Morgunblaðið - 19.06.1974, Síða 26
M0RGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JUNI 1974
Framboðslisti Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi
1. Ingólfur Jónsson,
Hellu.
2. Guðlaugur Gfslason,
V estmannaey j um.
3. Steinþðr Gestsson,
Hæli.
6. Oli Þ. Guðbjartsson,
Selfossi.
4. Siggeir Björnsson,
Holti.
5. Gfsli Gíslason,
Vestmannaeyjum.
7. Hannes Hjartarson,
Herjólfsstað.
8. Eggert S. Haukdal,
Bergþórshvoli.
9. Hermann Sigurjónsson,
Raftholti.
10. Olafur Steinsson,
Hveragerði.
11. Sigþór Sigurðsson,
Litla-Hvammi.
13. Arnar Sigurmundsson,
Vestmannaeyjum.
UNHORF
Umsjón: Jón Manússon og
Sigurður Sigurjónsson
Hvað varðar þig um
stjóm efnahagsmála?
Hvað varðar þig um stjórn
efnahagsmála?
Stjórn efnahagsmála á íslandi
sker úr um það, hver afkoma þín
er og verður hvort það vöruúrval
sé ávallt til í verzlunum, sem
frjáls verzlun tryggir bezt, hvort
atvinnufyrirtækið, sem þú starfar
við, getur þróazt og dafnað, hvort
sparifé þitt á bankabók eða í líf-
eyrissjóði verður að engu á báli
verðbólgunnar og sfðast en ekki
sizt að hve miklu leyti ráðstöfun-
arrétturinn yfir þeim launum,
sem þú hefur aflað, er tekinn af
þér með alls kyns sköttum og
álögum.
Hvernig yrði stjórn efna-
hagsmála háttað við áfram-
haldandi vinstri stjórn eft-
ir næstu alþingiskosning-
ar?
Að vera neytandi undir vinstri
stjórn merkir að vita aldrei, hvort
jafnvel brýnustu mauðsynjavörur
verði á boðstólum deginum leng-
ur. Höft og skömmtun eru þau
hagstjórnartæki, sem einkenna
gleggst hagstjórn vinstri manna.
Að vera atvinnurekandi undir
vinstri stjórn merkir að vita
aldrei deginum lengur, hvaða
ósköp dynja yfir næst — höft,
25% bindiskylda fjármagns, sí-
yfirvoandi gengisfelling, verð-
bólgueldur og fjárfestipgahöft.
Augljóst er, að við slíkar aðstæð-
ur öryggisleysis er stjórnendum
gersamlega ókleift aó vinna að
skynsamlegri áætlanagerð um
rekstur fyrirtækja sinna. Að vera
sparifjáreigandi eða félagi í líf-
eyrissjóði undir vinstri stjórn
merkir að glata allt að 50% inni-
stæðu sinnar f óðaverðbólgu á 24
mánuðum. Að vera að fjárfesta
undir vinstri stjórn merkir að fá
hvergi fjármagn eða vinnuafl sök
um ofurmögnunar ríkisvaldsins á
framkvæmdum. Að vera launþegi
undir vinstri stjórn á Islandi
merkir að vera lofað gulli og
grænum skógum og sitja sfðan
uppi með svikin tóm, samanber
þátttöku ríkisstjórnar Ólafs Jó-
hannessonar í gerð síðustu kjara-
samninga.
Óvenju mikill fjöldi Islendinga
mun halda út á vinnumarkaðinn á
næsta áratug. Hvernig hefur
vinstri stjórnin búið í haginn
fyrir þetta fólk? Sú verðbólgu-
stefna, sem vinstri stjórnir hafa
ávallt rekið á Islandi, hefur
undantekningalaust leitt vaxtar-
brodda efnahagslífsins — útflutn-
ingsatvinnuvegina — í afkomu-
örðugleika og jafnvel rekstrar-
þrot. Fyrirhugað var t.d. stórátak
í nauðsynlegri atvinnuuppbygg-
ingu þjóðarinnar — efling ís-
lenzks iðnaðar til útflutnings.
Full samstaða var með vinstri og
hægri mönnum um mikilvægi
þessa átaks, fyrst og fremst með
tilliti til atvinnutækifæra í fram-
tíðinni. Iðnbylting var jafnvel
boðuð af núverandi iðnaðarráð-
herra. Sú bylting varð að engu
vegna verðbólgustefnu vinstri
stjórnar Ólafs Jóhannessonar.
Treysta menn áframhaldandi
vinstri stjórn svo fyrir uppbygg-
ingu atvinnulífs á Islandi?
Hvers vegna sigla vinstri
stjórnir á tslandi ávallt í
strand?
Allar þær vinstri stjórnir, sem
setið hafa við völd á íslandi, hafa
hrakizt frá vegna lélegrar stjórn-
ar efnahagsmála. Grundvallaror-
sök þessa er án efa sundurleit
markmið vinstri flokkanna í
efnahagsmálum, sem hefur í för
með sér að vinstri flokkunum hef-
ur reynzt ógjörningur að móta
ákveðna stefnu í atvinnumálum
— svo ekki sé minnzt á, að þeir
„Eruð það þér, sem hafið stjórnað
efnahagsmálunum að undan-
förnu?“
geti fylgt slíkri stefnu eftir. Það
er staðreynd, að framkvæmd
stjórnar efnahagsatvinnumála
undir vinstri stjórn hefur
einkennzt af einangruðu ,,poti“
einstakra ráðherra á sviði síns
ráðuneytis. Halda mætti stund-
um, að t.d. sjávarútvegur eða
iðnaður væru einangruð hagkerfi,
þegar á það er litið, hvernig mál-
um þeirra er stjórnaö. Fögur
fyrirheit skorti ekki í upphafi. I
Framkvæmdastofnun ríkisins
skyldu unnar áætlanir um ís-
lenzkt atvinnulff og verkefnum
raðað I forgangsröð. Nú er sú
stofnun sem hol skurn, en
ákvarðanataka öll hjá einstökum
ráðherrum. Sú ákvarðanataka
hefur ekki nema eitt markmið —
að krafsa sem flest atkvæði undir
viðkomandi ráðherra. Rfkisstjórn,
sem þannig er komið fyrir, hlýtur
að falla fyrr en síðar.
Hver er gundvöllur efna-
hagsstefnu Sjálfstæðis-
flokksins?
Gundvöllur stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í efnahagsmálum ert þú
— þ.e. einstaklingurinn og frelsi
hans. Sjálfstæðismenn telja, að
efnahagslegt frelsi einstaklings-
ins — neytandans, launþegans og
framleiðandans — sé undirstaða
þróttmikils efnahagslífs á Islandi
og afkomu þjóðarinnar. Sjálf-
stæðisflokkurinn telur, að eitt
höfuðhlutverk ríkisvaldsins sé að
tryggja frelsi einstaklingsins og
jafnframt að koma í veg fyrir, að
það sé misnotað.
Dreifing valdsins í þjóðfélaginu
er eitt megin baráttumál ungra
sjálfstæðismanna. Það er þeirra
trú að efling kerfis hins frjálsa
markaðar tryggi betur en mið-
stjórnarvaldið, sem vinstri menn
bera fyrir brjósti sér, hagsmuni
einstaklingsins og þá um leið
þjóðarheildar.
Vegna þessara grundvallar-
skoðana hafa sjálfstæðismenn t.d.
ávallt barizt fyrir frjálsri verzlun.
Þeirri baráttu — við vinstri öflin
— getur almenningur þakkað það
vöruúrval, sem nú er í íslenzkum
verzlunum. Sú haftastefna, sem
rikti í V-Evrópu á árunum eftir
stríð, var ekki útlæg gerð á Is-
landi fyrr en við upphaf viðreisn-
að 1960 — heilum áratug á eftir
nágrannaþjóðum okkar. Það er
erfitt að þakka sér hluti, sem
orðnir eru sjálfsagðir og ungu
fólki í dag er ugglaust um megn
að ímynda sér, að embættismaður
í einhverri innflutningsskrifstofu
Framhald á bls. 39