Morgunblaðið - 03.11.1973, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1973
11
Freysteinn Þorbergsson:
Fjarvera Fischers
og fjármálin
ARÁS
I dagblaðinu Tfminn í gær, 30.
október, birtist greinarstúfur
eftir Kristján B. Þórarinsson
undir nafninu „Ödrengileg
skrif“. Má segja að réttnefni sé, ef
þessu er snúið upp á höfund sjálf-
an, a.m.k. að því er varðar árás
hans á undirritaðan. Greinarhöf-
undur segir svo orðrétt: Ennþá er
mönnum í fersku minni, þegar
Mbl. lausréð Freystein Þorbergs-
son sem blaðamann til að sverta
Guðmund G. Þórarinsson, þar
sem of mikill ljómi þótti stafa af
frammistöðu þessa borgarfulltrúa
Ff'amsóknarflokksins við heims-
meistaraeinvígið í skák í fyrra-
sumar. Ekkert var til sparað, og
fór Freysteinn margar ferðir til
Bandaríkjanna i þeim erinda-
gjörðum „á eigin kostnað". Oftók
Freysteinn sig þó svo á níðskrif-
unum, að almenningur leit á þau
sem óráðshjal, enda urðu þau
Freysteini einum til minnkunar.
Tilvitnun endar. Sökum þessarar
fólskulegu og ómaklegu árásar á
undirritaðan af einum af
bræðrum og Iofsöngvurum Guð-
mundar G. Þórarinssonar, tel ég
mig knúinn til andsvara.
Fyrst er þá fram að telja, að
þótt ég á sínum tíma teldi mig
knúinn til að rita ýmsar greinar í
þeim tilagangi að knýja fram ein-
vxgið á Islandi, þegar aðrir höfðu
gefist upp við hugmyndina, til að
uppfræða almenning um sann-
leikann í einvígismálum, að ekk-
ert orð í öllum skrifum mínum
um málið til þessa dags hefir
verið hrakið.
ÁSKORANDA VANTAR
Rétt er að vísu, að á aðalfundi
Skáksambands Islands 1972, þar
sem ég var fjarstaddur og gat
ekki varið mál mitt, lét meirihluti
fundarmanna ekki hjá líða að
taka nafn mitt inn í málsgrein,
þar sem stjórn Skáksambands Is-
lands voru þökkuð störf þess að
einvígismálinu. Þetta var vita-
skuld skiljanleg ráðstöfun, þar
sem kunnugt er, að ég var feng-
inn til að semja einvígistilboð Is-
lands, afla upplýsinga erlendis
frá um nauðsynlegt verðlaunatil-
boð, láta vélrita tilboð Islands,
innsigla það og fara með það til
Amsterdam, satmikilvæga fundi f
Amserdam, New York og síðar
xirslitafund F.I.D.E. í Reykjavík,
sem skar úr um hvort ísland fengi
frest á einvíginu meðan ég sótti
Fischer til Bandaríkjannna,
þegar Guðmundur G. hafði enn
endanlega klúðrað málinu.
Eins og fram mun koma í bók
minni „Áskoranda vantar" sem
koma mun út á íslandi hátíðaárið
1974, voru úrslitaorð dr. Euwe á
nefndum fundi alþjóðaskáksam-
bandsins þessi, þegar örlög ein-
vígisins voru ráðin hinn 2. júlí
1972. „Jæja herramenn, höfum
við þá ekki, með því að samþykkja
sendiferð þessa manns, einnig
samþykkt frestun einvígisins?
Eini gallinn á nefndri sam-
þykkt á aðalfundi Skáksambands
Islands var, að orðin um mig voru
ekki þakkarorð sem vera bar,
heldur niðrandi orð. Þessu svar-
aði ég m.a. í grein sem nefndist
Sauðargæra. Þar líkti ég starfsað-
ferðum Guðmundar G. Þórarins-
sonar í einvfgismálinu við aðgerð-
ir Úlfs irndir sauðagæru og með-
stjórnendum hans við saklaus
lömb, þar er eð þeir fengu aðeins
stundum að vita sannleik mála.
Nú er komið á daginn, að ég hafði
rétt fyrir mér í tvennum
skilningi.
LÖMB
I fyrsta lagi var meirihluti
stjórnar Skáksambands Islands á
einvigistfmanum leiddur til slátr-
unar sem saklaus lömb á næsta
aðalfundi eftir einvígið á dular-
fullan og ódrengilegan hátt. Og
það sá hlutinn, sem betur hafði
unnið að margra mati. Þetta olli
miklu uppistandi á fundinum og
leiddi til ævareiði þeirra, sem of
seint skildu, að þeir höfðu óafvit-
andi verið hafðir að peðum í ref-
skák á bak við tjöldin. Refskák,
sem leiddi til þess, að Guðmundur
G. gat að mestu óhindraður farið
áfram með fjármál einvígisins,
sem fram kom á fundinum að
hann hafði þá undir höndum. Hin
sönnunin um að meðstjórnendur
Guðmundar G. í skáksambands-
stjórninni voru eins konar lömb í
nálægð úlfs eru orð þeirra sjálfra.
Eitt sinn drukku sumir þessara
skáksambandsmanna kaffi í
Hveragerði. Sétti þá að þeim mik-
inn hlátur á eftir, er þeir urðu
þess varir, að þeir höfðu setið í
svokölluðu Lambhúsi. Þetta var
eftir þann tíma, er þeir fóru að
sjá í gegnum starfsaðferðir Guð-
mundar og nú er þeim ekki hlátur
f hug, þegar þeir játa að hafa
langtímum saman verið blekktir
sem lömb. Hér er um að ræða
sömu menn, sem ásamt Bárði Jó-
hannessyni má segja að hafi í
raun bjargað fjármálum einvígis-
ins., þar sem allir fjórir milljóna-
samningar Guðmundar G. við
bandaríska aðila hafa farið I
vaskinn. Sjá sfðar. Af ofanskráðu
er ljóst, að svonefndar vítur á
undirritaðan eru nú orðnar mark-
leysa ein, enda stöfuðu þær upp-
haflega af röngum upplýsingum.
LOKASVAR
Kristján B. Þórarinsson skrifar
um að ég hafi verið lausráðinn
hjá Morgunblaðinu til að skrifa
m'ð um bróður hans. Hið sanna er
þetta:
1. Ég skrifaði ekki níð heldur
sannleika.
2. Ég var ekki lausráðinn hjá
nefndum aðila eða beðinn um
neina af greinum mínum að því
undanskildu, að ég var beðinn af
blaðinu að hringja til Fischers,
þegar hann lokaði sig inni í Gross-
ingers og skellti á íslenska blaða-
menn sem aðra.
3. Enga af greinum mínum í
Morgunblaðinu um einvígið á
þeim tíma sem Kristján mun eiga
við fékk ég greidda svo ég muni.
Einvfgið var mér hjartans mál,
sem fram mun koma i bók minni.
Ég fórnaði f björgun þess miklum
tfma og fé. Og Morgunblaðið
greiddi ekki eyri i sambandi við
neina af Bandaríkjaferðum mín-
um.
Læt ég þar með svari mínu til
Kristjáns B. Þórarinssonar lokið,
en skrif hans gefa tilefni til nokk-
urs framhalds. Einkum eru það
orðin „lausréð" og „ljómi" sem
stinga f augu. Það skyldi þó aldrei
vera, að orðið lausréð eigi betur
við í öðru samhengi þessa máls.
A þeim tima, sem Guðmundi G.
mun hafa fundist stafa fullmikill
ljómi af nafni mínu í einvígismál-
inu, m.a. af því, að mörgum hefir
verið ljóst frá upphafi, að ég en
ekki hann var potturinn og pann-
an í að fá hingað einvígið, þá
ritaði einn vina hans árásargrein
á mig. Maður sá var Guðmundur
Einarsson, formaður Sálarrann-
sóknarfélags Islands.
HANDLANGARAR
Eftir upphaf einvígisins bauð
sami Guðmundur Einarsson til
mikillar veizlu, heima hjá sér.
Boðnir voru keppendur, aðstoðar-
menn og fjöldi fólks sem var hér í
sambandi við heimsmeistaraein-
vígið. Þótt keppendur mættu
ekki, fór veizlan að sögn allvel
fram, enda dýrar veigar á boðstól-
um. Sumir skáksambandsmanna
mættu þó ekki í mótmælaskyni,
þar sem þau fáheyrðu tíðindi
gerðust, að Guðmundur G. fékk
þvf framgengt, að veizla þessi á
nafni prfvatmanns var að miklu
leyti kostuð af Skáksambandi Is-
lands!
Þá er það alkunna meðal skák-
manna, að einn af albræðrum
Guðmundar G. sem hafa mun
milljónatekjur af einvíginu vegna
sérréttinda sem hann fékk hjá
Skáksambandi Islands og af
ýmsum öðrum ástæðum hefir
ritað heiftarlégt níð um undirrit-
aðan í málgagni sinu Skákritinu. I
Einvígisriti hans, var þess hins
vegar gætt, að minnast aldrei á
þann Islending, sem framar
öðrum bjargaði einvfginu í höfn.
Loks er það svo ljómi Guð-
mundar sjálfs: Að margra dómi
gildir sá ljómi einn í svona mál-
um, sem eftir verður, þegar öll
gögn málsins eru komin fram. Og
þá framar öðru allar einvígisbæk-
urnar sem út koma á íslenzku að
ógleymdri hinni einu opinberu
bók Skáksambands Islands um
einvígishaldið, sem út kom, þótt
hún væri prentuð á ensku. Mun
ég siðar rita um bókina „Heims-
meistaraeinvígið f réttu ljósi",
sem að mínu viti ber algert rang-
nefni og var jafnvel gagnrýnd
harkalega af Skáksambandi Is-
lands, þrátt fyrir hatramma mót-
stöðu Guðmundar G. Hér verður
hins vegar nokkuð rætt um opin-
beru islensku einvigisbókina sem
út kom í New York eftir einvígið
og telja verður á ábyrgð forseta
Skáksambands Islands, þar sem
hann samdi einn um útgáfu
hennar og bókin ber yfirtitilinn:
Icelandic chess federation official
commenotative program þ.e.
Opinbert minningarrit Skáksam-
bands íslands.
SLÚÐURBÖKIN
Þegar ljóst varð á tímum einvig-
isins, að ýmsar fjármálahug-
myndir Guðmundar G. höfðu
farið í vaskinn, lét hann itrekað
hafa eftir sér í fjölmiðlum, að
sterkar líkur væru á, að bók sú,
sem hann hugðist gefa út í Banda-
ríkjunum á vegum Skáksambands
Islands myndi skila drjúgum
hagnaði, sem riðið gæti bagga-
muninn um fjárhagsafkomu ein-
vigisins. Bókin, sem gefin var út í
125.000 eintökum hafði inni að
halda langa níðgrein um Ro'bert
Fischer, en það sem vakti mesta
reiði Henry Kissingers og ann-
arra ráðamanna vestra og átti þátt
i að orsaka mótmælaskrif, m.a. til
forsætisráðherra Islands voru
ummæli tengd prestinum Willam
■Lombardy, sem er hinn mesti
heiðursmaður.
I þessu riti Guðmundar, sem
eftir orðanna hljóðan á forsíðu
ætti að vera minningarit um ein-
vígið í hundrað ár og auðvitað
helst gott sýnishorn af verkum
hinnar miklu bókaþjóðar Islend-
inga, er ritað sérstaklega um sal-
ernisferðir Lombardys og berum
orðum gefið í skyn, að Lombardy
hafi staðið í að útvega smástúlkur
fyrir Fischer.
Um fjármál bókarinnar: Guð-
mundur G. lét Skáksamband Is-
lands leggja út 15.000 dollara, eða
um 1,3 milljónir króna vegna út-
gáfu bókarinnar. Samkvæmt orð-
ræðum hans í fjölmiðlum áður,
hefði fé þetta átt að vera komið
tvöfalt eða þrefalt til baka. Þrátt
fyrir fjölmargar ólíkar yfirlýs-
ingar Guðmundar á ýmsum
tímum, er enn í dag enginn eyrir
kominn inn til Skáksambandsins
af þessu útlagða fé, hvað þá
heldur ágóði. Margir deila því
áliti ýmissa er til þekkja, að út-
lagður kostnaður af nefndri bók,
muni aldrei fást allur inn, ef þá
nokkuð kemur, þrátt fyrir að svo
virðist, sem óhróður þessi hafi
selst vel í Bandarikjunum, af því
að útlit bókarinnar á kápu var
villandi — var gott. Hins vegar
hefir Guðmundur sjálfur upplýst
á skáksambandsfundi, að einn af
albræðrum hans, Jóhann Þórir
Jónsson, muni fá ákveðna centa-
tölu af hverju seldu eintaki bók-
arinnar, þegar komið er upp fyrir
ákveðna sölutölu. Undirrituðum
er ekki kunnugt um hve mikið
Jóhann eða lögfræðingur hans,
Sigurður Gissurarson, hafa þegar
fengið í hendur af þessu fé.
Nefnda þóknun fær Jóhann
Þórir, af þvf að hann, eins og
einnig Chester Fox, átti þátt í
stuldi skákskýringa frá Gligoric í
bókina.
FJARMALIN
Það er raunar ekkert einsdæmi,
að fjármálasamningar Guð-
mundar G. Þórarinssonar í
Bandaríkjunum fari í vaskinn.
Hann gerði alls fjóra samninga
við bandaríska aðilja út af einvíg-
inu. Það voru allt milljónasamn-
ingar — um kvikmyndun, ljós-
myndun, slúðurbókina og það,
sem sumir telja að hafi á vissan
hátt kostað Skáksamband íslands
æruna — samning um fréttaein-
okun til fyrirtækisins World
Chess Network.
Þrátt fyrir marga fallna gjald-
daga f flestum þessara samninga
hefir enginn þeirra staðist. Þrír
hafa ekki skilað eyri, en sumir
kostað stórfé. Aðeins einn — sá
sem kostaði æruna, hefir skilað
5.000$, sem er aðeins brot
af því fé, sem hann átti að gefa af
sér. En komin er hörð krafa frá
viðkomandi aðilja um, að nefndri
upphæð verði skilað aftur. Það er
í dag álit sumra af meðlimum
Skáksambands Islands frá eiri-
vígistímanum, -að viðkomandi
muni að líkindum takast að ná
þessu fé aftur af skáksamband-
inu, af ástæðum, sem ekki er rúm
til að rekja hér.
Þá hefir borist krafa frá banda-
rískum aðilja um lögfræðikostnað
að upphæð 5.000 dollarar.
FJARVERA FISCHERS
I grein minni Landkynning,
sem birtist í Morgunblaðinu 3.
janúar i ár, kom fram að Róbert
Fischer var ákaf lega sár, þegar ég
síðastur Islendinga hitti hann í
Los Angeles í árslok 1972. Var
það vegna þeirrar rýtingsstungu i
bakið, sem slúðurbók Guðmundar
á Bandarikjamarkaði verkaði
gagnvart Fischer. Tel égvafalítið,
að hér sé komin skýringin á, að
Fischer kom ekki til Islands í
sumar. Einnig er sennilegt, að sú
staðreynd, hve Fischer dró sig
lengi í hlé frá umheiminum eftir
einvígið, sé sumpart út af þessum
sama rýtingi. Þess ber að gæta, að
Fischer var varnarlaus gagnvart
þessum skrifum, af þvf að þau
voru á nafni og ábyrgð Skáksam-
bands íslands. Þau viðkvæmu
tengsl milli Islands og Bandaiikj-
anna, sem eru hinum frjálsa
heimi nær Iífsnauðsyn, hefðu
getað beðið of mikinn hnekki, ef
lögfræðingar Fischers hefðu ekki
hætt við þá ráðagerð að höfða mál
gegn Skáksambandi Islands út af
bókinni.
Látum við hér staðar numið um
ljóma þann, fjármálalegan, bók-
menntalegan eða annan, sem
sumir handlangarar forseta Skák-
sambands tslands munu enn
telja, að af honum stafi, því ann-
ars gæti fölva slegið á, að lokum.
31. október 1973,
Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra
'u y.
,* *
*•• *•*»!- •* -
Sýnishorn af munum, sem verða á basarnum.
KVENNADEILD Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra verður með
sinn árlega basar í Lindarbæ,
Lindagötu 9, á morgun, sunnu-
dag. Húsið verður opnað kl.
2 e.h. — A boðstólum verður
falleg handavinna, matvara, kök-
ur, lukkupakkar o.fl. Allur ágóð-
inn rennur nú sem enda-
nær til Æfingarstöðvarinnar
að Háaleitisbraut 13 og
starfseminnar f Reykjadal.
Nýlega gaf kvennadeildin
Æfingarstöðinni 8 sjúkrabekki af
fullkomustu gerð, en er nú að
styrkja stúlku til náms erlendis i
iðjuþjálfun. Áður hafði önnur
stúlka verið styrkt til náms í
sjúkraþjálfun. Einnig hefur
félagið gefið ýmiss konar húsbún-
að til starfseminnar í Reykjadal.
Aðsókn að basar félagsins hefur
ætíð verið mjög mikil.