Morgunblaðið - 15.12.1973, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973.
35
GUÐRÚNÁ. SÍMONAR: EINS OG ÉG ER KLÆDD
Gunnar M. Magnúss skráSi. Þessi endurminningabók hefur þegar vakið geysimikla athygli,
enda er hún frábærlega skemmtileg og fallega úr garði gerð. Bókina prýða nær 100 Ijós-
Urvals bœkur
fyrir
yngri kynslóðina
myndir, og í bókarlok er mannanafnaskró. Bókhlöðuverð kr. 1.294,00.
TÖFRABROSIÐ
eftir Guðnýju Sigurðardóttur. Þetta er óvenju fjörlega skrifuð og skemmtileg nútíma skáld-
saga úr Reykjavíkurlífinu. Frásögnin er þrungin kímni, en bak við kímnina felst alvara. Bók-
hlöðuverð kr. 565,00.
DRAUMALANDIÐ HENNAR
eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Hinar rómantísku ástarsögur Ingibjargar Sigurðardóttur hafa
náð miklum vinsældum fjölmenns hóps lesenda — og hér kemur nýjasta skáldsagan hennar,
sem gerist bæði í Reykjavík og Noregi, þar sem Rúna finnur þann rétta. Verð kr. 565,00.
GAMALL MAÐUR OG GANGASTÚLKA
eftir Jón Kr. isfeld. Þetta er hugljúf, íslenzk ástarsaga, sem endar vel. Sagan fjallar um gamlan
mann á elliheimili og gangastúlku. Þau kynnast nánar högum hvors annars og hlutir fara að
gerast, sem verða til þess, að örlög þeirra fléttast saman. Bókhlöðuverð kr. 565,00.
HUNDURINN MINN
eftir Mark Watson. Þetta er fyrsta bók sinnar tegundar á islenzku. Af henni má læra hvernig
hægt er að ala upp og temja hunda og gera þá að gagnlegum og ánægjulegum félögum.
Listakonan Barbara Árnason hefur myndskreytt bókina. Bókhlöðuverð kr. 350,00.
LÆKNAÞING
eftir Frank G. Slaughter, höfund hinna vinsælu skáldsagna „Eiginkonur læknanna“ og „Síðasta
augnablikið". Flestir færustu læknar Bandaríkjanna eru samankomnir á ársþingi læknastétt-
arinnar, sem haldið er i Central City. En þegar þinghaldið, með tilheyrandi gleðskap og
veizluhöldum, stendur sem hæst, verður óvænt banaslys . . . og þá kemur í Ijós, að mitt á
meðal læknanna leynist morðingi í vígahug . . . . En læknarnir eru engan veginn af baki
dottnir né dauðir úr öllum æðum, þótt þeir séu komnir á Læknaþing. Bókhlöðuverð kr. 995,00.
GUÐFAÐIRINN
» eftir Mario Puzo. Guðfaðirinn hefur verið talin einhver mest spennandi skáldsaga, sem skrifuð
!! hefur verið á seinni árum, enda metsölubók víða um heim. Mario Puzo er frábær rithöfundur,
sem kann þá list að gæða frásögnina miklum hraða og vaxandi spennu, svo erfitt er að leggja
bókina frá sér, fyrr en hún er lesin til enda. En það skal tekið fram, að þessi bók hentar
J ekki fólki með viðkvæmar taugar. Bókhlöðuverð kr. 995,00.
3
NIÐUR UM STROMPINN
eftir Ármann Kr. Einarsson. Þessi saga gerist ( eld-
gosinu í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir hrikalega at-
burði, er sagan einkar hugþekk og krydduð notalegri
kímni. Bókin er jafnt fyrir drengi og stúlkur. Teikn-
ingar eftir Baltasar. Bókhlöðuverð kr. 450,00.
UNDRAFLUGVÉLIN
eftir Ármann Kr. Einarsson. Þetta er 4. bókin um Árna
og Rúnu í Hraunkoti, sem kemur hér i nýrri og endur-
bættri útgáfu. Sagan er þrungin spennu, óvissu og
efirvæntingu, sem grípur lesandann föstum tökum.
Teikningar eftir Halldór Pétursson. Verð kr. 450,00.
HLJÓÐIN Á HEIÐINNI
eftir Guðjón Sveinsson. Þetta er hörku spennandi
njósna- og leynilögreglusaga eftir hinn unga og vin-
sæla rithöfund. Fyrri bækur Guðjóns eru: Njósnir að
næturþeli. - Ógnir Einidals. - Leyndardómar Lund-
eyja I—II. Svarti skugginn. — Ört rennur æskublóð.
Þessi nýja bók kostar aðeins kr. 450,00.
STROKUSTRÁKARNIR
eftir Svein Hovet. Sigurður O. Björnsson þýddi. —
„Þetta er ágæt saga. Hún gerist á skömmum tíma,
örfáum dögum, en segir f staðinn nákvæmlega frá
því, sem drengirnir taka sér fyrir hendur, og það er
sannarlega frásagnarvert." - Silja Aðalsteinsdóttir (
Þjóðv. - Bókhlöðuverð kr. 450,00.
VORIÐ KOM
eftir Birgir Helgason. I þessu fallega sönglagahefti
eru 10 sönglög með léttum útsetningum, sem allir
geta auðveldlega spilað. Bókhlöðuverð kr. 300,00.
Svo er þaöbara ykkar aö velja
BÓKAFORLAG
ODDS
BJÖRNSSONAR
HAFNARSTRÆTI 88
AKUREYRI