Morgunblaðið - 15.12.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.12.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973. Kjl Itíl. I l.l lf. i X MJAIAJIt" 22-0-22* RAUOARÁRSTÍG 31 BÍLALEIGA CAR RENTAL B1 21190 21188 TEL 14444 25555 im BlLALEIGA CAR RENTAL BÍLALEIGAN felEYSIR CAR RENTAL «“24460 í HVERJUM BÍL PIOMEER ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI IHverfisgötu 18 SENDUM 10 86060 SKODA EYÐIR MINNA. Shodr LEÍGAH AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga - Sími 81260. Fimm manna Citroen G.S. stat- ion Fimm manna Citroen G S 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabilar (m bílstjórum) Bílaleiga CAR BENTAL Sendum U* 41660 -42902 EMUR GAMALL TEMUR ^ SAMVIWNU8ANKINK LESIÐ 1 ff39*«8Bp- fr takmarkajðr j rejum OHCLECR STAKSTEINAR Atlagan að Reykjavík AÐ undanförnu hefur veriS flett ofan af tilraunum ríkis- stjórnarinnar til að nota vald sitt og aðstöðu til að þjarma að Reykjavíkurborg. Ríkisstjórn- in hefur þ.vrlað upp verðbólgu- báli, sem er stórkostlegra en dæmi eru til um hér á landi. Verðlag og kaupgjald víxl- hækka stórkostlega á þriggja mánaða fresti, með þeim óskemmtilegu afleiðingum, að tölur, sem höfðu raunhæfa merkingu f gær, verða út í hött á morgun. Allt verðlag hefur hækkað gffurlega eins og óhjá- k'væmilegt er meðan hruna- dansinn dunar við æsandi undirleik vinstristjórnarinnar. Þá finnur ríkisstjórnin sk.vndi- lega upp það snjallræði, að neita Revkjavíkurborg eða öllu heldur þjónustustofnunum hennar um gjaldskrárhækkan- ir, og er þeim einum ætlað að una í fortíðinni og notast við þær tölur. sem raunhæfar voru áður en áhrifa óheillaríkis- stjórnarinnar lók aðgæta fyrir um það hil tveimur árum og áttatfu vfsitölustigum. Og afleiðingin verður sú, að þessi þjónustufyrirtæki borgar- innar verða svo aðþrengd, að þau geta með engu móti sinnt verkefnum sínum eða staðið við skyldur sfnar og verða því að krefjast hækkunar á gjald- skrám sfnum. Þá hrópa ráð- herrarnir út um borg og bý: Sjáiði bara, það er bölvað fhald- ið, sem vill hækkanir, en við höldum því niðri. Þetta minnir á flensubakterfur, sem hrópa mvndu: Sjáiði bara, það er sjúklingurinn, sem er veikur, en viðerum heilbrigðir og eins og viðeigum aðokkur. Ríkisstjórnin hélt að þessi stefna hennar vrði væntanleg til árangurs f.vrir flokka henn- ar í næstu kosningum. Fólk vtÖí sárt yfir því að Re.vkjavík- urborg geti ekki veitt jafn góða þjónustu og endranær. En þar tóku ráðherrarnir svo sannar- lega skakkann pól f hæðina. Þeir vanmátu skynsemi og sanngirni borgaranna heldur betur. Þeir gera mun á söku- dólgunum og þeim sem sökin bitnar á. Þeir vita, að það á að ráðast gegn bakteríunum en ekki sjúklingnum. Þegar bæta á ástand hans. Þeir vita, að það er maklaus óskammfeilni að ætla Revkjavíkurborg að verða eftir í gamla verðlaginu, sem hér gilti áður en vinstristjórnin tók við völdum. Því mun þessi atlaga ríkisstjórnarinnar re.vn- ast ráðherrunum búmerang- árás, sem mun hitta ráðherrana sjálfa fyrir að lokum. BorgarfuIItrúar vinstri flokk- anna, sem gegn betri vitund hafa stutt þessar aðgerðir rfkis- stjórnarinnar, munu einnig verða að hljóta sinn dóm en borgararnir ganga til kosninga næsta sumar. Þeir hafa svikið umbjóðendur sfna, látið freistast til að halda. að kúgun- araðgerðir ríkisst jórnarinnar gætu Ivft þeim í valdasætin. Þeir munu sjá, aðóheilindi og svik eru ekki til þess fallin að skapa straust hjá Reykvíking- Vítin að varast Re.vkvíkingar hafa nú fyrir augum vinstri stjórn, sem þrfr „vinstri“ flokkar eiga aðild að. Þar logar allt f illdeiium, klögumálin ganga ávíxlogstór- málum er ekki hægt að sinna vegna óeiningarinnar. Hrossa- kaup þessara flokka í pólitfsk- um bitlingum og stöðum hafa þanið út rfkiskerfið og eitt með öðru orðið til þess að skattar á almenningi hafa verið stór- hækkaðir. Sundrungin varð f.vrri stjórn að falli og sundr ungin er einnig nú að e.vði- leggja þjóðarbúið og verða vinstri stjórninni sfðan aðfalli. Borgararnir hafa þvf vftin að varast. En þaðer ekki nóg með að þrfr vinstri flokkar vilji fá að stjórna borginni eins og þeir hafa stjórnað rfkisstjórn- inni. Nú vilja vinstri flokkarn- ir vera fjórir eða jafnvel fimm um að stjórna borginni. Eftir þá reynslu, sem þjóðin hefur haft af „samvinnu" þriggja vinstriflokka í ríkisstjórn, þá þarf ekki litla dirfsku og ósaminfeilni að bjóða borgur- unum að kjósa yfir sig „sam henta“ stjórn fimm sundur- leitra vinstriflokka. Enda er ljóst, að pólitísk barátta þeirra hefur ætfð birzt f og mun ætíð birtast í því að reyna mjatla fylgi hver af öðrum. Sú stað- reynd gerir þeim í raun ömögu legt að vinna saman nema um stutta hrfð. Um leið og undir kosningar hallar, byrja dylgjur og svfvirðingar milli „sam- starfsflokkanna“ og hver vænir annan um svik og svindl, sem fjölmörg dæmi er um, bæði gömul, og enn fleiri ný. Með storminn 1 fangið Ræður og ritgerðir Brynjólfs Bjarnasonar MORGUNBLAÐINU hefur borizt bókin Með storminn f fangið I. og II, eftir Brynjólf Bjarnason, fyrr- um ráðherra. Eru þetta greinar og ræður 1937-1972. A bókakápum þessara pappírskilja segir forlag- íð, Mál og menning m.a.: „I þessu riti er safnað saman 74 greinum og ræðum Brynjólfs Bjarnasonar frá 35 ára tímabili. Töluverður hluti þeirra hefur ekki komið á prent áður. Við val efnisins hefur það sjónarmið yfirleitt verið látið ráða, að lesa mætti út úr því sem samfelldasta sögu..“. Saga þessi greinir frá reisn hningnun Sdsíalistaflokksins og vera má, að þessir þættir gætu orðið að ein- hverju gagni til þess að skilja þá atburðarás og þau sögulegu rök, sem leiddu til hvorttveggja," sep- ir í formála höfundar.“ Undan Jökli heitir þetta málverk og er þaðstaðsett á 4. hæð f húsi Jóns Loftsonar hf. Verkiðer eftir Grfm M. Steindórsson og sést hann hér á myndinni við verk sitt, sem er 2x6 metrar að stærð. Er þetta í þriðja sinn sem Jón Loftson hf. fær listmálara til að prýða veggi sfna, en áður hafa komið þar við sögu þeir Gfsli Sigurðsson og Sveinn Björnsson og prýða þeirra málverk veggi 2. og 3. hæðar hússins, (Ljósm. IVfbl. Sv.Þ.) Messur á morgun Dómkirkjan Messa kl. 11.00. Séra Óskar J. Þorláksson. Messa kl. 2.00 fell- ur niður. Barnasamkoma kl. 10.30 í Vest- urbæjarskólanum v/Öldugötu. Séra Þórir Stephensen. Neskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2.00. Séra Frank M. Halldórsson. A rbæ jarprestakal I Messa í Arbæjarkirkju kl. 2.00. Barnaguðsþjónusta i Árbæjar- skóla fellur niður af óviðráðan- legum orsökum. Séra Guð- mundúr Þorsteinsson. Dómkirkja Krists konungs f Landakoti Lágmessa kl. 8.30 f.h. Hámessa kl. 10.30 f.h. Lágmessa kl. 2.00 e.h. Laugarneskirkja Jólasöngvar fyrir börn og full- orðna kl. 2.00. Barnakór úr Laugarnessköla undir stjórn frú Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur. Sóknarprestur. Frfkirkjan Reykjavfk Barnasamkoma kl. 10.30. Frið- rik Schram. Messa kl. 2.00. Séra Þorsteinn Björnsson. Bústaðakirkja Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs- þjónusta ki. 2.00. Séra Ólafur Skúlason. Langholtsprestakall Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs- þjónusta kl. 2.00. Séra Árelíus Nfelsson Óskastund barnanna kl. 4.00. Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son. Hallgrfmskirkja Messa kl. 11.00. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Messa kl. 4.00 e.h. Ensk guðs- þjónusta. Sendiherrar Bret- lands og Bandaríkjanna lesa ritningartextana. Guðsþjónust- an er ætluð fólki af öllum kirkjudeildum. Dr. Jakob Jóns- son. Iláteigskirkja Lesmessa kl. 9.30. Barnaguðs- þjónusta kl. 10.30. Séra Arn- grímur Jónsson. Messa kl. 2.00. Séra Jón Þor- varðsson. Grensásprestakal I Guðsþjónusta kl. 11.00. Breyttur messutími vegna Ut- varps. Séra Halldór S. Gröndal. Kirkja Óháða saf naðarins Messa kl. 2. — Sr. Emil Björns- son. EIliheimiliðGrund Messa kl. 10.00. Séra Magnús Guðmundsson fyrrverandi prófastur messar. Digranesprestakall Barnaguðsþjónusta f Víghóla- skóla kl. 11.00. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2.00. Séra Þorbergur Kristjánsson. Kársnesprestakal 1 Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11.00. Guðsþjónusta i Kópa- vogskirkju kl. 11.00. Séra Arni Pálsson. Frfkirkjan Hafnarfirði Jólasamkoma barnanna kl. 10.30. Guðmundur Óskar Ólafs- son. II af n arf j arðarki rkj a Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. G arðar Þorstei nsson. Keflavfkurkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Björn Jónsson. Innri-Njarðvfkurkirkja Fjölskyjidusamkoma kl. 8.30. Se'ra Arelíus Nfelsson talar. Fjölbreytt dagskrá. Björn Jóns- son. Garðakirkja Iíelgistund fjölskyldunnar kl. 11.00. Jólasöngvar og hljóð- færaleikur barna. Bílferð kl. 10.45. Bragi Friðriksson. Grindavíkurkirkja Messa kl. 2.00. Séra Þorsteinn L. Jónsson frá Vestmanna- eyjum prédikar. Jón Ami Sig- urðsson. Hvalsneskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Séra Guðmundur Guðmunds- son. Utskálakirkja Barnaguðsþjónusta kl. 1.30. Séra Guðmundur Guðmunds- son. Sunn udagaskóli Kristniboðsfélaganna er f Álftamýrarskóla kl. 10.30. Öll börn velkomin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.