Morgunblaðið - 19.06.1974, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JUNl 1974
33
fclk f
fréttum
Ken Russell er brezkur kvik-
myndaleikstjóri, sem margir
kannast við. Hann er með um-
deildari leikstjórum þar í Iandi
— talinn af sumum vera snill-
ingur og af öðrum með grodda-
fengnari rennusteinslistamönn-
um. Auk myndanna „Women in
Love“ eftir sögu Lawrence og
„The Devils“ hefur Russell
einkum lagt sig eftir því að
gera ævisögum ýmissa kunnra
tónskálda skil á hvíta tjaldinu,
og er skemmst að minnast
„The Music Lovers" um
Tsjaikovský, sem sýnd var hér í
Tónabiói. Síðasta afrek hans í
þeim efnum var „Mahler" um
Gústaf tónskáld og hlaut sú
mynd eins og flestar aðrar af-
urðir Russells misjafnar undir-
tektir. Hann er þó ekki af baki
dottinn, heldur þegar tekinn til
við næsta verkefni, sem er ævi
Franz Liszt, — „afskaplega
andlegt og kynferðislega seið-
andi“ verk eins og listamaður-
inn segir sjálfur. Á að hefjast
handa við tökuna á næsta ári.
En það, sem hvað mesta athygli
vekur f þessu sambandi, er að
Russell á sér enga ósk heitari
en að fá Mick Jagger, hinn
djöfullega söngvara Rolling
Stones, til að fara með hlutverk
Liszts. Og Jagger er sagður vera
„mjög áhugasamur'* um að taka
þetta hlutverk að sér. Ættu
menn nú að geta verið við öllu
búnir...
Utvarp Reykjavík
Þessi mynd var tekin fyrir utan dómshúsið f leikaraplássinu Beverly Hills í Kalifornfu 7. júnf sl., en
þann dag gaf Leonard Wolff dómari saman þau Richard Harris kvikmyndaleikara og Ann Turkei
fyrrverandi tfzkusýningarstúlku. Eins og menn vita hefur Richard Harris oft komizt f hann krappan,
— barizt við Indfána f myndinni „A Man Called Horse“ (sýnd f Hafnarbfói) og við náttúruöflin f
„Einn f óbyggðum" eða eitthvað svoleiðis (sýnd f Austurbæjarbfói). Nú hefur hann hins vegar gengið
l gildru hjónabandsins og þarf hann sennilega að beita allri reynslu sinni og dirfsku til að standast þá
raun. Þau Harris og Turkei hittust f fvrra, erþau unnu saman að kvikmyndagerð.
MIDVIKUDAGUR
19. Júni
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl.
7.00, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sverr-
ir Hólmarsson heldur áfram aó lesa
söguna „Krummana" eftir Thöger
Birkeland (2).
Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milli liða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Wolfgang Dall-
mann leikur á orgel Sónötu nr. 1 f
f-moll eftir Felix Mendelssohn-
Bartholdy/ Elly Ameling, Helen
Watts, Werner Krenn, Tom Krause,
Pro Arte kórinn í Lausanne og Suisse
Romande hljómsveitin flytja „Herr
Gott dích loben alle wir“ kantata nr.
130 eftir Bach; Ernest Ansermet stj.
Morguntónleikar kl. 11.00: González
Monino leikur á gftar Sónötu f d-moll
op. 51 eftir Turina/ Leon Goossens og
hljómsveitin Philharmonia leika Kon-
sert fyrir óbó og strengjasveit eftir
Vaughan Williams/ Nicolaj Ghjaurov
syngur arfur eftir Verdi/ Grete og
Josef Dichler leika „Scaramouche“,
svftu fyrir tvö píanó eftir Milhaud.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Meðsfnulagi
Svavar Gests kynnir lög af hljómplöt-
um.
14.30 Gústav Mannerheim marskálkur.
Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur flyt-
ur erindi. Það er inngangur að þýðingu
hans á köflum úr endurminningum
Mannerheims, er verða eftir það lesnar
sem sfðdegissaga.
15.00 Míðdegistónleikar:
Nýja fflharmónfusveitin f Lundúnum
leikur forleik að óperunni ,4 Traci
Amanti“ eftir Cimarosa; Reymond
Leppard st j.
Camillo Wanausek og Pro Musica
hljómsveitin f Vfnarborg leika Flautu-
konsert f G-dúr eftir Gluck; Michael
Gielen stj.
Á skjánum
Piero Toso og I Solisti Veneti leika
Fiðlukonsert í G-dúr eftir Vivaldi;
Claudio Scimone stj.
Hljómsveit Rfkisóperunnar f Vinar-
borg leikur Sinfónfu nr. 48 f C-dúr
„Mariu Theresu“ eftir Haydn;
Hermann Scherchen stj.
16.00 Fréttir. tilkynningar. 16.15 VeðuT-
fregnir.
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
17.40 Litli barnatfminn
Gyða Ragnarsdóttir stjórnar þaetti fyr-
ir yngstu hlustendurna.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Landslag og leiðir.
Einar Þ. Guðjohnsen talar um leiðir úr
Þórsmörk.
20.00 Samleikur f útvarpssal
Marilyn Gibson Secor og Guðrún
Kristinsdóttir leika Sónötu f B-dúr fyr-
ir fiðlu og pfanó eftir Mozart.
20.20 Sumarvaka
a. Snjóflóðið f Goðdal 12. desember
1948
Frásaga eftir Sigurð Rósmundsson.
Auðunn Bragi Sveínsson flytur.
b. Tvö kvæði um Jökuldalsheiði.
Höfundurinn, Guðmundur Þorsteins-
son frá Lundi, flytur.
c. Hún hefur lifað eina öld af ellefu
Séra Pétur Sigurgeirsson vfgslubiskup
talar um Ingu Jóhannesdóttur f Grfms-
ey.
d. Einsöngur
Svala Nielsen syngur lög eftir Sigurð
Ágústsson, Eyþór Stefánsson, Emil
Thoroddsen og Sigfús Einarsson;
Guðrún Kristinsdóttir leikur á pfanó.
21.30 Útvarpssagan: „Gatsby hinn
mikli“ eftir Francis Scott Fitzgerald
Þýðandinn, Atli Magnússon les (5).
22.00 Fréttír. 22.15 Veðurfregnir.
Bein Ifna
Tveir fulltrúar rauðsokkahreyfingar-
innar, Helga Sigurjónsdóttir og Lilja
Ólafsdóttir, svara spurníngum hlust-
enda.
Stjórnendur þáttarins: Árni Gunnars-
son og Vilhelm G. Kristinsson.
23.00 Nútfmatónlist. Halldór Haraldsson
ræðir við Herbert H. Ágústsson og leik-
in verða lög eftir hann.
23.45 Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
19. júnf 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 I sókn og vörn (stjórnmála-
umræður)
Bein útsending úr sjónvarpssal.
t umræðunum taka þátt talsmenn
þeirra fimm stjórnmálaflokka, sem
bjóða fram f öllum kjördæmum lands-
ins við alþingiskosningamar 30. júnf
næstkomandi.
Hver um sig svarar spurningum, sem
spyrjendur, valdir af hinum fjómm
umræddra flokka, leggja fyrir þá.
Gert er ráð fyrir að talsmaður hvers
flokks sitji fyrir svömm f 20 mfnútur.
22.20 Fleksnes
Norskur gamanleikjaflokkur, byggður
á leikritum eftir Ray Galton og Alan
Simpson.
(Nordvision — Norska sjónvarpið)
£g á réttinn
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.50 Dagskrárlok
Ungfrú Heimur, bandarfska stúlkan Marjorie Wallace, hefur legið
þungt haldin f sjúkrahúsi f Indianapolis f Bandarfkjunum þar sem
hún tðk inn of stðran skammt af deyfilyf jum. Faðir hennar neitaði
þvf aðspurður, að hún hefði reynt að fyrirfara sér. Hún var svipt
titli sfnum vegna vinskapar við knattspyrnumanninn George Best,
sem sfðan var sýknaður af ákæru um að hafa rænt frá henni
skartgripum. Hún var góð vinkona kappaksturshetjunnar Peter
Revson, sem fðrst f vor.
fclk í
fjclmiélum
I Rauðsokkurnar og jafnréttísmálin
!
I
I
I
I
I
a
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I kvöld kl. 22.15 er þátturinn Bein lfna á dagskrá útvarpsins, en
þátturinn er f umsjá þeirra Árna Gunnarssonar og Vilhelms G.
Kristinssonar fréttamanna.
1 dag er kvenréttindadagurinn árlegi, 19. júnf, og f þvf tilefni
gefst hlustendum kostur á að spyrja tvær rauðsokkur spjörunum
úr, þær Helgu Sigurjðnsdðttur og Lilju Ölafsdðttur.
Jafnréttismál kynjanna hafa verið mjög á döfinni hin sfðari ár.
Hafa margir látið þessi mál til sfn taka og einn þeirra hðpa, sem
hafa látið að sér kveða á þeim vettvangi, eru einmitt rauðsokkurn-
ar.
Rauðsokkuhreyfingin er starfandi f mörgum löndum, en hingað
mun hún hafa borizt frá Norðurlöndunum.
En sem sagt — hlustendur geta fræðzt um hreyfinguna og
stefnumál hennar með þvf að hringja f sfma 22260 milli kl. 22.15 og
23 f kvöld.
í sókn og vörn
EFTIR sjónvarpsfréttir og veðurfregnir verða tals-
menn þeirra fimm stjórnmálaflokka, sem bjóða fram í
öllum kjördæmum, fyrir svörum í sjónvarpssal, en
flokkarnir eru fimm talsins.
Þetta verður tæplega tveggja klukkustunda þáttur,
en spyrjendur eru valdir af þessum sömu flokkum.
Enn þá eru tímaverðirnir á ferðinni, þannig að rétt-
læti ríki, og er gert ráð fyrir því að hver flokkur fái 20
mínútur til að svara spurningum, sem til hans verður
beint.
Eflaust verður þessi þáttur mun fjörugri en flokka-
kynningin I síðustu viku, þar sem menn komu fram og
fluttu hver sína tölu eða svöruðu hagstæðum spurn-
ingum, sem voru fyrirfram undirbúnar.
Svo þegar hlustendur hafa lokið við að meðtaka
boðskapinn, kemur Fleksnes til sögunnar til að létta
skapið.