Morgunblaðið - 19.07.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULÍ 1974
t
Eiginmaður minn,
HANS E. ÞÓRÐARSON
er látinn
Hanna Þórðarson.
Bróðir okkar og fósturfaðir,
ÞORKELL ÓLAFSSON.
frá Stíghúsi, Eyrarbakka,
lést 16. júli. Fyrir hönd systra og fósturdóttur
Ólaffa Ólafsd.
t
Eiginkona min, móðir og tengdamóðirokkar,
SALVÖR GUÐMUNDSDÓTTIR
Sunnubraut 6. Akranesi,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 1 8 júlí
Vilhjálmur Benediktsson,
börn og tengdabörn.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SVANBORG EYJÓLFSDÓTTIR,
Hveragerði,
er andaðist 12 þ.m verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju laugar-
daginn 20 júll kl 2 e h
Jónfna Egilsdóttir
Egill Egilsson
GuSrún Egilsdóttir Óskar Jónsson
Steinunn Egilsdóttir Þórhallur Guðrnundsson
Eyjólfur Egilsson Irmgard Egilsson
Hallgrimur Egilsson Sigurlaug Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðirokkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
Hringbraut 65 Hafnarfirði,
Verður jarðsett frá Stokkseyrarkirkju laugardagirin 20. júli kl. 2.00
Hálfdán O. GuSmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Laufey Karlsdóttir. tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona min og móðir okkar
HANNA KRISTIN HALLGRÍMSDÓTTIR,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju laugardaginn 20 júll kl 10.30. Fyrir
hönd barna, tengdabarna og barnabarna
Ingólfur Þorvaldsson.
t
Þökkum vottaða hluttekningu við útför
ADOLFS KR. ARSÆLS JÓHANNSSONAR,
fyrrverandi skipstjóra.
Sórstaklega viljum við þakka þeim, sem heimsóttu hann og þeim, sem
önnuðust hann á Heilsuverndarstöðinni.
Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini.
Minning:
Jón E. Ágústsson
málarameistari
Fæddur 24. október 1909.
Dáinn 27. marz 1974
Einn mætasti stéttarbróðir og
vinur minn, Jón E. Agústsson
málarameistari, lézt hér I borg 27.
marz síðastliðinn. Bar andlát hans
að með snöggum hætti. Hann var
fæddur 24. október 1909 hér í
Reykjavík og var því tæplega 65
ára að aldri.
Aðeins 15 ára hóf hann nám í
málaraiðn hjá hinum kunna og
listfenga málarameistara Agústi
heitnum Lárussyni. Á þessum ár-
um var það mjög algengt, að ungir
málarar færu til Norðuriandanna
eða Þýzkalands til frekara náms.
Jón fór til Danmerkur og var þar
1928—29 á Tekniske Selskabs-
skolen og þar tók hann sveins-
próf, auðvitað með ágætisein-
kunn.
Þegar Jón gerist félagsmaður
Málarameistarafélags Reykja-
víkur er hann fljótlega kosinn í
stjórn þess. Hann var ritari fé-
lagsins 1937—’41 og formaður í 10
ár samfleytt, eða frá 1952—’62.
Auk þess að vera mikilvirkur í
félagsmálum síns eigin félags
starfaði hann mikið á vettvangi
heildarsamtaka iðnaðarmanna og
sat meðal annars í stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna, Iðn-
aðarmannafélagi Reykjavíkur,
átti sæti um margra ára skeið í
Iðnfræðsluráði, formaður Verk-
takafélags málarameistara frá
stofnun þess 1952 til dauðadags.
Hann átti mikinn þátt í stofnun
Meistarasambands bygginga-
manna, var prófdómari við Iðn-
skólann í fjölda ára. Hann sat ótal
þing Landssambands iðnaðar-
manna, hann tók þátt í og var
fulltrúi féiagsins á þingum Sam-
bands norrænna málarameistara.
Þá var hann í varastjórn Sam-
einaðra verktaka í mörg ár.
Heiðurspening Málarameistara-
féiags Reykjavfkur hlaut Jón á 40
ára afmæli þess fyrir gott og
heilladrjúgt starf í þágu félags-
ins. Árið 1967 var hann einn
þeirra, sem heiðraðir voru með
heiðurspeningi úr gulli i tilefni
100 ára afmælis Iðnaðarmannafé-
lagsins í Reykjavfk.
Af þessu má sjá, að Jón naut
mikils trausts og vinsælda.
Ég átti því láni að fagna að
starfa mikið með Jóni að félags-
málum iðnaðarmanna auk þess
sem við áttum töluverð samskipti
utan þeirra. 1 mínum augum var
Jón alla tfð miklu þroskaðri og
lífsreyndari, þó að við værum
jafnaldrar, enda hafði hann mikil
áhrif á mig með sínum góðu og
sönnu persónueiginleikum. Prúð-
mennska og framkoma öll í dag-
legri umgengni og á mannamót-
um var eftirtektarverð. Reglu-
semi vaf honum í blóð borin og
orðheldni með eindæmum.
Jón átti gott með að setja fram
skoðun sína í ræðuformi og hafði
enga tæpitungu á málunum, ef
honum fannst ástæða til. Hann
var harðduglegur, hygginn og út-
sjónarsamur verkstjórnandi,
sanngjarn og góður þeim, sem hjá
honum unnu, sem sjá má á því, að
sumir þeirra höfðu unnið hjá
honum í áratugi.
Jón var fjölhæfur málari og
kunni flest þau verk, sem góðum
málara eru nauðsynleg. Hann bar
mikla virðingu fyrir iðn sinni og
samtökum iðnaðarmanna. Hann
naut trausts allra þeirra við-
skiptamanna, er hann vann fyrir,
og voru þeir margir, sem hann
annaðist málun fyrir áratugum
saman.
Jón unni góðri tónlist og gaf sér
tíma til að njóta hennar. Hann var
einn af fyrstu félögum Karla-
kórs Reykjavíkur og þótti þar
eins og alls staðar, þar sem hann
lagði hönd á plóginn afbragðs fé-
iagi og var gerður að heiðursfé-
laga kórsins fyrir nokkrum árum.
I vinahópi var Jón hrókur alls
fagnaðar, hann spiiaði á ýmis
hljóðfæri og hafði hreina og fal-
lega söngrödd.
Jón var méð afbrigðum góður
og hugsunarsamur heimilisfaðir.
Öll þau ár, sem ég sat í stjórn með
honum, hringdi hann iðulega af
stjórnarfundi til eiginkonu sinnar
til að vita, hvort hann ekki gæti
gert eitthvað fyrir hana á heim-
leiðinni, og hlýjan og ljúfmennsk-
an báru vott um ást og djúpa
virðingu fyrir eiginkonunni. Einu
gleymi ég aldrei, sem hann sagði
mér. „Við hjónin göngum aldrei
til svefns ósátt." Þetta sýnir
manninn bezt.
Jón kvæntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Helgu Þorbergs-
dóttur, 4. febrúar 1933. Þau hafa
+
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
GUÐBRANDURMAGNÚSSON,
Ásvallagötu 52
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 22. þ.m. kl. 1.30
e.h.
Matthildur Kjartansdóttir,
Magnús Guðbrandsson, Eydis Hansdóttir,
HallfrFSur G. og Henry Schneider,
Sigriður Guðbrandsdóttir, og Björn Guðbrandsson.
Helga G. og Henrik Aas
og aðrir vandamenn.
Eiginkona min
VILBORG JÓNSDÓTTIR,
frá Hópi, Grindavfk
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði laugardaginn 20. júll
kl. 10.30. f.h
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna
Stigur Guðbrandsson
+
Alúðarþakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu
SOFÍU JÓHANNSDÓTTUR,
Holti. Svinadal.
Sérstakar þakkir til Kvenfélags Svfnavatnshrepps fyrir ómetanlega
rausn og vinsemd
Guðmundur B. Þorsteinsson
Jóhanri Guðmundsson, Björg Helgadóttir,
Þorsteinn Guðmundsson.
Halldór Guðmundsson
Bragi Guðmundsson.
Bryndis Fanný Guðmundsdóttir,
Guðmundur B. Jóhannsson,
Soffa Jóhannsdóttir.
Lára Björg Jóhannsdóttir,
þvf verið búin að lifa í óvenju
hamingjuríku hjónabandi í 41 ár,
er hann lézt. Börn þeirra eru Þor-
björg og Gunnar.
Þegar jafn góður vinur og sam-
starfsmaður er horfinn þá vakna
óhjákvæmiiega minningar í huga
manns um hin ótal mörgu sam-
eiginlegu störf liðinna ára. Minn-
ingar um ferðalög heima og er-
lendis, félagsmálastarfið, góð-
vinafundi og ekki síður heim-
sóknir á hið fagra heimili þeirra
hjóna. Erum við hjónin þakklát
fyrir margar góðar minningar frá
þeim stundum. Félagarnir í Mál-
arameistarafélagi Reykjavíkur
sjá nú á eftir góðum félaga, sem
ávallt var reuðubúinn til starfa að
góðum málum stéttarinnar.
Hafðu þökk fyrir þína sönnu
vináttu á meðan þú varst meðal
okkar. Við söknum góðs vinar, en
minning þín mun lifa.
Sæmundur Sigurðsson.
Þegar mér barst andlátsfregn
Jóns E. Ágústssonar, setti mig
hljóðan. Þetta kom svo óvænt, þar
sem ég hafði stuttu áður talað við
hann og hann þá með sitt hlýja
bros eins og venjulega. Ég vissi,
að Jón gekk ekki heill tii skógar
sfðustu árin, en að hann hyrfi
svona fijótt úr hópi okkargrunaði
mig ekki.
Jón var fæddur í Reykjavík 24.
okt. 1909 og hefði þvf náð 65 ára
aldri í haust.
Foreldrar hans voru Þorbjörg
G. Jónsdóttir frá Minni-Vatns-
ieysu á Vatnsleysuströnd og
Ágúst Jónsson, skósmiður frá
Hraunprýði í Hafnarfirði.
Jón nam málaraiðn hér í
Reykjavík hjá Ágústi Lárussyni
málarameistara. Hann lauk iðn-
skólaprófi hér, en sigldi siðan til
Kaupmannahafnar og innritaðist
þar í Det Tekniske Selskapbs-
skole í einn vetur og lauk þaðan
sveinsprófi í iðninni 1929.
Árið 1933 gekk Jón í Málara-
meistarafélag Reykjavíkur og
starfaði sfðan sem málarameistari
hér í Reykjavík.
Jón sat í stjórn M.M.F.R. frá
1934—’40. Arið 1952 var hann
kosinn varaformaður félagsins og
á því sama ári tók hann við for-
mennsku, þar sem fyrrv. form. lét
af störfum. Formannsstarfi þessu
gegndi Jón sfðan til ársins 1962
eða um 10 ára skeið. 1952 varð
Jón formaður Verktakafélags
málarameistara og gegndi hann
því til dauðadags.
Jón sat mörg ár í stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna og
+
Þakka auðsýnda samúð við and-
lát og jarðarför konu minnar
INGU JÓNSDÓTTUR.
Ellas Bernburg.
+
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð og vinarhug við andlát og
útför föður míns og bróður
JÓNS J. ÞORLÁKSSONAR,
Viðimel 23.
Þorgerður Jónsdóttir,
SigrFSur Þorláksdóttir.