Morgunblaðið - 20.10.1974, Side 11

Morgunblaðið - 20.10.1974, Side 11
i MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1974 11 [ fólk — fólk — fólk — fólk 3 ■ ^ „Hef komið til Grœnlands og Þýzkalands, en aldrei til Reykjavíkur” Gunnar Ölafsson f Pöntunarfélaginu. „Hvað sérð þú um hér í sam- bandi við verzlunina?" „Ég sé um, að vörurnar séu á réttum stað, raða í hillurnar, ber inn mjólk og geri mikið hérna í búðinni hjá þeim, svona það, sem þarf að gera. Hér áður fyrr var ég alltaf i fiskvinnu hjá frystihús- inu.“ „Hefur þú ferðazt mikið?" í Pöntunarfélaginu hittum við Gunnar Ólafsson, en hann hefur unnið í Pöntunarfélaginu í 14 ár og er Eskfirðingur. Hann hefur unnið við hitt og þetta, sem þurft hefur að gera, öruggur og traust- ur starfsmaður: „Mér líkar vel að vinna hérna," sagði hann, „maður er í sambandi við margt fólk, sem kemur að og það er margt fólk, sem vinnur með mér. Þetta er skemmtilegt starf.“ „Hvernig finnst þér bæjarbrag- urinn?" „Mér finnst bæjarbragurinn góður, bara góður, og Eskifjörður fékk kaupstaðarréttindi í vor. Þetta er ágætt, hér vinn ég bæði með ungu og fullorðnu fólki og mér finnst gott að vinna með unga fólkinu, held það muni spjara sig og fari ekkert f hund- ana. Mér lizt ekkert illa á ástandið í landinu í dag.“ „Er mikil umferð um Eski- fjörð?" „Já, það hefur verið mikil um- ferð í allt sumar og mikið af bíl- um hefur farið hér um í sambandi við hringveginn." „Sáttur við lífið og tilveruna?" „Já.“ —árni j. Séð yfir hluta Eskif jarðar úr hiiðinni ofan kaupstaðarins. 'T” Þetta reisulega ankeri skreytir bankalóðina f miðbænum á Eskifirði. „Já, ég er ferðamaður. Ég hef farið til Grænlands með flugi frá Akureyri og til Þýzkalands fór ég með togaranum okkar, Austfirð- ingi. Það var gott að koma til Þýzkalands og Grænlands, við stoppuðum þar í 6 klukkutíma. Mér fannst kynlegt að sjá grafir grænlenzka fólksins í Kulusuk, en ég kom í kirkjuna þar og hlust- aði á grænlenzkan söng og það var skemmtilegt að koma í sölubúð danskra hjóna þar. Þau höfðu nú lftið að selja, en voru nú samt með svolítið. Svo hef ég farið til Akur- eyrar og Austfirðina okkar, Fáskrúðsfjörð, Reyðarfjörð, Norðfjörð, Seyðisfjörð, Raufar- höfn og Þórshöfn." „En til Reykjavíkur?" „Nei, þangað hef ég aldrei kom- ið, en ég vildi gjarnan fá tíma til þess og skoða mig um í nokkra daga. Auk ferðalaga hef ég haft gam- an af að kynna mér báta landsins og búnað þeirra og ég veit um mörg skip, sem hafa komið hér, hvaða vélar eru f þeim, hvað skip- stjórarnir heita og á síldarárun- um kynnti ég mér þessi mál mik- ið. Síðan nokkuð. Maður kynnir sér margt svona, núna grúska ég aðallega í hversdagslífinu.“ fólk — fólk — fólk — fólk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.