Morgunblaðið - 19.07.1974, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JULl 1974
31
Yayha
Khan
laus úr
stofu-
fangelsi
Karachi, Pakistan,
18. júlí, AP.
FYRRUM forseta
Pakistans, Yayha Khan,
hefur verið sleppt úr stofu-
fangelsi að því er fregnir
frá Karachi herma. Ferða-
frelsi hans verður þó tak-
markað eitthvað um hríð
við lögsagnarumdæmi
borgarinnar Abbottabad í
norðvesturhluta landsins,
þar sem hann hefur verið í
stofufangelsi frá því í
desember 1971, þegar
Zulfikar Ali Bhutto tók af
honum völd. Sömuleiðis
upplýsir innanrikisráðu-
Boltinn vildi
ekki í netið
á ísafirði
Það var satna hvað ts-
firðingar reyndu f bikarleikn-
um gegn Stefni f fyrrakvöld,
boltinn vildi hreinlega ekki
inn. Langtfmum saman var
knötturinn á vallarhelmingi
Súgfirðinga og oftast inni f
vitateig þeirra. Skotin dundu á
stöngunum eða smugu hárffnt
framhjá þeim. Þegar svo ts-
firðingarnir hittu markið var
markvörður Stefnis vel á
verði. 90 mfnúturnar liðu án
þess að mark væri skorað.
F’yrri hluti framlengingar-
innar leið einnig án marka og
það var ekki fyrr en um tfu
mfnútur voru eftir af auka-
tfmanum að örn Leósson
skoraði fyrir heimamenn.
Litlu sfðar bætti Gunnar
Pétursson svo öðru marki við
og tryggði þar með ísfirðing-
um meira en verðskuldaðan
sigur f leiknum.
neytið, að nokkrir her-
foringjar, sem tóku þátt í
bardögunum í Bangladesh,
hafi einnig verið látnir
lausir og séu nú engir
lengur í fangelsum vegna
átakanna þar.
Selfyssingar sterkari
í seinni hálfleiknum
Framan af leik ÍR og Sel-
fyssinga á Melavellinum í
bikarkeppninni í fyrra-
kvöld mátti varla sjá, hvort
liðið væri í 2. deild og hvort
liÖ
á Húsavík
Hreinn Elliðason tryggði
Völsungum sigur gegn Sigl-
firðingum I leik liðanna á
Húsavfk f fyrrakvöld. Hús-
vfkingar höfðu töglin og
hagldirnar f leiknum og
hefðu eftir gangi hans átt að
vinna með helmingi meiri
mun.
í þeirri þriðju. iR-ingarnir
börðust vel og gáfu and-
stæðingunum ekkert eftir.
I síðari hálfleik kom mun-
urinn á liðunum hins vegar
í ljós og Selfyssingar náðu
þá tökum á leiknum.
Urslitin urðu 2:0 og skoraði
Jakob Gunnarsson bæði mörkin,
það fyrra í fyrri hálfleik og hitt f
byrjun þess síðari. Það mark kom
eftir aukaspyrnu Sigurðar Reynis
og Jakob skallaði knöttinn í netið
af stuttu færi. Selfyssingar áttu
góð færi til að gera fleiri mörk, en
voru klaufar að nýta ekki upplögð
tækifæri. Sömu sögu má reyndar
segja um ÍR-ingana, sem áttu
nokkur gullin tækifæri.
Breiðabliksmenn sendu
Víði heim með níu mörk
BREIÐABLIKSMENN höfðu
mikla yfirburði f leiknum gegn
Víði f fyrrakvöld. Fyrri hálfleik-
urinn var algjör einstefna að
marki Suðurnesjaliðsins, sem
mátti sjö sinnum sækja knöttinn í
netið. I seinni hálfleik datt leikur
Blikanna nokkuð niður, eigi að
sfður voru þeir áfram mun sterk-
ari aðilinn og skoruðu tvö mörk.
Ólafur Friðriksson var í bana-
stuði f þessum leik og skoraði
fimm sinnum. Hin fjögur mörkin
gerðu Hinrik Þórhallsson, Heiðar
Breiðfjörð, Guðmundur Þórðar-
son og Einar Þórhallsson. Sá
síðastnefndi var í sérflokki
Breiðabliksmanna og átti heiður-
inn af flestum sóknarlotum liðs-
ins í fyrri hálfleiknum. Þá léku
Blikarnir oft mjög skemmtilega
saman, en tókst ekki að halda því
út allan leikinn.
Vítaspymukeppni
á Fáskrúðsfirði
EINS OG við var búizt var hart
barizt í leik Leiknis og Þróttar á
Fáskrúðsfirði, er liðin mættust í
bikarkeppninni í fyrrakvöld. Eft-
ir venjulegan leiktíma hafði báð-
um liðum tekizt að skora eitt
mark, f framlengingunni var
ekkert skorað og var þvf gripið til
vítaspyrnukeppninnar. Skoruðu
Þróttarar úr öllum sínum spyrn-
um, en Leiknir misnotaði eina
þannig að úrslit leiksins urðu 6:5
fyrir Þrótt.
Á Seyðisfirði vann Huginn lið
Hattar með 5 mörkum gegn þrem-
ur. Þá áttu Víkingar og UMSB að
leika f Borgarnesi, en lið UMSB
gaf leikinn.
Undankeppni bikarkeppninnar
lýkur 24. júlí nk. og koma þá 1.
deildar liðin inn í keppnina.
Fyrstu leikirnir í aðalkeppninni
fara fram 31. júlí.
— Sampson
Framhald af bls. 1
sætum sfnum, en sfðan mundu
fara fram nýjar kosningar að'
ári.
Blaðamenn fengu að taka
myndir eins og þeim sýndist á
fundinum, en hvarvetna f borg-
inni hafa ljósmynda- og kvik-
myndavélar verið bannlýstar.
Hafa fréttamenn ekki fengið að
mynda skemmdir þær á
byggingum, sem urðu í bylting-
unni, né forsetahöllina, sem að
nokkru er f rúst.
— Alþingi
Framhald af bls. 32
jafnan, brýn verkefni, sem varða
hag og heill þjóðarinnar. Slíkt
liggur í hlutarins eðli og mun ég
eigi fjölyrða um það. Hins vildi ég
minnast, sem nýlunda er, að þetta
þing er kvatt saman á miðju
hátíðarári f lífi íslenzku þjóðar-
innar, og fyrir því liggur innan
skamms að halda fund á sjálfu
Lögbergi á Þingvöllum við Öxará,
þeim fornhelga stað, sem mestur
svipur er yfir f sögu lands vors,
þeim stað, sem marga beztu menn
þjóðarinnar á fyrri öld dreymdi
um að verða mætti aðsetur hins
endurreista Alþingis Islendinga.
Fyrir þetta eitt, þótt ekki væri
annað, mun þetta þing eiga sér
vísan sess í minningum þjóðar-
innar á ókominni tíð. Og fyrir
þetta mun það verða yður minnis-
stætt, yður öllum, sem nú taka
sæti f þingsölum í fyrsta sinn sem
kjörnir fulltrúar þjóðarinnar.
Þvf að þetta er nýkjörið þing,
sem nú kemur saman. Bekkurinn
er að þessu sinni setinn, eins og
ætfð, alþingismönnum, sem hafa
langa þingreynslu að baki og
þjóðin hefur vottað traust sitt
með endurkjöri, en einnig nýjum
mönnum, sem nú hafa i fyrsta
sinn verið kvaddir til þess vegs og
vanda, sem þingmennskunni
vissulega fylgir. Nú i þingbyrjun
býð ég þessa nýliða sérstaklega
velkomna til starfa.
En hvort sem eru eldri eða
yngri bið ég yður öll heil til þings
komin og óska yður velfarnaðar í
störfum yðar. Ég óska Alþingi
Islendinga heilladrjúgra úrræða
og athafna. öllum landsins lýð
óska ég blessunar og bið þing-
heim að rísa úr sætum og minnast
ættjarðarinnar."
— Kýpur
Framhald af bls. 1
engu skert. Var sagt, að ekkert
yrði þó gert í þeim efnum meðan
Makarios væri í New York.
Fjöldahandtökur á Kýpur
Frá Kýpur berast þær fregnir,
að þjóðvarðliðió vinni að því ötul-
lega að treysta sig í sessi. Þegar
hafa um þúsund manns verið
handtekin, þar á meðal margir
ráðgjafar og stuðningsmenn Mak-
ariosar og kunnir forystumenn
vinstri stjórnmálahreyfinga.
Utvarpið í Nikosiu birti um það
tilkynningar öðru hverju f dag, að
gerðar yrðu strangar ráðstafanir
til að koma á reglu. Otgöngubanni
yrði aflétt átta klukkustundir
á dag, en hver, sem gerðist sekur
um að ræna eignum erlendra
manna eða bryti útgöngubannið,
yrði skotinn á staðnum. Einnig
var blátt bann lagt við þvf að bera
skotvopn.
Dagblöð fengu leyfi til að koma
út aftur í dag, en komið hefur
verið á strangri ritskoðun á alls
konar fréttaefni innlendra sem
erlendra blaðamanna.
Fiugvöllurinn í Nikosiu var
opnaður f morgun og hefur verið
straumur ferðamanna þaðan i
dag. Er búizt við frekari fréttum
með þeim af því, sem gerðist.
Grfskur kaupsýslumaður -sagði
við komuna til Beirut í dag, að
hann réði öllum frá því að fara til
Kýpur. „Mestuglæpamenn heims
ins ganga þar lausir," sagði
hann, „drepandi og kúgandi sak-
laust fólk.“ Hann taldi, að a.m.k.
fimm hundruð manns hefðu verið
drepin í átökunum á mánudag og
síðan.
Að sögn AP virtust ferðamenn-
irnir, sem komu til Beirut í dag,
vera sammála um, að flestum
hefði létt við að heýra að Makar-
ios væri lifandi, bæði griskum og
tyrkneskum Kýpurbúum. „Eng-
inn virðist hrifinn af nýja forset-
anum og menn vonast eftir Mak-
ariosi heim,“ sagði bandarísk
stúlka.
— Heilaþvottur
Framhald af bls. 15
um tölu fanga í landinu frá þvf
herlögin voru sett á.
Af hálfu kaþólsku kirkjunnar
og mótmælenda hefur verið
haldið uppi gagnrýni á fram-
kvæmd þessara laga.
I október 1973 var sett á
laggirnar nefnd kirkjuleiðtoga og
herforingja eftir að allmargir
starfsmenn kaþólsku kirkjunnar
höfðu verið handteknir að
störfum og sakaðir um stuðning
við vinstri öflin í landinu.
1=
Opið í kvöld til kl. 10
og til hádegis á
morgun, laugardag