Morgunblaðið - 19.06.1974, Síða 22

Morgunblaðið - 19.06.1974, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JUNÍ 1974 Búningalitir í HM Dýr verðlaunagripur Liðin, sem taka þátt í loka- keppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, verða að skipta all- oft um búninga í leikjum sínum f keppninni. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að vegna sjónvarpsupp- töku er talið nauðsynlegt, að annað liðið leiki í ljósum búningum, en hitt í dökkum. Er það framkvæmdastjórn keppn- innar, sem ákveður hverju sinni lit búninganna. Landsliðsbúningar landanna 16 eru annars sem hér segir: Brasilía: Gul treyja, bláar buxur og hvítir sokkar. Júgóslavía: Blá treyja, hvítar buxur og rauðir sokkar. V-Þýzkaland: Hvít treyja, svartar buxur og hvítir sokkar. Chile: Rauð treyja, rauðar buxur og hvítir sokkar. A-Þýzkaland: Hvít treyja, bláar buxur og hvítir sokkar. Astralía: Gul treyja, grænar buxur og gulir sokkar. Zaire: Græn treyja, hvítar buxur og grænir sokkar. Skotland: Blá treyja, hvítar buxur og rauðir sokkar. Uruguay: Blá treyja, svartar buxur og svartir sokkar. Holland: Ljósrauð treyja, hvítar buxur og ljósrauðir sokkar. Svíþjóð: Gul treyja, bláar buxur og gulir sokkar. Búlgarfa: Hvít treyja, grænar buxur og rauðir sokkar. Italía: Blá treyja, hvftar buxur og bláir sokkar. Haiti: Rauð treyja, svartar buxur og rauðir sokkar. ÞAÐ virðist nú samdóma álit margra að peningaausturinn f sambandi við úrslit heims- meistarakeppninnar í knatt- spyrnu sé nú kominn út f hreinar öfgar, og forráðamenn FIFA hafa sagt, að hjá þvf verði ekki komizt f framtfðinni að setja einhverjar hömlur á það, hvað leikmennirnir geta pressað út úr samböndum sfnum og öðrum aðilum vegna keppninnar. Hvernig fara eigi að þvf að setja þær hömlur veit hins vegar enginn. Peningagræðgi leikmannanna, sérstaklega frá þeim löndum, sem atvinnumennska er rótgróin, virð- ist engin takmörk sett, né heldur þvi að hvaða kröfum er gengið. Sagt er að umræða leikmannanna dagana áður en keppnin hófst hafi ekki snúizt um knattspyrnu, heldur peninga. — Ef þið greiðið mér 1.000 pund (c a. 217 þús. ísl. krónur) — þá skal ég eiga við ykkur viðtal, sagði einn af leikmönnum skozka landsliðsins, þegar brezkir sjón- varpsmenn báðu hann um viðtal að lokinni æfingu fyrir keppnina. Síðar þennan sama dag fengu Pólland: Hvít treyja, rauðar buxur, rauðröndóttir sokkar. Argentína: Blá og hvít treyja, svartar buxur og gráir sokkar. Carnevali CARNEVALI markvörður argentfnska landsliðsins leik- ur með spánska 1. deildar lið- inu Las Palmas og hefur að undanförnu bætt við sig mikl- um æfingum. Þegar félagar hans hvflast fer Carnevali út á völlinn og fær einhverja til þess að skjóta á sig. Þetta hefur hann gert f allan vetur og er nú sagður f mjög góðri æfingu. Tassy TASSY aðstoðarþjálfari landsliðs Haiti hefur lagt mikla vinnu f að kynna sér leikaðferðir þeirra liða, sem taka þátt f lokakeppninni. Hann fór til Evrópu og horfði þar á marga leiki og keypti kvikmyndaupptöku af þeim. Einn leikjanna, sem hann sá, fór fram í regni, og þegar hann kom heim var hans fyrsta verk að fá aðalleikvanginn á Haiti rækilega bleyttan og sfðan var boðað á æfingu. Þetta var f fyrsta sinn sem flestir leik- menn Haiti kynntust þvf að leika á blautum velli. Skotarnir heimsókn frá sölu- manni fyrirtækis, sem selur knattspyrnuskó og íþróttafatnað. Þeir kröfðust þess að fá greidd 2.000 pund ef þeir notuðu skó frá fyrirtækinu á æfingum sfnum. Sölumaðurinn kvaðst ekki geta X-r — ri<^ orðið við þeim kröfum, og þá tóku Skotarnir sig til og plokkuðu kenniræmur fyrirtækisins af skóm sfnum. Leikmenn Hollands fá í það minnsta upphæð sem svarar til 3 millj. króna íslenzkra fyrir undir- búning sinn að keppninni. Hver Það urðu Englendingum von- brigði, þegar stjórn FIFA-alþjóða sambands knattspyrnumanna ákvað að sú nýja verðlaunastytta, sem nú er keppt um f heims- meistarakeppninni, skyldi ekki heitin eftir sir Winston Chur- leikmaður fær svo væna f járfúlgu fyrir hvern leik sem liðið leikur og háa aukagreiðslu vinni það leiki. Ef Hollandi tekzt að vinna heimsmeistarakeppnina fær hver leikmaður 10 milljónir króna í vasann, — sem launauppbót! En knattspyrnusambönd sumra þjóðanna maka líka krókinn. Verði Vestur-Þjóðverjar heims- meistarar, mun fyrirtækið Adidas senda vestur-þýzka sambandinu ávfsun að upphæð 65 millj. króna, auk þess sem leikmennirnir sjálf- ir fá álitlega upphæð. Fyrir keppnina gafst hverjum sem var tækifæri til þess að taka ljós- myndir eða kvikmyndir af vestur- þýzka liðinu og greiðslan fyrir ómak þetta var aðeins 35 þúsund krónur til hvers leikmanns. Þurftu þeir að stilla sér upp f 10 mínútur á vellinum til þess að vinna sér þessa summu inn. Aðrar þjóðir gengu á lagið, en mynda- smiðirnir virtust hafa eytt aurun- um sfnum í Þjóðverjana, og áhuginii minnkaði stöðugt eftir þvf sem fleiri lið gáfu sig fram. Vitanlega eru leikmenn liðanna tryggðir í bak og fyrir. Þannig mun t.d. FC Barcelona, félag Hol- chill, svo sem tillögur höfðu kom- ið fram um. Það voru Brasilfumenn, sem komu með tillögu um að heiðra minningu Churchills með þvf að nefna verðlaunagripinn eftir hon- um. Buðust þeir til þess að gefa lendingsins Johans Cruyff fá greiddar 230 milljónir króna, ef þetta knattspyrnugoð slasast það illa í keppninni, að hann getur ekki leikið knattspyrnu framar. Þetta er reyndar hæsta trygginga- upphæðin sem um getur. Má nefna til samanburðar að ítalska liðið allt er aðeins tryggt fyrir 1,2 milljarð króna, og sjálfur keisar- inn, Beckenbauer er bara tryggð- ur fyrir 25 milljónir. A ÞEIM stöðum f VesturÞýzka- landi, sem leikir lokakeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu fara fram, hefur ver- ið komið upp rannsóknastöðvum við vellina. Hlutverk þeirra er að kanna hvort leikmennirnir hafi notað örvandi lyf í leikjum sfnum. Eftir hvern einasta Ieik verða tveir leikmenn úr hverju liði teknir til rannsóknar, og af þeim teknar bæði blóð og þvagprufur. Eftir leikinn um þriðja sætið verða átta leikmenn rannsakaðir og tíu leikmenn þeirra liða, sem leika úrslitaleikinn. Auk þess eiga svo leikmennirnir von á því, að af og til muni læknar koma í heimsókn til þeirra og taka blóð- prufur. Það er nefnilega líka bannað að nota örfandi lyf á milli leikja. Dómarar leikjanna hafa einnig fengið fyrirmæli um að fylgjast með þvf, hvort einhver leikmann- anna er í „annarlegu ástandi" meðan leikirnir fara fram, og verði þeir varir við slíkt, ber þeim tafarlaust að tilkynna það til rannsóknarstöðvanna. Að margra dómi er þessi rann- sóknastarfsemi komin út í hrein- ar öfgar. íþróttamennirnir mega jafnvel ekki nota lyf, sem eru hættulaus og jafnvel gefin smá- börnum. Má þar nefna nefdrop- ana „Ephedrin", sem jafnvel verðlaunagrip til keppninnar, en sem kunnugt er, unnu þeir Jules Rimet styttuna til eignar með sigri sfnum f heimsmeistara- keppninni 1970. Stjórn FIFA ákvað hins vegar á fundi sínum að afþakka tilboð Brasilfumannanna. Sambandið er sjálft mjög efnað og hefur þvf góð ráð ð þvf að gefa sjálft verðlauna- grip til keppninnar. Sá gripur bfður nú á góðum stað þess að fyrsti handhafi taki við honum eftir úrslitaleikinn í Munchen 7. júlf n.k. Stytta þessi erteiknuð af hinum 58 ára ítalska arkitekt, Silvio Gazzaniga. Vegur verð- launagripurinn 4,5 kg. og er úr 18 karata gulli. Kostnaður við gerð hans var um 15 milljónir króna. Þá ákvað stjórn FIFA einnig að öll þðtttökulöndin f heimsmeista- rakeppninni að þessu sinni fengju litla afsteypu af grip þess- um, og er grafið á hana nafn þðtttökuþjóðarinnar og orðin „FIFA WORLD CUP 1974.“ Verð- launagripurinn sjálfur mun hins vegar aldrei vinnast til eignar, en sigurvegarar keppninnar fá að geyma f f jögur ár. börnum innan eins árs er gefið. Listinn yfir þau lyf, sem leik- menn mega ekki nota, lengist stöðugt og á honum eru til dæmis: amfetamin, kokain, methylpheni- dat, methylephedrin, amiphena- zol, heroin, morfin og pethidin. Verða átök...? Framhald af bls. 17 Að íslendingar verða að stíga stórt skréf ef þeir eiga ekki að loka dyrunum f hópi hinna beztu að baki sér. Það er mjög eðlilegt að nokkur tröppugang- ur sé á frammistöðu okkar manna i landsleikjum, en þeim hefur óneitanlega tekizt að sanna, að þegar þeim tekst vel upp standa þeir flestum snún- ing. Það markmið, sem keppa ber að, er að þessi tröppugang- ur verði af sniðinn og landsliðið geri sig gildandi — ekki í ein- um leik, heldur mótin út. Til þess að svo megi verða þarf stórátaka, ekki sízt í þjálfara- málunum hérlendis, en senni- lega höfum við dregizt einna mest aftur úr á þvf sviði hér- lendis. Þannig spá stjörnurnar Hverjir verða heimsmeistar- ar f knattspyrnu? Þessari spurningu hafa margir velt fyrir sér að undanförnu og spáð um úrslitin, jafnt heims- meistarastjörnurnar sjálfar sem almenningur. Hinn frægi leikmaður Hollands, Johan Cruyff spáir því, að Pólverjar vinni keppn- ina, ítalir verða í öðru sæti, A-Þýzkaland í þriðja sæti og Vestur-Þýzkaland f fjórða sæti. Dennis Law, hinn gamal- kunni leikmaður skozka lands- liðsins spáir Skotum sigri.Vestur-Þjóðverjum öðru sætinu, Hollendingum þriðja sætinu og ítölum fjórða sætinu. Ove Kindvall, einn framlfnu- manna sænska landsliðsins, spáir Vestur-Þjóðverjum sigri, Italiu öðru sæti, Brasilíu þriðja sæti og Hollandi fjórða sæti. Gerd Miiller, markakóngur- inn frá Mexikó 1970, spáir Itöl- um sigri, Brasilíumönnum öðru sætinu, Vestur-Þjóðverjum þriðja sætinu og Pólverjum fjórða sæti. Peter Ducke, leikmaður A- Þýzka landsliðsins spáir Brasilíu sigri, Vestur-Þýzka- landi öðru sæti, Italfu þriðja sæti og Pállandi fjórða sæti. Fabio Capello, leikmaður með ftalska landsliðinu, spáir Vestur-Þýzkalandi sigri, en röð næstu liða verði: Brasilía, Italía og Holland. Wolfgang Kleff, leikmaður með V-Þýzkalandi spáir þannig um röðina: ítalía, V-Þýzkaland, Brasilfa og Júgóslavía. :.r§S'Í. Gerd Muller — spáir Itölum sigri. MEKA RÆTTIM PBNINGA EN KNATT- SPIRNUIHHIBIDIM UIKMANNANNA MEGA EKKI NOTA NEF DROPA SEM ELNS ÁRS BÖRNUM ER GEFID —stjl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.