Morgunblaðið - 31.07.1974, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLl 1974
'Fa
jl HÍI.i /./.7Í..I V
íi iais;
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
!0
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLE/Ð/R
I
«!
■
h;
í
ÁLfNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFlÐ ER
^SAMVINNUBANKINN
Tilboð
AKIÐ NÝJA
HRINGVEGINN
Á SÉRSTÖKU
AFSLÁTTARVERÐI
SHODÍI
IEIGAH
CAR RENTAL
AUÐBREKKU 44, KÓPAV.
I4
® 4-2600
DRTSUn 100 R-UIU- BR0IH0
ÚTVARP OG STEREO í OLLUM BILUM
Bilaleigan Æ.ÐI
Stakknolti 3. v/Hlemmtorg
Simi 13009 Opið fró 9-21
Leiguflug - þjónustuflug-
vöruf lug - sjúkraf lug -
útsýnisflug
INNANLANDS OG UTAN
Sverrir Þóroddsson
Ca/n/a- flugturninum
fíeykjavikurflugvelli
Simi28420 Allan sólarhringinn
•••••••••••••••••
iívcri
<
Skuldabréf
Tökum í umboðssölu:
Veðdeildarbréf
Fasteignatryggð bréf
Ríkistryggð bréf
Hjá okkur er miðstöð verðbréfa-
viðskiptanna.
Fyrirgreiðsluskrifstofan
Fasteigna
og verðbréfasala
Austurstræti 1 4,
sími 1 6223
Þorleifur Guðmundsson
heima 12469.
Góður jarðvegur
Viðræður fráfarandi
stjórnarflokka og Alþýðu-
flokksins um endurholdgun
vinstri stjórnarinnar virðast
hafa öll einkenni þess bræðra-
lags, sem öðru fremur setti
mark sitt á vinstri stjórnina.
Alþýðublaðið greindi frá þvf
fyrir tveimur dögum, að Al-
þýðuflokkurinn myndi alls
ekki ræða þá lágmarkskröfu
Alþýðubandalagsins, að landið
yrði gert varnarlaust á grund-
velli þess samkomulags, sem
stjórnarflokkarnir gerðu f
marzmánuði sl.
Þjóðviljinn ræðir um þetta
efni f forystugrein f gær og
segir: „Óvissan f stjórnmálum
þjóðarinnar er vissulega jafn
mikil eftir að Gylfi Þ. Gfslason
er búinn að stýra þingfundi á
Lögbergi eins og hún var fyrir
þann fund.
Gylfi Þ. Gfslason og ýmsir
hans nánustu f Alþýðuflokkn-
um virðast nefnilega ekki enn
tilbúnir til þeirrar heilshugar
samstöðu um vinstri málefni,
sem ein væri forsenda vinstri
rfkisstjórnar... Framsóknar-
menn réttu Gylfa forsetastöðu f
sameinuðu þingi, væntanlega f
þeirri trú að hann yrði samn-
ingaliprari um myndun vinstri
stjórnar á eftir. Vonandi hafa
landsins mögn og regin blásið
honum þvf þjóðarstolti f brjóst
á pallinum við öxará á sunnu-
daginn, að hann sé nú loks til-
búinn til að vfsa bandarfska
hernum á brott og hjálpa þann-
ig til að leysa Sóley sóiufegri úr
fjötrum.“
Ekki verður annað sagt en
jarðvegur nýrrar vinstri rfkis-
stjórnar sé frjór. Upp úr hon-
um á að geta vaxið nýtt vinstra
bræðralag ekki sfður kátlegt en
það, sem landsmenn hafa horft
upp á sl. þrjú ár.
Þröngsýni Lúðvíks
Ljóst er nú, að sú stefnu-
mörkun Sjálfstæðisflokksins
að krefjast 200 sjómflna fisk-
veiðilögsögu hefur f verulegum
atriðum náð fram að ganga, þó
að enn hafi ekki náðst samstaða
um úrfærslu fyrir tiltekinn
tfma. Fulltrúar tslands á haf-
réttarráðstefnunni hafa ótrauð-
ir unnið að alþjóðlegri viður-
kenningu á 200 sjómflna efna-
hagslögsögu. Fyrst eftir að
Sjálfstæðisflokkurinn setti
fram þessa stefnu heyrðust
margar úrtöluraddir, einkan-
lega úr herbúðum stjórnar-
flokkanna.
Þessar raddir heyrast vart
lengur. Einn úrtölumannanna
virðist þó ekki sjá út fyrir 50
mflna mörkin og sýnist ekki
gera sér grein fyrir þeirri þró-
un, sem á sér stað f þessum
efnum á alþjóða vettvangi. Lúð-
vfk Jósepsson segir þannig f
viðtali við Þjóðviljann fyrir
nokkrum dögum, að Islending-
ar muni krefjast þess, að Bret-
ar fari með skip sfn út fyrir 50
mflna mörkin, þegar samning-
urinn við þá rennur út eftir
rúmt ár.
Athyglisvert er, að sjávarút-
vegsráðherrann skuli ekki gera
ráð fyrir, að Islendingar verði
e.t.v. búnir að færa fiskveiði-
landhelgi sfna út f 200 sjómfl-
ur, þegar bráðabirgðasam-
komulagið fellur úr gildi. Hér
er það fulltrúi þröngsýninnar,
sem talar.
Lítil reisn
Þegar hafin var almenn söfn-
un f landhelgissjóð fyrir tæp-
um tveimur árum settu ýmis
félög Alþýðubandalagsins það
skilyrði fyrir framlagi af sinni
hálfu, að brezkir togarar eða
vestur-þýzkir yrðu teknir og
skipstjórar þeirra dæmdir.
Stjórn söfnunarinnar afþakk-
aði skilyrt framlög af þessu
tagi. Það var eðliieg og rétt
afstaða.
Nú hefur það á hinn bóginn
gerzt, að forsætisráðherra hef-
ur með viðhöfn tekið á móti
skilyrtu framlagi af þessu tagi.
Ekki er mikil reisn yfir for-
sætisráðherra, sem lætur hafa
sig til slfkra verka, jafnvel þó
að hann fái mynd af sér í Þjóð-
viljanum fyrir vikið.
Vísurnar
um Svante
— hinar nýju þjóðvísur Dana
Hver sang som folket
kender og lytter til med lyst
er mest paa tysk og engelsk
og fra den spanske kyst.
if Og ekki aldeilis. Þeir
söngvar, sem Danir hlusta á og
raula fyrir munni sér hver f
kapp við annan, eru ekki
þýzkir, enskir eða spánskir um
þessar mundir. Þeir eru
danskir og meira að segja mjög
danskir. Ljóðlfnurnar hér að
ofan eru úr vfsnaflokki danska
Ijóðskáldsins og pfanóleikarans
Benny Andersen „Svantes
viser“, sem ekki er ofsögum
sagt að fari sigurför um Dan-
mörku þessar vikurnar f flutn-
ingi höfundar og söngvarans
Povl Dissings og félaga þcirra.
Það er ekki ýkja langt sfðan
Islendingum gafst kostur á að
hlýða á flutning þeirra Benny
Andersen og Povl Dissings í
Norræna húsinu, en þar komu
þeir fram og vöktu mikla hrifn-
ingu. Og þegar hljómplata með
„Svantes viser“ er komin á
markaðinn eru þeir félagar og
Svante komnir á hvers manns
varir f heimalandi sfnu og
raunar vfðar á Norðurlöndum.
1 grein f Berlingske Aften-
avis nýlega segir Mogens
Berendt m.a., að þessi nýja
hljómplata með þrettán vísum
hafi valdið þeim þáttaskilum,
að dönsk visnahefð — hafi hún
verið til yfirleitt undanfarin ár
— fái þar óumdeilanlega
uppreisn æru. Aðeins sé unnt
að kalla vinsældir „Svante
viser" stórfurðulegt fyrirbæri.
„Hið óvenjulega við þetta er
það, að þrettán alveg nýir
textar og lög hafa á aðeins
hálfu ári náð svona langt inn í
þjóðina." Og það alveg án tillits
til aldurs, stéttar, stöðu eða
kyns. Hljómplatan hefur nú
selzt í 17 þúsund eintökum, en
það skiptir ekki eins miklu máli
og það, að vísurnar eru notaðar
af þjóðinni sjálfri, sungnar og
trallaðar — og lærðar utan að.
Þeir Benny Andersen, Povl
Dissing og fjórir hljóðfæra-
leikarar hafa á undanförnum
mánuðum verið á ferð og flugi
um Danmörku og haldið
„Svantekvöld" fyrir fullum
húsum stórum og smáum við
frábærar undirtektir áheyr-
enda. I ágúst munu þeir félagar
síðan koma fram í hljómleika-
sal Tívolí f Kaupmannahöfn og
gert er ráð fyrir, að um 1100
manns hlýði á þann flutning.
Visurnar um Svante eigá sér-
kennilegan bakgrunn. Þær eru
í heild byggðar f kringum upp-
logna persónu, Svante
Svendsen að nafni. Þetta gerir
Benny Andessen með þeim
hætti, að hann lætur í veðri
vaka, að hann hafi ekki skrifað
þessa texta sjálfur heldur
Svante. „Það kemur fyrir,"
segir Andersen, „Að fólk
kemur til okkar og segir, að það
hafi séð Svante í Albertslund
eða í Tívólí." Þannig falla
margir fyrir þessu útsmogna
verki.
Og Benny Andersen hefur á
takteinum ævisögu Svantes.
„Svante Svendsen, fæddur
Svensson, hvarf frá foreldrum
sínum á Málmeyjarferjunni í
ágúst árið 1935 og hefur sfðan
þurft að bjarga sér sjálfur með
hjálp annarra." Hann á að hafa
fæðzt árið 1926, hætt læknis-
námi og sfðan lifað örðugu
ástarlífi. Svante er oft önugur,
angurvær og tilfinninga-
næmur. „Hann fer einförum.
Dæmigerður heimaþjórari,"
segir Benny Andersen, en hann
hefur gefið vfsurnar út f bók,
þar sem hann gerir einnig
grein fyrir sambandi sínu við
Svante.
„Hann er sjálfsagt eins konar
blanda af mér sjálfum og
Söngvarinn og skáldið Povl Dissing t.v. og Benny
Andersen.
nokkrum þeirra manngerða,
sem ég hitti, er ég var hljóm-
listarmaður," segir hann.
Benny Andersen, sem nú er
það Ijóðskáld danskt, sem hvað
mest selur af bókum sínum, var
frá 19 ára til 32 ára aldurs
píanóleikari á hinum og
þessum börum, danshúsum og
veitingahúsum f Danmörku —
og um tíma f Noregi og Svíþjóð.
Andersen segist þó ekki vera
öldurhúsadrykkjumaður held-
ur heimaþjórari eins og
Svante. „Mér þykir einnig gott
að vera heima og drekka
nokkur glös af púrtvíni og
hugsa um Iffið." Nú er Benny
Andersen 44 ára gamall, þegar
eitt vinsælasta skáld Dana,
verið er að þýða ljóð hans á
ensku og svo er hann nýorðinn
afi. („Það varð drengur. Ég
bar þá tillögu fram við dóttur
mína, að hann yrði skfrður
Svante. En hún vildi enga
áhættu taka með því...“)
Það er ekki aðeins Benny
Andersen, sem Svante hefur
komið á græna grein. Vísna-
söngvarinn Povl Dissing átti
sér að vísu allstóran aðdáenda-
hóp, en eftir að hann tók til að
flytja hinar nýju þjóðvísur
ásamt Benny Andersen hefur
hann fengið viðurkenningu
mun stærri hlustendahóps en
hann hafði áður náð til. Svante-
vísurnar náðu svo sannarlega
inn að hjarta Dansksins.