Morgunblaðið - 15.12.1973, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973.
Gunnar J. Olason bú-
stjóri - Minningarorð
Fæddur 2. 9. 1905.
Dáinn 5. 12. 1973.
Ilinn 5. desember lÐTS^lézt á
Landspítalanum Gunnar Olason,
bústjóri Tilraunastöðvarinnar á
Keldum. Ilann var fæddur 2. sept-
ember 1905 á Kumblavík áLanga-
nesi. Undánfarin ár liöfum við
Gunnar verið samstarfsmenn og
nágrannar.Þegar leiðir skiljast
nú, vil ég minnast starfa hans á
Keldum og kynna okkar með
nokkrum 'orðum. en aðrir munu
verða til þess að rekja æviferil
hans nánar.
t
Faðir okkar,
ANDREAS ANDERSEN,
Barmahlið 50,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju, þriðjudaginn 18. desem-
ber kl 3 e h.
Anna Andrésdóttir,
Kristjana Andrésdóttir.
Gunnar var ráðinn til þess að
stjórna búskap á Keldum vorið
1942, en þá þegar var hafin þar
rannsóknastarfsemi, þó að Ti 1-
raunastöð Háskólans risi þarekki
fyrr en á árunum 1946—1948.
Gunnar hafði því starfað á Keld-
um í rúmlega 31 ár, þegar hann
lézt. Starf bústjóra á Keldum hef-
ur reynzt bæði vandasamt og
erfitt vegna margvíslegra, sér-
stæðra vandamála, sem f.vlgja um-
fangsmiklum sjúkdómatilraunum
á sauðfé og öðrum dýrum og
framleiðslu ónæmisefna. Sumar
skepnur þarf að hýsa árið um
kring og einstakar tilraunir geta
tekið allt að áratug. Undirstaða
þess, að allt vel takist er því sú, að
fóðuröflun, hirðing og aðhlynning
sé sem bezt verður á kosið og
einangrun sjúkra dýra örugg.
Þess vegna þurfti mjóg að vanda
val bústjóra á Keldum, og varð
það gæfa tilraunastöðvarinnar,
að Gunnar Ólason réðst til þessa
starfs.
Bæði var, að hann hafði aflað
sér góðrar menntunar í búfræði
með skólavist á Hvanneyri og
dvöl í Noregi auk starfsreynslu
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
iarðarför eiginkonu minnar, móður okkar og tenqdamóður,
ÞÓRDÍSAR GUÐJÓNSDÓTTUR
Ögmundur Kristófersson, Jóhanna Ögmundsdóttir,
Auðbjörg Ögmundsdóttir, Sigfús Guðmundsson.
t Maðurinn minn JÓN GUÐMUNDSSON. Eskihlíð 31, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1 7. desember kl. 1 30. Vera Maack.
t Maðurinn minn og faðir okkar, KJARTAN ÓLAFSSON, héraðslæknir, Seyðisfirði, andaðist 13 desember Klara Kristinsdóttir og börn.
t Eiginmaður minn HARALDUR KRISTMANNSouN, Vesturgötu 24, Akranesi. andaðist fimmtudaginn 1 3. des. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Jóna Þorleifsdóttir.
t Utför eiginkonu minnar, SIGURBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Granaskjóli 18, sem andaðist 10 þ m fer fram frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 18 des kl 3 e h Egill Áskelsson.
t Útför konunnar minnar. GUÐBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR, saumakonu, Króki 1. fer fram frá ísafjarðarkirkju, laugardaginn 15 des kl 2 siðdegis Fyrir hönd vandamanna, Þórður Einarsson.
við búskap á góðum stöðum hér-
lendis, en hitt var ekki minna
um vert, hverjum mannkostum
Gunnar var búinn. Ilann var
röggsamur stjónandi, þó ljúf-
menni og glaðlyndur. Trú-
mennska hans og holl-
usta við þá stofnun, sem hann
starfaði fyrir, var einstök. Veg
hennar vildi hann og viðgang, en
sjálfur var hann hógvær í kröfum
og hófsemdarmaður. Aldrei unní
hann sér hvíldar fyrr en lokið var
aðkallandi störfum og var kapp-
samur mjög um heyöflun, enda
þurfti ævinlega mikið til. Ilelzt
var það, þegarliðið var á haust, að
hann fyndi stöku stund til veiði-
ferða'og útivistar, en af slíku
hafði hann >iidi.
Gunnar var kvæntur Kristínu
Bæringsdóttur, sem lifir mann
sinn ásamt þremur dætrum
þeirra Þórunni, Elísabetu og Dag-
björtu. Fyrstu árin bjugguþau
á Keldum, en fluttust að Grafar
holti 1956, þegar ríkið keypti þar
hús ásamt nokkru landi og lagði
til tilraunastöðvarinnar. Kristín
hefur staðið við hlið manns síns
með sérstökum myndarbrag
og dugnaði og hefur starfsemin á
Keldum notíð þess i rfkum mæli.
Síðustu árin gætti þessað heilsa
Gunnars var að bila. Aldrei vildi
hann þó hlífasérviðverk, meðan
orka entist. Ekki lét hann tvö
alvarleg sjúkdómsáföll á síðasta
t
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
trésmiður,
andaðist á Hrafnistu 13
desember
Fyrír hönd ættingja
Jóna Sæmundsdóttir,
Sigurður Jónsson,
Sæmundur Þ. Sigurðsson.
vori aftra sér frá því að koma til
starfa í sumar og af la góðs vetrar-
forða. Að þeim forða búum við nú
og ósérhlifnu starfi Gunnar í þágu
rannsókna á Keldum i næstum
þriðjung aldar.
Guðmundur Pétursson
Gunnar Ólason bústjóri við Til-
raunastöð Háskólans f meina-
fræði að Keldum andaðist á Land-
spítalanum aðfararnótt 5. desem-
ber 1973 af völdum æðasjúkdóms,
sem hafði þjáð hann um nokkurt
skeið.
Þrátt fyrir veikindi og oft sárar
þrautir sinnti Gunnar störfum af
sinni einstöku trúmennsku með-
an kraftar leyfðu, eða þar til hann
var fluttur helsjúkur á spítala
þaðan sem hann átti ekki aftur-
kvæmt.
Má með sanni segja, að hann
hafi staðið meðan stætt var.
Gunnar var þingeyskrar ættar,
fæddur að Kumblavík á Langa-
nesi. Foreldrar hans, sem þar
t
Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu samúð víð andlát systur
minnar og mágkonu,
GUÐRÚNAR S. WATSON,
sen andaðist i Edinborg, Skotlandi 1 3. f.m.
Vigdis Jakobsdóttir.
Alfreð Gislason.
t
Útför elskulegs eiginmanns míns og sonar,
BJARNA JÓNS ÞORVALDSSONAR
frá Blönduósi, Digranesvegi 115,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1 7 desember kl. 1 5.
Ágústa Linda Ágústsdóttir,
Þorvaldur Þorláksson.
t
Okkar innilegustu þakkir, jóla- og nýársóskir til hinna mörgu, er sýndu
okkur hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar,
BENEDIKTS S. BENEDIKTSSONAR
frá Hellissandi.
Sérstakar þakkir til Slysavarnafélags íslands, Slysavarnardeildanna á
Hellissandi og Sparisjóðs Hellissands
Unnur Benediktsdóttir, Eggert Sigurmundsson,
Ha lldór Bened iktsson, Ólöf Jóhannsdóttir,
Sveinbjörn Benediktsson, Ásta Friðbjarnardóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför móður okkar,
RAGNHEIDAR PÉTURSDÓTTUR
Einaf Ásgeirsson. Margrét Asgeirsdóttir,
Ásdís Ásgeirsdóttir. Garðar Ásmundsson,
Gerður Ásgeirsdóttír. Gunnar Haflgrímsson.
bjuggu, voru Þórunn Gunnars-
dóttir og Oli Jónsson.
Föður sinn missti Cunnar 5 ára
gamall. Systkinin voru 11 tálsins
og fór Gunnar þá til systur sinnar
Friðnýjar, sem bjó að Bakka á
Tjörnesi.
Þar átti Gunnar heima þar til
hann, innan við tvítugt, fór í
vinnumennsku, m.a. að Grenjað-
arstað.
Árin 1925—1927 stundaði
Gunnar nám á Ilvanneyri. Reynd-
ist hann ágætur námsmaður, en
þótt hugurhansstæðitilfrekara
náms, var löng skólaganga á þeim
árum nær ókleif fátækum, ungum
mönnum, þótt námsgáfur væru
nægar.
Dvölin á Hvanneyri og kynni
hans af kennurum og nemendum
þar voru honum sérlega minnis-
stæð, og munu hafa mótaðskoðan-
ir hans og viðhorf svo sterkt, að
entist til æviloka, og ávallt talaði
Gunnar um árin á Hvanneyri með
hlýhug.
Þegar Steingrímur Steinþórs-
son tók við skólastjórn að Hólum í
Iljaltadal valdi hann Gunnar,
nemanda sinn og sýslunga, til
þess að stjórna fjárgæzlu á staðn-
um. A Hólum var Gunnar í nær
fjögur ár og stundaði öðrum
þræði framhaldsnám viðbúnaðar-
skólann.
Mér er það minnisstætt, þegar
Gunnar barst í tal við Steingrím
búnaðarmálastjóra löngu síðar,
hve mjög Steingrímur mat og bar
lof á störf Gunnars á Hólum.
Taldi Steingrímur Gunnar í röð
fremstu starfsmanna, sem hann
hefði haft, sakir dugnaðar og trú-
mennsku.
Árið 1934 fór Gunnar til Noregs
til þess að kynna sér landbúnað,
einkum sauðfjárrækt. Starfaði
hann um skeið á sauðfjárræktar-
búi norska ríkisins að Ilorni í
Stafangursfirði.
Eftir að Gunnar kom heim frá
Noregi starfaði hann á ýmsum
stórbúum, m.a. Blikastöðum, Suð-
ur-Reykjum, Gunnarsholti og við
tilraunastöðina á Sámsstöðum,
alls staðai’ eftrisóttur vegna dugn-
aðar, áhuga og samvizkusemi.
Eftir 1938 starfaði Gunnar óslit-
iðsem bústjóri, fyrst í Kaldaðai--
nesi hjá Jóni Sigurðsyni skrif-
stofustjóra Alþingis, síðar í Laug-
1 ardælum hjá Agli Thorarensen.
Egill um ekki hafa verið hrós-
gjarn maður, en þá taldi hann vel
skipað búsforráðum í Laugardæl-
um, þegar Gunnar og Kristín
höfðu þau meðhöndum.
Fyrir áeggjan dr. Halldórs Páls-
sonar tók Gunnar við stjórn bú-
rekstrar á Keldum í Mosfellssveit
árið 1942, en þá jörð hafði ríkið
nýlega keypt fyrir ránnsókna- og
tilraunastarfsemi atvinnudeildar
Háskólans
Er Tilraunastöð Háskólans hóf
starfsemi áKeldumhélt Gunnar
áfram bústjórn og hafði það starf
meðhöndum til dauðadags.
Þegar Gunnar réðst að Keldum
hafi hann aflað sér mjög víðtækr-
ar þekkingar og reynslu á hvers
konar störfum landbúnaðar, jafnt
á sviði búfjárræktar sem jarð-
ræktar.
Það reið á miklu fyrir nýja
t
Innilega þakka ég öllum, sem
sýndu mér yinarhug og hluttekn-
ingu við andlát og jarðarför
mannsins míns,
GUOMUNDAR
ÞORVALDSSONAR
frá Litlu Brekku.
Guð blessi ykkur öll
GuSfríður Jóhannesdóttir