Morgunblaðið - 19.07.1974, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULl 1974
Undir lokin virtust Þróttararn-
ir vera að ná tökum á leiknum, en
þá voru það Armenningarnir sem
skoruðu. Gefin var löng sending
fram vöilinn og Ingi lyfti knett-
inum yfir úthlaupandi markvörð
Þróttarliðsins.
Kristinn Petersen átti góðan leik með Armenningum í fyrrakvöld. Þarna hefur hann haft betur f
viðureígn við félaga sinn úr lögreglunni, Þórð Hilmarsson.
Guðbjörn Jónsson þjálfari
Þróttara lét svo ummælt að leikn-
um loknum, að nú gætu hans
menn einbeitt sér að keppninni f
2. deild, það hefði í rauninni ekki
verið svo slæmt að tapa þessum
leik. Beztu menn Armenninga í
þessum leik voru Kristinn Peter-
sen, sem barðist vel þó oft gripi
hann til ólöglegra aðferða ef
stöðva þurfti sóknarmenn Þrótt-
ar. Þá var Jens drjúgur og lét
Gunnar Ingvarsson, bezta mann
Þróttarliðsins, ekki sjást f leikn-
um. Að þessu sinni var það Guð-
mundur Gfslason, sem reyndist
sterkastur Þróttara.
KR-Víking-
ur í kvöld
TVÖ af þeiin liöuni, sem eru í fallharátt-
unni f 1. deild, mætast á Laugardalsvell-
inum f kvöld. Eru það KH og Vfkingur og
hefst leikur liðanna klukkan 20.00.
Fyrri leik liðanna lauk með sigri KR-
inga, en f Reykjavfkurmótinu gerðu liðin
jafntefli. Ætti þvf að vera komið að Vfk-
ingum að sigra og það er ýmislegt, sem
bendir til þess, að Vfkingsliðið verði
sterkara í kvöld. KR-ingar hafa átt við
mikil meiðsli að strfða og eiga enn, þann-
ig að ýmsir sterkustu leikmenn liðsins
eru á sjúkralista. Vfkingsliðið hefur ekkí
verið fullskipað að undanförnu, en þeir
mæta væntanlega með sitt sterkasta f
kvöld. Sigur f leiknum f kvöld tryggir
háðum liðum lengri Iffdaga f I. deild, en
aðeins út þetta sumar. Þannig að leikur-
inn f kvöld er mjög mikilvægur og það
ólfklegt, að eitthvað verði gefið eftir fyrr
en dómarinn flautar til leiksloka.
Haukarnir sögðu
bless við FH-inga
Það áltu fæstir von á, þvf, að
Haukarnir næðu að sigra FH I
lcik liðanna I fyrrakvöld. Og þó.
Haukaliðið hefur af og til sýnt
mjög góða leiki I sumar og það er
löngu kunnugt að þeir tvfeflast
séu andstæðingarnir lið FH.
Haukaliðið vann þennan bikar-
leik með 2 mörkum gegn engu og
nú geta FH-ingarnir eins og
Þróttur einbeitt sér að baráttunni
f 2.deild.
Leikur FH og Hauka í fyrra-
kvöld fór fram í Kaplakrika og
var á köflum mjög vel leikinn.
101 með á
meistara-
mótinu
i frjálsum
EITT hundrað og einn
keppandi hefur tilkynnt
þátttöku sína í meistara-
móti í frjálsum íþróttum,
sem fram fer á Laugardals-
vellinum um næstu helgi.
Flestir eru keppendurnir
frá ÍR eða 21, 18 keppa
fyrir Ármann, 17 Skarp-
héðinsmenn taka þátt í
mótinu og 16 frá UBK.
Mótið hefst á Laugar-
dalsvellinum klukkan 15 á
sunnudaginn og verður
þann dag keppt í 15 grein-
um, á mánudaginn verður
keppt í jafn mörgum grein-
um, en þann dag hefst
keppnin klukkan 20. Á
þriðjudaginn verður svo
keppt í 3000 metra hindr-
unarhlaupi og fimmtar-
þraut karla.
Jafnhliða einstaklings-
keppninni fer fram stiga-
keppni á milli félaga. í
fyrra urðu ÍR-ingar hlut-
skarpastir og bendir margt
til þess, að þeir verði það
einnig að þessu sinni.
Hraði, kraftur og samspil. Fyrri
hálfleikurinn leið án þess að
mark væri skorað, en strax í
byrjun þess síðari skilaði Guðjón
Sveinsson knettinum f net FH-
inga. Er um 65 mínútur voru
Iiðnar af leiktimanum bætti
Loftur Eyjólfsson öðru marki
Haukanna við, var það laglegt
mark, sem innsiglaði sigur
Haukaliðsins.
Bæði lið áttu mörg tækifæri í
leiknum, sem ekki nýttust. Loftur
skalla í samskeyti FH-marksins
og Helgi Ragnarsson komst einn
inn fyrir vörn Hauka, en brást
bogalistin. Styrkur Haukaliðsins í
þessum leik lá f dugnaði miðju-
leikmannanna, sem brutu FH-
ingana niður. Allir leikmenn liðs-
ins börðust og áttu sinn þátt í
sigrinum. FH-ingarnir léku
þennan leik ekki illa, en and-
stæðingarnir voru bara sterkari.
Janus Guðlaugsson lék ekki með
FH-ingum að þessu sinni, en
einnig voru forföll í Haukaliðinu.
HSK með 2 mót
um
helgina
tsraelska sundfólkið á æfingu f Laugardalslauginni f gær, en það mætir fslenzka landsliðinu um
helgina.
Frábær árangur Þórunnar Alfreðs-
dóttur — setti gott Islandsmet og
4 unglingamet í Bandaríkjaferðinni
Unglingamót HSK fer fram við
Gunnarshólma í Austur-Land-
eyjum á morgun og hefst klukkan
14.00. Mótið er fyrir drengi og
stúlkur (f. 56 og 57) og sveina og
meyjar (f. 58 og 59).
Aldursflokkamót HSK fer svo
fram á Selfossi á sunnudaginn og
hefst klukkan 14.00. Keppt
verður í þremur flokkum:
1. flokkur: Strákar og stelpur 64
og síðar
2. flokkur: Strákar og stelpur f.
62 og 63.
3. flokkur: Piltar og telpur, f. 60
og 61.
ÞÓRUNN Alfreðsdóttir sundkona
úr Ægi er nýkomin heim frá
Bandarfkjunum. Þar dvaldi hún
við sundæfingar undir leiðsögn
Dons Gambrills Ólympfuþjálfara
Bandarfkjanna á ólympfuleikun-
um f Múnchen 1972 og Guðmund-
ar Þ. Harðarsonar aðstoðarþjálf-
ara hans.
Þórunn tók þátt f stóru opnu
móti ytra, en alls tókú 480 ungl-
ingar þátt f þvf móti. Stóð hún sig
með prýði og sigraði meðal
annars f einni greininni á nýju
glæsilegu lslandsmeti. Bætti hún
eldra met sitt f 200 metra flug-
sundi um hvorki meira né minna
en rúmar 7 sekúndur. Synti hún á
2:33.7, gamla metið var 2:41.0.
Auk þess sctti hún 3 unglingamet
f ferðinni, synti 400 metra fjór-
sund á 5:54.6., 400 metra skrið-
sund á 5:03.1 og 100 metra skrið-
sund á 1:12.5.
Þórunn Alfreðsdóttir.
Þetta er stórglæsilegur árangur
hjá þessari 13 ára stúlku. Hún er
Án sinna beztu manna vann
r
Armann áhugalausa Þróttara
ARMENNINGAR gerðu sér Iftið
fyrir og slógu Þrótt út úr bikar-
keppninni f fyrrakvöld. Leikur-
inn fór fram á heimavelli Þróttar
við Sæviðarsund og þó svo að
hvorki Halldór Björnsson né
Viggó Sigurðsson lékju með Ar-
mannsliðinu vann liðið 2:1. Ekki
verður sagt að leikurinn hafi ver-
ið góður, f hann vantaði allt þetta
ffna og Þróttarar höfðu greini-
lega ekki mikinn áhuga á verk-
efninu.
Strax á fyrstu mfnútu leiksins
skoraði Sigurður Leifsson fyrir
Ármenninga, en Jóhann Hreið-
arsson kvittaði litlu síðar með
skalla eftir laglega fléttu Þróttar-
anna. Eftir mörkin datt allur botn
úr leik liðanna og það sem eftir
lifði leiksins var lítið fjör í Ieikn-
um. Ármenningar voru heldur að-
gangshraðariog áttu meðal annars
skot í slá og fleiri góð færi. Þrótt-
ararnir áttu að vfsu sfn góðu upp-
hlaup og einu sinni fór knöttur-
inn í stöng eftir að hafa þvælzt
nokkurn tíma inni í teig Ármenn-
inga.
þegar orðin okkar sterkasta sund-
kona og æfi hún eins vel í fram-
tfðinni sem hingað til á hún að
geta náð Iangt á alþjóðamæli-
kvarða. Til hamingju Þórunn og
áfram á sömu braut.
Þórunn verður ein þeirra, sem
tekur þátt í landskeppninni við
íra um helgina og í 8 landa keppn
inni um aðra helgi. Lítið er vitað
um styrkleika frska sundfólksins,
en þegar þessi lönd háðu með sér
landskeppni fyrir ári síðan,
sigraði fslenzka liðið. Nú hafa
orðið miklar breytingar í
fsraelska landsliðinu og aðeins
þrír þeirra, sem kepptu f fyrra,
eru enn í landsliðinu. Talsverðar
breytingar hafa einnig orðið á ís-
lenzka liðinu. Stúlkurnar hafa
ekki æft vel, að Þórunni undan-
skilinni, eða þá að þær eru
óreyndar f stórum mótum sem
þessum. Þrír karlanna voru i
liðinu í fyrra og hafa æft vel í
sumar, Sigurður Ólafsson, Friðrik
Guðmundsson og Axel Alfreðs-
son. Auk þeirra eru svo í liðinu
efnilegir sundmenn eins og Stein-
grfmur Davfðsson, sem vann til
tveggja verðlauna á Norðurlanda-
mótinu á dögunum. Einnig eldri
og reyndari menn eins og Hafþór
Guðmundsson, sem þó ekki hefur
æft mjög mikið. Þá tekur
Guðmundur Gíslason þátt í fjór-
sundinu f keppninni við Israel, en
Guðmundur er þjálfari sund-
landsliðsins. Hann er nú kominn
vel yfir þrftugt og er 20 ára
aldursmunur á honum og yngstu
stúlkunni, sem tekur þátt í keppn
inni.
Landskeppnin við Ira hefst í
Laugardalslauginni klukkan 16 á
morgun og verður fram haldið á
sama stað klukkan 15 á
sunnudaginn.