Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÖVEMBER 1974
Olafur Bjarnason, formaður Krabbameinsfélags Íslands, afhendir
dr. Bjarna Bjarnasyni heiðursskjöl Krabbameinssambands Norður-
landa. — Ljósm.: Öl. K.M.
í þessari úthlutun. Bjarni sagð-
ist hafa haft mikla ánægju af
starfi sínu í Krabbameinsfélagi
Isiands og með því starfi hefði
hann hlotið mikla lifsfyllingu
og það hefði verið sér óblandin
ánægja að starfa með öllu þvi
góða fólki, sem hann hefði
kynnzt i félaginu. Hann óskaði
Krabbameinsfélagi íslands og
norræna sambandinu allra
heilla og góðs árangurs í þeim
málum, sem framundan væru.
Ölafur Bjarnason, formaður
Krabbameinsfélagsins, fór við
afhendinguna nokkrum orðum
um dr. Bjarna Bjarnason. Hann
átti sæti í stjórn Krabbameins-
félags Reykjavikur frá árinu
1951 og var formaður þess frá
1960 og þar til hann gerðist
formaður Krabbameinsfélags
Islands við fráfall prófessors
Nielsar Dungals. Bjarni hefur
látið mikið að sér kveða i bar-
áttumálum krabbameinsfélag-
anna og sérstaklega hefur hann
átt frumkvæði að stofnun fjöl-
margra deilda I Krabbameins-
félagi Islands, víós vegar um
landið. Hann hefur tekið
virkan þátt í fræðslustarfsemi
um krabbamein og flutt fjölda
erinda um einkenni sjúkdóms-
ins og krabbameinsvarnir. Sér-
staka áherzlu hefur hann lagt á
að brýna fyrir almenningi skað-
Dr. Bjarni Bjarnason
heiðraður af krabbameins-
sambandi Norðurlanda
ÓLAFUR Bjarnason, prófessor,
formaður Krabbameinsfélags
Islands, afhenti í gær dr.
Bjarna Bjarnasynv fyrrum for-
manni félagsins* heiðursskjöld
Nordisk cancerunion, sem er
samband krabbameinsfélaga á
Norðurlöndum. Norræna sam-
bandið ákvað á fundi sínum f
Stokkhólmi 1 júní að veita dr.
Bjarna þessa viðurkenningu,
en hann gat þá ekki verið við-
staddur og tekið við heiðurs-
skildinum og var Ólafi Bjarna-
syni falið að afhenda honum
skjöldinn. Heiðursskjöldinn
hafa aðeins 5 menn hlotið á
undan Bjarna, þrfr frammá-
menn hinna krabbameinsfélag-
anna á Norðurlöndum, en að
auki karl og kona, frumkvöðlar
að alþjóðasamvinnu í barátt-
unni gegn krabbameini. Skild-
inum var fyrst úthlutað árið
1961 fósló.
Dr. Bjarni Bjarnason sagói,
er hann hafði veitt heiðurs-
skildinum viðtöku í gær, að
hann væri undrandi yfir þeim
heióri, sem honum hefði hlotn-
azt og í raun hefði sér aldrei
dottið í hug, hvorki í vöku né
draumi, að sér myndi hlotnazt
þessi heiður, svo fágætur sem
hann væri. Dr. Bjarni sagði, að
sér væri þessi viðurkenning
mjög mikils virði og hin mesta
sæmd, sem sér hefði hlotnazt á
lífsleiðinni. Hann bað Ólaf
Bjarnason að flytja Norræna
krabbameinssambandinu þakk-
ir sínar og kvaðst einnig þakka
Ólafi, þar sem hann sagðist
vita, að þáttur hans væri mikill
semi reykinga, í blöðum, út-
varpi og sjónvarpi. Hann hefur
ritstýrt fréttabréfi um heil-
brigðismál um árabil og er rit-
stjóri þess enn. „það er mér
sérstök ánægja," sagði Ólafur
Bjarnason, prófessor, ,,að
afhenda Bjarna Bjarnasyni
heiðursskjöld Norræna krabba-
meinssambandsins fyrir
margra ára óeigingjarnt starf í
þágu baráttumála krabba-
meinsfélaganna."
A blaðamannafundinum í
gær kom fram, að á þessum
fundi Norræna krabbameins-
sambandsins var fyrrverandi
formanni danska krabbameins-
félagsins, dr. Charles Jakobsen,
veitt sama viðurkenning fyrir
störf hans að krabbameinsvörn-
um í Danmörku.
Tékknéskir stúdentaleiðtogar:
Hafa ekki áhuga
á Slansky-rétt-
arhöldunum
HÉR eru nú staddir þrfr
stúdentaleiðtogar frá Tékkósló-
vakfu f heimsókn til Stúdentaráðs
Háskóla islands. Það er utanrfkis-
málanefnd Stúdentaráðs, sem
annast móttöku þeirra hér, og
voru fréttamenn boðaðir til fund-
ar með gestunum f Félagsstofnun
stúdenta f gær.
Fyrirliði hinna tékknesku
stúdenta er formaður Landssam-
taka stúdenta i Tékkóslóvakiu,
Jan Prochazka að nafni, en auk
hans eru í hópnum Jan Brunner,
formaður tékknesku stúdenta-
samtakanna, og Ivan Rohal-Ilkiv,
formaður slóvensku stúdentasam-
takanna. Þeir standa hér við i tvo
daga, en að undanförnu hafa þeir
vitjað stúdentasamtaka á Norður-
löndum. Aðspurðir um hverjir
sendu þá og hver tilgangurinn
með förinni væri, svöruðu þeir
því til, að þeir væru hér til að
stuðla að vinsamlegum samskipt-
um og samvinnu íslenzkra
stúdenta og tékkneskra, og væru
það tékknesk stúdentasamtök,
sem stæðu fyrir skipulagningu og
kostnaði viðferðina. Síðar áfund
inum kom fram, að á 11. Allsherj-
arþingi IUS (International Union
of Students) var fyrst rætt um
þessa ferð sendinefndarinnar. Til
skýringar skai tekið fram, að IUS
eru alþjóðleg stúdentasamtök,
sem stofnuð voru 1 Prag árið 1946,
og urðu íslenzkir stúdentar fljót-
lega aðilar að sambandinu. Eftir
Ungverjalandsuppreisnina árið
1956 sögðu flest stúdentasamtök í
lýðræðisrikjum sig úr samband-
inu, en IUS hafói þá neitað að
fordæma innrásina 1 Ungverja-
land. Þeirra á meðal var Island.
Þeir félagar sögðu það vilja
tékkneskra stúdentasamtaka, að
samvinna tækist með stúdentum i
öllum þjóðlöndum um að útrýma
heimsvaldastefnu, einræði og ný-
lendukúgun. Viðræður um slökun
spennu milli austurs og vesturs
væri nú á mikilvægu stígi, og
hægt væri að eyja mikla mögu-
leika, sem nauðsynlegt væri að
nýtatil fullnustu.
Að loknu inngangserindi
Prochazka gafst fréttmönnum
tækifæri til að spyrja sendinefnd-
ina spurninga, og er hér sýnis-
Framhald á bls. 24
Peningagjöf
„Þakklát kona“, sem ekki vill
láta nafns síns getið, hefur fyrir
milligöngu sr. Sigurðar Hauks
Guðjónssonar komið til Mbl. 10
þúsund krónum, sem hún óskar
að renni til Landssöfnunar
Kiwanis.
Fjárhæðinni hefur verið komið
til réttra aðila en henni fylgdi
svohljóðandi bréf:
„Meðfylgjandi upphæð er lítil
vala, sem mig langar til þess að
Framhald á bls. 24
Aðeins átta dagar:
Notum tímann vel
— segir skrifstofa Skyndihappdrættis
Blaðinu var i gær tjáð, að
Skyndihappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins væri í fullum gangi, en
nú liði óðum að því, að dregið
yrði, eða nánar tiltekið eftir
aðeins8 daga.
Sala happdrættismiða gengur
vel, en margir eiga samt enn eftir
að gera skil og þarf nú i dag og
um helgina að gera stórt átak til
þess að æskilegur árangur náist
Starfslið happdrættisins segii
-framkvæmd þess krefjast mjög
mikils starfs og til að auðvelda
það, er þeím vinsamlegu tilmæl-
um beint til þeirra, sem enn eiga
ógerð skil, aó gera það hið fyrsta.
Sjálfstæðisflokkurinn vann
stórsigra i tvennum kosningum i
vor, en sú mikla kosningabarátta
kostar fjármagn, sem hver
stuðningsmaður flokksins gæti
eflt með framlagi sínu. Sjálf-
stæðismenn hafa ætið brugðist
vel og skjótt við, þegar til þeirra
hefur verið leitað og er þess
vænst, að svo verði enn.
Skrifstofa Skyndihappdrættis-
ins í Reykjavík er á Laufásvegi
46. Verður skrifstofan opin í dag
til kl. 22.00, á morgun, laugardag,
til kl. 18.00 og á sunnudag kl.
14.00 til 18.00. Þeir, sem óska að
láta sækja andvirði heimsendra
miða, hringi í sfma 17100.
Sögusýningin í kvöld:
Síðasta sýning á
„Eldur í Heimaey,,
Stutt rabb við Osvald Knudsen
um myndina og gerð hennar
1 KVÖLD er sfðasta tækifærið,
sem Reykvíkingum og öðrum
gefst til að sjá hina nýju kvik-
mynd feðganna Ósvalds og Vil-
hjálms Knudsen, Eldur f
Heimaey. Verður myndin sýnd
á Sögusýningunni á Kjarvals-
stöðum og hefst sýningin
klukkan 21. Myndin hefur
verið sýnd f nokkur skipti á
sýningunni við mikla aðsókn og
hrifningu. Blm. Mbl. heimsótti
Ósvald í gær f vinnustofu hans í
Hellusundi, og átti við hann
stutt samtal um myndina og
gerð hennar. Ósvaldur renndi
filmunni í gegn fyrir blm. og
getur hann borið um það vitni,
að þar er á ferðinni stórmerk
heimildamynd um gosið f Vest-
mannaeyjum.
Enda þótt myndin sé aðeins
30 mínútna löng, segir hún
sögu gossins frá byrjun til
enda, og auk þess er brugðið
upp myndum af fyrstu mánuð-
um endurreisnarstarfsins. Hún
endar á svipaðan hátt og hún
byrjar, sýnir mannlíf á grænni
eyjunni. Vilhjálmur sonur Ós-
valds var kominn út í Heimaey
örfáum stundum eftir aó gosið
hófst og er það eftirminnilegt
atriði, sem hann tók fyrstu gos-
nóttina, svo skömmu eftir að
sprungan opnaðist. Vilhjálmur
dvaldi í eyjunni fyrstu daga
gossins og kom þangað annað
slagið síðan. Ósvaldur kom
þangað fyrsta gosmorguninn,
og kom síðan oft út í eyjuna, og
dvaldi þar stundum marga daga
í einu. Inn f mynd þeirra feðga
er fiéttað bútum, sem þeir
fengu hjá Heiðari Marteins-
syni, Guðjóni Ólafssyni og Sig-
urði Kr. Árnasyni, svo og ljós-
myndum Sigurgeirs Jónas-
sonar. AIls höfðu þeir feðgar úr
að velja 15 þúsund fetum af
filmum, svo klippingin hefur
verið geysimikið verk. Allar
filmurnar voru framkallaðar í
Bretlandi og þar var vinnu-
kópía unnin. Hljóðsetning var
einnig gerð i Bretlandi, en tónn
var unnin hjá sjónvarpinu, og
annaðist Sigfús Guðmundsson
það verk. Textann við myndina
samdi dr. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur, eins og við fyrri
gosmyndir Ósvalds og tónlist er
eftir Magnús Blöndal Jóhanns-
son. „Vinnsla svona myndar er
samvinna margra aðila," segir
Ósvaldur, „og þegar henni er
lokið liggur við, að manni finn-
ist maður eiga minnstan þátt i
þessu sjálfur.“ Og hann bað
Mbl. að koma á framfæri þakk-
læti til allra, sem unnu meó
þeim feðgum áð gerð myndar-
innar.
Ósvaldur sagði, að Þjóð-
hátiðarnefnd 1974 hefði óskað
éftir því að fá myndina til sýn-
ingar á sögusýningunni á
Kjarvalsstöðum. Yrði hún sýnd
þar í síðasta skipti í kvöld, og
stendur ekki til að sýna hana á
fleiri stöðum innanlands, a.m.k.
liggja ekki fyrir neinar áætl-
anir um slíkt. I athugun er aó
koma henni á erlendan markað,
og hefur m.a. Icelandic Rewiv
verið með það í athugun. Ós-
valdur Knudsen sagði að lok-
um, að gerð slíkrar myndar
væri langt í frá ábatasamt fyrir-
tæki, en hins vegar hefði hann
mikla ánægju af því að vinna
við myndir sínar, enda væri
hann varla að þessu ef svo væri
ekki.
Feðgarnir Ösvaldur og Vilhjálmur Knudsen. Ljósm. Mbl. ÓI.K,
Mag.