Morgunblaðið - 19.07.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULl 1974
hug og einum vilja
valdið, framkvæmdavaldið og
þjóðin í heild vilji vinna með
Guði, fylgja honum og lúta boðum
hans og vilja í orðum og athöfn-
um...
Sú krafa er til ykkar gerð, þær
vonir við störf ykkar bundnar, að
þið íeggið allir saman, styðjið
hverjir annan og vinnið með sam-
stilltum höndum, einum hug og
einum vilja að heill og blessun
lands og lýðs. Islenzka þjóðin
hefur ekki kjörið ykkur á Alþingi
til að ala á ósátt og deilum, ekki
til að hugsa fyrst og fremst um
flokkinn ykkar, eða hlusta eftir
rödd erlendra valdhafa, heldur til
að vinna fyrir Island. Kristin þjóð
hefur kjörið ykkur til að viðhalda
og efla kristið frelsi, kristið lýð-
ræði, kristið siðgæði, jafnrétti og
bræðralag og allt, sem má verða
til betrunar og fegrunar mannlífi
og menningu þjóðar vorrar.
Þjóðin ætlast ekki aðeins til
þess, að þið setjið henni lög til að
lifa eftir í þessu landi. Hún vænt-
ir þess einnig, að þið séuð henni í
hvívetna góðar fyrirmyndir og til
eftirbreytni og leggið ykkur fram
um að veita henni leiðsögn til
lffshamingju. Sú krafa er ekki
aðeins til ykkar gerð, að þið stand-
ið öflugan vörð um landhelgina
og öryggi og frelsi lands og þegna,
heldur einnig um helgi og rétt
mannlegs lífs, séuð þess minnug-
ir, að hvert mannslff er heilagt og
af Guði gefið og á sinn rétt til að
njóta verndar og hamingju.
Það er vissulega ánægjulegt og
mikið þakkarefni, hversu mikil
áherzla er nú á það lögð að vernda
umhverfi mannsins og forða þvf
frá uppblæstri og mengun. Það
Alþingi, sem tekur til starfa í dag,
mun væntanlega samþykkja lög
um stórátak f þágu landgræðslu
og umhverfisverndar og til varð-
veizlu ómengaðs lands og náttúru-
auðæfa. Þau lög verða meðal
merkissteina þessa þjóðhátfðar-
árs, ein af þeim dýrmætu gjöfum,
sem nútíma kynslóð leggur í
hendur Islandi framtíðarinnar...
Þið, alþingismenn, sem takið til
starfa í dag, hljótið að eiga ykkur
þann metnað og það markmið að
vinna að þvf af öllum ykkar
Trillu
Mannbjörg
Neskaupstað, 18. júlí.
VÉLBATURINN Bára NK 11,
sem er 3.5 tonna trilla, sökk í gær
um 4—5 mílur suðaustur af Norð-
fjarðarhorni. Einn maður var f
bátnum, Þórarinn Smári Stein-
grfmsson eigandi hans, og var
honum bjargað um borð í Matta
SH 4, sem var að veiðum skammt
frá slysstaðnum. Slysið varð um
kl. 12.50 f gærdag, þegar báturinn
var á siglingu til lands. Kom
mætti, heilindum og drengskap
að skapa íslenzku þjóðinni eins
fullkomið og hamingjusamt
mannlff og kostur er á, að koma
þegnum þessa lands til sem mests
manndóms og þroska, hjálpa þeim
til þess að verða eins miklir menn
og góðir og þeim er áskapað að
geta orðið. En ég minni ykkur á
það, að það verður ekki gert án
kristinna trúaráhrifa, kristins
siðgæðis, uppeldis og mótunar og
með góðri samvinnu og öflugum
stuðningi við kristna kirkju í
þessu landi og starf hennar að
aukinni menningu, mannhelgi,
mannbótum og mannvernd.
Kirkjan er móðir þess lýðræðis og
þeirra mannréttinda, sem vér vilj-
um búa við á landi voru. Frelsið
er kristinn arfur. Drottinn Guð
hefur gefið oss frelsið. Hans erum
vér. Miskunn hans er voldug yfir
oss. Samhuga og samstilltir skul-
um vér Islendingar vinna að því,
að trúin á hann sé sigurafl vorrar
frjálsu og fullvalda þjóðar, lífæð
hennar og máttur, tign hennar og
heiður. Vinnum af alefli að því,
að hér verði „ein trú, eitt ljós,
einn andi í einu fósturlandi."
I Jesú nafni.
Amen.
Varnarliðið
flytur stúlku
frá Eyjum
I gær barst Slysavarnafélaginu
beiðni um sjúkraflug frá læknin-
um í Vestmannaeyjum. Var um að
ræða 16 ára stúlku, sem fengið
hafði botnlangakast. Svartaþoka
var í Eyjum og við suðurströnd-
ina. Leitaði Slysavarnafélagið til
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, sem sendi þyrlu eftir stúlk-
unni til Vestmannaeyja. Var hún
lögð á Landakotsspítala.
Þá var í gær flutt hjartveikt
bandarískt barn af Keflavíkur-
flugvelli með þyrlu til Reykja-
víkur.
straumhnútur á bátinn og skipti
engum togum, að honum hvolfdi.
Komst Þórarinn strax upp á kjöl
bátsins og hafði vart verið þar
nema nokkrar mfnútur, þegar
Matta bar að og gat Þórarinn
stokkið um borð í hann. Einn
maður var um borð í Matta, Stein-
grímur Kolbeinsson, og hafði
hann séð, er Báru hvolfdi. Reynt
var að draga Báru til Neskaups-
staðar, en það reyndist árangurs-
laust og sökk trillan skömmu eftir
að henni hvolfdi.
— Asgeir.
hvolfdi
Misskilningur á
misskilning ofan
DAGBLAÐIÐ Tfminn gerir f gær
mikið veður út af þvf, að borgar-
starfsmenn hefi verið sviknir um
svokailaðar sumarleyfisgreiðslur.
Af þessu tilefni spurðist Morgun-
blaðið fyrir um þetta hjá Birgi
tsleifi Gunnarssyni borgarstjóra.
Birgir sagði, að frétt Tfmans væri
byggð á misskilningi, þar sem
greiðslur þessar ættu ekki að
greiðast fyrr en 1. ágúst sam-
kvæmt samningi Reykjavfkur-
borgar við starfsmannafélag
hennar. 1 samningi BSRB og
rfkisins er gjalddagi slfkra
greiðslna 1. júlf og virðist það
hafa villt um fyrir blaðinu.
I fréttinni er einnig látið að því
liggja, að borgarstarfsmenn fái
ekki greidd lán úr lífeyrissjóði
borgarstarfsmanna. Birgir Isleif-
ur kvað þann hluta fréttarinnar
einnig rangan, þar sem allir sjóð-
félagar, sem fullnægðu lánsskil-
yrðum og stjórn sjóðsins sam-
þykkti að veita lán í aprílmánuði
síðastliðnum, hefðu fengið þau af-
greidd með eðlilegum hætti eftir
niðurröðun og reglum, sem bygg-
ingasamvinnufélag borgarstarfs-
manna sjálfra ákveður. Greiðsl-
unum er dreift yfir á árið. Því fá
ekki allir lánið á sama tfma — en
úthlutun fer eftir reglum og í
mmmmmmmmmmmm^^mmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmm^
Fram vann Val
I gærkvöldi fór fram einn leik-
ur í fyrstu deildar keppni Islands-
mótsins í knattspyrnu. Fram og
Valur léku á Laugardalsvellinum
og sigraði Fram í leiknum með
tveimur mörkum gegn einu.
Staðan í hálfleik var 1—1.
Kristinn Jörundsson gerði bæði
mörk Fram, en Kristinn
Björnsson gerði mark Vals.
samráði við byggingasamvinnu-
félag borgarstarfsmanna sjálfra.
I fyrradag staðhæfði Tíminn
einnig, að Reykjavíkurborg hefði
ekki greitt þá launauppbót, sem
kjarasamningur sagði fyrir um,
en sá samningur var undirritaður
13. júní. Þar er gert ráð fyrir því,
að menn fái launauppbót, þ.e.a.s.
mismun á þeim flokki, sem þeir
voru í og eru nú í, greidda f einu
lagi frá áramótum. Um greiðslur
þessa fjár var ekki gerður neinn
samningur, en um það var rætt í
viðræðum, að greiðsla færi fram
síðari hluta júlímánaðar. Birgir
ísleifur Gunnarsson kvað skýrslu-
vélar enn ekki búnar að ljúka
þessum útreikningi, þar sem
hann væri mikið og flókið verk.
Séra Jón Einarsson í Saurbæ:
Vinnið með einum
ÞINGSETNING fðr fram f gær.
Hún hófst að venju með þvf, að
alþingismenn gengu til Dóm-
kirkjunnar og hlýddu á guðsþjón-
ustu. Séra Jón Einarsson f Saur-
bæ prédikaði. Hér fara á eftir
nokkrir kaflar úr prédikun hans.
Það fer sérstakur frelsisþeyr
um Island á þessu sumri, þegar
þess er minnzt um gjörvallt land-
ið, að liðnar eru ellefu aldir síðan
forfeður vorir námu þetta bless-
aða land og stýrðu knörrum sín-
um í átt til þeirra himinbláu
fjalla, sem sumarsólin vermir og
yljar f dag.
Þrátt fyrir harðar kosningar og
deilur stjórnmálamanna mun
þetta þjóðhátfðarár þjappa þjóð
vorri saman, hjálpa henni til að
standa vörð um frelsi lands síns,
heill þess og heiður og vera henni
aflgjafi til nýrra dáða og
hamingjuríkara mannlífs.
Islenzka þjóðin er Kristi vfgð og
helguð. Hún hefur hlotið frelsið
fyrir hann. Frelsi vort og sjálf-
stæði, þjóðerni og menningu get-
um vér því ekki varðveitt nema
vér varðveitum einnig kristna
trú, sýnum henni ræktarsemi og
látum hana hafa meiri áhrif á
þjóðlff vort, einnig stjórnmálalíf-
ið. Guð heldur ekki vörð um heill,
hag og frelsi lands vors nema vér
viljum það sjálf, nema löggjafar-
Minnispeningar þjóðhátlðar-
nefndar 1974, sem Kristfn Þor-
kelsdóttir teiknari hannaði. Hver
peningur er númeraður og 1 sér-
stakri öskju og fylgir hverri smá-
rit, sem gerir grein fyrir land-
vættum Islands og útgáfu
peningsins.
Matthfas Johannessen formaður þjóðhátlðarnefndar 1974 afhendir forseta tslands, herra Kristjáni
Eldjárn, minnispening þjóðhátlðarnefndar 1974, sem út kom I gær. Minnispeningur forsetans er númer
1, en 2000 sett hafa verið gefin út I silfri og bronsi. Forseti tslands lét I ljðs ánægju með peninginn. A
myndinni opnar framkvæmdast jóri þjððhátfðarnefndar, Indriði G. Þorsteinsson, öskjuna með minnis-
peningnum í, til að sýna forsetanum.
r
Forseta Islands
afhentur minnis-
peningur Þjóð-
hátíðarnefndar