Morgunblaðið - 19.06.1974, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JUNÍ 1974
Aðalfundur Ljós-
mæðrafélags Islands
Heiðursfélagar Ljósmæðrafélags íslands: Guðbjörg
Kristinsdóttir og Ingibjörg Einarsdóttir.
AÐALFUNDUR Ljósmæðrafé-
lags íslands var haldinn að
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði 8. júní
1974. Félagið er 55 ára um þessar
mundir. Þetta er í fyrsta sinn sem
félagið þingar utan Reykjavíkur,
og í tilefni af þjóðhátíðarárinu
mættu nær allar ljósmæður til
fundarins á þjóðbúningum.
Margrét Þórhallsdóttir for-
maður Norðurlandsdeildar bauð
alla þátttakendur velkomna til
52 AF 100
TILBÚNIR AÐ
LÝSA TRAUSTI
Á KISSINGER
NTB—AP
DOMSMALARAÐUNEYTIÐ hef-
ur tilkynnt, að það muni fúslega
láta utanrfkismálanefnd öldunga-
deildar bandarfska þingsins f té
öll þau gögn, sem ráðuneytíð
hefur varðandi meint afskipti
Henrys Kissingers, utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna, af sfma-
hlerunum starfsmanna Banda-
rfkjastjórnar. 1 bréfi til formanns
nefndrinnar, Williams Ful-
brights, sagði, að hann gæti feng-
ið aðgang að öllum gögnum, sem
dómsmálanefnd fulltrúadeild-
arinnar hefði fengið. Sömuleiðis
hefur lögfræðilegur ráðgjafi
utanrfkisráðuneytisins, Caryle
Maw, sem er persónulegur vinur
Kissingcrs, heitið nefndinni að-
gangi að skjölum ráðuneytisins,
samkvæmt fyrirmælum ráðherr-
ans.
Fulbright hefur varað öldunga-
deildarþingmenn við því að flýta
um of atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsinguna á Kissinger,
sem 52 öldungadeildarþingmenn
af 100 eru nú reiðubúnir að
styðja. Telur Fulbright samþykkt
slíkrar yfirlýsingar Kissinger
ekki í hag, áður en málið hefur
verið kannað til hlitar.
Eyjafjarðar með flutningi á Fjall-
konuljóði Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi. Þá þakkaði formaður
félagsins, Steinunn Finnbogadótt-
ir, frábærar móttökur og setti
fundinn, en til fundarins voru
mættar yfir 80 ljósmæður víðs-
vegar að af landinu.
Rædd voru þau mál, sem hæst
ber hjá ljósmæðrastéttinni um
þessar mundir, svo sem nám ljós-
mæðra, réttarstaða, launakjör,
o.fl. einnig flutti Reynir Tómas
Geirsson læknir einkar fróðlegt
erindi.
Ljósmæðrafélagið á svo sem
kunnugt er margar valinkunnar
konur innan sinnar stéttar, tvær
þeirra voru gerðar heiðursfélagar
á þessum fundi, þær Ingibjörg
Einarsdóttir ljósmóðir, Engihlíð
Árskógsströnd og Guðbjörg Krist-
insdóttir, Siglufirði.
Steinunn Finnbogadóttir var
einróma endurkjörin formaður
Ljósmæðrafélags íslands, en
varaformaður þess var kjörin
Steinunn Guðmundsdóttir yfir-
ljósmóðir. Þjóðbúningarnir settu
mikinn svip á fundinn, sem var í
alla staði mjög vel heppnaður. Að
fundi loknum bauð bæjarstjórn
Akureyrar til kvöldverðar. Ljós-
myndir: Ásgrímur Ágústsson,
Akureyri.
Atvinna
óskast
26 ára maður með gagnfræðapróf
og lýðháskólamenntun, óskar eftir
atvinnu strax. Ýmislegt kemur til
greina. Sími 1 7334.
Fíladelfía Reykjavik
Systrafundur verður i kvöld kl.
8.30 mætum vel. Stjórnin.
Orlof húsmæðra í Keflavík
hefst í Gufudal 22. júni. I júli-
mánuði verða konur með börn, i
ágústmánuði eingöngu konur.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst í sim-
um 2121, 2041 og 2030. Sjá
nánar i götuauglýsingum.
Bifreiðastjórar
Viljum ráða bifreiðastjóra nú þegar. Þurfa að
hafa réttindi til aksturs stórra farþegabifreiða.
Upplýsingar í símum 20720 og 1 3792.
Landleiðir h. f.
Reykjanesbranesbraut 12.
Sænskur verkfræðingur
óskar eftir 4ra—5 herb. íbúð eða einbýlishúsi
án húsgagna, frá september. Leigutími 6
mánuðir til 1 ár. Samkomulag um greiðslu.
Uppl. í dag og á morgun kl. 5 — 7, sími
21789.
Hjúkrunarkonur
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, vantar
hjúkrunarkonur.
Upplýsingar gefur forstöðukona. Sími 95-
5270.
Laxveiði í Langá
Nokkrir stangveiðidagar óráðstafaðir í ágúst.
Fást í SPORTVAL við Hlemmtorg, sími 1 4390.
Heybindigarn
Bændur
höfum fyrirli'ggjandi takmarkað magn heybindigarnsá mjög hagstæðu
verði, sendum gegn póstkröfu. •
fc. J0IVSSSN sf.
umboðs- & heildverslun
sími 1 7480.
Afgreiðslumaður
Óskum að ráða afgreiðslumann strax I vara-
hlutaverzlun vora. Uppl. veitir verzlunarstjóri
fimmtudaginn 19/6 og föstudaginn 20/6 kl.
1 0 til 1 1 og 13 til 15.
Tilboð óskast
í Ford Escort 1 974 (ekinn 3000 km) skemmdur
eftir árekstur. Bifreiðin er til sýnis við Lang-
holtsveg 122. Tilboðum veitt móttaka í tjóna-
deild Hagtryggingar h.f. Suðurlandsbraut 10,
til 21. júní n.k.
Hagtrygging h. f.
Frá
Félagi
Nýalssinna
Almennur fræðslu- og
miðilsfundur
verður haldinn í stjörnusambandsstöðinni að
Álfhólsvegi 121, í Kópavogi, í kvöld 19. júní,
kl. 21,00.
Erindi: Sambönd við framliðna vini.
Miðilsfundur. Miðill: Sigríður Guðmundsdóttir.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Stjórn Félags Nýalssinna.
Vestmannaeyingar
Vegna væntanlegrar úthlutunar olíustyrks til
þeirra sem kynda hús sín með olíu, ber öllum
þeim, sem voru á íbúaskrá í Vestmannaeyjum
1. desember s.l. og búa nú í olíukynntu hús-
næði utan Vestmannaeyja, að hafa tafarlaust
samband við bæjarskrifstofuna í síma 6953
eða skrifstofuna í Hafnarbúðum í síma 25788.
Einnig verða þeir, sem fluttir eru aftur til
Vestmannaeyja, en hafa enn ekki tilkynnt
bæjarskrifstofunni um þann flutning, að gera
það tafarlaust.
Vanræksla getur valdið því, að réttur til styrks-
ins glatist.
Bæjarstjóri.