Morgunblaðið - 10.01.1974, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. JANUAR 1974
Þrjár af sfmastúlkunum „með gamla laginu". „Halló elskan." getur maður sagt f staðinn fyrir að heyra
einhvern tónlausan tón.
Vestmannaeyingar ræða að sjálfsögðu mikið sín á
milli um þörf og möguleika á að reisa við Eyjabyggð
og skapa Eyjafólkinu aftur viðunnandi lífsaðstöðu.
Það er ekki heldur einungis mál Vestmannaeyinga
einna, því að þjóðarskútan sem fyrirtæki hefur ekki
efni á að gera Eyjabyggð klára að nýju, manna
bátinn, en ennþá rfkir ekkert nema droll í þeim
málum. Það sem kemur mest fram í viðtölum Eyja-
fólks og því þykar brýnast, er að sjálfsögðu bygging
nýrra húsa í stað þeirra 400, sem eyðilögðust í
eldgosinu og eru nú undir allt frá 40—100 metra
þykku hrauni. Þá kemur það skýrt fram að fólki
finnst skipta öllu máli að nýtt hentugt skip verði
smíðað fyrir Vestmannaeyjar, því að slíkt getur
ráðið úrslitum um það, hve margir koma heim aftur
og fólk vill á sig leggja í uppbyggingunni. Þá eru
uppi háværar raddir um nauðsyn þess að kaupa
innflutta íþróttahöll strax með sal og sundlaug, en
þau mál munu skýrast á næstunni.
íþróttahöll algjört stórmál - Yfir
2000 virkir þátttakendur í ÍBV
ÍÞRÖTTAB.VN'DAL.VG Yest-
mannaeyja lét engan hilhug á sér
finna og meistarflokkur ÍBV
skipaði sér í röð heztu íslenzku
liðanna f ár eins og fyrr, þrátt
fyrir flóttann frá Kyjum og
æfingar við ótrúlega erfiðar að-
stæður. Yið röhhuðum við Stefán
Runólfsson formann IBY:
„Æfingar eru hafnar hjá okk-
ur," sagði Stefán." og strákarnir
eru byrjaðir að æfa í öllum flokk-
uin og einnig meistarflokki.
Æfingar eru bæði fyrir pilta og
stúlkur."
„Hver eru helztu áforn í í-
þróttamálum?"
„Það eru geysilega mikil áform
um að stækka og endurb.vggja
grasvöllinn við Hástein. Undir-
búningsvinnu er lokið og áfram
unnið til áramóta jafnvel. Völlur-
inn verður 120mxl20m þannig
að hægt verður að hafa 4 velli
með tilfærslu marka. Þá verða
einnig byggð áhorfendasvæði.
búningsherbergi og böð. Þá er
ekki sfður spennandi. að uppi eru
áform um að fá keypta hingað
lilbúna íþróttahöll frá Norður-
löndum. sem hefur bæði stóran
íþróttasal. og inni- og útisund-
laug. Þá er reiknað með sal sem
er 22x44 m. áhorfendapöllum.
innisundlaug með kerjum og
stærri útisundiaug. Þetta hús
kemur væntanlega til með að
standa í Brimhólalaut við nýja
íþróttasvæðið svo til miðsvæðis i
bænum ntiðað við nýja byggingar-
skipulagið. Það eru yfir 2000 virk-
ir félagar í ÍBV og þvf mikil nauð-
syn að fá þessa íþröttahöll strax.
því bæði eru salir skólanna löngu
orðnir allt of litlir fyrir félags-
starfið i íþróttunum og engin
sundlaug er nú til staðar. Bæjar-
stjóri og bæjartæknifræðingur
eru nú að kanna, hvernig er aði
fjármagna fyrirtækið.
Þá verður innan skamms hafist
handa við að harpa og vinna nýtt
slitlag á gamla malarvöllinn. en
það fór ailt af þegai' askan var
hreinsuð af vellinum.
Ríkissjöður er búinn að setja á
fjárlög 14 milljónir kr. til vailar-
gerðarinnar við Hástein. en það
er ljóst, að meira þarf til. ef það á
að gera þetta á annað borð.
Þá er rétt að taka það fram. að
eftir þvf sem við bezt vitum verða
95-100% af meistarflokkstrákun-
um komnir heim um áramót."
Yfirdrifin
verkefni hjá
vélsmiðjum
Kristján Þór Kristjánsson, for-
stjóri Vélsmiðjunnar Mgana,
sagði, að þeir væru komnir heim
með allar sínar vélar og öll tækin
væru komin upp.“ En það eru
vanhöld f mannskap hjá okkur,
þvf ennþá erum við aðeins 24
miðað við allt að helmingi fleiri
fyrir gos. Við gerum okkur þó
vonir um að fleiri bætist f hópinn
í vetur og vor, þó að við vonumst
að sjálfsögðu allir til, að þeir
komi sem fyrst.“
Vélsmiðjan Þór hefur þegar
tekið til starfa og starfaði reyndar
af og til í gosinu sjálfu, og allar
vélar Vélsmiðjunnar Völundar
eru komnar heim og er verið að
setja þær upp.
Kristján Þór sagði, að verkefn-
in væru yfirdrifin, þvf að um 60
bátar myndu verða gerðir út frá
Eyjum i vetur auk loðnubátanna.
,,En,“ sagði Kristján Þór, „ég ber
svolítinn kviðboga fyrir kjara-
samningunum, því það yrði
hrikalegt ástand hjá okkur, ef til
verkfalla kæmi."
Sjálfvirk og handvirk
símaþjdnusta í bland
um áramótin — Gasið
eyðilagði dansgólfið
Óli tsfeld að taka út úr gámunum
með hjálp góðra manna.
Unnið er í Samkomuhúsinu við
að koma öllu í lag, en um þessar
mundir er verið að mála húsið og
auk þess þarf að skipta um gólf í
aðalsalnum, þvf gasið eyðilagði
allt parkettið í gólfinu. Oli ísfeld,
sem annast daglegan rekstur
hússins, er kominn heim. Víð hitt-
um hann, þegar hann var að taka
úr gámum og koma sínu fyrir
aftur i Eyjum. „Það verður allt
málað og standsett." sagði hann,
„og það ætti að vera tilbúið um
áramót, en það gengur illa að fá
iðnaðarmenn. Núna er búið að
mála loftið í salnum og eldhúsið,
og parkettið á dansgólfið er kom-
ið inn í húsið. Einnig á Litli
salurinn að vera tilbúinn um
sama leyti og bíó og danssalurinn,
hvort sem það stenzt nú eða ekki.
Þegar húsið er orðið klárt aftur
hefjast sýningar og alveg á næst-
unni verður farið að setja upp
sýningarvélarnar. Það þarf líka
að yfirdekkja stjólana í salnum,
og þeir eru farnir til Reykjavíkur.
Þá er ýmislegt á döfinni hér í
húsinu, en það er ekki tímabært
að segja frá því ennþá." —- á.j.
fá loforð fyrir 200 númera hand-
virkri stöð um mánaðamótin. Þá
ættu allir að geta fengið sima.
sem hafa beðið um þá. Annars
verður byrjað að setja upp nýju
stöðina fyrir áramót: hluti af
henni er í Reykjavík og hluti er
ekki kominn ennþá frá Svíþjóð.
Þessi 1000 númera stöð verður
tilbúin í júli — ágúst 1974, en á
næstunni verður væntanlega gerð
pöntun á annarri stöð fyrir Eyjar,
en stækkunar möguleikarnir á
þessari gerð sjálfvirkra stöðva
eru ótakmarkaðir, og þessi nýja
stöð verður betri en sú gamla."
Hilmar sagði, að 7 stúlkur ynnu
nú á simanum og fleiri myndu
bætast við, eftir því sem þyrfti.
Unnið er i öliu símstöðvarhúsinu
meira og minna um þessar mund-
ir og er allt að komast í horfið til
að taka á móti nýju tækjunum. 30
— 40 manns vinna stöðugt að hin-
um f jölmörgu verkefnum, en þess
má geta, að simstöðin hefur unnið
svo til sleitulaust í Eyjum siðan
gosið hófst. Um mánaðamótin
mun Vestmannaeyjaradíó flytja
aftur í sfmstöðina úr Gagnfræða-
skóia Vestmannaeyja, en þangað
var allt flutt, þegar verst lét. Nú
vantar ný loftnetsmöstur fyrir
Eyjaradío, þvi að allar aðstæður
eru svo breyttar vegna nýja lands-
lagsins. Líklega verða nýju loft-
-Tietin sett upp suður á Eyju.
Hilmar sagða að stefnt væri að
því að Ijúka við að flytja allt úr
Gagnfræðaskólanum í vor, og
sagði hann, að þegar væri byrjað
á því verki. Kvað hann það verða
gert jöfnum höndum, en . helzt
þyrfti að vera búið að gera Gagn
fræðaskólann í stand fyrir vorið,
áður en fólkað fer að flykkjast
heim, því nóg verður víst þörfin
fyrir alla tiltæka iðnaðarmenn þá.
Ililmar Gunnarsson
sfmstöðvarstjóri.
Það var mikill munur að koma
inn í símstöðina, frá því ég kom
þar síðast i gosinu. Þá var verið að
flýja með allt úr húsinu vegna
eldgossins og gassins og meira að
segja þurftu björgunarmenn að
vera með gasgrímur við að losa
alla mótora stöðvarinnar og 400
batterí, sem hvert um sig vó 400
kg.
„Nú eru möguleikar fyrir um
400 númer og allt af bætist eitt-
hvað dag hvern," sagði Hilmar
Gunnarsson símstöðvarstjóri, þeg-
ar við röbbuðum við hann. „Þessi
400 númer," hélt hann áfram,
„eru handvirk, en sjálfvirka stöð-
in, sem er í gangi eykur þetta um
60 númer. Þörfin er hins vegar
míklu meiri, og við erum búnir að
Samkomuhúsið klárt
„íþróttahöll
er algjört stór-
mál núþegar’,
Litið inn í samkomuhúsið
ogsímstöðina