Morgunblaðið - 19.06.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JUNl 1974
29
Ægir Kristjánsson
rakari — Minning
Fæddur 10. júlí 1926
Dáinn 10. júnf 1974.
Með þessum fátæklegu línum
langar mig til að þakka mági
mínum Ægi Kristjánssyni rakara
fyrir allt og allt, hve hlýr og góður
hann ætíð var mér og börnum
mínum, ekki sízt, er ég kom í
fyrsta skipti á heimili hans og
eiginkonu hans Ágústu Engil-
bertsdóttur. Þá áttu þau heima á
Siglufirði, en þar dvaldi ég um
sumartfma ásamt einu barna
minna eftir að hafa hlotið alvar-
legt skipbrot. Systir mín og
mágur tóku mér þá opnum
örmum og vildu allt fyrir mig
gera. Fyrir það og allt annað gott
vil ég nú biðja góðan Guð að
launa iionum. Ægir átti alla tíð
einstaka hjartagæzku til að bera
og lét ætíð þá njóta hennar, sem
halloka fóru i lífsbaráttunni. —
Þannig reyndist hann systrum
sfnum, einkum þeim, er áttu við
veikindi að stríða. Veit ég, að þeir
nánir ástvinir hans, sem á undan
eru farnir, systir hans og dóttir,
sem þau Ægir og Ágústa misstu
fyrir mörgum árum, svo og bróðir
hafa tekið á móti honum, umvafið
hann ást sinni og leitt hann um
ljóssins heima.. Sjúkdómslega
Ægis var honum þungbær, en
aldrei heyrðist frá honum æðru-
orð.
Systir mín og börn hennar hafa
misst mikið, því að Ægir var
góður og ástríkur heimilisfaðir.
— Það er sárt að sjá á bak ástvini
og varla nokkur orð, sem huggað
geta í svo mikilli sorg. Ég finn
sárt til með aldraðri móður hans,
Guðrúnu Sigurðardóttur á Siglu-
firði, sem nú kveður þriðja barn
sitt, en nú eru aðeins fáar vikur
liðnar síðan hún sá á bak eigin-
manni sinum Kristjáni Ásgríms-
syni skipstjóra.
Ég treysti og trúi því einlæg-
lega, að Guð huggi og styrki alla
ástvini Ægis og þerri tár þeirra.
Drottinn gefi dánum ró, hinum
líkn sem lifa.
Mágkona.
Ægir Kristjánsson hóf nám í
hárskeraiðn 1944 hjá Jónasi
Halldórssyni, hárskerameistara á
Siglufirði og lauk því árið 1948.
Að námi loknu fór hann til
Kaupmannahafnar til að kynnast
því nýjasta í fagi sfnu, og vann
þar 5—6 mánuði. Eftir heim-
komuna kvæntist Ægir heitkonu
sinni Ástu Engilbertsdóttur,
ættaðri frá Vestmannaeyjum. Var
hún honum góður lífsförunautur í
blíðu og striðu og skapaði honum
og börnum þeirra gott heimili.
Sfðustu 5 mánuðina var Ægir á
sjúkrahúsi og barðist við þann
sjúkdóm sem varð honum að
aldurtitla fyrir aldur fram.
Eftir komu sína frá Kaup-
mannahöfn rak Ægir eigin
rakarastofu á Siglufirði með
miklum sóma, enda mjög fær í
sinni iðn. Árið 1969 flutti Ægir
með fjölskyldu sína til Keflavíkur
og rak þar rakarastofu meðan
heilsan leyfði. Ég hafði gegnum
árin samband við Ægi sem með-
lim í fagfélagi okkar. Fyrir þrem
árum kom Ægir til mín og bað
mig að taka son sinn Ólaf sem
nemanda. Hafði Ólafur þá lokið
prófi f Iðnskólanum á Siglufirði
og starfað hjá föður sfnum í hálft
ár. Ég var fljótur að taka
ákvörðun, því ég vissi að
„sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni", enda kom það fljótt í
ljós, að Ólafur varð mjög fljótur
að ná góðum árangri í faginu og
Kveöja — Astríður
Elísabet Magnúsdóttir
lauk sveinsprófi s.l. haust með
ágætum. Meðan Ólafur vann hjá
mér hafði ég oft samband við
Ægi, við þau kynni fann ég hve
mikinn áhuga hann hafði fyrir
giftu og gæf u barna sinna.
Það er vani okkar Islendinga að
spyrja um ætt og uppruna. For-
eldrar Ægis eru Guðrún Sigurðar-
dóttir, ættuð frá Ólafsfirði og
Kristján Ásgrimsson, skipstjóri,
nýlátinn. Þau hjónin voru eftir
því sem ég hefi heyrt eftir sam-
borgurum þeirra, virtir og vel
látnir Siglfirðingar.
Ég sem þessar línur rita hefi
orðið fyrir þeirri lífsreynslu að
missa maka minn, því get ég frú
Ásta skilið betur þinn missi,
barna ykkar og aldraðrar móður,
en bænir þær sem okkur voru
innrættar í æsku munu reynast
þér eins og mér styrkur. Eins er
ómetanlegt að eiga góð börn,
tengdabörn og barnabörn, sam-
vistir við þau muriu gefa þér trú á
lífið í framtíðinni.
Börn þeirra Astu og Ægis sem á
lifi eru, eru Ólafur trúlofaður
Klöru Karlsdóttur, flugfreyju,
Iris gift Haraldi Kornelíussyni,
gullsmið, Bára 12 ára og Alda 10
ára.
Að leiðarlokum vil ég og fjöl-
skylda min senda ykkur samúðar-
kveðjur í von um að Jónsmessan,
hátíð sumars og sólar sem nú
nálgast, verði ykkur leiðarljós f
framtiðinni, eftir þá erfiðu
mánuði sem nú eru að baki.
Fædd 19. september 1890.
Dáin. 9. júnf 1974.
Sunnudaginn 9. júní andaðist
Ástrfður Elísabet Magnúsdóttir
að Sólvangi í Hafnarfirði, þar sem
hún hafði dvalist síðustu ár ævi
sinnar. Þessi stuttu kveðjuorð eru
þakklæti mitt fyrir alla þá ástúð
og hlýju, sem hún sýndi mér frá
okkar fyrstu kynnum, þegar ég
kynntist eiginmanni mínum, sem
er barnabarn hennar. Hún var
alltaf mjög sjálfstæð og ákveðin,
jafnframt glæsileg og góð kona.
Ásta amma, eins og hún var köll-
uð, var mikil hannyrðakona, allt,
sem hún gerði, bar þess merki, að
vandvirk kona hafði verið að
verki.
Barnabörn og barnabarnabörn
voru hennar yndi og þau dáðu
hana og elskuðu, ennfremur dótt-
ir hennar og tengdasonur, sem
eiga mikið þakklæti skilið fyrir
alla þá ástúð, sem þau sýndu
henni alla ævi. Ég veit, að Ástríði
væri kærkomið að komið væri á
framfæri þakklæti til allra þeirra,
sem hjúkruðu henni og heimsóttu
eða hugsuðu hlýtt til hennar í
veikindum hennar um margra ára
skeið og er það hér með gert af
heilum hug. Að síðustu þetta:
Hjartans þakkir fyrir allt það
góða, sem hún sýndi dóttur sinni,
tengdasyni, barnabörnum, barna-
barnabörnum og öðru venzlafólki.
Guð geymi hana.
Blessuð sé minning hennar.
Sigrún Gestsdóttir.
J arðarför Ægis verður gerð frá
Fossvogskapellu kl. 10.30 í dag.
Páll Sigurðsson.
Tilboð óskast í
Ford Cortinu árgerð '67 með
bilaða vél. Upplýsingar i sima
21 892, eftir kl. 7 á kvöldin.
Bifreiðar
á kjördag
D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá
hinum ýmsu bifreiðastöðvum D-listans á
kjördag.
Frambjóðendur heita á stuðningsmenn list-
ans að bregðast vel við og leggja listanum lið
m.a. með því að skrá sig til aksturs á kjördag
30. júní næstkomandi.
Vinsamlegast hringið í síma: 84794.
Skráning bifreiða og sjálfboðaliða fer einnig
fram á skrifstofum hverfafélaganna.
> It
■
Melkorka
auglýsir:
Vorum að fá hinar
þekktu
t/l/olsey
peysur fyrir
sumarið.
Glæsilegasta bingó
ársins er á morgun
Stórbingó verður í Súlnasal Hótel Sögu á
morgun, fimmtudag, kl. 20.30.
Fimm sólarferðir
Vinningar eru samtals að verðmæti um 200
þúsund!
Meðal vinninga eru tvær sólarferðir til Mallorca
og tvær ferðir til Costa del Sol með Sunnu.
Ferð til Rómar verður vinningurinn í happ-
drætti, sem dregið verður í á staðnum.
Stjórnandi: Baldur Óskarsson.
Fjölmennið á glæsilegasta
bingó ársins! F-listinn.
Málarinn
á þakinu
velur alkydmalningu með gott veðrunarþol.
Hann velur Þ O L frá Málningu h.f. vegna endingar
og nýtni. Einn líter af ÞOLI þekur um það bil
10 fermetra.
Hann velur ÞO L frá Málningu h.f. vegna þess að
ÞOL er framleitt í 10 fallegum staðallitum, — og
þegar kemur að málningu á gluggunum, girðingunni
og hliðunum, blandar hann litina samkvæmt
nýja ÞOL litakortinu.
Útkoman er: fallegt útlit, góð ending.
Málarinn á þakinu veit hvað hann syngur.