Morgunblaðið - 15.12.1973, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973.
23
Smyglaði sofandi
hundi í handtösku
RANNSÓKNARLÖGREGLAN í
Hafnarfirði hefur að undanförnu
haft til meðferðar mál manns á
Seltjarnarnesi, sem í september-
mánuði sl. sm.vglaði litlum hundi
inn f landið frá Danmörku. Hafði
maðurinn ke.vpt hundinn í Kaup-
mannahöfn, látið svæfa liann þar
og flutt hann með sðr f Iftilli
handtösku. Ekki fannst hundur-
inn við tollskoðun á Keflavíkur-
flugvelli og hefur maðurinn síðan
haft hann heima hjá sér. Sam-
kvæmt lögum er bannað að flytja
dýr inn í landið án leyfis. Maður-
inn hafði ekki sótt um slfkt leyfi.
1 viðtali við Mbl. í gær sagði
Páll. A. Pálsson yfirdýralæknir,
að lagaákvæði um þetta væru
ákaflega skýr. Innflutningur á
öllum lifandi dýrum væri bannað-
ur. Heimild væri þó fyrir því, að
ráðherra gæfi út sérstök leyfi til
sliks innflutnings, en í þeim til-
vikum þyrftu eigendur dýranna
að láta bólusetja þau erlendis með
ákveðnum fyrirvara, fá heil-
brigðisvottorð fyrir þau og láta
þau í sóttkví hér heima um nokk-
urt skeið eftir komuna. Ef ekki
væri farið eftir lögum í þessum
efnum, væri aðeins um eitt að
ræða: Að lóga dýrunum. Páll
minnti í þessu sambandi á hunda-
fár, sem leiddi til þess að lóga
varð fjölda hunda hér á landi
fyrir nokkrum árum. Benti allt til
þess, að smyglaður hundur hefði
flutt með sér sjúkdóminn. Með
þessum ströngu ákvæðum væri
ekki veriðaðleggjasumadýraeig-
endur í einelti, heldur að reyna að
hlífa þeim dýrum, sem fyrir væru
í landinu.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar í Hafnarfirði
mun viðkomandi hundur enn á
lífi. Málið verður innan tíðar sent
saksóknara.
Weissauer með sýningu
KUNNUR þýzkur listamaður,
Rudolf Weissauer, sýnir nú
grafík- og vatnslitamyndir í
Galleríi Guðmundar Árnasonar,
*
Aðventukvöld í
Lágafellskirkju
AÐVENTUKVÖLD verður i
Lágafellskirkju í Mosfellssveit á
sunnudagskvöldið kl. 9. Dag-
skráin verður þessi:
Helgi Bragason leikur
Pastorale eftir Baeh. Þá leikur
Skólahljómsveit Mosfellssveitar
undir stjórn Lárusar Sveinssonar.
Unnur Gunnarsdóttir flytur jóla-
sálm. Guðrún Tómasdóttir syngur
jólalög. Sigríður Þorvaldsdóttir
les úr Fjallkirkjunni. Næst leikur
skólahljómsveitin öðru sinni og
þá jólalög undir stjórn Birgis D.
Sveinssonar. Næst er almennur
söngur. Pétur Friðriksson les
jólaguðspjallið. Að lokum ávarpar
sr. Bjarni Sigurðsson kirkjufólk-
ið.
Bergstaðastræti 15. Hann hefur
sýnt nokkrum sinnum áður hér á
landi, m.a. hjá Guðmundi. „Hann
er þekktur maður í evrópskum
listheimi,-' segir Guðmundur urn
hann. Myndirnar eru til sölu. Sýn-
íngin mun standa i 2—3 vikur.
Galleriið er opið á venjulegum
verzlunartíma. (Ljósm. Mbl.
Ól.K.Mag.)
„Eiríkur
Hansson”
í nýrri útgáfu
SKALDSAGAN Eiríkur Hansson,
eftir Jóliann M. Bjarnason, er
komin út f 3iu útgáfu, en hún
vakti á sfnum tima mikla athygli.
Kom sagan fyrst út I þremur
bindum, það fvrsta 1899, en það
sfðasta 1930.
Sagan segir frá uppvexti
íslenzks drengs á landnámsárum
Islendinga í Vesturheimi, frá því
að hann fluttist vestur um 10 ára
að aldri með afa sínum og ömmu.
Fáum árum síðar er hann einn og
munaðarlaus á hrakningum úr
einum stað í annan. Lýkur svo
sögunni, er hann stofnarsitt eigið
heimili.
Þetta er 4. bindi í ritsttfni Jó-
hanns M. Bjarnasonar. Árni
Bjarnason bjó bókina undir
prentun. Hún er yfir 500 bls. að
stærð. Utgefandi er Bókaútgáfan
Edda á Akureyri.
Danski utanríkisráðherrann, K. B. Andersen, vann töluverðan stjórnmálasigur, þegar honum tókst
að efna til fundar utanríkisráðherra Efnahagsbandalagslandanna og dr. Kissingers (t.h.) utanríkis-
ráðherra Bandarfkjanna. Hér sést K. B. Andersen banda burtu blaðamönnum áður en fundurinn
hófst, en hann er af mörgum talinn sögulegur.
Handtakið til Islands
sýndi norrænan anda
Osló, 14. desember, NTB.
DJÚPSTÆÐ samstaða Norður-
landa kom glöggt frain í handtak-
inu til íslands frá hinum Norður-
löndunum vegna jarðeldanna í
Vestmannaeyjum og er traustasti
grunnurinn, sem byggja verður
norræna samvinnu á, segir í stór-
þingsáliti uni norræna samvinnu.
Álitið var gert fyrir tilstilli
norsku stjórnarinnar vegna óska
Fundað um
hver boðaði
til fundar
Paris, 14. desember. AP.
SAMNINGAMENN Suður-Viet-
nam og Viet Cong héldu 32. sainn-
ingafund sinn um pólitiska fram-
tfð landsins í dag.
þingmanna um, að hægt yrði að
ræða norræna samvinnu á breið-
um grundvelli. I álitinu segir, að
norræn samvinna hafi veriðalltil-
viljanakennd, en með auknu
skipulagi og nýjum stofunum
megi vænta aukinnar og skipu-
legri eflingar.
Upplýsingaskortur er talinn
eitt mikilvægasta verkefnið, sem
framundan er á vettvangi
norrænnar samvinnu, þar sem
ljóst er, að gagnkvæm þekking á
málefnum Norðurlanda er af
mjög skornum skammti.
Víðtækust samvinna er á svið-
um visinda, kennslumála og
menningarmála vegna þess að
visst skipulag hefur verið fyrir
hendi á þessari samvinnu allt frá
stofnun Menningarmálanefndar
Norðurlanda 1947. segir í álitinu.
Norræn samvinna i mennigar-
málum á sér lengri sögu og hefur
verið víðtækari en önnur sain-
vinna. en með tilkomu nýrra
stofnana er þess að vænta. að sam-
vinnan eflist á öllum sviðum, seg-
ir i álitinu.
Strand
Rotterdam 14. desember. AP.
DONA Ourania, flutningaskip frá
Lfberíu, strandaði f dag f miklum
stormi undan Hollandsströnd.
Hafði skipið orðið fyrir vélar-
bilun er þaðhélt úr höfn í Rotter-
dam áleiðis til Antwerpen. Ekki
er talið, að menn séu i hættu. og
björgunarskip voru strax send á
strandstaðinn.
Bjargað
Carloforte. Sardiniu 14. des. AP.
SEX slösuðum skipverjum. af
grísku skipi. se:.: rekið hefur
fyrir vindi <>g veðrum, var i dag
bjargað af hérþyrlum undan
Sardiníu. Skipið, sem siglir undir
fána Panama. hefur verið stjiirn-
laust síðan stýrisútbúnaður þess
bilaði. Fjórir af áhöfninni urðu
eftir um borð og biðu björgunar-
skipa.
A fundinum gátu þeir jafnvel
ekki komið sér saman um, hvort
það var Ilenr.v Kissinger, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, eða
Le Duc Tho, fulltrúi í stjórnmála-
ráði norður-vietnamska kommún-
istaflokksins, sem átti tillöguna
að fundínum.
„Okkur skilst, að Le Duc Tho
hafi átt frumkvæðið að þessum
fundi," sagði Nguyen Xuan
Phong, næstæðsti maður suður-
víetnömsku samninganefndarinn-
ar.
„Ilann er haldinn að beiðni
Bandaríkjamanna," sagði Dinh
Ba Thi, næstæðsti maður sendi-
nefndar Viet Cong.
Pólverjar flytja út raf-
orku til Þýzkalands
Varsjá. 14. desember —AP.
PÖLVERJAR munu „mjög bráð-
lega“ hefja útflutning á raforku
til Vestur-Þý-zkalands, að því er
Hans Friderichs efnahagsinála-
ráðherra Vestur-Þýzkalands sagði
f Varsjá f dag, en þar hel'ur lianii
dvalið undanfarna tvo daga og
rætt við ráðamenn mn þetta inái.
„Við rædduin einkuin um. á
hvern hátt við gætum flutt
orkuna og hjálpazt að með að fá
sem bezta nýtingu á pólskum kol-
um,“ sagði Frideriehs. Pólland er
fjórða mesta kolaframleiðsluland
f heiini. — á eftir Bandaríkjim-
um. Sovétrfkjunum og Kfna.
Friderichs sagði ennfremur. að
hann hefði rætt við pólska leið-
toga um, hversu mikla orku P<> 1 -
land gæti framleitt <>g hversu
mikið af henni það gæti selt.
Ekki hefði verið rætt um sölu-
verðið. Höfuðvandamálíð við
flutningana á raforku P<>lverja er
tæknilegt.
100 lífverðir vopnaðir vél-
byssum gæta Kissingers
Genf, 14. desember. AP.
SERFR.EÐINGAR í öryggis-
málum eru komnir til Genfar
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum til þess að skipu-
leggja öryggisráðstafanir
vegna friðarráðstefnu ísraels
og Arabarfkjanna í næstu viku.
Öiyggisráðstafanirnar verða
umfangsmeiri en dæmi eru til á
svipuðum ráðstefnum, sam-
kvæmt heimildum i Genfar
lögreglunni.
Fréttir frá Washington um,
að hótað hafi verið að myrða
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra virðast þó ekki hafa vald-
ið teljandi áhyggjum, þar sem
sagt er, að öryggisráðstafanirn-
arverði mjög strangar.
Um 100 starfsmenn banda-
rísku le.vniþjónustunnar og
bandaríska utanríkisráðu-
neytisins hafa fengið það verk-
efni að vernda dr. Kissinger á
ferðalagi hans uin Evrópu <>g
Miðausturlönd fyrir ráðstefn-
una. samkvæmt heimildum í
Washington.
Talið er víst, að með sendi-
nefnd Israels og fleiri þátttöku-
n’kja verði fjölmennir hópar
öryggisvarða.
Heimildir i svissnesku lög-
reglunni segja, að öryggisráð-
stafanirnar verði sennilega
auðveldari en ella vegna þess,
að ekki er búizt við, að mikill
mannfjöldi safnist samati til
þess að forvitnast meðan á ráð-
stefnunni stendur. Talsmaður
svissnesku lögreglunnar sagði.
að fbúar Genfar væru svo vanir
fundah öldum.
Samkvæmt heimildum í
bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu hefur Svarti september.
samtök patestínskra hryðju-
verkamanna. gert samsæri um
að myrða dr. Kissinger. Að
minnsta kosti einn maður úr
samtökunum hefur verið hand-
tekinn.
Lífverðir dr. Kissingers
munu vera vopnaðir vélbyss-
um. en þegar utanrikisráðherr-
ann kom til Ileathrowflugvall-
ar i Bretlandi á dögunum var
þeim aðeins leyft að halda á
ve nj u 1 eg u m skotv<>pn u m.