Morgunblaðið - 15.12.1973, Qupperneq 1
48 SIÐUR
L Á
282. tbl. 60. árg.
LAUGARDAGUR 15. DESEMRER 1973
Prentsmiðja MorgunblaSsins
Paturssonkos
inn á þióðþing
Anker Jörgensen, sem enn gegnir embætti forsætisráðherra Dana, tekur hér á móti Pompidou
Frakklandsforseta, er hann kom eftir nokkra seinkun á toppfund Efnahagsbandalagslandanna í
Kaupmannahöfn f gær. ASbaki sést VV illy Brandt kanslari Vestur-Þýzkalands.
(AP — Sfmamynd).
Oeining á toppfundi
en viðræður við Araba
trui Nixons
bórshöfn, 14. desember.
Frá fréttaritara Mbl.,
Jogvan Arge:
ERLENDUR Patursson formaður
Lýðveldisflokksins í Færeyjum
var kosinn til setu á þjóðþingi
Dana f kosningunum í gær.
Ilingað til hefur Patursson og
flokkur hans ekki viljað blanda
sér í dönsk stjórnmál, en taliðer,
að inngangan í Efnahagsbanda-
lagið hafi ráðið úrslitum um, að
Patursson gaf kost á sér. Ilitt fær-
eyska þingsa-tið i danska þjóð-
þinginu féll í hlut séra Johans
Nielsen úr flokki jafnaðarmanna.
en hann hefur setið þar f fjölda
ára. Ilakon Djurhuus fyrrverandi
lögmaður og frambjóðandi Þjóð-
arflokksins, sem einnig hafði
setið mörg ár á þjóðþinginu náði
ekki kosningu að þessu sinni.
I þjóðþinginu er gert ráð fyrir,
að Johan Nielsen muni styðja
danska Jafnaðarmannaf lokkinn.
en að Erlendur Patursson muni
ekki styðja neinn ákveðinn flokk.
Kosningaslagorð Lýðveldisf lokks-
ins í þessum kosningum hefur
verið, að á ný muni heyrast fær-
eysk riidd í þjóðþinginu.
Úrslit kosninganna í heild urðu
þau, að jafnaðarmenn fengu flest
atkvæði eins og í sfðustu kosn-
ingum, eða 3370, en það jafngildir
þó 3,2% fylgistapi. Lýðveldis-
flokkurinn- fékk 3309 atkvæói.
eða unt 25% greiddra atkvæða. en
þetta er í fyrsta sinn. sem flokk-
urinn tekur þátt i þjóðþingskosn-
ingum. Þjóðarflokkurinn fékk
2688 atkvæði. Sambandsflokk
urinn 2531. Sjálfstjórnarflokk-
urinn 553, Framsöknarflokkurínn
258 og utan flokka listi einn fékk
81 atkvæði. brir fyrslnefndu
flokkarnir töpuðu allir fylgi. mest
Sambandsflokkurinn. eða 2.47''í,.
Þátttakan i kosningunum var
54.4"ó, en þaðer aðeins minna en
í síðustu kosningum.
Kaupmannahöfn, 14. des. —
AP.
□ A TOPPFUNDI æðstu manna
níu Efnahagsbandalagslanda
í Kaupmannahöfn í dag sló
þegar i brýnu milli manna um
viðbrögð við olíuöngþveitinu, sem
vera átti höfuðumræðuefni fund-
Danskt
0 og Æ
afnumin?
Osló, 14. desember. NTB.
FULLTRÚAR í Norðurlanda-
ráði hafa lagt til við ráðherra-
nefndina, að teknir verði upp
sams konar bókstafir og saina
stafrófsröð í Norðurlandamál-
ununi.
Lagt er til að í staðinn fyrir
norskt og danskt o (með ská-
striki) og æ verði tekið upp
sænskt ö og á. Einnig er lagt til
að f staðinn fyrir sænskt c og
ch verði tekið upp k og kk.
Auk þess er gert ráð fyrir, að
stafrófsröðin verði hin sama
þannig að bókstaf irnir þ,æ og ö
verði á sama stað í stafrófinu í
öllum tungumálunum.
Sér íslenzkir bókstafir eiga
að geta fallið inn í samnorrænt
stafróf að því er segir í tillög-
unni.
Bent er á i tilliigunni, að
ölikur ritháttur í Norðurlanda-
tungumálunum valdi raunhæf-
um vandamálum, til dæmis við
notkun ritvéla og i offset-
prentun. Auk þess er þetta
sagt valda fólki vandamálum,
þegar það les bækur á málum
hinna Norðurlandanna.
arins, svo og um, á hvern háft
bregðast skyldi vi ð óvæntum
gestum til Kaupmannahafnar, en
þeir voru nokkrir utanríkisráð-
herrar frá Arabalöndunum.
Evrópsku leiðtogararnir náðu
þó samkomulagi um að ræða við
Arabaráðherrana síðar í kvöld, en
fréttir af þeim fundi höfðu ekki
borizt, er iVIorgunblaðið fór f
prentun. Areiðanlegar heimildir
herma, að það hafi verið Bretar
og Frakkar, sem hvatt hafi Arab-
ana til að mæta til leiks til þess að
ná nánara sambandi inilli þessara
tveggja aðila, — Evrópu og
Araba.
A fundinum f dag varð ósain-
komulag milli evrópsku leiðtog-
anna um það, hvort Efnahags-
bandalagið ætti sem slíkt að
bjóða Israelum einnig viðræður.
Einnig gátu þeir ekki komið sér
sainan um, hvernig bregðast
skyldi við tillögu Henry Kissing-
ers utanrfkisráðherra Bandarfkj-
anna um að stofna til samtaka
Evrópuríkjanna, Bandarfkjanna
og Japana um að gera átak í þvf
að vinna hug á orkuskortinum
sameiginlega og það innan
þriggja mánaða. Willy Brandt
kanslari Vestur-Þýzkalands lagði
fyrir evrópska starfsbræður sfna
svipaðar tillögur og naut stuðn-
ings smærri aðildarlandanna, t.d.
Hollands, en Frakkland var
tregt til og Ileath forsætisráð-
herra Breta liikaði.
bessar tillögur Kissingers og
Brandts b.vggja á viðtækum, sam-
Framhald á bls. 26.
Washington. 14. desember -AP
NIXON Bandaríkjaforseti hefur
valið hinn gamalkunna sendi-
herra Ellsworth Bunker til að
gegna hlutverki aðalsamninga-
manns fyrir hönd Bandaríkjanna
á friðarráðstefnunni um Mið-
austurlönd, sem hefjast á í
Genf á þriðjudag. Bunker var til
skamms tíma sendiherra landsins
f Suður-Vfetnam, og mun hann
verða formaður fámennrar sendi-
nefndar Bandaríkjanna á ráð-
stefnunni.
Gerald Warren aðstoðarblaða-
fulltrúi Nixons sagði frá þessu í
dag. Er Warren var að þvf spurð-
ur. hvort Bunker myndi verða
Framhald á bls. 26.
Scheel
forseti?
Bonn 14. desember -AP
WALTER Seheel. varakanslari
og utanríkisráðherra Vestur-
Þýzkalands. tilkynnti í dag. að
hann myndi bjóða sig frarn f
forsetakosningunum á næsta
ári. Embætti forseta er aðal-
lega áhrifalaus tignarstaða.
Yfirlýsingín þýðir í raun. að
þegar þar að kemur. verður
Seheel að segja af ér ráð-
herraembætti og einnie afsala
sér formennsku i flokki
frjálsra demókratti.
bað munu cinkiim vera
heilsufarsástæður. sem þessari
ákvörðun Seheels ráða. f.ítíll
vafi er talinn leika á því. að
Seheel beri sigur úr býtum i
kosningunum. en Ileinemann.
núverandi forseti. dregur sig
til baka í vor.
Olíubanninu líklega af
létt nú eftir áramótin
Riyadh, 14. desember, AP.
SAMSTARFSMENN Henry Kiss-
ingers utanríkisráðherra Banda-
rfkjanna töldu í dag „meiri en
50:50“ líkur á því, að Arabar af-
léttu olíubanninu í næsta mán-
uði.
Þeir sögðust gera ráð fyrir
þvf, að Israelar og Egyptar hefðu
þá byrjað samningaviðræður um
brottflutning herjanna á Súezvfg-
stöðvunu m.
Þessi yfirlýsing var gefin við
komu dr. Kissingers til Riyadh,
höfuðborgar Saudi-Arabíu, sem
er þriðji ákvörðunarstaður á
ferðalagi luins um Miðausturlönd
áður en friðarráðstefnan f Genf
hefst á þriðjudag í næstu viku.
Embættismenn í Saudi-Arabíu
og bandarfskir embættismenn í
Riyadh gefa í skyn, að Faisal kon-
ungur kunni að vera tilleiðanleg-
ur til að hefja aftur takmarkaða
olíuflutninga til landa, sem olíu-
bannið hefur bitnað á, ef Nixon
forseti eða dr. Kissinger gefa út
opinbera yfirlýsingu, þar sem
skorað verði á ísrael að hörfa frá
herteknum, arabískum svæðum.
Aður en Kissinger fór frá Kaíró
sagði hann opinberlega, að
hugsanleg lausn yrði að verða í
samræmi við ákvæði ályktunar
Sameinuðu þjóðanna frá 1967,
þar sem segir. að ísraelsher verði
að hörfa frá herteknum svæðum.
Þetta virðist vera það, sem Saudi-
Arabar vilja — opinber ftrekun á
skuldbindingu Bandaríkjanna til
þess að hlíta þessu ákvæði.
Anwar Sadat forseti sagði, þeg-
ar hann hafði rætt í fjórar
klukkustundir við Kissinger áður
en hann fór frá Kafrö, að Egyptar
hefðu fallizt á að vera í sama
fundarherbergi og fulltrúar
Lsraels á Genfarráðstefnunni. en
þó yrði ekki um beinar samninga-
viðræður Egyptalands og Israels
að ræða.
Sadat forseti sagði að hann von-
aðist til, að alvarlegar viðræður
gætu hafizt um brottflutmm
egypzku og Ísraelsku herjann.
yið Súezskurð fyrir jól.
Þar með er talið, aðSadat haf
átt við. að einhver áþreifanlegu
arangur yrði að nást á átta dög
um. það er frá því ráðstefnai
hefst á þriðjudag of frannn
jóladag.
Sadat sagði, að brottfUitningu
herjanna yrði að ver.ða fyrsta mál
uð. sem yvði tekið fyrir. og aðdi
Kissinger hefði samþykkt. að þa
væri undirstöðumál í fyi-st;
áfanga viðræðnanna
Samkvæmt bandarfskum heim
ildum er gert ráð fyrir. að mnræð
Framhald á bls.26.