Morgunblaðið - 20.10.1974, Page 48
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIOJAN SIMI: 19294
SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1974
26.0KT.
laugardagur
Merkjasala
til styrktar
geðsjúkum
Aðrennslisrör, sem eiga að fara inn f Sigöldu, fyrir framan
Stálsmiðjuna.
Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.
Aðrennslisrörin við
Sigöldu hátt í 1 km.
Stálsmiðjan í Reykjavík vinn-
ur nú að því að smíða að-
rennslisrör fyrir túrbínur raf-
orkuversins við Sigöldu. Uþp-
haflega átti að smíða þessi rör
erlendis, en hætt var við það, er
kom í ljós, að hagkvæmara
reyndist að smíða þau á Islandi.
Aðrennslisrörin eru 4.2 metr-
ar í þvermál og að sögn Bene-
dikts Gröndals forstjóra Stál-
smiðjunnar verður lengd þeirra
hátt í einn kílómetra. Þetta
verk er geysivandasamt, en
Stálsmiðjan hefur mjög góðar
vélar til þessa starfs. Aðal-
vandamálið við framleiðsuna er
mannekla, „en þeir menn, sem
við höfum, eru mjög góðir.
Annars er það svo, að það er
vart hægt að fá menn til starfa í
vélsmiðjunum," sagði
Benedikt.
I FYRRINÓTT voru
stórskemmdir unnar á 5 bfla-
leigubflum Loftieiða, þar sem
þeir stóðu á athafnasvæði bfla-
leigunnar við Flugvaliarveg.
Skiptir tjónið tugum ef ekki
hundruðum þúsunda króna.
Umræddir bflar eru af Vols-
wagengerð, rauðir að lit.
Steinum hafði verið kastað f
rúður og þær brotnar, steinum
kastað á vélar- og farangurs-
geymslulok og þau beygluð,
sparkað í bflana og Jakk rispað.
Engu var stolið úr bflunum.
Rannsóknarlögreglan vinnur
að rannsókn málsins, og biður
hún vitni að gefa sig fram, ef
einhver eru.
Ljóm. Mbl. Sv. Þorm.
Réttarkrufning:
Lézt af
völdum
áverka
SAKADÓMUR Reykjavfkur
hefur fengið niðurstöður réttar-
krufningar á lfki gamla manns-
ins, sem fannst látinn á heimili
sfnu Vesturgötu 26 a, að kvöldi 4.
september s.I. Segir þar, að aðal-
orsökin að láti Danfels verði að
teljast áverki á hálsi, sem valdið
hafi blóðstreymi niður f lungun.
36 ára gamall maður hefur setið
í varðhaldi síðan atburðurinn
gerðist, og við yfirheyrslur hefur
hann viðurkennt, að hafa hert
hálsbindi verulega fast að hálsi
gamla mannsins, en síðan losað
takið. Auk þess var gamli maður-
inn bundinn á höndum.
Maðurinn sem lézt hét Daníel
Símonarson. Sá sem viðurkennt
hefur að hafa hert að hálsi hans,
mun hafður áfram í haldi. Verður
mál hans væntanlega tekið fyrir
innan skamms.
Stúlka fyrir bíl
UNG stúlka varð fyrir bfl á
Suðurlandsbraut um klukkan
11,30 í fyrrakvöld. Gerðist þetta
skammt fyrir innan Kringlumýr-
arbraut. Stúlkan slasaðist tölu-
vert mikið, hlaut m.a. fótbrot og
mikla áverka á höfði.
Heimsfræg
jasshljómsveit
FULLVÍST má telja, að ein fræg-
asta jasshljómsveit heimsins komi
hingað til lands í næsta mánuði og
haldi hér tvenna tónleika. Hljóm-
sveitin nefnist World Greatest
Jazzband og skipa hana gamal-
kunnar stjörnur úr bandariska
jassheiminum, t.d. Bob Haggart
og Yank Lawson. Báðir eru á sjö-
tugsaldri og hafa verið á toppnum
í 40—50 ár. Hljómsveitin hefur
verið á ferðalagi í Evrópu að und-
anförnu, og stoppar hér í 2—3
daga á leið heim til Bandaríkj-
anna. Ámundi Amundason um-
boðsmaður mun standa að komu
hljómsveitarinnar hingað. Verður
endanlega gengið frá samningum
í næstu viku.
Maður rændur
I FYRRINÓTT var ráðizt á mann,
sem var á gangi á Snorrabraut, og
hann rændur veski sínu. Voru þar
að verki 4—5 unglingspiltar. I
veskinu voru 3000 krónur í pen-
ingum auk persónuskilríkja
mannsins. Maðurinn slapp úr
átökunum án meiðsla. Atburður
þessi gerðist milli eitt og tvö um
nóttina, og ef einhverjir geta gef-
ið upplýsingar í málinu eru þeir
beðnir að snúa sér til rannsóknar-
lögreglunnar.
Fíkniefnadómstóllinn:
Hefur dæmt í málum
80 manna frá í vor
FRÁ þvf f vor og fram til þessa
hefur Ffkniefnadómstóllinn
dæmt f málum 80 manna. Að sögn
Ásgeirs Friðjónssonar dómara er
f öllum tilvikunum um að ræða
smærri mál, sem lokið hefur með
sektarálögum. Stærri mál eru f
úrvinnslu hjá saksóknara rfkisins
og dómstólnum.
„Málin sem hlotið hafa af-
greiðslu að undanförnu eru flest
frá því í fyrra, en nokkur frá
þessu ári. Ffkniefnamálum hefur
fækkað hjá dómstólnum eftir ára-
mótin, og stórt fíkniefnamál hef-
ur ekki komið upp í langan tíma,“
sagði Ásgeir Friðjónsson.
10 -15% lækkun á
nóta- og netagarni
EFNI f net og nætur hefur lækk-
að nokkuð á hefmsmarkaði að
undanf örnu og nemur þessi lækk-
un 10—15%. Þessar lækkanir
hafa komið nú f haust, mest
vegna þess, að verð á olfu er nú
reglubundnara en það var fyrr á
þessu ári.
Ævar Guðmundsson hjá Seif
h.f. sagði f samtali við Morgun-
blaðið í gær, að ýmislegt benti til
að verð á þessum vörum ætti eftir
að lækka enn meira, sérstaklega
ef verð á olíuvörum Iækkaði.
Framleiðendur hefðu haldið
verði á veiðarfærum háu fram
eftir þessu ári, vegna hins ótrygga
ástands f olfumálunum, en eftir
að olíuverðið var orðið nokkuð
stöðugt byrjuðu veiðarfærin að
lækka í verði.
Hann sagði, að loðnunót hefði
kostað í Noregi fyrr á þessu ári
um 600 þús. kr. norskar en nú
hefði verð á þeim lækkað um 50
þús. kr. norskar eða yfir 1 millj.
fsl. kr. Hér með væri ekki sagt, að
verð á loðnunót í íslenzkum krón-
um talið hefði lækkað, þvf gengis-
fellingin hefði étið upp erlendu
lækkanirnar.
Hafá flutt út skrúfu-
hringi 1 tvö ár
Fyrir nokkrum árum var farið
að setja skrúfuhringi utan um
skrúfur fslenzkra skipa og hafa
þeir almennt reynzt mjög vel.
Eitt fslenzkt fyrirtæki hefur nú
um tveggja ára skeið flutt þessa
hringi út og haf a þeir reynzt mjög
vel.
Það er Stálsmiðjan í Reykjavík,
sem smíðar og flytur skrúfuhring-
ina út. Benedikt Gröndal, for-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að skrúfuhringirnir
væru framleiddir samkvæmt
einkaleyfi frá Lianen í Noregi og
f upphafi hefðu þeir eingöngu
verið framleiddir fyrir það fyrir-
tæki. Norðmönnunum likaði svo
vel við íslenzku hringina, að þeir
pöntuðu meira af þeim, og hefur
eftirspurnin sifellt orðið meiri.
Hafa hringirnir t.d. verið seldir
til fleiri landa en Noregs eins og
t.d. Englands, en þeir eru settir
jafnt á flutningaskip sem fiski-
skip. Stærstu hringirnir kosta um
1 milljón króna.
Benedikt sagði, að skrúfu-
hringurinn væri gömul uppfinn-
ing en það væri fyrst nú hin síðari
ár, sem farið væri að setja þá í
einhverjum mæli á skip. Þeir
hefðu marga kosti, skipin gengu
yfirleitt meira, olíusparnaður
væri um 10% og skipin titruðu
minna.
Menntamálaráðuneytið:
VILHJÁLMUR Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, og Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri, hafa
sent frá sér bréf, þar sem beðizt
er afsökunar á ásökunar- og óvirð-
ingarorðum I skýrslu, sem
fræðsludeild ráðuneytisins sendi
nýlega út til skólastjóra og
fræðslustjóra vfðsvegar um land.
Höfundur skýrslunnar er dr.
Arnór Hannibalsson, en formála
ritar dr. Bragi Jósepsson deildar-
stjóri f menntamálaráðuneytinu.
! skýrslunni eru gagnrýnd vinnu-
brögð ráðuneytisins við sér-
kennslu og hjálparkennslu, og
einn af starfsmönnum mennta-
málaráðuneytisins borinn þung-
um ásökunum.
I skýrslu þessari segir m.a.:
„En jafnvel þótt skólar reyni að
styðja við bakið á þeim, sem
bágast eiga, setur ríkisvaldið ram-
gervan stól fyrir dyrnar þar sem
er 19. grein skólakostnaðarlaga.
Þar eru fyrirmæli um það, að
enginn skóli fær sérkennslu-
k'vóta, nema svo vilji til, að skól-
Framhald á bls. 47
Brotist inn á 10
stöðum í fyrrinótt
INNBROTSÞJÓFAR voru mjög
athafnasamir f höfuðborginni í
fyrrinótt. Brotist var inn á fjöl-
mörgum stöðum og vfða unnin
spjöll. Rannsóknarlögreglan
vann að þessum málum f gær, og
þegar Mbl. hafði sfðast samband
við hana, lá ekki Ijóst fyrir hve
miklu hafði verið stolið f þessum
innbrotum. Þá var ekki vitað
hvort sömu menn höfðu verið að
verki f einhverjum tilfellum.
Brotist var inn í hús númer 6
við Suðurlandsbraut, en þar eru
mörg fyrirtæki til húsa. Brotist
var inn í tvö þeirra, Transit Trad-
ing co og Virki hf. Þar var öllu
umturnað í 8 herbergjum, hurð-
um sparkað upp og einhverju
Framhald á bls. 47
Biðst afsökunar á skýrslu
dr. Arnórs ogdr. Braga
4