Morgunblaðið - 31.07.1974, Qupperneq 1
36 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
136. tbl. 61. árg.
MIÐVIKUDAGUR 31. JULÍ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samkomulag í Genf:
Atla Dam sýnt
banatilræði
Þórshöfn 30. júlí —
Frá Jögvan Arge, fréttaritara
Mbl. f Færeyjum.
ATLA Dam, lögmanni Færey-
inga, var sýnt banatilræði á
þriðjudag. Særðist hann á fótum,
þegar skotið var á hann tveim
skotum úr haglabyssu. Dam var
fluttur á Landssjúkrahúsið, þar
sem læknar segja, að hann sé við
góða heilsu og fái væntanlega að
fara aftur heim á morgun.
taki á byssuhlaupinu með annarri
hendi og beindi því niður, svo að
skotið fór í fótinn á honum. Þegar
seinna skotið reið af, hafi hann
náð taki á byssunni með báðum
höndum, en skotið kom þá í lærið.
Tókst lögmanni að ná byssunni af
manninum og rak hann út með
byssuna á lofti.
Kallaði Atli Dam á nágranna
sinn og bað hann að fara á eftir
manninum. Náði granninn hon-
um og urðu nokkrar stimpingar,
en skotmanninum tókst að sleppa
eftir að hafa náð hálstaki á ná-
granna lögmannsins. Lögreglan
hafði þó fljótlega hendur í hári
hans.
Lögreglan hefur nú kært mann-
inn fyrir morðtilraun og áttu rétt-
arhöld aðhef jastseintí gærkvöld.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar keypti maðurinn byssuna á
Framhald á bls. 35
Utanrfkisráðherrar Grikklands, Tyrklands og Bretlands á
Callaghan og Gunes.
friðarviðræðunum f Genf. Frá vinstri: Mavros,
Getur leitt til skiptingar Kýpur
Atli Dam.
Þetta gerðist um eitt leitið í
dag, þegar 29 ára gamall maður
réðst inn á heimili lögmannsins í
Grundadal í Þórshöfn. Hafði mað-
urinn fimm skota byssu með sér
og náði að hleypa tveimur af, áður
en lögmanni tókst að ná byssunni
af honum.
Maðurinn kom niður að húsi
lögmanns með bifreið, en hann
hafi beðið bílstjórann um að aka
sér þangað, því hann þyrfti að
koma pakka til Atla Dam. Þegar
maðurinn var kominn upp á
tröppurnar, sáu mennirnir tveir,
sem í bílnum voru, að hann tók
byssu úr umbúðunum, og flýttu
þeir sér þá í næsta síma til að vara
lögmanninn við.
Þegar maðurinn kom inn á
skrifstofuna til lögmannsins, stóð
hann og talaði í símann við þá,
sem höfðu séð manninn taka upp
byssuna. Áður en manninum
tókst að hieypa af, náði lögmaður
Genf, Aþenu, Ankara
30. júlí —AP.
TYRKLAND og Grikkland
náðu á þriðjudag sam-
komulagi um málamiðlun-
Franco
kominn
áról
Madrid 30. júlí — NTB.
ÞJÓÐARLEIÐTOGI Spánverja,
Fransisco Franco hershöfðingi,
var á þriðjudag útskrifaður af
sjúkrahúsi, þar sem hann hefur
legið undanfarnar þrjár vikur
vegna blóðtappa f fæti.
Engar opinberar tilkynningar
hafa verið gefnar út um, hvenær
Franco taki aftur til við embætt
isstörf, en hann útnefndi eftir
mann sinn, Juan Carlos prins
þjóðhöfðingja til bráðabirgða
þegar hann var lagður á sjúkra
húsið.
artillögu um frið á Kýpur.
Samkvæmt samkomulag-
inu ber Tyrkjum að fækka
í herliði sínu á Kýpur, sem
nú telur meir en 20.000
menn, en þeir þurfa ekki
að kalla það allt heim.
Tyrkneskur embættis-
maður sagði, að samkvæmt
samkomulaginu fái Kýpur
tvær stjðrnir, fyrir gríska
og tyrkneska þjóðarbrotið
á eyjunni. Þetta er einmitt
það atriði, sem Grikkir
hafa óttazt, að muni leiða
til skiptingar eyjarinnar,
en ekki til þess, að hún
verði sambandsríki
tveggja samfélaga eins og
samkomulagið gerir ráð
fyrir.
Utanríkisráðherrarnir
tirír, Mavros frá Grikk-
andi, Gunes frá Tyrklandi
og Callaghan frá Bret-
landi, sem miðlaði málum,
hafa ákveðið að hittast aft-
ur eftir nokkrar vikur til
að ræða drög að nýrri
stjórnarskrá fyrir Kýpur.
Samkvæmt samkomulag-
inu verður Rauf Denktash,
leiðtogi tyrkneska þjóðar-
brotsins aftur varaforseti
Kýpur. Tyrkir fá heimild
til að grípa í taumana, ef
þeir álíta gríska meirihlut-
ann ganga á rétt tyrkneska
þjóðarbrotsins.
Mikill léttir varð í
Framhald á bls. 35
DOMSMALANEFNDIN SAM-
ÞYKKIR ÞRIÐJU STEFNUNA
Washington 30. júlf. — AP
DÓMSMÁLANEFND fuil-
trúadeildar Bandaríkja-
þings mælti á þriðjudag
með þriðju stefnunni á
hendur Nixon, Bandaríkja-
forseta. í þessari síðustu
stefnu, sem nefndin vill að
Enginn árangur, náist ekki
samstaða um 200 mílurnar
Hans G. Andersen á hafréttarráðstefnunni
sagði
Sjágrein á bls. 15.
A sfðdegisfundi annarrar
nefndar hafréttarráðstefnunn-
ar f Caracas kom á ný á mánu-
dag til umræðu, hvemig ætti að
ræða vinnuskjal Islands og átta
annarra rfkja, samkvæmt upp-
lýsingum Þórs Vilhjálmssonar,
sem er f fslenzku sendinefnd-
inni. En aðcins Kanada og
Chile fengu tækifæri til að
flytja framsöguræður á alls-
herjarfundi á mánudagsmorg-
un.
Niðurstaðan f annarri nefnd
varð sú, að framsögumenn tala,
þegar röðin kemur að þeim i
áður ákveðinni umræðu, sem
stendur yfir þessa dagana og
fyrst og fremst snýst um land-
grunnið.
Hans G. Andersen óskaði sér-
staklega eftir þvf, að framsögu-
ræður um vinnuskjalið væru
haldnar, áður en haldið væri
áfram umræðum um land-
grunnið. Eftir nokkurt þóf á
síðdegisfundinum í gær, féll
hann frá þeirri ósk, að sérstakri
beiðni forseta annarrar nefnd-
ar, Aguilar frá Venezuela.
Á þriðjudag hélt Hans svo
ræðu sína og minnti fyrst á, að
þegar árið 1948 voru sett lög á
tslandi um réttindi á land-
grunnssvæðinu og fiskveiðar
þar. Síðan skýrði hann vinnu-
skjalið, sem var lagt fram á
föstudag. Lagði hann áherzlu á,
að í þvf kæmi fram heildarvið-
horf, sem gæti orðið til að flýta
fyrir árangri á ráðstefnunni.
Síðan ræddi hann um auð-
lindasvæðið og undirstrikaði,
að 12 mílna reglan væri með
öllu úrelt, enda til hagsbóta fyr-
ir riki, er hefðu úthafsflota á
Framhald á bls. 35
Hans G. Andersen.
verði lögð fyrir ríkisrétt er
Nixon ásakaður um að hafa
hindrað réttarrannsóknir
með því að halda sönnunar-
gögnum og misnotað vald
sitt.
Tuttugu og einn nefndarmaður
greiddi atkvæði með stefnunni,
en sautján voru á móti. Þetta er
minnsti meirihluti sem samþykkt
hefur stefnu á Nixon. I þetta sinn
slógust aðeins 2 repúblikanar í lið
með þeim 19 af 21 demókrata,
sem greiddu atkvæði með stefn-
unni. 1 nefndinni eiga sæti 38
menn.
i stefnunum þrem, sem dóms-
málanefndin hefur samþykkt, er
fjöldi ásakana á hendur Nixon.
Þær verða lagðar fyrir fulltrúa-.
deildina um miðjan ágúst, en húh
tekur lokaákvörðun um, hvort
ríkisréttur verði settur yfir Nix-
on.
Nokkrir nefndarmenn hafa
sagt, að þeir muni leggja fram
tillögur um fleiri stefnur á hend-
ur Nixon, en ólfklegt er að þær
nái samþykki.
Warren, blaðafulltrúi Nixons,
ítrekaði á þriðjudag þann ásetn- '
ing forsetans að berjast fram á
síðustu stundu gegn þvi, að hann
verði settur af.