Morgunblaðið - 19.07.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULl 1974
5
Bæjum 9. júlí 1974.
FÖSTUDAGINN 21. júní sl.
fóru hér frá öllum Inn Djúps-
hreppunum fjórum 28 bændur
og 4 konur í bændaför norður í
Húnaþing. Lagt var af stað frá
Kirkjubóli í Langadal kl. 3 á
föstudag, ekið yfir Þorska-
fjarðarheiði, komið við í
Bjarkarlundi og drukkið þar
kaffi. Bættist þar í förina ráðu-
nautur Búnaðarsambands
Vestfjarða Þórarinn Sveinsson.
Síðan var haldið sem leið liggur
yfir Tröllatunguheiði og stanz-
að í Litla-Fjarðarhorni, þar voru
skoðuð fjárhús og einnig á
Broddanesi og Hallsá. En
vegna mikilla fjárhúsbygginga
hér við Djúp á vegum Inn-
Djúpsáætlunar, vildu bændur
kynna sér nýjungar þær, sem
um væri að ræða í því efni. Var
því að frumkvæði Landnáms
ríkisins og teiknistofu land-
búnaðarins stofnað til þessarar
ferðar.
Síðan var ekið inn Hrútafjörð
að Staðarskála, þar sem kvöld-
verður var snæddur, en svo að
Reykjaskóla í Hrútafirði, þar
sem gist var. Áður en gengið
var til náða, var hið stór-
myndarlega byggðasafn þar
skoðað og fannst mörgum ekki
sízt til koma hins fræga og
mikla hákarlaskips Ófeigs frá
Ófeigsfirði á Ströndum. Er því
nú búinn veglegur bás f
myndarlegri byggingu ásamt
þeim veiðarfærum, sem með
þurfti til hákarlaveiða. Skipið
var smíðað árið 1875 og verð-
ur því 100 ára öldungur á
næsta ári.
Árla morguns laugard. 22.
júní var haldið að Staðarskála á
ný og neytt þar hins kjarn-
ríkasta morgunverðar. Þar
bættust svo í förina Gunnar
Jónsson forstöðumaður bygg-
ingarstofnunar landbúnaðarins
og Unnar Jónsson bygginga-
fræðingur. Farið var undir leið-
sögn þeirra að Sveinsstöðum,
þar sem ennþá bættust í förina
bóndinn og hreppstjórinn Ólaf-
ur Magnússon, Konráð Egg-
ertsson bóndi og hreppsstjóri á
Haukagili í Vatnsdal, Guðbjart-
ur Guðmundsson ráðunautur
Búnaðarsambands AusturHún-
vetninga og Ingvar Gígja Jóns-
son byggingarfulltrúi.
Komið var við á ýmsum bæj-
um og skoðaðar mjög svo
myndarlegar byggingar o.fl.,
m.a. hjarðfjós að Torfalæk og
nýuppsett mjaltakerfi þar sem
mjólkin rennur beint úr kúnum
í mjólkurtankinn, þá mjaltað er.
Áfram var svo haldið til
Blönduóss þar sem móti okkur
tók formaður Búnaðarsam-
bands Austur-Húnvetninga,
Kristófer Kristjánsson. Var
gestum þar ekki í kot vísað,
þeim boðið til hins ríkulegasta
miðdegisverðar í boði Búnaðar-
sambands Austur-Húnvetn-
inga.
Eftir þær rausnarviðtökur
þeirra Húnvetninga var ekið
um Langadal og skoðuð þar
nýbygging: fjárhús fyrir 600
fjár, sem steypt er í flekamót-
um, sem Búnaðarsamband
o
'■Fréttabréf
frá
Djúpi
Austur-Húnvetninga á og hefur
lánað bændum til afnota um
langan tíma, en byggingar-
flokkur Búnaðarsambandsins
stóð að byggingarframkvæmd-
um. Hefur slíkur byggingar-
flokkur starfað þar á vegum
sambandsins um 25 ára skeið,
og þessi flekamót sparað
bændum ómælda fjármuni !
efni og vinnu.
Enn var ekið um glæsilega
byggð, Vatnsdalinn, undir leið-
sögn heimamanna, sem þar
kunnu skil á sögnum og sög-
um, bæjum og byggð. Komið
við á bænum Hvammi í Vatns-
dal og skoðað þar fyrirmyndar-
fjós að allri gerð og umgengni
með ristarflór og einnig nýupp-
settu mjaltakerfi með mjalta-
tank, þar sem mjólkin rennur
beint úr spena kýrinnar í
mjólkurtankinn. Bóndinn' þar,
Hallgrímur Guðjónsson, var
með ferðahópnum. Er ánægju-
legt að mega njóta kynningar
og leiðsagnar heimamanna I
slíkri ferð
Á Sveinsstöðum skildu svo
leiðir Djúpmanna og Húnvetn-
inga eftir ánægjulega kynn-
ingu. Var síðan ekið sem leið
liggur um Laxárdalsheiði, kom-
ið við í Ásgarði í Dölum og
skoðuð þar mjög svo reisuleg
fjárhús, nýbyggð. Þaðan var
svo ekið með smástoppi í
Bjarkarlundi að Kirkjubóli í
Langadal, — þar sem ferða-
langarkvöddu hinn einstaklega
viðmótsþýða og lipra bílstjóra
sinn, Erlend Kristjánsson. Vest-
fjarðarúta var fengin til ferðar-
innar, sem í alla staði var hin
ánægjulegasta. Hélt svo hver
til síns heima, norðan og vest-
an Djúps, þar sem fermingarat-
hafnir biðu morgundagsins í
tveimur sóknum.
Jens í Kaldalóni.
Sigling urn ísafjarðardjúp,
heimsóttar eyjarnar nafnfrægu
Æðey og Vigur og fléiri
markverðir staðir.
Ferðir á landi til næstu héraða.
Bilferðir um Skaga-
fjörð, ferðir tíl Siglu-
fjarðar og þaðan
um Ólafsfjörð, Ótafs-
fjarðarmúla, Dalvík
og Árskögsströnd
til Akureyrar.
Höfuðstaður Norðurlands.
Kynnisferðir um gjörvalla Eyja-
fjarðarsýslu og tíl nærliggjandi byggða. .r
i Vaglaskógur og Goðafoss prýða _ ^ -- " "
1 leiðina til MývatnsSygrtar. _.- ' "
; i: - -2' " R AUfARHÖFN
\ HÚSAVÍK
Nýtt og glæsilegt
hótel. Þaðan eru
skipufagðar ferðir og
steinsnar til Ásbyrgis
Hljóðakletta, Detti-
foss, Mývatnssveitar,
Námaskarðs og
Tjörness.
ÞÓRSHÖFN
ÍSAFJÖRÐUR' k
ÞINGEYRI
PATREKSFJÖRÐUR
Hér er Látrabjarg
skammt undan og \
auðveft er að ferðast
til næstu fjarða.
' %s'
MM|
NESKAUPSTAÐUR
Höfuðborgín sjálf.
Hér er miðstöð lands-
manna fyrir iist og
mennt, stjórn. verzlun
og mannleg viðskípti.
Héðan förðast menn
á Þingvöll, til Hvera-
gerðis, Gullfoss og
Geysis eða annað.
sem hugurinn leítar.
Áætfunarferðir bif-
reíða til nærliggjandi
fjarða. Fljótsdals-
hórað, Lögurínn og
Hallormsstaðaskógur
ínnan seiiingar.
S ' :
;........;
S.v!....♦> J
I ;
REYKJAVIK
Ferðir í þjóðgarðinn
að Skaftafelli, Öræfa-
sveít og sjáið jafn-
framt Breiðamerkur-
sand og Jökulsárlón.
i i ié
Skipulagðar kynnísferöír
á landí og á sjó.
Gott hóíel. y
Merkllegt sædýrasafn.
Og auðvítað Qldstöðvarnar.
• '' v v'
J
sama hvar ferðin hefst. Sé Isafirði sleppt kostar hringur-
inn kr. 6.080. Aiiir venjuiegir afstættir eru veittir af þessu
fargjaidi, fyrir hjón, fjölskyldur, hópa o. s. frv.
Kynníð yður hínar tíðu ferðir, sem skipulagðar eru frá
flestum lendingarstöðum Fiugfélagsins til næriiggjandi
byggða og eftirsóttustu ferðamannastaða.
Stærri áættun en nokkru stnni — allt með Fokker
skrúfuþotum.
Frekari upplýsingar veita umboðsmenn, ferðaskrifstof-
urnarog skrífstofur flugfélaganna.
Aætlunarflug Flugféiagsins tryggir fljóta, þægilega og
ódýra ferð, og tækifæri til að leita þangað sem veðrið
er bezt.
í sumar fljúgum við 109 áætlunarferðir í viku milli Reykja-
víkur og 13 ákvörðunarstaða um land allt. Og til þess að
tengja einstaka landshluta betur saman höfum við tekið
upp hringflug. Hringflug okkar umhverfis landið með áætl-
unarferðum er sérstakt ferðatilboð til yðar. Fyrir kr. 7.630
getið þér ferðast hringinn Reykjavík — ísafjörður — Akur-
eyri — Egilsstaðir — Hornafjörður — Reykjavtk. Það er