Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1974
39
| íhliHITAHiíTÍII! MORGBMBLABSIiyS
ENSKAKNATT-
SPYRNAN
ÚRSLIT leikja í ensku knattspyrn-
unni í fyrrakvöld urSu sem hér
segir:
2. deild:
W.B.A. — Bristol Rovers 2—2
3. deild:
Blackburn — Crystal Palace 1 — 1
Colchester—Hereford 1—2
Gillingham — Preston 2—1
Watford — Charlton 0—2
Undanúrslit I Texakó—bikar-
keppninni:
Birmingham—Newcastle 1—4
Þá fór fram einn leikur í skozku
1. deildor keppninni.
Partick Thistle — Celtic 1—2
Liverpool
kærir
ENSKU bikarmeistararnir, Liver-
pool, sendu i gær inn kæru til
Evrópuknattspyrnusambandsins,
þar sem liðið kærir leik sinn við
ungverska liðið Ferencvaros, sem
fram fór i Búdapest á þriSjudags-
kvöldið. Leik þessum lyktaSi meS
markalausu jafntefli og átti
Ferencvaros þvi að komast áfram i
keppninni.
Forsenda kærunnar er sú, að
einn áhangenda ungverska liðsins
kastaði flösku I einn af leikmönn-
um Liverpool. Tommy Smith.
Fékk Smith flöskuna i höfuSið og
hálf rotaðist viS.
Peter Robinson, talsmaður
Liverpool-liðsins, sagði, að liS sitt
hefSi fariS fram á, að leikurinn
yrSi dæmdur tapaSur fyrir Ung-
verjana. — Við óskuSum einnig
eftir þvi, aS UEFA léti fara fram
rannsókn i málinu, en sú kvik-
mynd, sem tekin var af leiknum,
sýnir ekki þetta atvik, enda var
hún tekin af Ungverjum.
Chorzow
PÓLSKA liðið Ruch Chorzow sigr-
aði tyrkneska liðið Fenerbahce
Istanbul i seinni leik liðanna I
Evrópubikarkeppni meistaraliða,
er leikið var I Istanbul i fyrrakvöld,
með tveimur mörkum gegn engu.
Mörk Chorzow skoruðu Kopicera
og Beniger. Fyrri leik liðanna lauk
einnig með sigri Pólverjanna, þé
2—1, og halda þeir þvi áfram i
keppninni.
Naples
I FYRRAKVÖLD léku FC Porto frá
Portúgal og SC Naples frá (taliu
seinni leik sinn í UEFAbikarkeppn-
inni i knattspyrnu i Oporto i
Portúgal. Lauk leiknum með sigri
Naples 1:0. eftir að staðan hafði
verið 0:0 i hálfleik. Clerici skoraSi
mark (talanna. 45.000 áhorfendur
sáu leikinn.
Naples vann einnig fyrri leikinn,
1:0, og heldur þvi áfram i keppn-
inni.
Benfica
BENFICA frá Portúgal tókst aS
komast i þriSju umferS I Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa meS þvi aS
gera jafntefli við a-þýzka liSiS Carl
Zeiss Jena í Portúgal I fyrrakvöld.
Ekkert mark var skorað f leiknum.
Fyrri leik liðanna, sem fram fór á
heimavelli Carl Zeiss Jena, lauk
einnig meS jafntefli, 1:1, og var
það mark á útivelli, sem fleytti
Benfica áfram.
Áhorfendur að leiknum I
Portúgal í fyrrakvöld voru um
60.000.
Bayern
Miinchen
SÁ LEIKUR i Evrópubikarkeppn-
inni f knattspyrnu, sem mesta
athygli vakti í fyrrakvöld, var
viðureign a-þýzku og v-þýzku
meistaranna: FC Magdeburg og
Bayern Múnchen. Fyrri leik lið-
anna, sem fram fór á heimavelli
Bayern, hafSi lyktað meS sigri
Bayern Múnchen. 3:2, eftir sögu-
legan leik. Áttu þvi margir von á
þvi, að A-Þjóðverjarnir myndu
snúa blaðinu við i Magdeburg og
slá hiS fræga v-þýzka liS út úr
keppninni.
Önnur varð raunin á. Bayern
Múnchen sýndi frábæran leik i
Magdeburg I fyrrakvöld og sigraði
I leiknum með tveimur mörkum
gegn einu, eftir að hafa verið yfir,
1:0, f hálfleik. ÞaS var Sparwass-
er, sem skoraði mark Magdeburg,
en hinn frægi markakóngur Gerd
Múller skoraði bæSi mörk Bayern
Múnchen, sem kemst þar meS
áfram i keppninni. Áhorfendur aS >
leiknum voru 35.000, en það er
óvenjulega há áhorfendatala i A-
Þýzkalandi.
St. Etienne
FRANSKA liSiS St. Etienne bók-
staflega gerði grin að júgó-
slavneska liSinu Hajduk Split i
seinni leik liðanna i Evrópubikar-
keppni meistaraliSa, sem fram fór
í Saint Etienne i Frakklandi i fyrra-
kvöld. Sýndi franska liSiS mjög
góSan leik, hafSi náð 1:0 forystu i
hálfleik og eftir venjulegan leik-
tima var staðan 4:1, þvi i vil. Þar
sem sömu úrslit höfSu orSið f leik
liSanna I Split, Hajduk I vil, þurfti
að framlengja leikinn og skoraði
St. Etienne þá eitt mark og
tryggSi sér áframhaldandi
keppnisrétt. Komu úrslit þessi
mjög á óvart, þar sem taliS var, að
Hajduk Split hefSi sigurmöguleika
i Evrópukeppninni aS þessu sinni.
Mörk St. Etienne i fyrrakvöld
skoruSu: Larque, Batheny, Bereta
og Trianfilos (tvö), en Jovanik
skoraði mark Hajduk. Áhorfendur
á leiknum voru 26.381.
Derby
ENSKA liSiS Derby County komst
áfram f þriSju umferð UEFA-bikar
keppninnar í knattspyrnu eftir
vitaspyrnukeppni I seinni leik liSs-
ins viS Atletico Madrid frá Spáni.
LeikiS var á Spáni í fyrrakvöld og
var staSan 2-2 eftir venjulegan
leiktima. Þá var framlengt, en
ekkert mark var skorað í fram-
lengingunni. VarS þvi að fara fram
vitaspyrnukeppni og sigraSi Derby
i henni.
I leiknum skoruSu þeir Rioch og
Davies fyrir Derby en Luis gerSi
bæSi mörk Atletico. Áhorfendur
aS leiknum voru um 50.000.
Jafntefli
f FYRRAKVÖLD fór fram i Næst-
ved f Danmörku unglingalands-
leikur á knattspymu milli Dan-
merkur og Skotlands. Leikur þessi
var liSur I UEFA-bikarkeppni
unglingalandsliða. Hvorugt liSiS
skoraSi mark f leiknum.
Englendingar
verða að
leika á Kýpur
TALSMENN Evrópusambands
knattspyrnumanna skýrðu frá þvi i
gærkvöldi aS Englendingar yrSu
að leika leik sinn i Evrópubikar-
keppni landsliSa á Kýpur, þrátt
fyrir þaS ástand sem þar hefur
verið rikjandi aS undanförnu.
HöfSu Englendingar sótt um aS
leikurinn yrSi færSur til og leikinn
I einhverju öSru landi.
Englendingar eiga aS leika á
Kýpur 5. febrúar og síðan við
Kýpurbúa á Wembley 1 6. april.
A8 sögn talsmanns Evrópusam-
bandsins kemur þó til greina að
færa leikinn, verði ástandiS á
Kýpur mjög ótryggt þegar að hon-
um kemur.
Kýpur hefur dregiS sig út úr
Evrópubikarkeppninni i knatt-
spyrnu i ár, en knattspyrnufor-
ystan á eynni hefur haldið fast við
aS taka þátt i landsliSakeppninni.
Jóhannes Eðvaldsson:
Tímaskrifum S0S svarað
ÉG HEF ekki lagt það í vana
minn að svara skrifum íþrótta-
fréttamanna, þótt mér hafi ekki
ætíö fallið þau í geð. En ég get
ekki orða bundist vegna greinar í
dagblaðinu Tímanum í gær, sem
er skrifuð af manni, sem kallar
sig iþróttafréttaritara, og skrifar
undir stöfunum SOS.
Þessi maður hefur haft það að
aðalstarfi að rægja og níða niður
það, sem er að gerast í okkar litla
íþróttaheimi, og þá ekki sist störf
Hafsteins Guðmundssonar og
Alberts Guðmundssonar á sinum
tima, eins og frægt var meðal
þeirra, sem lögðu sig niður við að
lesa þann róg.
Nú snýr hann allt i einu blaðinu
við og hermir upp á mig, að ég sé
að gera lítið úr störfum Hafsteins
og Alberts, og vitnar þar í viðtal,
sem við mig var haft i Morgun-
blaðinu s.l. þriðjudag. 1 þessari
grein nefni ég þá félaga hvergi á
nafn enda hafa fleiri haft afskipti
af landsliðinu en þeir tveir og
ástæðulaust að taka þá útúr og
gera þá að einhverjum píslarvott-
um á minn kostnað.
Ég man i fljótu bragði eftir
þessum mönnum sem þjálfurum
Unglinga-
sundmót
Unglingasundmót Ármanns
verður haldið í Sundhöll Reykja-
vfkur sunnudaginn 10. nóvember
1974 og hefst kl. 15.00. Þátttöku-
tilkynningar sendist Guðmundi
Gfslasyni, Reynimel 80, eða Sund-
höil Reykjavfkur fyrir föstudags-
kvöld 8. nóvember n.k., ásamt
þátttökugjaldi, kr. 50,00 fyrir
hverja skráningu:
Keppnisgreinar verða eftir-
taldar:
100 metra flugsund drengja,
100 metra skriðsund stúlkna, 50
metra skriðsund telpna, 100
metra bringusund sveina, 50
metra flugsund telpna, 100 metra
skriðsund drengja, 200 metra
bringusund stúlkna, 50 metra
baksund telpna, 50 metra skrið-
sund sveina, 100 metra baksund
sveina, 4x40 metra fjórsund
stúlkna, 4x50 metra skriðsund
sveina.
SVO kann að fara, að norska liðið
Refstad, sem keppa átta f annarri
umferð Evrópubikarkeppninnar f
handknattleik við tékkneska liðið
Skoda Pilsen, verði dæmt úr leik.
Astæðan er sú, að Tékkar hafa
neitað að gefa norskum blaða-
mönnum hcimild til þess að koma
til Tékkóslóvakfu, og forráða-
menn Refstad neita að senda liðið
þangað, fái blaðamcnnirnir ekki
að fara með þvf.
— Við stöndum algjörlega með
blaðamönnunum í máli þessu, og
neitum að fara til Tékkóslóvakíu
ef þeir fá ekki að koma með okk-
ur, sagði Reidar Holm, forráða-
maður Refstad-liðsins, i viðtali við
norsku fréttastofuna NTB í gær.
— Þessi ákvörðun Tékkanna
kemur okkur mjög á óvart. Við
tilkynntum, að blaðamenn yrðu í
för með okkur, og báðum um
þjónustu við þá, en siðan frétta
þeir, nokkrum dögum fyrir leik-
inn, að þeir fái ekki vegabréfs-
áritun.
■
landsliðsins á meðan Hafsteinn
og Albert voru i stjórn: Erni
Steinsen, Steini Guðmundssyni,
Eggert Jóhannessyni, Rikharði
Jónssyni, Duncan McDowell og
Henning Enoksen. Ég efa ekki að
allir þessir menn hafa gert sitt
bezta eins og þeir Albert og Haf-
steinn. En min persónulega skoð-
un er, að i ár hafi skipulagið
aldrei verið eins gott.
Er ég ekki einn um þá skoðun.
Allir félagar minir í landsliðinu
hafa sagt það sama. SOS tók sjálf
ur viðtal við Guðgeir Leifsson eft-
ir landsleikinn við Austur-Þýska
land, þar sem hann segir, að þetta
sé bezti landsleikur, sem hann
hafi leikið um dagana og leikað-
feróin heppnast mjög vel. Hann
ætti að vita það, enda leikið um 20
landsleiki á undanförnum ár-
um!!!
SOS fer út á þá hálu braut að
fara að tala um taktik, sem er
nokkuð, sem ég þori að ábyrgjast
að hann veit ekkert hvað er nema
að nafninu til, enda lítil önnur
afskipti haft af knattspyrnu und-
anfarin ár eri að níða hana niður
með dæmalausum skrifum um
Ieikmenn, þjálfara og forustu-
menn íþróttarinnar.
Hann gefur það í skyn, að ég
hafi sagt, að Valsliðið leiki ekki
taktist heldur eftir því hvað
hverjum einum dettur í hug.
Þetta er hreinn uppspuni frá rót-
um og er aðeins i hugarheimi
þessa manns, sem kallar sig blaða-
mann. Þetta er hvergi að finna i
viðtalinu við mig og efast ég þvi
hreinlega um, að hann hafi lesið
greinina almennilega. Nema ein-
hver hafi lesið hana fyrir hánn og
Reidar Holm sagðist ennfremur
vona, að úr máli þessu greiddist,
þó að á síðustu stundu væri, og
vitnaði til svipaðs atviks, er gerð-
ist fyrir nokkrum árum. Þá
neituðu tékknesk yfirvöld sænsk-
um blaðamönnum um vegabréfs-
áritun, en þeir ætluðu með
sænsku íshokki-liði til Tékkó-
slóvakíu. Sviarnir neituðu þá að
fara og Tékkarnir gáfu sig að
lokum.
Reidar Holm sagði einnig, að
mál þetta hefði verið borið undir
norsku íþróttasamtökin og hefðu
þau tekið sömu afstöðu og
Refstad-félagið í málinu og
myndu fullkomlega standa með
blaðamönnunum.
Svo kann hins vegar að fara, ef
Tékkarnir halda fast við þá
ákvörðun sina að neita blaða-
mönnunum um vegabréfsáritun
og norska liðið fer ekki, að Ref-
stad verði dæmt frá keppninni.
sagt honum síðan hvað hann ættí
að skrifa.
Það yrði of langt mál að fara að
útskýra taktik og ýmsar taktiskar
hliðar islensku liðanna og lands-
liðsins í sumar hér í þessari grein.
En ég er tilbúinn hvar og hvenær
sem er að ræða opinberlega við
þennan „sérfræðing" um þessi
mál ef hann ÞORIR.
Hann talar um, að undirbúning-
ur landsliðsins fyrir leikinn i
Danmörku og Austur-Þýskalandi
hafi verið hlægilegur, og árangur-
inn þjálfurum liðanna, sem við
erum í, að þakka. Það vita allir og
hefði ekki þurft að taka það fram.
En það verður heldur ekki gengið
fram hjá þvi, að Tony Knapp, sem
var einn þessara þjálfara, sá um
að sameina okkur í eitt gott lið og
á hann hrós skilið fyrir það.
Allir i liðinu svo og þeir, sem
fylgjast með, gáfu honum mikið
hrós, og hef ég engan mann fyrir-
hitt nema SOS sem efast um þátt
hans í ágætum árangri landsliðs-
ins í sumar.
SOS hefur aldrei litið Tony
Knapp réttu auga síðan hann
gerði sér ferð á skrifstofu Timans
til að segja honum sitt álit á skrif-
um hans i sumar. Það hefðu fleiri
mátt gera enda ærin ástæða til.
Hér eftir vona ég, að ég verði
laus við öll skrif, sem eingöngu
byggjast á því að rakka niður
menn og málefni, eins og SOS
hefur að reglu, og er ég viss um,
að fleiri íslenskir íþrótamenn eru
sama sinnis.
Virðingarfyllst
Jóhannes Eðvaldsson.
4 fara á IVM
Norðurlandameistaramótið í
badminton fer fram I Osló dag-
ana 16. og 17. nóvember n.k.
Ákveðið hefur verið að senda
fjóra Islendinga til mótsins,
þá Harald Kornelfusson og
Steinar Pedersen úr TBR og
Óskar Guðmundsson og Frið-
leif Stefánsson úr KR. Munu
þeir keppa bæði f einliðaleik
og tvfliðaleik. Fararstjóri bad-
mintonmannanna I ferðinni
verður Bragi Jakobsson. og
mun hann, ásamt Viðari
Guðjónssyni, sitja þing
Norðurlandasambands bad-
mintonmanna sem haldið
verður I Osló á sama tfma og
Norðurlandamótið.
Boxarar
barðir
Áhorfendur að hnefaleika-
keppni í Santander á Spáni þraut
þolinmæðin er þeir voru að horfa
á áhugamenn i iéttvigt keppa.
Meðan kapparnir voru að berjast
var fyrst baulað hraustlega á þá,
og sfðan ruddust áhorfendur upp
í hringinn og lumbruðu hraust-
lega á þeim. Varð að kálla til
lögreglu til þess að skakka leik-
inn.
Ársþing BSÍ
Arsþing Badmintonsambands Is-
lands verður haldið að Hótel Esju
sunnudaginn 10. nóvember og
hefstkl. lOf.h.
Blaðamönnum neitað
um vegabréfsáritun
til Tékkóslóvakíu