Morgunblaðið - 19.07.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULl 1974
Snyrtivörunámskeið
A síöastliðnum vetri gekkst Fé-
lag snyrtivöruverzlana og Kaup-
mannasamtök Islands ásamt
Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur fyrir námskeiöi um notkun
og meðferð snyrtivöru.
Á námskeiðinu var einnig veitt
tilsögn í innpökkun og afgreiðslu
á snyrtivörum og einnig sölu-
mennsku og framkomu af-
greiðslufólks.
Fyrir hönd Félags snyrtivöru-
verzlana og Kaupmannasamtak-
anna veitti Guðni Þorgeirsson
námskeiðinu forstöðu, en
kennarar voru: Ingibjörg Sveins-
dóttir, Heiðar Jónsson, Haukur
Gunnarsson og Stefán Hermanns-
son. Einnig flutti Sæmundur
Kjartansson húðsjúkdómalæknir
erindi og svaraði fyrirspurnum.
Hin ýmsu heildsölufyrirtæki í
snyrtivörum kynntu meðferð og
notkun vöru sinnar, en þá sýni-
kennslu önnuðust sérfræðingar
viðkomandi fyrirtækja og um-
boða.
Námskeiðið stóð yfir frá 16.
febrúar og til 9. maí og var kennt
tvisvar til þrisvar í viku, tvær til
þrjár klukkustundir í einu. Þátt-
taka í námskeiðinu var mjög góð
og komst ekki nema þriðjungur
þeirra, sem um sóttu, að á nám-
skeiðinu vegna húsnæðis-
þrengsla.
Það er. því ákveðið að halda
annað námskeið í haust með svip-
uðu fyrirkomulagi og sniði, en
námskeiðin eru fyrst og fremst
fyrir afgreiðsludömur í snyrti-
vöruverzlunum og fólk, sem hefur
áhuga á slíkum störfum.
Að námskeiði loknu fengu allir
þátttakendur þátttökuviðurkenn-
ingu og eru það vinsamleg tilmæli
til þeirra, sem ekki gátu verið
viðstaddir uppsögn námskeiðsins,
að vitja skírteina sinna sem fyrst
til skrifstofu Kaupmannasamtak-
anna að Marargötu 2.
Formaður Félags snyrtivöruverzlana, Jóhann G. Guðjónsson, setur
námskeiðið.
Umsjónarkonur námskeiðisins, frú Sigrfður Eyjólfsdóttir og Finnborg
Kristjónsdóttir.
Vörukynning á námskeiðinu.
::
BANKASTRÆTI 9 — SÍM I 1-1 18-11
OPIÐ TIL KL. 10 FÖSTUDAG
Full búð af allskyns
sportfatnaði fyrir þjóðhátíðina og
helgina.
Nýkomnar fallegar dömu blússur.
Frottebolir og hlírabolir.
„Wasa Out" flauelisbuxur og jakkar á
dömur og herra.
Ný sending herraleðurjakkar.
ATH.: Dömuskór 3500
Dömustígvél 3950
Sendum í póstkröfu.
••íí5: