Morgunblaðið - 20.10.1974, Side 7

Morgunblaðið - 20.10.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1974 STRAUMAR Meðan Bretar barma sér und- an yfirvofandi kreppu í efna- hagslífinu, ræðst konunglega óperan í Covent Garden f það stórvirki að flytja allan Niblungahring Wagners, eitt- hvert viðamesta verkefni sem óperufyrirtæki getur ráðist í — bæði í fjárhags- legu og listrænu tilliti. Slíkt þykir í sjálfu sér alveg nægi- leg dirfska á þessum sfðustu og verstu tfmum, en Covent Garden lætur ekki þar við sitja heldur hefur ráðið al- ræmdan aðkomumann til að setja Hringinn á svið, mann sem. hefur orð á sér fyrir að fara ekki troðnar slóðir í sviðsetningum sínum á óper- um og er sóttur austur fyrir járntjald f þokkabót. Bendir ýmislegt til þess, að þessi óperuflutningur geti orðið með hinum sögulegri í brezku leikhús- og tónlistar- lffi hin sfðari ár. Raunar hefur flutningur á Hringnum verið alllengi á döfinni hjá konunglegu óper- unni. Upphaflega stóð til að Peter Hall, hinn kunni brezki, leikhúsmaður, yrði ráðinn þar óperustjóri ásamt Colin Davis, hljómsveitarstjóra, og vitað var að Niblunga- hringurinn var efstur á blaði á verkefnaskrá þeirra, þar sem Hall hugðist setja óper- una á svið en Davis stjórnaði tónlistarflutningnum. Á elleftu stundu hætti Hall við að taka að sér starfann og leit þannig um tíma illa út með að nokkuð yrði af flutn- ingi á Hringnum, sem er sem kunnugt er í reynd fjórar sjálfstæðar óperur — Rínar- gullið, Valkyrjan, Siegfried og Ragnarök. John Tooley, framkvæmda- stjóra óperunnar, var þannig töluverður vandi á höndum er hann leitaði að staðgengli fyrir Hall til að færa Hring- inn á svið en fyrir valinu varð síðan austur-þýzkur óperumaður að nafni Götz Friedrich, sem vakið hefur mikla athygli fyrir mjög djarfa en umdeilda sýningu á Tannhauser í Bayreuth fyrir tveimur árum rúmum. Þykir mörgum Tooley harla hugað- ur í þessari ráðningu sinni í ljósi þess að Friedrich er töluvert kynlegur kvistur í röðum óperumanna. Er sýnt, að Covent Garden tekur þarna umtalsverða áhættu, sem er afar óalgengt meðal svo útgjaldafrekra óperu- fyrirtækja á borð við Covent Garden, því að yfirleitt tefla þau ekki á tvær hættur í verkefnavali sínu. Öperan hefði sennilega sloppið án verulegra skakkafalla frá hefðbundinni sviðsetningu Hringsins, en hér getur vissulega brugðið til beggja vona — allt eftir því hvort áhorfendum gezt að frum- leika Friedrich. Götz Friedrich hlaut menntun sína hjá Komische Oper í Austur-Berlín, en á síðustu árum hefur hann getið sér góðan orðstlr við vestræn óperuhús. Marxískt uppeldið speglast I sviðsetningum hans, sem komið hafa vest- rænum óperugestum dálítið í opna skjöldu og um leið borið með sér ferskan andblæ inn í fremur staðnað óperulff Vesturlanda. Friedrich hefur nú sagt skilið við ættland sitt um sinn að minnsta kosti — þar sem yfirvöld þar vildu hindra hann I að starfa svo mikið á Vesturlöndum sem hann sjálfur vildi. Skoðanir Friedrich á hlutverki óperunnar I nútfmanum eru um margt óvenjulegar. Hann heldur því fram, að unnend- ur óperunnar verði að leita eftir meiru í óperum en skemmtanagildinu einu, því að óperur séu alltof kostnaðarsamt fyrirtæki til að réttlæta svo mikla sóun fjármuna í þeim tilgangi ein- eftir BJÖRN VIGNI SIGURPÁLSSON Wagner á marxíska vísu um, „Ef óperan hefur engu þjóðfélagslegu hlutverki að gegna, þá er engin ástæða til að halda lifinu í þess háttar hljómasafni og hrella al- menning með aukinni skatt- heimtu til að standa undir kostnaðinum af rekstri þeirra. Við verðum ætíð að huga að þessu hlutverki, við sem túlkum þær, þið sem gagnrýnið þær, fólkið sem sækir þær. Þessi hugsunar- háttur er enn ekki ríkjandi, en viljinn fyrir því að gera þetta, sem við aðhöfumst á sviðinu, að einhverju meiru en leik I fílabeinsturni," lét Friedrich hafa eftir sér ný- lega I brezku blaði. Friedrich vill líta á Niblunga- hringinn sem epfskan ævin- týraleik um endalok mann- félagsins, um endalok mann- félags okkar tima, ef menn kjósa að skoða Wagner sem spámann um framvindu nú- tímans. Hringurinn sé dæmi- saga um hvað gerzt geti, við- vörun, þótt hann á ytra borði líkist helzt nítjándualdar skáldsögudoðranti. Mestu skipti þó að hinir f jórir hlut- ar séu í reynd fjögur ólík verk og kveðst Friedrich ætla að láta þennan mismun mill- um óperanna fjögurra njóta sfn sem bezt f sviðsetningu þeirra á Covent Garden. „Það er f mínum augum meginatriði," segir Friedrich ennfremur, „að Hringurinn greinir frá bölvun valdsins. Sá sem ber hringinn hverju sinni er spilltur og afbrigði legur. Svo lengi sem valdið helzt í fárra höndum og er notað til að kúga aðra, mun þetta helgivald, ef við getum nefnt það svo, spilla öllum mannlegum samskiptum. Aðallega vekur það þó áhuga minn á efninu, að Hringur- inn er saga mannkynsins unt“ leið og hann er saga um menn. Sú saga gerist á leik- sviði og þar með gefst færi á að segja sögu leiksviðsins um leið og sögu mannsins.“ Tel- ur hann túlkun óperunnar nái bezt til áhorfenda í formi lfkinga, en með þvf að höfða f túlkuninni til veruleikaskyns áhorfandans. Því að hvar ger- ist Hringurinn? spyr Friedrich. Ekki á tslandi, ekki i Noregi né I Þýzkalandi nftjándu aldar. Hann gerist á leiksviði Covent Garden. Og Friedrich vitnar til Peter Brooks, að umgjörðin sé leik- sviðið og leiksviðið sé veröld- in. Sögusvið Hringsins er einmitt öll veröldin. Og af því að hér f upphafi var Iftillega drepið á Tannhauser sýningu Friedrich i Bayreuth, er ekki óviðeig- andi að nota tækifærið og minnast með örfáum orðum Wolfang Windgassen, sem Iézt f sfðasta mánuði, en hann' var einn af máttarstólpum tónlistarhátfðarinnar f Bayreuth og einn fremsti Wagnersöngvari veraldar sfðustu áratugina. Hann var sextugur að aldri. Windgassen var búsettur í Stuttgart og fjögur sfðustu árin var hann aðalstjórnandi óperunnar þar í borg. Frama- ferill hans hófst þó ekki að ráði fyrr en upp úr 1950, en sfðustu tvo áratugina eða svo hefur hann verið talinn fremsti túlkandi Wagners í röðum tenórsöngvara og arf- taki þeirra Lauritz Melcior og Max Lorenz. Á þessu skeiði hefur Windgassen verið tal- inn ómissandi söngkraftur við allar meiriháttar Wagner- sýningar í helztu borgum Evrópu og hann var eins og áður getur, ein helzta drif- fjöður Bayreuth-tónlistar- hátíðarinnar, þar sem hann söng 159 sinnum á árunum 1951—66. Wagnersöngkonan kunna Birgiit Nilsson ritar nýlega eftirmæli um Windgassen i New York Times og þar segir hún að það hafi verið tvö „W“ sem mikil áhrif höfðu á söngferil hennar — Wieland Wagner óperuleikstjóri, og Wolfang Windgassen tenór. „Nú eru þeir báðir horfnir af sjónarsviðinu og með þeim er farinn stór hluti þess er ég álft ákjósanlegasta háttinn til að flytja óperur Richard Wagners. Það var Wieland sem sló Wolfang mestu gull- hamrana er hann sagði eitt sinn: „Þegar Windgassen hættir að syngja, getum við allt eins lokað „das festspiel haus“... Sjálf er ég þakklát fyrir að hafa verið uppi á sama tíma og Windgassen og vegna hans hefur líf mitt orð- ið svo miklu rfkara, bæði hinu listræna og mannlega sviði." Götz Fjriedrich ásamt söngkonunni Katalin Kasza við æf- ingar á Rfnargullinu. Prjónakonur takið eftir Kaupum lopapeysur, allar gerðir, allar stærðir, helzt dekkri liti. Hækkað verð. Seljum þriþættan lopa. Móttaka 1—3. Unex, Aðalstræti 9. M. Benz 200 D '66. Bill i sérflokki til sölu. Má borgast með 2ja ára skulda- bréfi eða eftir samkomulagi. Srmi 16289. Fiat 127 '72 til sölu. Samkomulag með greiðslu. Simi 1 6289. Til sölu Forhitari fyrir ca. 500 rúmm. Einrv ig notað baðherbergissett. Upplýs- ingar i síma 17527 eða að Dun- haga 1 9, 3. hæð. Volvo de luxe árg. '72. Til sölu vef með farinn Volvo de luxe árg. '72, 4ra dyra. Uppl. i sima 81 643. Gullarmbandsur tapaðist i austurhverfum borgar- innar. Finnandi ervinsamlega beð- inn að hringja í síma 34270 á kvöldin. Fundarlaun. Range Rover '73 til sölu vel með farinn. Uppl. i síma 371 62. íbúð óskast 5 til 6 herb. ibúð eða einbýlishús óskast til leigu. Fyrirframgreiðsla. Tilboð sendist Mbl. fyrir 25. þ.m. merkt: 4637. Hárgreiðslustofa til sölu. Til sölu er hárgreiðslustofa á góð- um stað i Kópavogi. Upplýsingar veittar í síma 66397. 2ja herb. íbúð við Njálsgötu til leigu frá 1. nóv. Tilboð sendist afgr. Morgunblaðs- ins merkt: „7282", fyrir n.k. þriðjudagskvöld. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt i hálfum skrokk- um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. kg. Kjötmiðstöðin, simi 35020. Ytri-Njarðvík. Til sölu glæsileg 4ra herb. ibúð. Sérinngangur. Laus strax. Fasteignasala Vilhjálms og Guð- finns, Vatnesvegi 20, Keflavik, simar 1263 — 2890. Hafnarfjörður Óska eftir atvinnu i Hafnarfirði, helzt hálfan daginn. Er vön skrif- stofu- og afgreiðslustörfum. Vélrit- unarkunnátta. Upplýsingar i sima 53135. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATUN 27. simi 25891. Atvinna óskast Háskólanemi (í ensku og sænsku) óskar eftir kvöld- eða helgarvinnu strax. Góð málakunnátta. Hefur bilpróf. Upplýsingar i sima 26509 eftir kl. 7 á kvöldin. Norska sendiráðið óskar eftir stúlku til ræsingavinnu tvisvar til þrisvar sinnum í viku f.h. Simi 1 3065. Akranes Viljum kaupa 12 til 14 fm mið- stöðvarketil í góðu ástandi. Uppl. í síma 93-1575 og 1497. Smyrnateppin vinsælu komin aftur. Ekta Ryagarn, ready cut. Ilöng og rúnn, ótrúlegt úrval. Hof, Þingholtsstræti 1. Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grisaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, sími 35020. TEAK — EIK OREGONPINE W TIMBURVIRZLUNIN VÖLUNOURhf. Klapparstíg 1, Skeifan 19 Simar: 18430—85244 A Caterpillar D7E til leigu í bæði stór og smá verk. Athugið leigukjör. Ingvi H. Ingvason, sími 52421. Lóubúð — Nýkomið Jólakjólarnir á telpur komnir. Glæsilegt úrval. Sími Lóubúð, 13670 Bankastræti 14, II hæð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.