Morgunblaðið - 08.07.1973, Síða 4

Morgunblaðið - 08.07.1973, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1973 Framhald af bls. 3 húsglugganum útsýni yfir alla höfnina og til lands, með jökla- sýn, og ég held að í bili a.m.k. sé hún að guggna á að fara aft- ur. í>etta er mikil breytiing. — Nú fáum við húsnæð- ið í Kópavogi, þar sem við setj- um upp bráðabirgðaeldhús og flytjum efri skápana úr eldhús inu okkar í Eyjum þangað. I>að verður meira heimiii. Díana, sem er 16 ára gömul og lauk gagnfræðaprófi, er bú- in að fara tii Færeyja með skól- anum í vor. Búið var að safna fyrir þessari ferð og skólastjór- inn iagð: :app á að hjálpa ungl- ingunum ti! að láta af henni verða. Mynd;n er af Aða’Jheiði með döti'U'r siinn'. — E. Pá. Allt er þetta okkur lánað h vort sem er líf eða eignir FYRSTA morgun eldgossins í Eyjum hittu blaðamenn Mbl. eldri hjón úti á flugvelli, Ingólf Guðjónsson og Jóhönnu Hjartar- dóttur. Þegar við nú, meira en fjórurn mánuðum síðar, leituð- um þau uppi, fundum við þau á Kaplaskjólsvegi 55, þar sem þau búa í einu herbergi með aðgangi að eldhúsi hjá bróður Jóhönnu. Hún var ein heima, þvi Ingólfur er nýbúinn að fá vinnu í Laug- arnesskóla. — Okkur vegnar vel, sagði Jó- hanna. — Við þökkum guði fyr- iir hve vel hann hefur greitt götu okkar. Því allt er þetta í hans hendi. Við vorum fyrst i 6 vik- ur í Hveragerði, en komum svo hingað. Satt að segja var ég svo sæl, þegar við vorum búin að fá þetta litla herbergi, að ég man ekki eftir að hafa verið svona áinægð fyrr, þó ekki sé það nú stærra en þetta. — Jú, við áttum yndislegt hús, alveg hæfilegt fyrir okkur. Það stendur heilt, því það er utan í Helgafelli, sem hiifði því fyrir gosinu. Ingólfur hafði þar hænsnabú. Hann fór með ha'nsn in upp á land og slátraði þeim strax. Ég man að þegar við vor- um búin að koma upp heimili okkar, þá læddist stundum að mér spurning: — Hve lengi? Ég veit ekki af hverju. En það er með það eins og annað i þessum heimi. Það er okkur lánað og getur verið af okkur tekið á einni nóttu, hvort sem það er líf eða eignir. — Hvað við ætlum að gera? Ég veit það ekki. Persónulega held ég að ekki verði hægt að fara til Eyja næstu 2 árin, þó svo maður eigi þar heilt hús. Fyrst þarf gosið að hætta og svo þarf að byggja upp á ný. Við látum þetta bara ráðast. Hugsum eklcert um það. Ég er bára ánægð hér. Stundum erum við að segja að við munum fara aftur til Eyja, en svo segjum við hvort við annað. Látum það bara ráðast. Við höfum ákveðið að vera ekkert að veifca því fyr- ir okkur hvort við förum eða ekki. Maður veit ekkert hve fast ur maður verður orðinn hér eft- ir tvö ár. Ég held að miðaldra fóikið, sem enn á hús i Eyjum, sé ákveðið í að fara þangað. En ekki það allra yngsta og ekki það sem er orðið fullorðið. Það verður búið að koma sér fyrir og þá þarf að taka sig upp aft- ur. Svo getur það breytzt. — Nei, ég hefi ekki farið til Vestmannaeyja sáðan. En mað- urinn minn fór um síðustu helgi. Ég spurði hann hvort honum hefði ekki þótt það erfitt. Nei, sagði hann, ég var alveg klippt- ur frá því. En svo gekk hann upp á Helgafell og sá yfir öll fallegu hverfin, sem eru horfin. Og þá greip hann sérstök til- finning vegna vinanna, sem höfðu þar misst allt sitt. Á efri myndinni eru þau Ingólfur og Jóhianna nýkomin upp á Iand gosmorgunien. Sú sem er hér tii hliðar er af Jó- hön«M á nýja heimiiina. Mikil reynzla en ömurleg TVÆR ungar mæður úr Vest mannaeyjum, Helga Tómasdóttir og Ásta Þórarinisdóttir höfðu komið sér fyrir með fjögur af börnum sínum í Kefiavík, þegar við áibtum við þær tal skömmu eftir að gosið hófst í Vestmanna eyjum. Þær voru þá ákaflega ánægðar yfir að hafa fengið inni í gömlu húsi í Kefiavík, en al- veg úrvinda eftir allt umstangið við að flýja frá Eyjum, koma börnum fyrlir og ná dótinu sínu og flytja það til Keflavik ur — þar sem þær voru nú að setjast að. En það hafði aldei'lis orðið breyting á og hagur þeirra versn- að skömmu seinna. Það fréttum víð, þegar við hittum þær báðar í Vestmannaeyjum, þar sem þær h'afa starfað á Hótel HB í nær fimm mánuði. Þær höfðu ekki verið nema nokkra daga í hús- næðinu i Keflávik, þegár eigtmd- inn seldi húsið — og þær voru aftur á götunni. Tvö af börnum Ástu voru hjá pabba sinum í Noregi og hafa verið þar í skóla i vetur og eitt barnið hjá æbtingj um hennar á Patreksifirði — en nú urðu þær Helga og Ásta að senda þau fjögur, sem þær höfðu hjá sér í sveit, þar sem þau verða fram á næsta haust. Börn Ástu voru einmiitt að koma frá Noregi, er við töluðum við Heigu og verða einnig i sveit í surnar. 1 haust þurfa þær þvi að vera búnar að koma sér fyrir með börnin sjö, sem þá koma öll, og sum þurfa að ganga í skóla. Þær hafa ekkert húsnæði fengið enn og HeQiga segir að það þýddi lítið að leita fyrir sér. En þær hafa báðar sótt um hús hjá Viðlaga- sjóði á Reykjavíkursvæðinu. Á meðan hafa þær unnið við mats- eld og framreiðslu fyrir starf- andi fólk í Eyjum, því að þær þurftu auðvitað að afia sér góðra tekna. Hús þeirra beggja i Eyjum eru horfin, en Helga segir að þæir hafi í hyggju að reyna að setj- ast að aftur I Vestmiannaeyjum, þegar hægt sé að búa þar aftur með börn. Fyrst og fremst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.