Morgunblaðið - 15.12.1973, Qupperneq 48
Fallegri litir
FUJI FILM
Litfilmur
'ÆHGIttr
SÍMAR: 26060 OG 26066
HÆTLyNARSTADIR
\KRANES.
=LATEYRI. HÓLMAVÍK. GJOGUR. STYKKISHÓLMUR.
1IF. SIGLUFJÓROUR. BLONDUÓS, HVAMMSTANGI
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973
VERÐUR LANDIÐ
LÖGREGLULAUST
FRÁ ÁRAMÓTUM?
AÐ undanförnu hafa staðið yfir
viðræður milli samninganefnda
ríkisins og lögregluþjóna um
nýja kjarasam ninga fvrir lög-
regluþjóna. Samkvæmt nýlegum
lögum verða allar lögreglu-
mannástöður hjá borginni og
sveitarfélögum lagðar niður á
miðnætti 31. des. nk., en nýjar
lögreglumannastöður settar upp
hjá ríkinu. Ilafa lögreglumenn
frest til þess tíma til að tjá sig um
það, hvort þeir vilja hefja störf
hjá rfkinu eða ekki, en ekki er
hægt að skylda þá til að hefja
störf hjá rfkinu nema með bráða-
birgðalögum. Aðeins örfáir lög-
reglumenn munu hafa ákveðið að
halda áfram störfum og mjög
margir núverandi ríkislögreglu-
manna hafa sagt upp starfi frá og
með áramótum, þannig að hafi
ekki náðst samkomulag um nýja
kjarasam ninga lögreglumanna
f.vrir þann tíma, má búast við þvf,
Framhald á bls. 26.
Bankastjóraslagur í uppsiglingu:
Jóhannes fékk
4 atkvæði —
Guðmundur 1
Flóttafólkið frá Hornafirði við komuna til Reykjavíkur f gærkvöldi með flugvél Flugfélags íslands. Það
var fremur kuldalegt á svipinn fólkið.
Ófremdarástand í orkumálum:
Flótti frá Horna-
firði vegna kulda
I BYK.JUN ársins urðu Vest-
mannaeyingar aðflýja eld og nú í
árslok verða sumir þeirra að flýja
ískulda. Hópur þeirra kom með
Flugfélagsvél frá Höl'n í Horna-
firði í gærkvöldi. Fréttaritari
Morgunblaðsins í Höfn segir, að
neyðarástandið, sem þar ríkir,
versni með hverjum deginum.
Dieselrafstöðin frá Seyðisfirði er
ekki væntanleg fyrr en f fyrsta
lagi I!). desember, en fólk er
þegar farið að flýja úr húsum
sínum í stórum stfl.
Vestm annaeyingar, sein búið
hafa í viðlagasjóðshúsum. hafa
flutzt þaðan á hótelið, og fólk í
nýjum húsum, sem eru rafmagns-
hituð, er litli betur statt. Kuldinn
er svo mikill, að vatn hefur frosið
f ílátum í sumuin húsunum og nú
er aðfrjósa í vatnsleiðslum og má
búast við töluverðum skemmdum
vegna þess. Um 40 urðu að flýja
hús sín og fara á hótelið.
Varnarliðið var fyrir nokkru
beðið aðstoðar og bauð það þegar
litlar dieselrafstöðvar alls 25 kw.
Valgarð Thoroddsen rafmagns-
veitustjóri sagði .Morgunblaðinu.
að vélarnar hefðu ekki reynzt
nægilega góðar. Sveifla hefðí
verið á spennunni og því ákveðið
aðsenda þær ekki austur.
Páll Asgeir Tryggvason deiidar-
stjóri í varnarmáladeildinni sagði
hins vegar. að það væri ekki rétt,
sem fram hefði komið um. að
vélarnar væru í ólagi.
Flugfreyjur gerðu í gær undan-
tekníngu í verkfalli sínu og
leyfðu. að vél yrði send til Hafnar
til að sækja það fölk, sem flýja
varð heimili sín. Fokker Friend-
ship-vél flaug austur með mikið
af alls konar hitunartækjum og
kom aftur með 29 fullorðna, 5
börn og 6 ungbörn í burðarrúm-
um, Ætlunin var að fara aðra ferð
og sækja fleiri. en við það varð að
hætta vegna veðurs.
Meðal farþega var Sveina
■fóhannsdúttir frá Vestmanna-
eyjum, ásamt fjölskyldu, en þau
hiífðu flúið lir einu viðlagasjóðs-
húsanna.
— Við urðum að búa á
hótelinu síðastliðna niitt. Kuld-
inn var svo mikill, að ekki var
nokkur leið að hafast við í húsinu,
þótt við værum kappklædd Við
fáum íbúð hér frá Viðlagasjóði,
sem við getum farið inn í og svo
sjáum við hvað setur, þar til við
flytjumst til Vestmannaeyja.
Dótið okkar er auðvitað allt fyrir
austan ennþá.
Framhald á bls. 26.
Á FUNDI bankaráðs Seðlabanka
Islands í gær var tekin til með-
ferðar ráðning nýs bankastjóra í
stað Svanbjörns Frímannssonar,
sem lætur af störfum unt áramót.
Bankaráðið gerir ákveðna tillögu
til ráðherra, en þaðer bankamála-
ráðherra, Lúðvík Jósepsson, sem
hefur endanlegt úrskurðarvald og
skipar bankastjóra Seðlabankans.
Eins og Morgunblaðið skýrði frá f
gær, komu fram tillögur um tvo
menn, Jóhannes Elíasson banka-
stjóra Útvegsbankans og Guð-
mund Hjartarson. Atkvæða-
greiðsla í bankastjóra Útvegs-
bankans og Guðmund Hjartarson.
Atkvæðagreiðsla í bankaráðinu
fór á þann veg, að Jóhannes Elías-
son hlaut 4 atkvæði, en Guðmund-
ur Hjartarson aðeins eitt atkvæði.
Þrátt fyrir þessi úrslit eru
taldar sterkar líkur á, að Lúðvík
Jósepsson muni skipa flokksbróð-
ur sinn, Guðmund Iljartarson, í
þetta embætti. Haldi Lúðvík fast
við þá fyrirætlan má búast við
miklum átökum innan ríkis-
Framhald á bls. 26.
9
DAGAR
TIL JÓLA
Tepptir
í bílum
FÆRI) var farin að þvngjast
all verulega vfða á Suðurlandi
í gærkvöldi og í Reykjavfk
voru bflar farnir að teppast í
úthverfum borgarinnar. Mikill
skafrenningur setti strik í
reikninginn og f Árbæjar-
hverfi, Breiðholti og á Hafnar-
f jarðarveginum sátu menn
fastir í bílum sfnum. Veriö var
að kalla út hjálparlið til þess
að sinna nauðsynlegum störf-
um til aðstoðar.
Hundruð vegalausra í
erlendum flughöfnum
HUNDRUÐ íslendinga bfða vega-
lausir í erlendum flughöfnum,
eftir að verkfall flugfreyja skal I á
hérlendis á miðnætti á föstudag.
Allt flug íslenzku flugfélaganna
lagðist niður í gær — báðar þotur
Flugfélagsins stöðvuðust í Kaup-
mannahöfn og þotur Loftleiða í
New York og Chieago. Önnur þota
Flugfélagsins kom þó til landsins
síðdegis í gær með fragt. í innan-
landsfluginu var einnig flogið
fragtflug og ein undanþága
fékkst til farþegaflugs — Fokker
Friendship fór til Hornafjarðar
og sótti þangað 36 kalda Vest-
mannaeyinga úr viðlagasjóðshús-
um.
sAttafundurinn
Fundur sáttasemjara ríkisins
með fulltrúum flugfélaganna og
flugfreyja hófst klukkan 9 á mið-
vikudagskvöld og stóð hann alveg
fram til kl. 6 á föstudagsmorgun,
er upp úr honum slitnaði. For-
svarsmenn flugfélaganna vildu í
gær ekki tjá sig mikið um gang
samningaviðræðnanna. en
boðuðu greinargerð um samn-
ingamálin. Þó fékkst það upplýst,
að menn höfðu verið hæfilega
bjartsýnir um, að samkomulag
myndí takast allt til að upp úr
slitnaði á föstudagsmorgun.
Erla Ilatlemark formaður Flug-
f reyjufélagsins sagði aftur á móti
um samningafundinn, að þar
hefði ölium kröfum flugfreyja
miðað eitthvað áfram nema sjálf-
um launakaflanum. Flugfélögin
buðu að vísu um 7% launa-
hækkun, en voru ekki til viðtals
um greiðslu vinnuálags, sem er
ein af meginkröfum flugfreyja í
þessum samningum. Ilins vegar
þokaði dagpeningakröfunni nokk-
uð fram, þó ekki nægilega að
dómi flugfreyja, og eins tóku
flugfélögin vel í kröfu flugfreyja
um frí vegna barnsburðar, Launa-
krafan vó þó þyngst á metunum,
og hún var ástæðan fyrir því, að
upp úr slitnaði. Sáttasemjari
hefur boðað annan fund með
deiluaðilum kl. 2 í dag.
VERKFALLIÐ
Sjálft verkfallið kom til fram-
kvæmda á miðnætti á föstudag
meðan deiluaðilar sátu enn á
fundi hjá sáttasemjara. Þar með
lagðist niður alll flug — innan-
Framhald á bls. 26.