Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÖVEMBER 1974 Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jöhanna v Kristjönsdöttir þýddi / 43 hana engu, þótt frændi hennar reyndi að gera ást hennar saur- uga og hlægilega. Hún elskaði hann og hún skyldi vernda hann fram í rauðan dauðann. Hún leit aftur á frænda sinn og sá reiðina í andliti hans. Bardaginn var á enda. Hann myndi ekki segja henni hver var fórnarlambið og hún kærði sig ekki um að vita það. Hana langaði aðeins að sann- færa hann um hver væri sann- leikurinn. Hún ætlaði ekki að fara til lögrelunnar, einfaldlega vegna þess hún gat ekki hugsað sér það. Hún gat heldur ekki hugsað sér að segja Leary allan sannleikann strax. Fyrst yrði hún að hafa upp á Keller. — Þú hefðir ekki átt að ógna mér, sagði frændi hennar. — Þú ert náfrænka mín og ég hefði haldið þú bærir einhverjar til- finningar til mín vegna þeirra tengsla. — Ég geri það líka, sagði hún þreytulega. — Þú veizt að ég myndi aldrei selja þig i hendur lögreglunnar, hvað svo sem fyrir kemur. En lofaðu mér bara því að þú hættir við áform þín. — Hvar er maðurinn núna? spurði Huntley. Hún hristi höfuðið. — Ég veit það ekki, sagði hún. — Elsku bezti frændi. Hvað svo sem þetta er sem Eddi King hefur talið þig á að gera. Hættu við það. Sérðu ekki að hann hefur fengið mig til að blekkja þig á lúsarlegan hátt. — Auðvitað sé ég það, urraði Huntley. — Ég skil bara ekki hver tilgangur hans er með því. En hafðu engar áhyggjur af því. Ég ætla ekki að gefa nein loforð, Elizabeth. Ég hef skyldum að gegna við þjóð mina. Nokkur andartök fannst henni bregða fyrir vitfirringsglampa í augum hans. — Ég hef skyldur við hana og mér ber að vernda hana og ég ætla mér að gera það. EF þú vissir hvað ég hef i huga myndirðu ekki vera það flón að biðja mig að lofa að hætta við allt saman. — Hvernig væri að reyna, sagði hún. — Ég get ekki gert neitt til að stöðva þig, svo að þú getur reynt. Við gætum unnið saman við að vernda okkur sjálf. Vinur þinn, Eddi King, er að kasta út neti og hann ætlar sér að veiða okkurbæði i það... — Ég vil að Casey vinni, sagði gamli maðurinn. — Ég vil að við hættum að berjast i Víetnam og ég vil að friður verði saminn. Ef við fáum ekki réttan forseta þá sýður upp úr í Austurlöndum og Bandarikin ramba á barmi borgarastyrjaldar. — Það er Jackson! hrópaði Elizabeth upp yfir sig og tók and- köf. — Guð minn almáttur, nú fer ég að skilja... — Og hvað hefurðu á móti þvi ? sagði gamli maðurinn. — Viltu að allir standi aðgerðarlausir og horfi upp á það að brjálaður stríðsæsingamaður og kynþátta- hatari komist í forsetastól? Er líf manns á borð við hann einhvers virði, þegar maður gerir sér grein fyrir, hvaða afleiðingar það hefði ef hann yrði kjörinn? — Hann næði aldrei kosningu, mótmæli Elizabeth. — Hann hef- ur enga möguleika á því. — Hann hefur alveg prýðilega möguleika, sagði Careron og hvessti á hana augun. — Ég veit það frá fyrstu hendi að baráttan milli hans og Casey verður i meira lagi tvísýri. Forsetinn býð- ur sig ekki fram aftur. — Hvernig getur þú vitað það, sagði Elizabeth. — Það fæ ég ekki skilið. — Hvað heldurðu ég geri við peningana mina? hreytti hann út úr sér. — Hvernig heldurðu ég afli mér upplýsinga —með þvi að lesa mín eigin blöð? Ég veit að forsetinn er með krabbamein og það hefur ekki verið geTt upp- skátt ennþá. Svo að víst verður baráttan milli Casey og Jacksons, þú getur bölvað þér upp á það. — En hvað þá um varaforset- ann? Það hlýtur að vera einhver annar sem repúblikanar gætu tefltfram? — Það eru ekki nema sex mánuðir til stefnu. Þú talar eins og hver annan bjálfi. Svei mér, þú ert engu betri en Dallas? Sex mánuðir. Það er ekki nægur tími til að afla nýjum frambjóðanda fylgi, svo að hann nái útnefningu. Það er um seinan, geturðu ekki skilið það? Forsetinn er með krabbamein og það er örstutt síð- an læknar hans uppgötvuðu það. Það er ekki timi til að finna ann- an frambjóðanda. Og við getum ekki leyft okkur að styðja mann á borð við Jackson. Ég er ekki hrif- in af Casey og þessari félags- hyggju hans, en ég á engra kosta völ. Og þú mátt treysta orðum mínum: að mér heilum og lifandi, skal Jackson aldrei fá færi á að bjóða sig fram. — Þú getur ekki drepið mann, frændi, — sama hvernig hann er, sagði hún. — Þú hlýtur að sjá að slíkt er með öllu óafsakanlegt. — Eitt mannslíf, sagði hann fullur fyrirlitningar. — Hvað er VELVAKAIMOI Velvakandi svarar í sfma 10-100 kl. 10.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags. 0 Enn um umferð í íbúðar- hverfum Kona, sem á heima við Laugateig, hringdi vegna skrifa um vinnuvélar og flutningabíla í ibúðarhverfum. Hún sagðist búast við, að þetta gilti um flest íbúðarhverfi í borginni, og vildi hún taka undir hvert orð, sem stóð um þetta í sunnudagsblað- inu. Hún sagðist vera þeirrar skoð- unar, að borgaryfirvöld ættu að taka málið til gaumgæfilegrar at- hugunar, því að núverandi ástand væri með öllu óviðunandi. 0 Fiskur undir steini Það, sem af er þessari viku, hafa orðið miklar umræður um sjónvarpskvikmyndina „Fiskur undir steini", sem sýnd var nýver- ið. Þar var tekin til meðferðar menningarneyzla Grindvíkinga, og var mat kvikmyndagerðar- mannanna Ólafs Hauks Símonar- sonar og Þorsteins Jónssonar, að Grindvikingar lifðu snauðu og heldur ómerkilegu menningarlífi. Þar lögðu menningarsérfræðing- ar þessir auðvitað sitt mat til grundvallar, og er að sjálfsögðu ekkert við þvíaðsegja. Þótt upp- lifun þeirra á menningarlegum tilburðum Grindvíkinga hljóti að vera framandi almenningi og sér- stæð um ýmislegt, hefur mynd- inni tekizt að ná tilgangi höfund- anna, sem sé að vekja menn til umhugsunar og umræðna. En það er ekki menningarlíf Grindvík- inga, sem hefur orðið mönnum umhugsunarefni, eins og þeir fé- lagar ætluðust til, heldur afstaða þeirra sjálfra, hrokinn, fyrirlitn- inginn og ókunnugleiki á andleg- um lifnaðarháttum almennings í þessu landi. 0 Leiðari Alþýðu- blaðsins Alþýðublaðið gerir þessa sjónvarpsmynd að umraéðuefni i leiðara sl.l. miðvikudag. Það væri eflaust hollt fyrir hina ungu menningarpostula að lesa þennan Ieiðara gaumgæfilega, því að þar koma fram heilbrigð viðhorf, sem ætla má að endurspegli hugsunar- hátt almennings, eins og eftirfar- andi tilvitnanir bera með sér. Við tökum okkur það bessaleyfi að birta hér orðréttar tilvitnanir í þennan leiðara, og vonum að Al- þýðublaðið misvirði það ekki við okkur: ..Alþýðublaðið ætlar ekki að setjast 1 dómarasæti um kvik- mynd þessa. Það vekur aðeins at- hygli, að myndin lýsir fremur við- horfum þeirra, sem hana gerðu, til mannlífsins I íslenzkum sjávar- þorpum en mannlífinu sjálfu. Og þessi viðhorf til sjómanna ' og verkafólks við sjávarsíðuna eru svo sem ekkert nýmæli. Þessar skoðanir eru næsta algengar meðal ákeðinna hópa mennta- manna úr reykvísku umhverfi, listamanna og annarra svo- nefndra menningarfrömuða, sem meta gildi mannllfsins eftir fjölda málverkasýninga." • „Félagt samhengi“ o.fl. Siðar segir, að I sjálfu sér sé ekkert athugavert við það, að sumir menn álíti, að andleg starf- semi hljóti að vera „steinrunnin hjá þeim, sem ekki „neyta menn- ingar“ (sic) eftir ákveðnum for- múlum, að fræðslumálum þjóðar- innar verði ekki til lykta ráðið nemameð þvf að skólarnir „verði aðlagaðir umhverfi og náttúru"! og nemendum verði kennt að sjá sjálfa sig I „félagslegu sam- hengi"! og þannig fram eftir göt- unum.“ Þetta orðalag þekkja menn orðið ofboð vel, svo oft er búið að þrástaglast á þeim og öðrum I sama stíl. En eru þessi orð ekki litið annað en yfirborðslegt og innantómt hjal? Þeir, sem iðnastir eru við þetta, eru eflaust velviljaðir innst inni, en tilburðir þeirra eru svo fálm- kenndir og óvlsindalegir sem framast er hægt að hugsa sér — og því verður gjáin á milli þeirra og almennings svo breið og djúp, sem raun ber vitni. Leiðarahöfundur Alþýðublaðs- ins segir ennfremur: „En hvaða skoðanir skyldi þá fólkið við sjávarsíðuna — fólk „frystihúsamenningarinnar" — hafa á því lífi og þeim lifsviðhorf- um, sem t.d. höfundar kvik- myndarinnar um menningu Grindavíkur ástunda? Það hefði t.d. ekki verið ónýtt, ef íbúar Grindavíkur hefðu lýst I kvik- mynd sínum sjónarmiðum á lífs- viðhorfum, llfsvenjum og menn- ingarlegu sjónarhorni kvik- myndagerðarmannanna og þeirra nóta. Og þótt ótrúlegt megi virð- ast hefðu sennilega báðir komist að áþekkri niðurstöðu — sem sé þeirri, að fiskur liggi undir steini. Þvl hvort sem menningarpostul- um þjóðarinnar líkar það betur eða verr, þá er það staðreynd, að fiskurinn og „frystihúsamenn- ingin“ er ekki síður undirstaða þeirra framlags en mannlifsins við sjávarsíðuna." 0 Samstaða með alþýðunni og velvild Leiðaranum lýkur svo með þessum orðum: „Margir af hinum svonefndu menningarfrömuðum eru manna róttækastir i orðum og eru sífellt talandi um velvild sína I garð alþýðunnar og samstöðu slna með henni. En innst inni bera þeir I brjós'ti dýpstu fyrirlitningu á öllu þvi lifi, sem alþýða manna lifir og „velvildin" kemur fram I því annars vegar að hæða alþýðu manna fyrir menningarsnautt lif- erni og hins vegar að bjóða sig fram sem matreiðslubókahöfunda fyrir „menningarneyslu" (sic) hennar. Hversu þörf slík starf- semi er fyrir fólkið i landinu skul- um við láta liggja á milli hluta. En almennir.gur á Islandi er þó á því „menningarstigi", að hann greiðir kostnaðinn við hana.“ Við þetta er litlu að bæta, nema þá helzt því, að einkum virðist velvild menningarpostulanna 1 garð alþýðunnar koma fram I þvi, að þeir vilja hugsa fyrir hana og mata hana á þvl, sem þeir telja henni hollt að meðtaka. Þessi af- staða lýsir svo mikilli vantrú á andlegu atgervi hins almenna borgara annars vegar og ofmati viðkomandi menningarvita á eigin verðleikum hins vegar, að með ólíkindum er. Þess vegna er ekki nema von, að menn spyrji nú sjálfa sig og aðra að þvi hvort vert sé að gera þessum viðhorfum svo hátt undir höfði, sem gert hefur verið. Því má svo bæta við, að sjón- varpið mun hafa fest kaup á þremur myndum þeirra Ólafs Hauks Símonarsonar og Þorsteins Jónssonar til viðbótar, og verða þær sýndar á næstunni. Að sjálf- sögðu fjalla þær um „félagsleg vandamál“, en það er þó bQt i máli, að sjónvarpið lætur þá fé- laga ekki eina um að mata okkur á skoðunum, heldur hafa farið fram umræður á eftir þáttunum. Slíkar umræður virðast vera óum- flýjanlegar og æskiiegar þegar mönnum og málefnum eru gerð skil eins og hér hefur verið gert. 03^ S\GeA V/CJGA £ ý/LVtRAN 37 SKák eftir JÓN Þ. ÞÓR Sextánda einvígisskák Karpovs og Kortsnojs rann í sama farveg sem fjöl- margar fyrri einvígisskák- ir; tefld var frönsk vörn og stóð baráttan í miðtaflinu fyrst og fremst um staka peðið á d5. t 36. leik urðu Kortsnoj á mistök, sem kostuðu peð, en Karpov fórnaði skömmu síðar tveim mönnum fyrir hrók og peð. Þá hafði hann tvö frípeð, en það kom fyrir ekki, Kortsnoj tefldi síðari hluta skákarinnar af öryggi og átti ekki í vand- ræðum með að halda jöfnu. Hvftt: A. Karpov Svart: V. Kortsnoj Frönsk vörn 1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rd2 — c5, 4. exd5 — exd5, 5. Rgf3 — Rc6, 6. Bb5 — Bd6, 7. 0—0 — cxd4, 8. Rb3 — Rge7, 9. Rbxd4 — 0—0, 10. c3 — Bg4, 11. Da4 — Dd7, 12. Be3 — a6, 13. Be3 — Rxd4, 14. Dxd4 — Rc6, 15. Dd2 — Hfe8, 16. Hadl — Had8, 17. Bb6 — Bc7, 18. Bxc7 — Dxc7, 19. Hfel — h6, 20. h3 — Bf5, 21. Bfl — Hxel, 22. Dxel — Db5, 23. Hd2 — Be4, 24. De2 — Ra5, 25. Ddl — Df6, 26. Rh2 — Db6, 27. Rf3 — Rc6, 28. Rd4 — Re5, 29. f3 — Bg6, 30. Del — Rd7, 31. Df2 — Da5, 32. a3 — Dc7, 33. Rb3 — Bf5, 34. Rd4 — Bg6, 35. Rc2 — Rf6, 36. Re3 — De5? 37. c4 — b5, 38. cxd5 — h5, 39. a4 — He8, 40. axb5 — axb5, 41. Bxb5 — Dxe3, 42. Bxe8 — Dxe8, 43. d6 — Bf5, 44. Hdl — Db5, 45. Dd4 — Rd7, 46. Hel — Be6, 47. Kh2 — Dg5, 48. h4 — Dd8, 49. b4 — Rf6, 50. De5 — Re8, 51. He4 — Dxd6, 52. Dxd6 — Rxd6, 53. Hd4 — Rb7, 54. g4 — Kh7, 55. Kg3 — Kg6, 56. Kf4 — hxg4, 57. hxg4 — f6, 58. Hdl — Kh6, 59. Hd4 — Kg6, 60. h5 — Kh6, 61. b5 — g6, 62. hxg6 — Kxg6, 63. b6 — Kf7, 64. Hd2 — Ke7, 65. Hc2 — Bd5, 66. Hc7 — Ke6, 67. Hh7 — Rd6, jafntefli. Bókaverzlnn Ólaís Magnússonar Tálknafirði Tálknfirðingar Nágrannar Hef ávallt á boðstólum eftirtaldar vörur: Bækur Hljómplötur Leikföng Sjónauka Ljósmyndavörur Ritföng Garn Gjafavörur alls konar. Opið á laugardögum. Lítið inn. Bókaverzlun Ólafs Mapússonar Tálknafirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.