Morgunblaðið - 15.12.1973, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973.
Jólasveinarnir
yfir Austurstræti
Margir kunnir sjómenn sækja Farmanna- og fiskimannasambandsþingið. Á mvndinni sjást m.a.
tveir af skipherrum Landhelgisgæzlunnar, þeir Guðmundur Kjærnested og Helgi HalIvarðsson.
Við hlið Ilelga lengst til hægri á myndinni er Böðvar Steinþórsson annar varaforseti þingsins.
Ljósmynd Mbl. Ól.K.M.
Annir á Farmanna- og fiskimannasambandsþingi
Guðmundur H. Oddsson. Þingið
fjallar m.a. um kjaramál,
öryggismál og hafnar- og vita-
mál.
ÞINGI Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands var
f ram haldið í gær að Ilótel Loft-
leiðum. Búið var aðsetja fjölda
málaflokka í nefndir og var
unnið til miðnættis, en í fyrra-
kvöld til kl. 23. 61 fulltrúi er á
þinginu, en þingforseti er
Sverrir Hermannsson:
Neyðarástand á Hornafirði
SVERRIR Hermannsson al-
þingismaður kvaddi sér hljóðs ut-
an dagskrár á Alþingi í gær og
gerði að umtalsefni það neyð-
arástand, sem nú hefur skapazt
í Austur-Skaftafellssýslu
vegna stiiðvunar Smyrla-
bjargaárvirkjunar. Kom fram
hjá raforkuráðherra, að
ákveðið hefur lerið að flytja
Ilornafjarðar til að bæta úr þvf
neyðarástandi, sem þarríkir.
Þá upplýsti dómsmálaráðherra.
að Landhelgisgæzlunni hefðu ver-
ið gefin fyrirmæli um að aðstoða
sem unnt væri við flutning
stöðvarinnar. Þór, sem væri
staddur á þessum slóðum gæti þó
ekki annazt flutninginn á stöð-
inni, þar sem bóma hans væri of
lítil til að lyfta henni. Hefði sam-
gönguráðherra gefið Skipaútgerð
ríkisins fyrirmæli um að senda
annað það skipa sinna, sem
skemmri leið ætti á vethang, til
að flvtja vélina.
Nokkrar umræður urðu á þing-
inu í tilefni af þessu máli og tóku
allmargir þingmenn til máls.
Sagði Sverrir Hermannsson. að
GÓÐ SALA
OTTO VVathne seldi I Grimsb.v f
morgun 25,1 lest fyrir 1.9 milljón-
ir. Meðalverð var rúmar 74 krón-
ur, sem er næst hæsta meðalverð
ti I þessa erlendis.
Prófessors-
embætti í heim-
ilislækningum
Prófessorsembætti í heimilis-
lækningum við læknadeild Há-
skóla Islands er laust til umsókn-
ar. Prófessornum er ætlað að
veita forstöðu kennslu í heimilis-
lækningum og rannsóknum í
þeirri grein samkvæmt reglugerð
læknadeildar.
Umsóknarfrestur er til 5.
janúar 1974.
algjört neyðarástand væri nú ríkj-
andi þarna og lægju atvinnutæki
undir skemmdum ef ekki yrði
brugðið skjótt við. Þakkaði hann
ráðherrunum fyrir að hafa haldið
vel og drengilega á málinu og
beindi því til þeirra, hvort ekki
kynnu að vera skip annarra skipa-
félaga en Skipaútgerðar rfkisins,
sem brugðiðgætu skjótarvið.
Eysteinn Jónsson sagði. að ást-
and raforkumálanna á Austur-
landi yfirleitt værí mikið
áh.vggjuefni fyrir veturinn.
Þyrfti raforkuráðherra að athuga
þar leiðir til úrbóta. Gylfi Þ.
Gíslason sagði, að meira en lítið
hefði farið úrskeiðis við stjórn
raforkumálanna að undanförnu,
þar sem ekki væri einungis raf-
orkuskortur á Austurlandi, held-
ur einnig á Norðurlandi og Vest-
fjörðum. Væri æskilegt, að ráð-
herra gæfi Alþingi skýrslu um
þessi mál.
Sagði ráðherra, að nær væri að
óska eftir skýrslu frá fyrrverandi
nkisstjórn. Neyðarástandið væri
arfur sfðan þá. Þessu svaraði
Ingólfur Jónsson með því að taka
undir ósk um. að ráðherra legði
fram gögn ráðuneytisins um, hvað
gert hefði verið í raforkumálun-
um í tíð fyrri ríkisstjórnar. Þá
kæmi í ljós, að aldrei hefði meira
veriðgert f raforkumáiunum en í
hennar tíð.
í umræðum þessum tóku einnig
til máls Lárus Jönsson, Karvel
Pálmason og Jónas Jónsson.
Vilhjálmsson er gefin út á forlagi
ísafoldarprentsmiðju. Bökin er
288 bls. að stærð. A bökarkápu
segir m.a.: „Þetta safn ge.vmir
einkum ferðasögur og þætti um
myndlist og leiklist. Thor Vil-
hjálmsson hefur meðal. annars
verið öþréytandi að kynna okkur
löndtim sínum það, sent fyrir
augu hans hefur borið á langferð-
um erlendis. Hann hefur gert
ferðajýsinguna að persönulegri
íistgrein.....Hann kemur okkur
slikðugt á óvart með uppljömun
máls yfir sjónarsvið. sem liggja
utan við íslenzkan luigmynda-
heim...... Ilann talar alltaf um
list sem list, á máli, sem heldur til
jafns við umræðuefnið."
ÆSKULYÐSRAÐI Reykjavfkur
hefur hlotnast sú ánægja undan-
farin ár, að veita hópi góðra gesta,
nefnilega jólasveinunum, nokkra
fyrirgreiðslu dagana fyrir jól.
Þeir hafa svo radtvið aimenning
frá Vesturveri á tilteknum tfmum
og mótað skemmtilega hefð f mið-
borginni. Þessa hefð hafa ungir
Reykvíkingar ekki hvað sfst
kunnað að meta.
I ár verður sú breyting á, að i
stað skyggnisins, á Vesturveri
mun Æskulýðsráð Reykjavíkur
sjá til þess að koma fyrir aðstöðu
handa þessum gestum í Austur-
Halastjarnan
birtuminni
HALASTJ ARNAN Kohoutek
heldur hraða sfnum eins og ráð
hafði verið gert fyrir. Morgun-
blaðið hafði samhand við Þor-
stein Sænumdsson stjarnfræðing
í gær og innti frétta af stjörn-
unni.
Sagði Þorsteinn, að fátt nýtt
væri að frétta, nema þá helzt að
birtan frá stjörnunni yrði að
öllum líkindum mun minni en
fyrstu spárgáfu til kynna.
Þegar Kohoutek er næst jörðu
verður hún álíka langt frá henni
og sólin og þegar hún er næst
braut jarðarinnar verður jörðin
ekki á því svæði.
Kohoutek verður með bjartari
halastjörnum, en þó kvað Þor-
steinn líklegt, að hún næði ekki
eins mikilli birtu og nokkrar hala-
stjörnurá þessari öld.
Hér á landi ætti halastjarnan að
sjást f janúar, en aðspurður
kvaðst Þorsteinn ekki telja. að
stjarnan næði sömu birtu, frá
jörðu séð, og Venus. Lfklega
mvndi hún þó sjást jafn vel og
Sírius. Ilugsanlegt er, að hala-
stjarnan nái sömu birtu og Venus,
en þá sést hún ekki héðan vegna
þess, að hún verður þá svo nálægt
sólu.
t dag (laugardaginn 15. desem-
ber) kemur út hjá Almenna bðka-
félaginu bók um eldgosið í
Ileimaey.sem hlotiðhefur nafnið
ELDAR I IIEIMAEY. Bókin er
skrifuð af Áma Johnsen blaða-
manni hjá Morgunblaðinu.
I bókinni skráir Arni sögu goss-
ins og tengir hana sögu Vest-
mannaeyja fyfr og síðar, hann
lýsir einnig vel baráttu mannsins
við náttúruöflín og þeirri óbifan-
legu bjartsýni, sem Eyjamenn
sýndu og aldrei hvarf, þótt óvíst
væri um örlög heimabyggðar
þeirra. Einnig rekur Arni höfuð-
þættina í þvf mikla endurreisnar-
starfi, sem hafið er í E.vjum. Árni
Johnsen dvaldist i Vestmanna-
e.vjum á meðan náttúruhamfar-
stræti, svo að þeir komi því á
framfæri, er þeim liggur á hjarta.
Verður sett upp svið þvert yfir
göngugötuna, frá vesturhorni
Pósthússins að vesturhorni
Reykjavíkur Apóteks, og áhorf-
endasvæði verður Austurstræti
austanvert. Þarna munu jóla-
sveinarnir koma fram strax að
lokinni þeirri athöfn, er kveikt er
á jólatré frá Oslóborg á Austur-
velli sunnudaginn 16. desember.
Þeir munu því biítást um
klukkan 16,30- þann ' dag^ A
Þorláksmessu, sunnudaginn 23.
desember, korna beir svo fram
klukkan 16.00. í bæði skiptin
verður_ Lúðrasveit Reykja-
víkur á staðnum og leikur jólalög.
Flestir jólasveinarnir koma til
borgarinnar Fdag, 13. desember,
og hefja undirbúning að störfum
sínum. Þeir eru undi'r tryggri
forystu Askasleikis, og verður
hann til viðtals fyrir blaðamenn
við Fríkirkjuveg 11 um hálfeitt-
leytið f dag.
Æskulýðsráði Reykjavíkur er
það fagnaðarefni að geta veitt
jólasveinunum og aðdáendum
þeirra þessa fyrirgreiðslu, og
þakkar sérlegum umboðsmanni
þeirra, Katli Larsen, fyrir ötult
starf að málinu.
Ami Johnsen.
irnar gengu yfir. Hann tók ríkan
þátt í björgunaraðgerðum og hef-
ur f.vlgzt manna mest með öllum
af leiðingum náttúruhamfaranna.
í bókinni ELDAR í IIEIMAEY
eru um 300 m.vndir, meginþorra
þeirra hefur Sigurgeir Jónasson
ljósmyndari i Vestmannaeyjum
tekið. En hann tók yfir 30.000
myndir í náttúruhamförunum,
auk þess átti hann tugi þúsunda
mynda frá Eyjum fyrir gos.
Myndir Sigurgeirs eru því ekki
einungis bundnar við náttúru-
hamfarirnar heldur eru þær
einnig svipmyndir úr lífi Eyja-
manna fyrr og síðar.
Með þvf að flétta saman lifandi
texta Ama og frábærar atburða-
myndir Sigurgeirs og 15 annarra
ljósmyndara hefur tekizt aðdraga
upp raunsanna lýsingu á þeim
störbrotnu og hörmulegu atburð-
um, sem gerðust, þegar eldar
komu upp í Heimaey.
Umbrot og útlit bókarinnar er
unnið af Torfa Jónssyni, en hann
og Ami Johnsen völdu myndirnar
í Ixikina úr safni um 50.000 1jós-
mynda, sem þeir höfðu aðgang að.
Bókin ELDAR I HEIMAEY er í
stóru broti. svipuð og landa- og
alfræði safnsbækur AB, hún er
þannig brotin um, að texti og
myndir skapa samfellda heild, en
bökin skiptist í 66 kafla.
Bókin er sett og prentuð í
prent.smiðjunni Odda. Sveinalxik-
bandiðbatt hana inn, en litgrein-
ingu mynda annaðist Myndamöt.
Thor Vilhjálmsson
HVAÐ ER SAN MARINO?
Ný bók eftir Thor Vilhjálmsson
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
bókin „Ilvað er San Marino?"
eftir Thor Yilhjálmsson. ferða-
þættir og fleira.
Bökin er í þremur hlutum. I
hinum fyrsta eru m.a.: («estur í
Leeco, Rómverskar smámyntir.
Brenna á Blömatorgi. Hillands-
ferðog Rithöfundamótið f Lahti. I
öðrum kafla eru m.a.: Kjarval
kvaddur, Maður eins og Rem-
brandt, Svavar Guðnason í Casa
Nova. Nína Tr.vggvadöttir og
Vinnustofurabb við Þorvald. í
þriðja kafia eru m.a.: List og
iþrött. Orson Welles: Chimes at
Mídnight, Antonioni Vitelloni
eftir Federigo Fellini. Italskir
kvikmvndahöfundar. Ofurlítið
um Marcel Marceau og mímuleik,
Italskt leiklistarlíf, Fiuseppe
Verdi og Dagur skáldsins.
1 eftirmála segir höfundur
m.a.: „Tíminn líður. hann virðist
líða æ hraðai'. Margt hefur
bre.vtzt síðan ýmsir þáttanna voru
samdir. sem hér standa saman á
bók. Sumir. sem talað 'er um á
þesstim blöðtim. eru nú dán-
ír.....Og svo koma nýir. og ný-
ir...
Ný viðhorf líka. Þessi bók á
ekki að vera lislgagnrýni heldur
persönulegur vitnislnirður. og ber
eflaust keim af því. sem ýmsir
kalla sjálfhverfa hughyggju. '
llvaðer San Marino? eftir Tlior
Vestmannaeyiabók AB komin út:
Eldar í Heimaey