Morgunblaðið - 19.06.1974, Side 40
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1974
JHorgunbteísib
RucivsmcnR
^-»22480
KIR RUKR
UlflSKIPTin SEIR
RUCIVSR f
JHorfiwnblaíiittu
Kaupmáttur láglaunafólks
hefur minnkað frá desember
KAUPMÁTTUR lægst-
Iaunaða verkafólksins hef-
ur minnkað frá því í des-
embermánuði sl. og nemur
rýrnun kaupmáttar þeirra
launþega, sem taka laun
skv. lægsta taxta Dags-
brúnar, verkakvennafé-
lagsins Framsóknar og
Iðju um 3,3% frá 1. des.
1973. Þá nam vikukaup
þeirra, sem taka laun skv.
þessum taxta 6.156 kr. en 1.
maí sl. nam vikukaup
þeirra 7.616 kr. og hafði
því hækkað um 23,7%. Frá
1. nóv. 1973 til maí 1974
hækkaði vítitala fram-
færslukostnaðar hins veg-
ar úr 226 stigum í 289 stig
eða um 27,9% og nemur þá
rýrnun kaupmáttar á þessu
tímabili um 3,3%.
Ef þróun kaupmáttar frá
1. marz sl., er nýir kjara-
samningar tóku gildi, er
skoðuð, kemur í ljós, að frá
þeim tíma, sem liðinn er,
hefur kaupmáttur þessara
sömu launþega í lægsta
taxta Dagsbrúnar, Fram-
sóknar og Iðju rýrnað um
18% og jafnvel þótt dregin
séu frá áhrif niðurgreiðslu
á helztu búvörum, stendur
eftir um 11—12% rýrnun
kaupmáttar frá 1. marz sl.
Þegar vinstri stjórnin tók við
völdum i júlímánuði 1971, hét
hún því að auka kaupmátt laun-
þega um 20% á tveimur árum og
að auki styttingu vinnutíma og
orlofslengingu. Ef miðað er við
lægsta taxta vikukaups Dagsbrún-
ar, Framsóknar og Iðju og vísi-
tölu framfærslukostnaðar, kemur
hins vegar í ljós, að kaupmáttur
vikukaups þessara stétta hefur
hækkað um 15,7% á tveimur ár-
um og 10 mánuðum eða 5,6% að
meðaltali á ársgrundvelli, og ef
miðað er við visitölu vöru og þjón-
Framhald á bls. 39
Samningar við lækna tók-
ust - Vaktþjónusta óbreytt
1 GÆRMORGUN tókust
samningar milli Læknafélags
Reykjavíkur annars vegar og
Tryggingastofnunar rfkisins og
Sjúkrasamlags Reykjavfkur hins
vegar um greiðslur fyrir nætur-
og helgidagaþjónustu lækna.
Verður vaktþjónusta lækna f
Reykjavfk þvf óbreytt frá því sem
verið hefur.
Guðmundur Oddsson, formaður
Læknafélags Reykjavíkur, tjáði
Mbl. í gærkvöldi, að helztu atriði
samningsins væru þau, að kaup-
trygging fyrir nætur- og helgi-
dagavaktir verður 11.500 krónur,
sem Læknafélagið skiptir. Sagði
Guðmundur, að líklega færi hún
nær öll á næturvaktirnar, þvf
erfiöast gengur að manna þær, og
þær hafa gefið minnst f aðra
hönd. Vitjunargjald að kvöldlagi
hækkar úr 574 krónum í 600 krón-
ur, næturgjald verður óbreytt,
1000 krónur, en helgidagagjald
hækkar úr 600 krónum f 1000
krónur.
óbreytt. Oft væri erfitt að manna
vaktirnar á sumrin, en líklega
myndi það takast að mestu í
sumar. Engir erfiðleikar væru á
því að manna vaktirnar að vetri
til.
Varðandi greinargerð Sjúkra-
samlags Reykjavfkur, sem birtist
f fjölmiðlum, um greiðslu til
lækna fyrir þessa þjónustu, hefur
Framhald á bls. 39
Helgi Hóseasson 1
30 daga varðhald
Lögreglumenn flytja Helga
Hóseasson út f lögreglubifreið.
Helgi lagðist á jörðina þegar
lögreglan kom, og varð hún þvf
að bera hann. Ljósm. Oddur
Asgeirsson.
A« MORGNI 17. júnf bar það til
tfðinda, að Helgi Hóseasson, húsa-
smiður, skvetti tjörublöndu á
norðurgafl og framhlið Stjórnar-
ráðshússins f Reykjavík. Lögregl-
an handtók Helga, og var hann
fluttur á Iögreglustöðina og síðan
í Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stfg. 1 gær var Helgi úrskurðaður
f 30 daga gæzluvarðhald og hon-
um jafnframt gert að sæta geð-
rannsókn. Helgi Hóseasson hefur
áður verið staðinn að slfkum
verkum, m.a. sletti hann skyri á
ýmsa fyrirmenn þjóðarinnar við
setningu Alþingis haustið 1972.
Það var um kiukkan 11 að
morgni þjóðhátíðardagsins, að
Helgi kom að Stjórnarráðshúsinu
með brúsa undir hendinni. Byrj-
aði hann að skvetta þunnri tjöru-
blöndu á húsið, og hafði tekizt að
ata út norðurgafl og framhlið
þess, áður en lögreglan náði að
handsama hann. Þegar lögreglan
kom, lagðist Helgi á jörðina, og
urðu lögreglumenn að bera hann
út í lögreglubifreiðina. Hann
sýndi engan mótþróa. Við yfir-
heyrslu hjá Sakadómi Reykjavfk-
ur i gærdag neitaði Helgi að segja
Framhald á bls. 39
Unnið að hreinsun Stjórnar-
ráðsins. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Ársskýrsla SÍS:
Efnahagsvandinn að
mestu heimatilbúinn
„Ég er ánægður með þetta sam-
komulag, og tel það sanngjarnt“,
sagði Guðmundur Oddsson. Hann
sagði ennfremur, að Lækna-
félagið myndi áfram manna
vaktirnar, og þvf yrði þjónusta
Engin at-
vinnuleyfi
lögð fram
Á HÁDEGI f gær rann úr frestur
sá, sem verkalýðsfélögin f Rang-
árvallasýslu veittu júgóslavneska
verktakafyrirtækinu Energopro-
jekt til að leggja fram atvinnu-
leyfi júgóslavneskra verka-
manna, sem vinna við Sigöldu-
virkjun. Þegar Mbl. hafði sam-
band við Sigurð Oskarsson, starfs-
manna verkalýðsfélaganna f gær-
kvöldi, höfðu engin atvinnuleyfi
borizt, og Sigurður sagðist vita, að
engin slfk leyfi hefðu verið gefin
út af Félagsmálaráðuneytinu.
„Víð lítum svo á, að samkvæmt
þessu leggi júgóslavnesku verka-
mennirnir niður vinnu strax á
morgun. Að öðrum kosti munum
við grípa til gagnráðstafana. Á
Framhald á bls. 39
Ársskýrsla Sambands'
íslenzkra samvinnufélaga
var lögð fram á aðalfundi
Sambandsins, sem haldinn
var 6. og 7. júní s.l. í yfirliti
Erlends Einarssonar for-
stjóra um starfsemina á
árinu 1973 segir m.a., að
efnahagsmál þjóðarinnar
séu komin í hnút. Vanda-
málin séu stór og að mestu
leyti heimatilbúin. í skýrsl-
unni er enn fremur bent á,
að verðhækkanir á inn-
fluttum vörum á árinu
1973 hafi verið 24%, en
verðhækkun á útfluttum
sjávarafurðum hafi numið
42%. Lögð er áhersla á, að
útlitið með rekstur Sam-
bandsins á þessu ári sé
mjög ískyggilegt og gera
verði sérstakar ráðstafan-
ir, ef komast eigi hjá mjög
alvarlegum skakkaföllum.
1 ársskýrslunni segir m.a.:
„Árið 1973 er eitt mesta veltiár,
sem komið hefur í sögu íslenzku
þjóðarinnar. Kom þar margt til:
Mikil verðhækkun á útfluttum
sjávarafurðum, en í heild
hækkaði verðlag allra útfluttra
vara um 42% og verðmæti vöruút-
flutnings í heild jókst um 53% frá
árinu áður. Verulegar verð-
hækkanir urðu á innfluttum vör-
um, eða I heild um 24%, en
aukning innflutningsverðmætis,
var 52% frá fyrra ári.“
Síðar í skýrslunni segir: „Á
árinu 1973 kom í ljós, að fjárhags-
staða Sambandsfélaganna gagn-
vart Sambandinu versnaði á tíma-
bilinu frá 1. janúar til 31. október
Framhald á bls. 39