Morgunblaðið - 19.07.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULl 1974
15
OFBAUÐ BLAÐASKRIFIN
UM GLASGETNU BÖRNIN
- og segist hætt-
ur rannsóknum
London, 18. júll AP.
BREZKI læknirinn, prófessor
Douglas Bevis, sem skýrði frá því
sl. mánudag, að fæðzt hefðu þrjú
börn, er getin hefðu verið f til-
raunaglösum, lýsti þvf yfir f dag,
að hann ætlaði að hætta þátttöku f
slfkri rannsóknar- og tiirauna-
starfsemi vegna þefrra blaða-
skrifa, sem orðið hefðu út af máli
þessu. Hann kvaðst hafa tekið
endanlega ákvörðun um þetta,
þegar blað eitt hefði boðið sér
30.000 sterlingspund fyrir að
skýra frá þvf, hvaða læknar hefðu
gert þessar vel heppnuðu tilraun-
ir og hvaða fjölskyldur ættu
þarna f hlut. Hann sagðist mundu
gera og birta fullkomna vfsinda-
lega skýrslu um þessar tilraunir,
en ftrekaði það, sem hann hafði
áður sagt, að ekki kæmi til mála
að upplýsa nöfn barnanna.
Blaðið Daily Mail heldur því
fram í dag, að það sé Bevis sjálf-
ur, sem gert hafi ofangreindar
tilraunir, en hann hefur ekki
fengizt til að segja neitt um það,
Þá hefur London Evening
Standard eftir honum, að hann
ætli ekki að halda áfram með
þessar tilraunir, „Framtíð þessa
starfs er nokkrum efa bundin",
hafði dr. Bevis sagt.
Bevis skýrði frá þessum tilraun-
um á ársfundi brezku læknasam-
takanna. Aðrir sérfræðingar á
þessum fundi, sem fengizt hafa
við samskonar rannsóknir drógu
Læknir St. Bartholomeus
siúkrahússins í London:
SKELFILEG-
AST AF ÖLLU
AÐ SJÁ BÖRN-
IN LTMLEST”
London, 18. júlí, AP — NTB.
% ÖRYGGISVÖRÐUR við helztu fcrðamannastaði f London hef-
ur verið efldur mjög vegna atburðanna f gær, þegar miðaldra
kona beið bana og 37 manns slösuðust alvarlega f sprengingu f
The Tower of London. Það var fjórða sprengingin f London á
jafnmörgum dögum og er lögreglan þeirrar skoðunar, að öfga-
sveitir frska lýðveldishersins hafi verið þar að verki.
• Innanrfkisráðherra Bretlands, Roy Jenkins, sagði á fundi f
neðri málstofu brezka þingsins f gærkveldi, að sýnt væri, að bæri
IRA ábyrgð á þessu ódæði, hefði herinn breytt um baráttuaðferð-
ir. Sprengingarnar f The Tower og Westminster Hall á dögunum
eru með hinum alvarlegustu, sem orðið hafa f London, og benda
til harðnandi baráttu lýðveldishersins gegn Bretum, eigi hann á
annað borð sök á þeim.
# Borgarstjórinn f London, sir Hugh Wontner, heimsótti St.
Bartholomeussjúkrahúsið I gærkveldi, þar sem flestir hinna
slösuðu voru til meðferðar og sagði, er hann kom þaðan, að
sprengjutilræði þetta væri dæmi grimmdar, sem menn tryðu
vart, að nokkur gæti sýnt meðbræðum sfnum.
Þá var haft eftir einum af
læknum spftalans, dr. Alan
Lettin, að lækna- og hjúkrunar-
liðið þar hefði aldrei fengið svo
hræðileg meiðsl til meðferðar.
„Það skelfilegasta af öllu var að
sjá, hversu margir sjúkling-
anna voru börn og sum illa lim-
lest.“
Nítján þeirra, sem slösuðust
af völdum sprengingarinnar,
urðu að vera um kyrrt í sjúkra-
húsinu og eiga sumir þeirra
langa legu fyrir höndum.
Alvarlegust meiðsl hlaut
áströlsk fjölskylda; fjölskyldu-
faðirinn Bernard Hunter
særðizt á fæti og hlaut alvarleg
brunasár, kona hans Dwan var
illa brennd og börn þeirra þrjú
öll alvarlega slösuð. Taka varð
fót af elzta syni þeirra um hné,
hann er sex ára að aldri, fimm
ára dóttir þeirra hlaut nýrna-
skemmd fyrir utan sár, er stöf-
uðu af því að viðarflísar þeytt-
ust í líkama hennar, — og loks
brenndist jafnaldra bróðir
hennar á báðum fótum.
Konan, sem fórst í sprenging-
unni, hét Dorothy Household
og var 47 ára að aldri, búsett í
suðurhluta Lundúna.
Meðal þeirra, sem hlutu
minniháttar meiðsl voru tvítug
norsk hjón Kjell og Torvunn
Teigen, sem voru í brúðkaups-
ferð I London.
Litlar sem engar skemmdir
urðu á byggingunni sjálfri, en
eitthvað skemmdist af gömlum
herklæðnaði og vopnum. Var
staðurinn aftur opinn ferða-
mönnum I dag, en strangur
öryggisvörður hvarvetna. Um
tfu þúsund manns leggja leið
sína til The Tower árlega, en
hann geymir minningar um
marga blóðuga atburði í brezkri
sögu.
Lögreglan í London rannsak-
ar nú ljósmyndir, sem ferða-
menn höfðu tekið inni I The
Tower og rétt þar fyrir utan.
Sérstaklega forvitni vekur
filma bandarískrar stúlku,
Joan Halgran, sem hefur borið,
að hún hafi séð mann hlaupa
frá staðnum nokkrum sekúnd-
um áður en sprengingin varð.
Dagblaðið Daily Mirror
skýrði svo frá I dag, að tvejm
mfnútum áður en sprengingin
varð, hafi verið hringt til blaðs-
ins og maður með írskum mál-
hreim sagzt vera fulltrui IRA,
gefið upp „stikkorðið" bastarð-
ar og sagt: „Við höfum komið
fyrir sprengjum". Þetta er hins
vegar ekki það „stikkorð", sem
forystumenn IRA hafa látið
brezku lögreglunni f té, til þess
að hún geti verið viss um, að
slfkar viðvaranir séu frá IRA:
Af hálfu IRA hefur heldur ekki
verið gengizt við þessari
sprengingu. Þó er það skoðun
lögreglunnar, að öfgasveitir á
vegum IRA eða sem styðja IRA
hafi verið hér að verki.
Á síðustu tveimur árum hafa
fjórtán manns beðið bana og
nærri 400 hlotið meiðsl í
sprengingum hryðjuverka-
manna í London.
upplýsingar hans í efa, kváðust
ekki vita til þess að nein „glasa-
börn“ hefðu fæðzt, — og skoruðu
á Bevis að gefa frekari upplýsing-
ar um mál þetta. Vitað er, að
Bevis hefur fengizt mjög við
rannsóknir á legbreytingum á
fyrstu vikum meðgöngu, — en
meginástæðan til þess, að tilraun-
ir með getnað í tilraunaglösum
hafa ekki leitt til fæðinga er sú,
að legið hrekur frá sér hið
frjóvgaða egg, þegar því hefur
verið komið aftur þar fyrir eftir
frjóvgunina.
Chir Chubbuck hét þessi
kona, og var þrftug að aldri.
Hún hafði umsjón með sjón-
varpsþætti I Sarasota á Florida
og skaut sig til bana inni f
upptökusalnum, þaðan sem
þáttur hannar var sendur
beint. Hún viðhafði þau um-
mæli, að hún ætlaði að fylgja
þeirri stefnu stöðvarinnar að
færa áhorfendum sem
ferskastar fréttir og þvf
mundu þeir nú sjá fyrstu til-
raun til sjálfsmorðs á sjón-
varpsskermi. Ahorfendur
héldu, að þetta væri gaman
eitt og brá þvf heldur betur f
brún, þegar skömmu sfðar var
tilkynnt, að hún væri látin.
FJORÐA
SPRENGJA
FRAKKA
FORSÆTISRÁÐHERRA Nýja
Sjálands, Norman Kirk, til-
kynnti í dag, að hann hefði
ástæðu til að ætla, að Frakkar
hefðu sprengt kjarnorku-
sprengju í gær á Mururoatil-
raunasvæðinu og hefur það þá
verið fjórða sprenging þeirra í
yfirstandandi tilraunum.
Kirk kvaðst harma þessar til-
raunir svo og aðrar kjarnorku-
tilraunir, sem gerðar hefðu
verið að undanförnu í Banda-
rfkjunum og Sovétrfkjunum,
— og sagði, að Ný-Sjá-
lendingar myndu taka mál
þetta upp á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna f haust.
Heilabvottur á Filippseyjum:
18.000 handteknir síð-
an í september 1972
Manila, 18. júlí, AP.
HERNAÐARYFIRVÖLD á
Filippseyjum hafa skýrt leið-
togum kirkjunnar þar svo frá, að
nú séu um 350 pólitfskir fangar
þar f haldi samkvæmt tilskipun-
um stjornvalda og margir þeirra
gangist undir „sálræna endur-
hæfingu" — áður þekkt undir
nafninu „heilaþvottur" sem sál-
fræðingar og geðlæknar annist.
Jafnframt hafa þeir upplýst, að
frá þvf f september 1972, þegar
Ferdinand E. Marcos forseti setti
herlög á Filippseyjum, hafi 18.000
manns verið handteknir. Þar af
hafi 5000 verið enn í fangelsum
15. marz sl.; 350 þeirra séu pólit-
ískir fangar hinir allir „glæpa-
menn“.
Upplýsingar þessar komu fram
á sex fundum, sem herforingjar
áttu nýlega með trúarleiðtogun-
um til þess að ræða við þá um
herlögin í landinu og framkvæmd
þeirra á tfmabilinu nóv. 1973- til
maí 1974. Sagt er eftir einum her-
foringjanna: „Þið getið kallað
þetta hvaða nafni sem þið
viljið, heilaþvott eða eitthvað
annað, en málið er einfaldlega
þannig vaxið, að við verðum að
breyta viðhorfum og afstöðu
þessara manna og það er hreint
ekkert auðvelt."
Upplýsingar þessar hafa ekki
verið birtar í fjölmiðlum á
Filippseyjum, enda er þar ströng
ritskoðun. Hins vegar koma þær
fram í skýrslu svonefnds „þjóð-
ráðs félagslegra aðgerða" og er
þetta í fyrsta sinn, sem nokkrar
upplýsingar eru yfirleitt gefnar
Framhald á bls. 31
Næst þegar þú
kaupir verkfæri,
vertu viss um að
þaðsé
STANLEY