Morgunblaðið - 15.12.1973, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973.
L
O F SWITZtRLAN D
Höfum mikið
úrvalaf
hinum
heimsþekktu
Romaer úrum.
★
Tilvalin
jólagjöf.
Helgi Júlíusson,
úrsmiður,
Akranesi.
OPID TIL KL. 6 í DAG
NÆG BÍLASTÆÐI
JÓLAVÖRUR - LEIKFÖNG - SKRAUTVÖRUR - GJAFAVÖRUR
LeitiÓ ekki langt yfir skammt, því þér finniÓ jólagjafirnar á
jólamarkaánum i JL-húsinu.
IIIJÓN LOFTSSON HF
Hringbraut 121^ 10 600
Kaupmenn
Pakkið vörunni inn í jólaumbúðapappír.
Athugið! I dag afgreiðum við pappír frá kl. 10—4.
FélagsprentsmiÓjan hf.
Sími 11640
Anilínprent hf.
Sfmi 15976.
StMAR
♦ ><?77r
&*/£*$}
m
T
JÓLATRÉSSALA
Takið börnin með í jólatrésskóginn.
Ath. Jólatrén eru nýkomin, nýhöggvin og hafa aldrei
komið í hús. Tryggir barrheldni trjánna. NÆLON-
RAUDGRENi - BLÁGRENI -
BALSAMÞINUR
NÝR ÚTSÖLÚSTADUR VID BÝLID
NET-
PÖKKUN
BREIDHOLT
jólabækur
Eldar í Heimaey
Lýsing Árna Johnsens blaðamanns á baráttu
mannsins við náttúruöflin og þeirri óbifanlegu
bjartsýni, sem Eyjamenn sýndu, þótt óvíst væri um
örlög heimabyggðar þeirra. Um 300 Ijósmyndir, bæði
litmyndir og svart-hvítar myndir prýða bókina.
Meginþorri er tekinn af Sigurgeiri Jónassyni,
Ijósmyndara, sem dvaldist í Vestmannaeyjum allan
gostímann. Myndirnar í bókina völdu Árni Johnsen og
Torfi Jónsson, og eru þær valdar úr um 50.000
myndum, sem þeir höfðu aðgang að.
Fjallkirkjan
Hinn mikli sagnabálkur Gunnars Gunnarssonar rekur
á ógleymanlegan hátt þroskaferil kornungs skálds
frá frumbernsku í föðurgarði, til þess er það vinnur
sinn fyrsta sigur og endurheimtir um leið sjálfan
sig og land sitt, sem ásamt minningunni um ástkæra
móður hefur verið honum sigurtákn og örlagavatdur.
Eitt fegursta skáldverk eftir íslenzkan höfund.
Fjallkirkjan svo og önnur skóldverk Gunnars
Gunnarssonar eru fallegustu jólagjafir, sem hægt
er að hugsa sér.
Stóð ég úfi í tunglsljósi
Hér tekur Guðmundur Gíslason Hagalín upp þráðinn
aftur í minningum sínum. I þessari bók kveður hann
í bili vini og velunnara í Reykjavík, skreppur vestur
í Firði og lýsir mönnum og málefnum þar og á
Fljótsdalshéraði á þeim tímum, sem Island er nýorðið
fullvalda ríki og öll viðhorf eru að miklu leyti óræð.
Sérstæðar mannlýsingar, glettni og gamansemi,
rómantík og ástamál bera hátt í þessari bráðskemmti-
iegu frásögn, sem er rituð á þann hátt, sem Hagalín
er einum kleift.
Gestur
Frábær bók, sem allir ættu að lesa. Höfundurinn,
Jens Pauli Heinesen, hefur með þessari bók ritað eitt
markverðasta skáldrit, sem hér hefur komið út hin
sfðari ár. Ætti það vissuiega að verða til þess,
að færeyskum bókmenntum verði gefinn meiri gaumur
eftirleiðis en hingað til.
Djöflarnir
Snörp saga eftir Hrafn Gunnlaugsson. Höfundinn
þarf vart að kynna. Hrafn hefur hazlað sér völl í
útvarpi, blöðum og tímaritum á sérlega athyglísverðan
hátt. Leikrit hans hafa verið flutt í útvarp og
sjónvarp, — og hver man ekki Beint útvarp úr
Matthildi?
r