Morgunblaðið - 15.12.1973, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973.
11
Ármann Kr. Einarsson.
Ný bók
eftir Ár-
mann Kr.
Einarsson
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar hefur sent frá sér nýja bók
eftir Ármann Kr. Einarsson. Um
bókina og höfundinn segir svo í
kápuauglýsingu: „Eins og ýmsa
rekur minni til, skrifaði Armann
Kr. Einarsson barna- og unglinga-
bók um Surtseyjargosið. Bókin
var þýdd og gefin út í Noregi
undir nafninu „Landgang pá Vul-
kanöya“. Fyrir þessa bók hlaut
Ármann nosku „Solfugl“-bók-
menntaverðlaunin 1965. Nú hefur
t Ármann skrifað nýja bók um eld-
gosið í Vestmannaeyjum, sem
hófst aðfaranótt 23. janúar síðast-
liðinn. Þótt þetta sé skáldsaga,
byggist hún í aðalatriðum á heim-
ildum um gosið og ýmsum at-
vikum í sambandi við það. Aðal-
persónur sögunnar eru Siggi, son-
ur fátækrar sjómannsekkju, og
skipstjöradóttirin Inga Stfna.
Þrátt fýrir hrikalega atburði er
sagan afar hugþekk og krydduð
notalegri kímni. Höfundinum hef-
ur tekist í þessari nýju bók, eins
og svo oft áður, að skapa spennu,
óvissu og eftirvæntingu, sem gríp-
ur lesandann föstum tökum. Nið-
ur um strompinn er bók jafnt
fyrir drengi og stúlkur.“ Bókin er
155 bls. að stærð, prentuð í prent-
verki Odds Björnssonar á Akur-
eyri, en teikningar eru eftir
Baltasar.
TRÖLLI
SYNGUR
KOMIN er á markað tveggja laga
hljómplata, sem-nefnist „Trölli
syngur“, og er með barnalögum
eftir Guðberg Auðunsson. Annað
laganna er þekkt úr sjónvarps-
auglýsingum um Tröllaspari-
bauka, en hitt er nýtt af nálinni
og heitir „Allir kátir krakkar".
Guðbergur Auðunsson syngur
og leikur undir á gítar og honum
til aðstoðar eru Magnús Eiríks-
son, gftarleikari, og Björn Björns-
son, trommuleykarí. Platan er
tekin upp í Klúbbnum af Pétri
Steingrímssyni og framleidd f
Noregi. Útgefandi er TÍGRIS.
TRÖLLI
syngur
Marnlngsvél lll sölu
Höfum til sölu nýuppgerða japanska maringsvél.
Hraðfrystihúsið h.f., Hnífsdal,
sími 94-3621.
TamningastöÓ
Tökum hesta til tamningar og þjálfunar í lengri og
skemmri tíma.
Upplýsingar gefur Reynir Hólm, Laxnesi, sími 661 79.
Sandgerði
Húsmæður. Verzlið ódýrt. Sendum heim alla daga.
Þorláksbúð, sími 7480
JólamarkaÖur
Jólatré. Greni. Krossar og kransar. Ennfremur borð-
skreytingar í úrvali.
Akur, Suðurlandsbraut48.