Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÖVEMBER 1974 Athuga- semd við „Rabb” Vegna greinar eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur í Lesbók Morgun- blaðsins sunnudaginn 22. septem- ber, óska ég að birtar verði nokkr- ar athugasemdir við rabb blaða- mannsins um húsmæðraskóiana, því að mér virðast þar koma fram nokkrar hæpnar fullyrðingar og vanþekking á málefninu, sem um erfjallað. 1. Fyrrverandi menntamálaráð- herra skipaði, í árslok 1971, nefnd til þess að endurskoða löggjöf um húsmæðrafræðslu og löggjöfina um Húsmæðrakennaraskóla ís- lands. Steinunn Ingimundar- dóttir, skólastjóri á Varmalandi, var formaður nefndarinnar. Nefnd þessi skilaði áliti, — frum- varpi til laga um heimilisfræða- skóla og frumvarpi til laga um Hússtjórnarkennaraskóla tslands — til menntamálaráðherra í mars 1972. Frumvörpin voru lögð fram á Alþingi 1973, en hlutu ekki fullnaðar meðferð. Vænti ég að Alþingi það, er næst kemur saman, taki þau til afgreiðslu. Bendi ég blaðamanni á að kynna sér þessi frumvörp ásamt greinargerðunum, áður en hann sendir núverandi menntamála- ráðherra áskorun sína um nýja nefndarskipun. Þótt þessu máli miði of hægt að dómi þeirra, sem starfa að hússtjórnarfræðslu, ber að hafa í huga að þingræðisskipu- lag er seinvirkt, og kjósum við mörg það þó frekar en stjórnar- far, sem beitir tilskipunum og bráðabirgðalögum til þess að koma fram málum. 2. Húsmæðraskólarnir starfa nú samkvæmt lögum og reglugerð, sem kveður á um námsgreinar og stundafjölda. Þessa reglugerð þarf blaðamaðurinn að kynna sér, ef hann kýs að ræða skólastarfið eins og það var og er nú. Um fánýti eða gildi einstakra frí- stundaiðkana nemendanna þarf ekki að deila, öfgafullar lýsingar blaðamannsins eru líka smekks- atriði, sem best er að hver meti fyrir sig. 3. Illa sæmir að ætla unglingum þann hugsunarhátt að þeir velji sér menntabraut til þess að verða gjaldgengir á einhverskonar „hjónabandsmarkaði", sem höf- undur „rabbsins" svo nefnir. 4. blaðamanninum finnst „ógn- vænleg tilhugsun“ að fé sé varið til að halda uppi kennslu í hús- mæðraskólum. Ef einhver hefur verið gripinn ógn og skelfingu við lestur „rabbsins“ getur sá flett upp i fjárlögum yfirstandandi árs og borið rekstrarkostnað eins hús- mæðraskóla saman við aðra fjár lagaliði, svo og sínar eigin árstekj- ur. Vænti ég að sú könnun stað- reynda komi ró á hugann. Nýting á húsakynnum skólanna ætti ekki vera blaðamanninum áhyggju- efni, sum húsin eru í notkun allan ársins hring, svo að varla gefst ráðrúm til að halda þeim við. Sé ég ekki ástæðu til að gera ráð fyrir að forráðamenn skólanna kunni ekki að laga starf þeirra að breyttum þjóðfélagsháttum eða að ætla að þá skorti til þess þekk- ingu og vilja. Vigdls Jónsdóttir. MS MS MS r- ZEVÍ SW svyJ MY Aóíilst AUGL V^/TEIKr NDAM ræti 6 simi MS ÝSINGA- JISTOFA ÓTA Í5810 11 Ibúð til leigu 3ja herb. teppalögð íbúð á Högunum, í frábæru ásigkomulagi, til leigu strax í 10 mán. Alger reglusemi áskilin. Tilboð sendist Mbl. merkt 6543. Basar — Basar að Hallveigarstöðum laugardaginn 9. nóvemb- er kl. 2. Kvenfélagið Heimaey. Rýmingarsala. Karlmannaföt kr. 3.975.— Terylenebuxur kr. 1.775.— Skyrtupeysur kr. 695.— Krepnylonpeysur kr. 595.— Úlpur o.fl. Andrés, Skólavörðustíg 22. Bílar og vagnar til sölu á tombóluverði Benz 1313 LP árg. 1970, Benz 1518 með framdr., og sturtupalli árg. 1966. Tveir stólvagnar 2X8 tonna öxlar, beislisvagn 1 6 tonna, 4 Ford Transit Pick-up árg. 1 972, Uppl. í síma 1 8420 kl. 2 — 5 næstu daga. Kuldaúlpurnar með loðkantinum Allar herrastærðir á aðeins kr. 5.400,- ^Fataverzlun fjölskyldunnar cyftusturstræti UTVARPSVIRKJAR CRUSKARAR Fjölbreytt urval af allskonar efni'frá PHILIPS til viðgerða og nýsmíða, m.a: þéttar — mótstöður, — lampar, —itransistorar, — díóður, — styrkstillar, _ hátalarar, — myndlampar, — tengi og fl. og fl. Einnig varahlutir í PHILIPS-tæki, t.d. hnífar o.fl. i rakvélar og nálar og hausar i plötuspilara. philips þjónusta ySar hagur heimilistæki sf philips SÆTÚNI 8 — SÍMI 1 3869 Við bjóðum betri litmyndir á lægra verði. Þú færð nýja litfilmu í myndavélina innifalda í framköllunarverðinu, ásamt 25% stærri lit- myndum á plasthúðaðan SILKI-pappír. NÝ LITFILMA í HVERT SINN AN NOKKURRAR AUKAGREIÐSLU, OG MYNDIRNAR Á ÞREMUR DÖGUM. ÞAÐ MUNAR UM MINNA. OPIÐ í HÁDEGINU. MYNDIÐJAN ÁSTÞÓR HF Suðurlandsbraut 20, sími 82733, Reykjavik

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.