Morgunblaðið - 08.07.1973, Blaðsíða 32
OG ÞÁ
VAR
ÞVÍ
LOKS
LOKIÐ
EFRI myndin er tekin aí
kvöldi 3. júli þegar opinber-
lega var tilkynnt, ef svo mætti
að orði komast, að gosinu i
Vestmannaeyjum væri lokið.
J»á gerðu menn margt sér til
gamans og skutu flugeldum
móti eldfjallinu og kveiktu á
blysum. Á myndinni eru fá-
eínir af þeim Eyjaskeggjum,
sem komu saman umrætt
kvöld til þess að láta í Ijós
gleði sína. Blikið í augum
stúlkimnar með blysið spegl-
ar þær vonir Vestmannaey-
inga, sem nú virðast vera að
rætast. Heimaey er aftur að
verða byggileg.
Neðri myndin, sem okkur
finnst lika hæfa að birta í
þessu blaði, var tekin í Eyj-
um á sjómannadaginn. Mynd-
in gefur góða hugmynd um
þau verkefni, sem enn blasa
við Vestmannaeyingum, auk
þess sem varla hæfði að láta
minnismerki sjómannsins
vanta í þetta Eyjablað.
Sigurgeir í Eyjum tók báð-
ar þessar myndir og auk þess
nær allar myndir hér í blað-
inu frá Vestmannaeyjum. Að
merkja hværja mynd fyrir sig
í öllum þessum grúa þótti
hins vegar ekki vinnandi veg
ur.
Þó er þess að geta, að af
myndunum á forsíðunni á Sig
urgeir allar nema eina: þá af
eldf jallinu að óskapast um nið
dimma nótt. Valdís tók hana.
Hin dökka myndin á forsíð-
unni sýnir hv'ernig fólk mátti
horfa á húsin sín hverfa. J>á
eru andstæðumar á ljósu
myndunum. Önnur sýnir
hvernig börnin em aftur byrj
uð að hoppa um Heimaey, hin
er af því sem allir mega enn
þá hafa í Eyjum — húsþrif-
tinum.