Morgunblaðið - 20.10.1974, Síða 2
/
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÖBER 1974
2600 nemendur
við H.Í. í vetur
Rætt við Guðlaug
Þorvaldsson háskólarektor
NÚ þegar hafa verið innritaðir
um 2300 stúdentar tii náms við
Háskóla tslands f vetur, og er
það 200—300 nemendum fleira
en á sama tfma f fyrra, og jafn-
vel er gert ráð fyrir, að nem-
endur við H.f. f vetur verði að
lokum 2600—2700. Flestir
stunda nám f heimspekideild
eða 778, f verkfræði- og raun-
vfsindadeild eru 417 og f lækna-
deild 378. Fámennasta deildin
er hinsvegar námsbraut f
hjúkrunarfræðum en þar
stunda 37 nemendur nám. Þar
sem málefni Háskólans hafa
verið nokkuð f brennidepli að
undanförnu, snerum við okkur
til Guðlagus Þorvaldssonar há-
skólarektors og inntum fretta
af starfsemi Háskólans og fyrst
spurðum við hann hvort innrit-
unarfrestur við skólann yrði
ekki settur f fastari skorður á
næstu árum.
— Við höfum ekki eins skörp
skil með innritunarfrestinn
eins og er víða erlendis, sagði
Guðlagur. Menn eru hér að inn-
rita sig fram á vetur. Það er því
spurning hvort ekki þurfi að
taka þetta mál til endurskoðun-
ar. Erlendis er algengt, að inn-
ritun ljúki 15. júlí ár hvert og
er ekki leyfð eftir það. Nú þeg-
ar eru innritaðir stúdentar
200—300 fleiri en á sama tíma í
fyrra og ef við gerum ráð fyrir,
að áframhaldið verði svipað og
þá, verða nemendur að lokum á
bilinu 2600—2700.
— Það hefur vakið athygli,
hvað aðsókn að almennum þjóð-
félagsfræðum hefur minnkað
etir hina miklu ásókn, sem var í
deildina fyrstu tvö árin. Verða
gerðar einhverjar breytingar á
þeirri deild á næstunni?
— Það er rétt, að aðsókn að
almennum þjóðfélagsfræðum
hefur dottið niður, en aðsókn
að sálarfræði aukizt í staðinn. 1
athugun er nú, innan Háskól-
ans, hvort eigi að mynda nýja
sjálfstæða deild, sem tæki til
almennrar þjóðfélagsfræði,
sálarfræði og uppeldisfræði og
ef til vill félagsráðgjafar ásamt
fleiri nýrra námsgreina næsta
haust. Þegar hefur verið fjallað
um þetta innan Háskólaráðs og
mun málið verða til lykta leitt á
þessum vetri.
— Er gert ráð fyrir, að
stúdentum við Háskóla Islands
eigi eftir að fjölga mikið á kom-
andi árum?
— Það er ákaflega erfitt að
segja nokkuð um það, en enn er
fjölgunin nokkuð örugg. Víða
erlendis er orðin stöðnun f
fjölgun stúdenta við háskóla. I
Svíþjóð hefur t.d. háskóla-
stúdentum stórfækkað. Ástæð-
an er ofureinfaldlega sú, að of
stór hluti hvers árgangs sótti í
háskólana, og því er farið að
bera á atvinnuleysi hjá háskóla-
menntuðum mönnum. Svo að
segja í hverju einasta Evrópu-
landi hefur verið gripið til tak-
mörkunar f flestu háskólanámi.
1 raun er ég andvígur því að
grípa til beinnar fjöldatak-
markana, nema þá við dýrt
nám, þar sem þjóðfélagið teldi
það of dýrt. Minnkandi ásókn
fólks í háskóla þarf að koma af
sjálfsdáðum ef vel á að vera.
Það er æskilegt og nauðsynlegt,
að það fari einnig út í atvinnu-
lífið án háskólanáms. f þessu
Guðlaugur Þorvaldsson, ha-
skólarektor
sambandi ættum við að reyna
að læra af reynslu annarra, því
það er vitað, að allar takmark-
anir valda úlfúð.
— í fyrra og nokkur undan-
farin ár voru nokkur blaðaskrif
um, að háskólinn opnaði ekki
dyr sínar nægilega gagnvart
öðrum skólum en menntaskól-
unum, en nú hafa þessar
óánægjuraddir ekki látið heyra
f ser. Hver er ástæðan?
— Ef við minnumst á
kennaraskólamálið, sem var
mjög ofarlega á baugi í fyrra,
þá er nú komin mörkuð stefna.
Hún er sú, að fólk, sem hefur
lokið svokölluðu aðfararnámi
við Kennaraháskólann, hefur
nú nákvæmlega sama rétt og
stúdentar til að innritast hér. I
öðru lagi, að fólk með almennt
kennarapróf er nú tekið inn í
Háskólann eftir sérstökum
reglum. Núna f haust hafa all-
margir fengið inngöngu, enda
fer yfirleitt þrennt saman hjá
þessum umsækjendum, þ.e. góð
1. einkunn, töluverð starfs-
reynsla við kennslu og oft dvöl
erlendis, sem hefur gefið við-
bótartungumál.
Varðandi aðra skóla er starf-
andi svokölluð tengslanefnd.
Tekur hún afstöðu til annarra
skóla, og kannar hvaða próf
þaðan eru sambærileg við
stúdentspróf. Þeir skólar, sem
koma til greina, eru m.a. fram-
haldsdeild Bændaskólans á
Hvanneyri, Tækniskólinn,
Hjúkrunarskólinn og Sam-
vinnuskólinn.
— Er þá æskilegt að þinu
mati aðopna Háskólann meira?
— Mitt sjónarmið er það, að
ég er fylgjandi því, að fólk með
góða námshæfileika komi hér
inn, eftir hvaða leiðum það
kemur finnst mér ekki skipta
máli. En við megum ekki fara
niður eftir námsstiganum. Það
er fjöldi manna, sem hefur
gífurlega hæfileika á öðrum
sviðum en námssviðinu og nýt-
ist þar vel.
— Nú hefur verið talsvert
deilt um innritunargjöldin við
skólann í haust. Hvert er þitt
álit á þessu máli?
— Já, það hefur töluvert
verið skrifað um hækkunina,
úr 2200 kr. í 3700 kr. og um leið
gagnrýnt hvernig með þetta fé
er farið eins og t.d. að leggja
það í stúdentablaðið. Það var
ákveðið hér vorið 1973, að inn-
ritunargjöldin skyldu renna til
stúdenta, en það er gamalt bar-
áttumál þeirra. Háskólaráð
gerði um það ályktun, að það
væri mál stúdenta sjálfra,
' hvernig ráðstafa bæri þessu fé
og tók enga afstöðu milli þess-
ara 'tiotkunarþátta. Hinsvegar
er ofureðlilegt, að það geti
verið skiþtar skoðanir meðal
stúdenta hvernig eigi að nýta
þetta.
Ég tel, að eív rektor og há-
skólaráð eigi að skipta sér af
þessu fé, þá væri betra að
hverfa til gamla lagsins; annað
hvort á að vera.
— Læknadeildin hefur víst
alla tíð verið umræddasta deild-
in innan háskólans, hvað er að
frétta af síðasta vandamálinu,
verkfalli 4. árs læknanema?
— Þetta verkfall lækna-
nemanna stafar af því, að það
hefur komið fram tillaga um að
rjúfa tengsl milli yfirlæknis-
embætta á Landspítalanum og
prófessorsembætta, einkum í
kliniskum greinum, þannig að
yfirlæknar á öðrum hvorum
spítalanum, Borgarspítalanum
eða Landakoti, gætu alveg eins
orðið prófessorar eins og þeir,
sem við Landspitalann eru. Til-
lagan, sem er frá stúdentum
læknadeildar, er vegna þess, að
þeir vilja láta samnýta klinisku
deildir þessara spítala til
hinnar klinisku kennslu fyrir
stúdenta. Þetta mun einnig
vera almenn skoðun meðal
kennara og stúdenta innan
læknadeildarinnar og enn-
fremur yfirvalda mennta- og
heilbrigðismála.
Ef þessi samnýting getur
ekki orðið, leiðir það til veru-
legrar takmörkunar á fjölda
læknanema, sem geta stundað
nám síðari hluta þess. Af
þessum ástæðum hefur verið
komið á sex manna nefnd að
frumkvæði forseta lækna-
deildar, Ólafs Bjarnasonar. Er
hún skipuð tveimur kennurum
frá læknadeild, 2 frá stúdent-
um og sínum lækninum frá
hvoru læknaráðinu á Landakoti
og Borgarspítala. Þessari nefnd
hefur verið falið að skila áliti
fyrir 25. nóvember varðandi
ýmis atriði um samvinnu spítal-
anna og læknakennslunnar. Ég
bind miklar vonir við það, að
þessir aðilar finni lausn á vand-
anum og nefndin fái aðeins
vinnufrið í þvi sambandi.
— Hvað er helzt á döfinni í
byggingarmálum Háskólans?
— Eina stórbyggingin, sem
nú er í smiðum, er annar áfangi
verkfræði- og raunvísinda-
deildar, en hann á að vera tilbú-
inn næsta haust. Við það batnar
aðstaða deildarinnar mjög
mikið. Háskólinn er ennfremur
aðili að þeirri byggingu, sem
verið er að hefja á Landspitala-
lóðinni, en þar verður aðstaða
fyrir lækna- og tannlæknadeild.
Þá er Tjarnarbær að komast i
gagnið, en við höfum tekið hús-
ið á leigu til 8 ára. Þar mun fara
fram fyrirlestrakennsla í efna-
fræði, en undanfarið hefur hún
farið fram i hátíðasalnum. Þá
er unnið að undirbúningi fyrir
næstu byggingar á skólalóðinni,
en brýnþörf er nú á almennu
kennsluhúsnæði. — Þ.ó.
Félag íslenzkra rithöfunda:
Hækkun ritlauna ekki 1 sam
ræmi við hækkað bókaverð
Á FUNDI stjórnar Félags
islenzkra rithöfunda, 18. október
1974, var samþykkt eftirfarandi
ályktnn samhl ióða:
„Stjórn Félagsíslenzkra rithöf-
unda lýsir yfir fullum stuðningi
víð framkomin sjónarmið for-
manns félagsins, Jónasar Guð-
mundssonar, varðandi útlán úr
bókasöfnum og greiðslur fyrir
útlán bóka.
Stjórnin bendir á, að rithöf-
undar hafa ekki orðið varir við
hækkun ritlauna, svo neinu nemi,
þrátt fyrir hækkað bókaverð, og
hljóta því erfiðleikar útgefenda
að stafa af einhverju öðru en því,
að fjármunir bókaútgáfunnar I
landinu renni um of til rithöf-
unda. Þess vegna lítur stjórnin
svo á, að rithöfundar eigi enda
samleið með útgefendum í bar-
áttu þeirra fyrir eftirgjöf á sölu-
skatti, enda verður ekki séð, að sú
eftirgjöf kæmi höfundum til
góða. Um almennan hag útgáf-
unnar í landinu vísar stjórnin til
þeirrar staðreyndar, að bóka-
útgefendur bera yfirleitt ekki
með sér að þeir reki fjárvana
fyrirtæki.
Stjórnin álftur að íslenzkir rit-
höfundar eigi einkum þrenna
möguleika á tekjum fyrir verk sín
Þing sjálfstæðiskvenna
um nýjungar í skólamálum
Landssamband sjálfstæðis-
kvenna og Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna I Reykjavfk, gangast fyrir
ráðstefnu f Reykjavfk laugar-
daginn 2. og sunnudaginn 3.
nóvember. Verður þar fjaliað um
nýjungar f fræðslumálum, sem
nú eru mjög á oddinum.
Á þinginu verða flutt þrjú
framsöguerindi: Það fyrsta nefn-
ist Endurmenntun og fullorðinna-
fræðsla, frummælandi Elfn
Pálmadóttir, borgarfulltrúi,
annað Skipan sérkennsluþjón-
ustu, frummælandi Þorsteinn
Sigurðsson, sérkennslufulltrúi,
og þriðja Fjölbrautaskólinn og at-
vinnulffið, frummælandi Kristján
J. Gunnarsson, fræðslustjóri.
Þessi viðfangsefni eru nýjung-
ar, sem eru að byrja að ryðja sér
til rúms hér og erlendis og færast
inn í menntunarkerfi landsins.
Því má búast við fróðlegum erind-
um og umræðum. En á eftir fram-
söguerindum verður starfað f um-
ræðuhópum, sem sfðan skila áliti.
Ráðstefnan er opin öllum sjálf-
stæðiskonum. Slfkar ráðstefnur,
sem áður hafa verið haldnar, hafa
jafnan verið mjög fjölsóttar og
ánægjulegar og má búast við, að
svo verði einnig nú.
Ráðstefnan verður á Hótel Sögu
og konum bent á, að hægt verður
að kaupa mat og kaffi á staðnum.
Frekari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu Sj álfstæðisflokksins í
síma 17100, en dagskrá ráðstefn-
unnar verður nánar auglýst síðar.
í náinni framtíð. I fyrsta lagi
fyrir útlán á bókum. I öðru lagi
með tekjum af svonefndu sölu-
skattsfé fyrir útkomnar bækur. I
þriðja lagi starfsstyrkir, sem veitt
er fé til á fjárlögum ár hvert.
Stjórnin telur að nú þegar verði
að endurskoða greiðslur fyrir
útlán á bókum úr söfnum og allt
fyrirkomulag varðandi þær
greiðslur. Nú eru greiddar
krónur 3,31 fyrir hvert eintak
bókar í safni án tillits til þess
hvort það er lánað út og lesið eða
ekki. Óhjákvæmilegt er að hefja
greiðslur fyrir útlán á bókum í
stað eintakafjöldans, eins og nú
er, og verði gjald það sem riki og
byggðir greiði sem næst fimmtíu
krónum á hvert útlánað eintak,
en aldrei kemur til mála að
lesandinn verði látinn greiða
útlánsgjald. Til samanburðar má
benda á afnotagjöld af útvarpi og
Framhald á bls. 47
Austurland
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi verður haldinn á
Höfn f Hornafirði 25. og 26. okt.
Hefst fundurinn kl. 8,30 á föstu-
dagskvöldið 25. okt.
Kl. 2 e.h. á laugardaginn halda
Sjálfstæðisfélögin í Austur-
Skaftafellssýslu almennan fund i
Sindrabæ um hafréttarmál.
Frummælandi verður Þór Vil-
hjálmsson prófessor.
Um kvöldið halda Sjálfstæðisfé-
lögin árshátfð sína í Hótel Höfn.
Hjónin Helga og Bent Exner með einn skartgripanna, sem eru á
sýningunni f Norræna húsinu. Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
Danskt skart í
Norrœna húsinu
Dönsku gull- og silfursmiðirnir
Helga og Bent Exner opnuðu f
gær, laugardag, sýningu á skart-
gripum sfnum f bókasafni Nor-
ræna hússins. Exner hjónin eru
talin f fremstu röð listamanna
Dana, og skart þeirra hinir mestu
dýrgripir. „Skart er skúlptúr" (
segja þau, og þau smfða aldrei tvo '
gripi eins.
Smíðisgripir þeirra hafa verið á
fjöldamörgum listsýningum f
Danmörku og víðar, til dæmis á
Heimssýningunni f Montreal
1967, Victoría og Albert Museum
1968, Helsinki 1968, Moskvu 1969,
Japan 1970, Munchen 1971 og
1972 og Hamborg 1973.
Exner hjónin, sem hlotið hafa
mörg verðlauna fyrir smfðisgripi
sína, selja aðeins frá eigin verk-
stæði, en aldrei í verzlunum. Sýn-
ingin verður opnuð kl. 14 f dag og
verður opin frá kl. 14—19 alla
daga fram til föstudagsins 25.
október.
Flestir skartgripanna á sýning-
unni eru til sölu og er verðið á
þeim frá 1500 kr. dönskum. Þessi
sýning, sem haldin er á vegum
Norræna hússins, var fengin
hingað að tilstuðlan danska sendi-
herrans f Reykjavík.
A mánudagskvöldið 21. október
flytur Bent Exner fyrirlestur,
sem hann nefnir „Skart f daglegu
lífi" og sýnir litskuggamyndir f
fyrirlestrasal Norræna hússins.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 og
er öllum heimill aðgangur.
í-J'íSÍ&m: