir 72,5
Þórunn Egilsdóttir 73,1
Drengir 10 ára og yngri
Ríkhard Sigurðsisom 62,5
Eimar Úlfsson 71,0
Guðmundur Imgason 76,1
1 Alpatvíkeppni urðu eftir-
taldir sigurvegarar: Ásiaug Sig
urðardóttir, Guðjón Ingi Sverr-
isson, Guðrúm Harðardóttir,
Stefán Sæmundsson, Björn Ing-
ólfsson, Steinunn Sæmumdsdótt-
ir, Krrstinn Sfgurðsson, Ása
Hrönm Sæmumdsdóttir og Rik-
hard Sigurðsson. AM'iir Ármamms
meistararnir fá bikar tii eigm-
ar sem verziunim Sportval,
Laugavegi 116, gaf ti'l keppnimn
ar.
Sænskt met
SÆNSKI lyftingiamaðurimm
Hasse Bettembourg setti nýlega
sænsfct met 1 lyftimgum létt-
þungavigtajr er hamm lyfti sam-
tails 342,5 kg (150,0 — 192,5).
Bettembourg kvaðst þó ekki hafa
verið ánægður með þennan ár-
amgu-r — hann hefði astlað sér
að lyfta 155,0 — 197,5 kg. Hann
sagðist enmfremur ætla að taka
sér frí úr virnmu frá og með
næstu mánaðamótum og eiinr
beita sér að undirbúningi Evrópu
meiistaramótsins sem fram fer í
Madrid í júní.
— Luns
Framh. af bls. 32
tilkynna framkvæmdastjóra
NATO og NATO-ráðinu eftirfar
andi:
Um leið og harðlega er mót-
mælt hernaðaríhlutun brezka
flotans innan íslenzkrar fisk-
veiðilögsögu, sem brýtur í bága
við 1. grein Norður-Atlamtshafs-
samningsins, er þess krafizt, að
NATO-ráðið hlutist til um, að
brezk herskip hætti án tafar að
vernda ólöglegar veiðar brezkra
togara innan fiskveiðilögsögu Is
lands og verði þaðan á brott þeg
ar i stað.
Jafnframt skal tekið fram, að
felendimgar líta á útfærslu fisk-
veiðiilögsögunmar sem islenzkt
innanríkismál og er sú ákvörð-
un eigi til umræðu og frá henni
verður ekki hvikað, enda hafa
yfir 30 ríki fært út fiskveiðilög-
sögu, og sum mi'kiu meira en Is
land án þess að fil nokkurra
hernaðaraðgerða gagnvart þeim
hafi komið. Hins vegar hafa ís-
lendingar verið reiðubúnir til að
veita Bretum tilteknar tlma-
bundnar undanþágur til fiskveiða
imnan hinnar nýju fiskveið'ilög-
sögu. Hafa viðræður um það stað
ið yfir og var eigi slitið, er Bret-
ar sendu herskip á íslandsmið,
en þeim verður auðvitað ekki
haldið áfram á meðan brezkur
herskipafloti er við Island.
Reykjavík, 29. maí 1973.
Samkvæmit fréttuim AP lagði
Tómas Tómasison sendiherra
áherzlu á að íglendingar mumdu
eklki hefja samningaviðræður
við Breta á ný m-eðan herskip-
in brezku væru inman þeirra
marka sem íslendingar teldu
sitt yfirráðasvæði. Eftir fund-
inm lét Tómas svo ummælt við
fréttamerm, að sögn AP að
hanrn vildi gjarrtan vera bjart-
sýnm. „Við trúum á umrapður
innan NATO uim málið og þar
er visisulega fyrir hendi vilji til
að finna á þvi lausn“, sagði
Tómas samikvæimt AP flréttum.
YFIRLÝSING NATO RÁÐSINS
Að lokmiuim fumdi NATO-ráðs-
ins var birt yfiriýsing, þar sem
sagði, að furndur haldinn undir
forsæti framkvæmdastjóra At-
lantshafsibandalagsins hefði tek-
ið við tilkynningu sendiherra
íslands, sem hann hefði birfc
ráðinu að boð ríksstjórnar sinm-
ar. Eftir umræður hefði ráðið.
mælzf til þess við báða hlut-.
aðeiigandi aðila að yfirstamdandi
fiskveiðideilu að sýna einsi
mikla varkámi og ummt væri og
gera allar þær ráðstafamir sem
stuðiað gætu að lausn deilunm-
ar með samnin.gum. Þar sagði
og, að ráðið mundi fjalla frek-
ar um málið á naastu dögum.
Þar til færi ráðið þess á leit
við framkvæmdastjórann að
halda nánu sambandi við alla
hlutaðeigandi aðila til þess að
flýta fyrir skjótri og vinsamilegri
lausn.
Morgunblaðinu tókst ekki að
ná sambandi við Josep Lums
framkvæmdastjóra NATO, endá
sagði blaðafulltrúi bamdalagsims,
De Vries, að hanrn hefðl ákveðið
að ræða ekki fiskveiðideilu Breta
og Islendinga við fréttamenm að
svo stöddu.
De Vries kvaðst gera ráð fyr-
ir þvi að Luns hæfi þegar við-
ræður við sendi’herrana hjá
NATO og að hanm hefði sam-
baind við ríkisstjórn'ir beggja að-
ila næstu daga. Næsta skrefið
gæti orðið að hanm færi til við-
ræðna til beggja landanna, þó
sér vi'tanlega hefðu ekki verið
gerðar neinar áætlamir í því sam
bandi. Alila vega sagði De Vries,
að framkvæmdastjórímm mumdi
legggja alla áherzlu á að finma
leiðir til að koma aftur á samm-
imgaviðræðum milli Islendimga og
Brefca.
Aðspurður hvort Bretar gætu
beitt sór gegn afskiptum NATO
svaraði hamn að ráðið gæti ekki
gefið neinu aðildarríkjanma fyr-
irskipanir, það gæti einiumgis bor
ið fram málaleitamir við aðíldar-
ríkiin, reynt að tala um fyrr
þeim og fá þau til að semja um
deilur sinar og það væri nú þeg-
ar gert, með því að biðja deilu-
aðila að forðast allar ’aðgerðir,
sem gætu hert deihma.
I AP frébtum í gær var um
það talað, að Luns hefði lengi
verið reiðubúinin til að reyna að
miðla málum i fiskveiðideilunmi,
en samkvæmt upplýsingum emb-
ætti'smanna i Brússei hefði beiðni
þar um orðið að koma frá aðild-
arríkj'unum. Nú hefði NATO-ráð
ið hins vegar beðið fraimkvæmda
stjórann að stuðla að lausn þess
og jafngilti það nokkurn vegimn
beiðni þess um að hamn gerðist
sábtasemjairi í deilunni.
AP benti á að fyrirhugaður
væri fundur landvaimaráðherra
NATO og ætti Islamd fulltrúa á
þeiim flumdi, þó að lamdið hefði
engan sl'íkan ráðherra. Aðispurð-
ur um það, hvort þessi flumduir
mundi fá fiskveiðideiluna ti'l með
ferðair, sagði De Vries að hann
fleldi það tæpast í verkahring
hans. 1 Kaupmannahöfln verður
siðan haldimn fundur utanrikis-
ráðherra NATO í júni og kvað
L>e Vries sennilegra, að málið
kæmi fyrir hanm. „En við skul-
um vona að þá verði það ekki
lengur nauðsynlegt, að samnimga
viðræður verði þá a. m. k. hafin-
ar að nýju,“ sagði De Vries í
samtalinu við Mbl.
— Gestrisni
Framh. af bls. 5
Óiafur Jóhannesson og fylgi-
fiskar hans láta sér annt um
þessi samtök og telja rétt að
vei'ta þeim húsaskjól til að
geta bruggað launráð gegn
„tveim helztu forystumönnum
stórveldakúgunar í heimin-
um“.
I viðtall við Finn nokkurn
Hjörleifsson í „Þjóðviljanum"
26. maí segir m.a., að „kröfu-
gangan og úbifundurinn á
fimmtudaginn eigi að verða
tjáning á þjóðarviija.“ Þeir
fulltrúar „þj óðarviljans", sem
standa fyrir nefndum úti-
fundi, eru þessir ágætu þjóð-
full'trúar vorir, Islendimgar,
og takið nú eftir: Sarrrtök her-
stöðvaandstæðinga, Æskulýðs
samband Islands (sem nýlega
lognaðist út af sem slíkt, em
tók í þess stað upp rauða fán
ann), Stúdentaráð Háskóla Is
lands (og hafa þó stúdentar
ekki verið spurðir um álit sitt
á fyrirhugaðri „gestamót-
töku“), Samband ísl. náms-
manna erlendis (helzta afrek
þess himgað tiil er útgáfa
„fræðslurits" fyrir skólabörn,
þar sem þeim er inmrættur
„skilningur“ á staðreyndum
lífsins og þau hvött «1 frjáls
kynlífs, fóstureyðinga, fikni-
efnaneyzlu og uppreisnar gegn
„kennaravaldinu"), em síðast
rekur lestina „Félag náttúru-
fræðinema".
Þessi landsfrægu samtök,
sem tvímælalaust gefa
glögga mynd af þjóðarviljan-
um, ætla að stamda fyrir
„þjóðarmóttökum“ við komu
hinna eriendu forseta, að því
er Fi'nnur þessi segir.
Meðal amnarra orða: Er
ekki kominn timi til, að heið-
arlegir íslendingar, sem láta
sér annt um heill þjóðar simn
ar og vilja viðhalda vorri góð
kunnu gestrisni við hima tignu
gesti, sem rikisstjórn landsins
hefur boðið að halda hér f undi
til lausnar ágreinimgsmálum
sínum, auk þess sem þeim
mun gefast tækifæri tii að
hlýða á málstað Islendinga í
hagsmunamáium þess, ef frið
ur fæst til, — er ekki stundin
komin fyrir hinn þögla meiri-
hluta, að hann grípi i taum-
ama og láti ekki óþvegna
kommúnista og króníska
kröfugerðarmenn komast upp
með það öliu lengur að ráð-
ast með strákapörum og kjaft
hætti í nafni Islendimga ailra
að hinum tignu gestum frá
vinarþjóðum vorum.
Bað um
hæli
Bonn, 28. maí NTB—AP.
SOVÉZKI fliigmaðurinn, sem I
gær varpaði sér í fallhlíf út úr
flugvél sinnl yfir Vestur-Þýzka-
landi, rétt áður en flugvélin hrap
aði tíl jarðar, hefur beðið um
pólitískt hæli þar í landi. Skýrðl
talsniaður stjórnarvalda í Nieder
sachen frá þessu í dag. Ekki var
greint frá nafni fhignuumsins,
það eitt sagt, að hann væri 22 ára
gamall og gæti ekki talað annað
en rússnesku. Flugvél hans féll
til jarðar á akri í grcnnd við bæ-
inn Klein-Schöppenstedt, um 25
milur fyrir innan vestur-þýzku
landamærin.