Morgunblaðið - 19.06.1974, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JUNÍ 1974
37
Skuggamynd i fjarska
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MARIU LANG,
PÝÐANDL JOHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR.
34
handrit, þegar þeir snúa öllu við í
íbúðinni. Að þeim hefði yfirsézt
svo mikilvægur hlutur?
Augu Pelle voru flöktandi og
Einar, sem fann að nú hafði hann
undirtökin hélt áfram, kuldalegri
röddu:
— Ef þú getur ekki komið með
frambærilegri skýringu, þá er ég
hræddur um, að ég neyðist til að
kveðja Wiijle á vettvang. Hann
hefði áreiðanlega hug á þvf að
spyrja þig ýmissa spurninga.
— í hamingju bænum... gerðu
það ekki! Pelle var mjög brugðið.
— Ég sver það, að erindi mitt
kemur ekki morðinu hið minnsta
við.
Hann hikaði við, en ákvað svo
að leysa frá skjóðunni.
— Það er alveg öldungis rétt,
að ég var ekki að leita einungis að
handritinu mínu. En.. .ég hef
ástæðu til að ætla að Eva.. .hafi
kannski... tekið eitt blað úr tösk-
unni og geymt það á sérstökum
stað. Það.. .það var bréf, sem
hafði flækzt með af vangá. Ég
uppgötvaði það á laugardagskvöld
og varð hræddur um að Eva
myndi láta það liggja á glámbekk,
svo að aðrir sæju það og þess
vegna hringdi ég til hennar og...
— Og hún lifaði að fela það vel
ö'lum forvitnum augum, þangað
til þið hittust næst, botnaði ég. —
Það eru sem betur fer vitni að því
sfmtali... Hvers konar bréf var
þetta?
Eg hafði sennilega búizt við að
hann svaraði þvf til að þetta hefði
verið ástarbréf, eða eitthvað þvf-
líkt, eða að hann myndi kannski
alls ekki svara, svo að þess vegna
varð ég steinhissa þegar hann
sagði:
— Þetta var ljósrit af
Stagneliusarbréfi...
En Einar vissi hvað klukkan sló
og hann sagði hæglátlega:
— Ekki vissi ég til að
Stagnelius hefði skrifað bréf, sem
væru einhvers virði.
Pelle var í senn hreykinn og
hræddur þegar hann svaraði:
— Þetta er áður óþekkt bréf.
Ég fann það af einskærri til-
viljun, þegar ég var að grúska og
það er engin vafi á þvf, að
Stagnelius skrifaði það. Það er
dagsett þremur mánuðum fyrir
andlát hans og skrifað Johönnu
Hellensterna. Það er stutt en
mjög merkilegt.
— Þetta er svei mér glæsilegt,
hrópaði ég hrifin. — Nýupp-
götvað Stagneliusarbréf!
Það hefur sjálfsagt komið þér
að góðum notum við doktorsrit-
gerðina þína?
Pelle hryllti sig órólegur í
herðunum og leit vandræðalega á
okkur.
Neei, eiginlega ekki... ég hef
reyndar ekkert notað það. Það er
ekkert í bréfinu, sem viðkemur
mínu efni.
— Hvað er þá að finna í þessu
bréfi, sem er svona merkilegt?
spurði Einar.
Og þegar hann fékk ekkert
svar, bætti hann við:
— Pelle, góði bezti, reyndu nú
að sýna skynsemi. Ef þetta er svo
vaxið sem þú segir, þá hlýt ég að
finna það. En það væri við-
felldnara að þú segðir allt af iétta.
Pelle eldroðnaði.
— 1 þvf er að finna öruggar
tímasetningar á ýmsum trúarljóð-
um meðal annars hið umdeilda
ljóð „Kvöldið". Og í þvi er einnig
að finna upplýsingar um afstöðu
Stagneliusar til trúmála um það
bil, sem hann andast.
Eldurinn snarkaði i arninum og
fsköld þögn lagðist yfir stofuna.
Loksins eftir langa mæðu sagði
Einar og ég sá að hann varð aó
taka á öllu, sem hann átti til þes§
að stilla sig.
— Með öðrum orðum, vinur
þinn hefði mikið gagn af þvf að fá
þetta bréf í hendur... ?
— Já.
— Hvenær fannstu það?
— I sumar.
— HEFURÐU SAGT
STAFFAN FRÁ ÞVl?
Svar var óþarfi að gefa við
þessari spurningu. Einar reis
snögglega á fætur.
— Það var sem sagt þess vegna
sem þú varst svona hræddur! Það
var Staffan, sem mátti ekki fyrir
nokkurn mun frétta af bréfinu.
Ekki fyrr en allt væri um seinan,
mátti hann frétta af bréfi, sem
ekki gagnar sjálfum þér hætis hót
f rannsóknum þínum, en þú taldir
ekki annað ráð vænna en fela það,
vegna þess að trúlegast hefði það
leyst þau vandamál, sem hann
hefur verið að glfma við í marga
mánuði. O, sveiattan! Þetta er
með því viðbjóðslegra sem ég hef
lengi kynnzt!
Pelle var orðinn grænn í
framan. Hann reis líka upp og
þeir horfðust í augu. Loks benti
Einar til dyra.
— Hypjaðu þig tafarlaust, áður
en ég segi allt, sem mig langar að
segja þegar ég veit þetta. Ég vildi
helzt forðast að þurfa að verða
mjög orðljótur.
En löngu eftir að Pelle hafði
laumast skömmustulegur burtu,
gekk elskulegur eiginmaður minn
um gólf og lét óspart í ljós fyrir-
litningu sína.
— Og allan tímann hefur
Staffan verið vingjarnlegur og
trúr Pelle og látið hann vita um
allt, sem hann hefur rekizt á. Eg
get ekki annað sagt, en ég brenn i
skinninu að segja Antonsson
próíessor frá þessu. Fólk, sem
aðeins getur unnið vísindaafrek
með makki og svindli á ekkert
erindi i háskólakennarastöðu.
Hann hélt áfram og sagði:
— En hversu fegin sem við
vildum þá dugir þetta ekki til að
okkur geti dottið f hug að mað-
urinn hafi framið morð
— Kannski einmitt þvert á
móti. Því að þegar allt kemur til
alls, þá verður hann fyrir greini-
legu tjóni við dauða Evu...
— En Staffan gæti hafa unnið
eitthvað við það, að Eva dó, sagði
ég syfjulega. En svo yfirbugaði
þreytan mig á ný og ég geispaði
ferlega.
— Mér þykir það leitt, elskan
mfn, en ef þú hefur í hyggju að
leysa morðgátur Christers á þess-
um tíma sólarhrings, verður þú að
gera það upp á eigin spýtur. Því
að nú fer ég að sofa.
VELVAKANDl
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi
til föstudags
• Lýsing á
myndlistar-
sýningunni
á Kjarvals-
stöðum
minnzt á lélega lýsingu á mynd-
listarsýningunni á Kjarvalsstöð-
um.
Steinþór Sigurðsson listmálari
hefur annazt uppsetningu sýning-
arinnar, og hafði hann samband
við Velvakanda vegna þessarar
gagnrýni, en skýringin er sú, að
það skilyrði var sett af ýmsum
erlendum aðilum, sem lánuðu
dýrgripi sína á sýningur.a, að lýs-
ing yrði ekki meiri en sem nemur
100 lúx. Sérstaklega hafa þessi
skilyrði verið sett þar sem i hlut
eiga teppi, en Steinþór sagði, að
yrði lýsingin meiri á öðrum hlut-
um, myndi hún verða til þess, að
teppin sæjust enn verr en nú.
Gott var nú að fá skýringu á
þessu. Velvakandi fór að skoða
sýninguna nú fyrir helgi, og var
helzt að hugsa um að taka með sér
vasaljós í næstu ferð — svo dauf
er birtan á gersemunum.
Sýningin er svo yfirgripsmikil
og merkileg, að hún verður ekki
skoðuð f neinum flýti, heldur skal
ráðlagt að taka sér ríflegan tíma.
Aðgangseyrir að sýningunni er
200 krónur, en gegn 100 krónu
aukagjaldi fást miðar, sem heim-
ila aðgang tvisvar sinnum í viðbót
að öllu þvi, sem fram fer á Kjar-
valsstöðum meðan sýningin
stendur. Þetta fyrirkomulag
finnst Velvakanda mjög til fyrir-
myndar.
Sýningarskráin er ómissandi
við skoðun sýningarinnar, en hún
er alldýr, enda mikil ritsmíð og
glæsileg að öllum frágangi.
Einn er sá galli á frágangi sýn-
ingarinnar, en hann er sá, að upp-
lýsingar um muni og listaverk eru
ekki við hvern hlut, þannig að
nauðsynlegt er að hafa skrána við
höndina. Fari tveir eða fleiri sam-
an til að skoða sýninguna, verða
þeir þvf að skiptast á um skrána,
nema þeir séu svo flott á því að
kaupa hver sína skrá, en það kann
að vefjast fyrir fólki, nema það
hafi þeim mun meiri auraráð, þar
sem skráin kostar litlar 300 krón-
ur.
Til mikilla bóta yrði ef upplýs-
ingar væru settar upp við hvern
hlut, en það hlýtur að vera auð-
velt f framkvæmd.
% Að láta bugast
af ástandinu
í heiminum
Hér er bréf frá konu að norðan:
„Ösköp láta mörg ungmenni
bugast af ástandinu í heiminum,
sbr. útvarpserindi Sigurðar Guð-
jónssonar, höfundar Truntusólar,
sem Þorleifur Hauksson flutti
þann 10. þ.m. En sé litið yfir
veraldarsöguna frá fyrstu tíð, sjá-
um við, að sifellt hafa verið háðar
styrjaldir um allan heim.
Þessi kynslóð er ekkert verri en
fyrri kynslóðir, nema sfður sé.
Það leysir engan vanda í
heiminum þótt allir láti þá nautn
eftir sér að neyta eiturlyfja eða
áfengis. Hver ætti þá að greiða
allan þann kostnað, sem af þvf
leiddi að verða að halda þessu
fólki uppi á dýrum stofnunum.
Ég held, að það sé heilbrigðast
að reyna að horfast í augu við
staðreyndir og láta draumóra
ekki villa sér sýn.
Kona að norðan.“
0 Þjóðhátíðardagur
Á morgun eru liðin 30 ár
ifrá lýðveldisstofnuninni, en hætt
er við þvf, að árlegur þjóðhátíðar-
dagur okkar falli að þessu sinni
nokkuð i skugga hátiðarhaldanna
vegna 1100 ára afmælis íslands-
byggðar.
Hátfðarhöld 17. júní hafa
breytzt verulega hin siðari ár, en
ekki er mjög langt síðan það rann
upp fyrir mönnum, að óráðlegt
væri að stefna saman f mið-
bænum múg og margmenni að
kvöldi hins 17. júní til að dansa á
torgum og gatnamótum.
Nú er hins vegar dansað við sex
skóla í borginni, en óneitanlega
eru margir, sem sakna miðbæjar-
skrallsins fræga.
Annars er það áreiðanlega til
mikilla bóta, að hlutur barna
hefur verið aukinn mjög f þessum
hátíðarhöldum frá þvf, sem áður
var, því að börn eru oft miklu
menningarlegri og prúðari í fram-
göngu en þeir, sem eldri eru, og
þarf ekki að óttast, að þau setji
neinn blett á virðuleikann.
£ Hátíðir haldnar
í ýmsum
byggðarlögum
Um þessa helgi verður 1100
ára afmælið haldið hátíðlegt i
nokkrum byggðarlögum landsins.
Af þeim dagskrám, sem fram hafa
komið, er sjáanlegt, að mikil
vinna hefur verið lögð i undir-
búning, og menn hafa lagzt á eitt
með að vanda til hans.
Áreiðanlega hefur sú ráðstöfun
verið rétt að haldnar yrðu sér-
stakar hátfðir vegna þess stóraf-
mælis á hinum ýmsu stöðum,
þannig að fólkið, sem þar býr,
verði beinir þátttakendur í undir-
búningi og öðru.
En þó að okkur þyki við hæfi að
hugsa nú til forfeðra okkar og
heiðra minningu þeirra með ýmsu
móti, má það samt ekki gleymast,
að við höldum nú hátiðlegt frelsi
okkar og sjálfstæði nú sem endra-
nær á þessum degi.
Þess vegna hljótum við nú að
hugleiða stöðu okkar i þjóðfélagi
nútímans, og hvort við önnumst
frelsið og lýðræðið eins og vera
ber.
Við megum ekki gleyma því, að
þetta frelsi hlutum við fyrir óbil-
andi trú og þor einstaklinga, sem
einskis létu ófreistað til að öðlast
það, og hnossins verðum við aó
gæta, efla það og styrkja, en
gleyma okkur ekki við það að afla
forgengilegra hluta.
53? SlGeA V/öGA £ ‘[iLVtmi
útfTo\W£tt\Rí\
FUVfrOd! l'ÁR!)
Hótelhaldarinn:
„Ætla ekki
að loka Hótel
Fornahvammi”
„ÉG HEF engin áform um að loka
hótelinu hér í Fornahvammi, þótt
ýmsir aðrir virðist vera með slfk-
ar ráðagerðir, sagði Hafsteinn
Ólafsson bóndi og hótelhaldari f
Fornahvammi f viðtali við Mbl.
fyrir stuttu.
Mbl. skýrði frá þvi um daginn,
að Vegagerð ríkisins, sem hefur
umsjón með Fornahvammi, hefði
tekið þá ákvörðun að loka hótel-
inu þar í byrjun júni. Hafsteinn
sagðist ekkert hafa vitað um þessi
áform Vegagerðarinnar, fyrr en
hann las um þau í blaðinu. Sagði
Hafsteinn, að hann ætlaði að láta
reyna á það, hvort hann gæti ekki
haldið rekstrinum áfram, og hann
myndi hafa opið til haustsins
a.m.k. Sagði hann, að ummæli
vegamálastjóra í frétt Mbl., um að
hótelinu yrði lokað f byrjun júní,
hefði dregið stórlega úr aðsókn.
„Fólk ekur hér framhjá, því það
heldur að búið sé að loka.“
I frétt Mbl. kom það fram hjá
vegamálastjóra, að minnst 11
milljónir kostaði að gera nauðsyn-
legustu lagfæringar á húsum í
Fornahvammi. „Þessa upphæó tel
ég óraunhæfa,“ sagði Hafsteinn.
„Það duga 2—3 milljónir nenia
Vegagerðin ætli sér að reisa ein-
hverja höll á staðnum." Sagði
Hafsteinn, að það myndi breyta
mjög miklu fyrir reksturinn á
staðnum, þegar rafmagn kæmi
þangað eins og lofað hefur verið.
ÁVALUR “BANI”
VENJULEGT DEKK
MEÐ SLÉTTUM„BANA‘
SLÉTTUR “BANI’’
BETRI STÝRISEIGINLEIKAR
BETRISTÖÐUGLEIKI í BEYGJUM
BETRI HEMLUN
BETRI ENDING
Veitið yður meiri þægindi
og öryggi í akstri — notið
GOODYEAR G 8,
sem býður yður fleiri kosti
fyrir sama verð.
------------------------
Sölustaðir:
Hjólbarðaverkstæði
Sigurjóns Glslasonar.
Laugavegi 171. Reykjavik
Gúmmfviðgerðin,
Hafnargötu 89 Keflavik
Bifreiðaþjónusta
Hveragerðis v/ Þelmörk.
H veragerði
P. Stefánsson h.f .
Hverfisgötu 103. Reykjavik
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Sim, 21240