Morgunblaðið - 20.10.1974, Side 3

Morgunblaðið - 20.10.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1974 3 Afi MJi m MJL TÍ ur x rerim Lfl EFTIR EINAR SIGURÐSSON Boston Landnám íslenskra sjómanna í Banda- ríkjunum, einkum Boston á fyrstu ára- tugum aldarinnar. Það geróist strax á öðrum tug aldarinnar nokkuð algengt, að sjó- menn færu vestur til Nýja-Eng- lands og gerðust þar skipverjar á bandariskum togurum, og var svo í nokkra áratugi. Einn af þeim mönnum, sem lagði i þennan viking, var Þorlák- ur Guðmundsson, fæddur í Gufu- dal í Barðastrandarsýslu 12. janú- Þorlákur Guðmundsson skip- stjóri á togaranum Flying Cloud. ar 1899, sonur séra Guðmundar Guðmundssonar í Gufudal og bróðir Haralds ráðherra og fleiri systkina. 28 ára gamall fór Þorlákur vest- ur um haf og hafði þá ekki áður komið á sjó. Fyrst réðst hann til ýmissa I landi vestur í Ameríku í 3 ár. Hann kom til Boston vorið 1930, en sú borg var þá aðsetu- staður margra íslendinga vestra. Fór hann þá til sjós með Magnúsi Magnússyni, sem var skipstjóri á togara, sem bar nafnið „Notre Dame“, sem var bæði nafn á frægustu kirkju í Paris og háskóla í Bandaríkjunum. Þessi togari var um 400 lestir með 750 hestafla vél. Þorlákur gerðist há- seti hjá Magnúsi um sumarið. Um haustið fór hann á annað skip með Grími Hákonarsyni skip- stjóra. Skipið hét Marietta B. um 200 lestir að stærð. Var Þorlákur nokkra mánuði á þvi skipi. Magnús, fyrrnefndur skipstjóri, Ilentist eins og svo margur annar íslendingur í U.S.A. og fluttist síðar vestur á Kyrrahafsströnd og andaðist i Alaska. Magnús Magnússon var kvæntur móður- systur Ásu Þórhallsdóttur, sim- stöðvarstjóra i Vestmannaeyjum. Grímur Hákonarson skipstjóri fluttist löngu seinna heim til ís- lands á kreppuáratugnum eftir 1930 og settist að i Auðsholti I Ölfusi. Þá voru miklir gjaldeyris- erfiðleikar til kaupa á vörum til landbúnaðar sem og öðru, en hann fékk að nota gjaldeyri sinn, Þorlákur Guðm. um berð f seinasta skipinu, sem hann var á. sem hann hafði aflað sér með striti sinu í Bandaríkjunum, til að kaupa sér landbúnaðarvélar. Grímur á enn bróður I Reykjavík, Ólaf Hákonarson, sem var togara- sjómaður árum saman og kunnur á íslenzka flotanum fyrir atorku. Þorlákur Guðmundsson gerðist snemma stýrimaóur, fyrst með skipstjóra að nafni Theódór Jónsson, og síðar skipstjóri. Voru þeir Theodór saman til sjós lang- an tíma sem stýrimenn og skip- stjórar á vixl. Þeir voru með skip, sem var 200 lestir að stærð og gert út frá Boston. í upphafi áratugar- ins 1920—1930 voru 10 til 20 is- lenzkir skipstjórar, sem stjórnuðu togurum frá Boston, og má gizka á, að um þetta leyti hafi alls verið um 50 islenzkir sjómenn i öllum stéttum. Mjög athyglisvert var, að jafnstór hópur íslenzkra sjó- manna færi utan á þessum árum, 1925—1935, en það var lika fyrir og eftir þetta timabil. Ég vil einn- ig minnast á fleiri skipstjóra, svo sem Kristján Kristjánsson, Jakob Þorvaldsson (sonur Þorvalds póliti), Axel Jóhannsson, Guðmund Jóhannsson og Óskar Gíslason. Skip, sem þeir voru með, voru öll frá Boston og voru eign bandarískra borgara. Lögðu þeir afla sinn á land við Fish Pier. Var það fyrir ferðar- mikil bryggja, og gátu skip lagzt að henni báðum megin, enda voru básar nógu margir og akbraut var eftir henni miðri niður á bryggju- haus. Þarna var fiskinum landað og fór uppboð á honum fram á staðnum. Aflinn var venjulega mestur á mánudögum og gat komizt upp í 1000 lestir á slíkum dögum, og má telja það 500—600 lestum meira en algengt er hér daglega. Annars gat dagsaflinn verið frá 100 lestum, 500 lestum og upp i 1000 lestir, — allt eftir gæftum og fiskiríi. Aflinn var nokkuð misjafn eftir árstíma. Þegar litill afli var, var verðið oft hærra. Afbragðsafli á togara var 100—150 lestir á skip i veiðiferð. Þá var verðið 2H cent pundið, um árið 1935. Seldi þá aflahár togari árlega fyrir um 6000 dollara. Á Fish Pier var framleiddur ís og var unnt að láta hann renna fram eftir bryggjunni í skip, sem þar lágu, en sumir voru líka fermdir ís af bílum. Netaloft voru einnig á miðjum Pier, en netaverzlanir voru fyrir ofan bryggjuna. Það má gizka á, að á þessum tima hafi um skeið verið gerðir út milli 30 til 40 togarar frá Boston, sem voru yfir 200 lestir. Skipin heltust mikið úr lestinni í strið- inu. Nokkrir nýir togarar voru þó byggðir í striðslokin, um 250 lest- ir að stærð, falleg og afkastamiki) skip. Fiskurinn var allur halaður upp úr skipunum i körfum, og var ýsa ríkjandi í aflanum. 1 netaviðgerð Nú hefur þessi útgerð dregizt saman, og er jafnvel efst á dagskrá að leggja niður Fish Pier i sinni upprunalegu mynd, en þar er enn meðal annars brot af litilli ísframleiðslu og minniháttar frystihús. Segja má, að mjög lítill hluti af þessari íslenzku sjómanna- nýlendu í Boston hafi horfið heim til Islands. Þorlákur Guðmundsson hvarf heim til ætt- landsins fyrir þremur árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.