Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 Samdráttur hjá álmarkaðnum: Isal hefur orðið að minnka framleiðsluna um nær 15% Oseldar birgðir hjá verk- smiðjunni fyrir 2000 millj. EFTIRSPURN eftir áli á heims- markaði hefur minnkað verulega frá í fyrra. Gerðu samdráttarein- kennin fyrst vart við sig í októher s.l. og nú er svo komið, að ástand- ið líkist mjög því ástandi sem rikti á markaðnum á árunum 1970—’72. Þá varð einnig veruleg- ur samdráttur á markaðnum og offramboð, birgðir hlóðust upp og verksmiðjur drógu úr afköstum. Talið er, að það ástand sem nú ríkir, batni ekki fyrr en í fyrsta lagi á árinu 1976. Samdrátturinn hefur þegar haft áhrif á rekstur álversins í Straumsvík. Eru helztu áhrifin þessi: % 40 ker af 280 kerjum verk- smiðjunnar hafa verið tekin úr sambandi og framleiðslan þannig minnkuð um tæp 15%. % Ársframleiðslan 1975 var áætl- uð 76 þúsund tonn, en verður ekki nema 63 þúsund tonn. Nem- ur samdráttur í framleiðslunni 13 þúsund tonnum. 0 Af framleiðslu þessa árs, sem orðin er 14,600 tonn, er aðeins búið að flytja út helminginn. Óseldar birgðir hjá verksmiðj- unni nema nú 17 þúsund tonnum, að verðmæti um 2000 milijónir króna. 0 Vegna þessa bága ástands er ljóst, að verksmiðjan getur ekki greitt nema 150 milljónir 1 fram- leiðslugjald á árinu 1975, en reiknað var með því að vcrksmiðj- an myndi greiða um 450 milljón- ir. Framleiðslugjaldið skiptist milli Byggðasjóðs, Hafnarfjarðar- bæjar og Iðniánasjóðs, og verða þessir aðilar því af miklum tekj- um. Morgunblaðið átti í gær samtal við Ragnar Halldórsson forstjóra ísal um þessi mál og fékk blaðið ofangreindar upplýsingar hjá honum. í upphafi samtalsins greindi Ragnar frá því, að sam- dráttareinkennanna hefði fyrst orðið vart i október s.l. og gerðu einkennin nokkuð skyndilega vart við sig og komu nokkuð á óvart, en árið 1974 hafði verið áliðnaðinum hagstætt og reyndar örfá ár þar á undan. Þessi þróun hefur síðan haldið áfram og er nú mikið offramboð á álmarkaðnum í hinum vestræna heimi. Álfram- leiðendur hafa brugðizt við þessu á sama hátt og árin 1970—’72 þeg- ar sömu einkenni gerðu vart við sig og þá jafnvel enn harðar en orðið er nú, ennþá a.m.k. Þeir hafa dregið úr afköstum verk- Framhald á bls. 45 Slæmt ástand i síma- málum í Breiðholti II VART hefur orðið töluverðrar óánægju meðal íbúa nýjustu hverfa Breiðholts með þjónustu Bæjarsfmans og þá einkum hvað snertir lagningu síma f nýbygg- ingar á þessum slóðum. I samtali við Morgunblaðið í gær staðfesti Flugliðar og farmenn: Óánægja en aðgerðir ekki afráðnar ennþá Hafsteinn Þorsteinsson símstjóri í Reykjavík, að símanum hefði borizt til eyrna þessar óánægju- raddir íbúa í Seljahverfi og Skógahverfi — nýjustu hverfun- um í Breiðholti. Ástæðurnar fyrir seinagangi símans við lagningu sima í ný hús í þessum hverfum kvað Hafsteinn m.a. vera þá, að þessi hverfi hefðu byggzt hraðar upp en áætlað hefði verið en á sama tima væri bæjar- símanum sniðinn ákveðinn stakk- ur á fjárlögum og stofnunin gæti Framhald á bls. 47.. að er betra að gefa vel svo nóg verði af páskaeggjum Ljósmynd Friðþjófur 1 TILEFNI nýrra reglna um áhafnagjaldeyri til handa fluglið- um og farmönnum, sem skýrt var frá f Morgunblaðinu sl. föstudag, leitaði Morgunblaðið álits for- ustumanna viðkomandi félaga á fyrrgreindri ákvörðun og hverra viðbragða væri að vænta af þeirra hálfu. Að sögn Ingólfs Stefánssonar, framkvæmdastjóra Farmanna- og fiskimannasambandsins, hefur enn ekki verið fjallað um þetta mál innan stjórnar félagsins og þar af leiðandi ekki tekin afstaða til þess. Kvaðst hann því ekki geta tjáð sig um þetta atriði að svo stöddu. Jóhann Sigfússon, formaður félags atvinnuflugmanna, sagði, að eðlilega væri mikil óánægja innan félagsins með þessa ákvörð- un og næstu viðbrögð félagsins yrði að óska eftir því við viðkom- andi yfirvöld að fá fund um mál- ið. Ekkert yrði ákveðið um frek- ari aðgerðir fyrr en að slfkum fundi loknum. Erla Hatlemark, formaður fé- lags flugfreyja, kvað stjórn félagsins þegar hafa sent viðkom- andi yfirvöldum mótmælabréf vegna þessarar ákvörðunar en hins vegar hefði enn ekki tekizt að ná saman fundi í félaginu til að fjalla um aðgerðir. Erla kvað flug- freyjur óánægðar með hversu þessi ákvörðun mismunaði þeim sérstaklega. Sama 15% reglan væri látin gilda um flugfreyjur og flugmenn, þrátt fyrir að flug- menn hefðu mun hærri laun en flugfreyjur, en farmenn sem hefðu einna helzt sambærileg laun á við flugfreyjur héldu áfram 30% gjaldeyrishlutfalli. Flugfreyjur eiga nú í samninga- viðræðum við flugfélögin um kaup -og kjör, og þar sem flug- freyjur litu á gjaldeyrisúttektina sem hluta af kjaramálum sínum, væri alls ekki óhugsandi að þessi gjaldrýrnun og þar af leiðandi kjaraskerðing kæmi til með að fléttast inn í þær viðræður. Ólafur Jóhannesson um verzlunina: Þeir, sem gera góð inn- kaup, eiga að njóta þess 1 RÆÐU þeirri, sem Olafur Jó- hannesson, viðskiptaráðherra, flutti f útvarpsumræðum i fyrra- kvöld, gerði hann að umtalsvefni málefni verzlunarinnar og sagði, að finna þyrfti leiðir til þess að láta þá sem gera góð innkaup njóta þess. Viðskiptaráðherra sagði, að framleiðsluatvinnu- vegirnir væru undirstaða afkomu þjóðarbúsins en margs konar þjónustustarfsemi væri einnig mikilvæg og þá ekki hvað sízt verzlunin. Ölafur Jóhannesson sagði að verzlunin þyrfti að búa við eðlileg starfsskilyrði, en jafnframt þyrfti að veita henni nauðsynlegt að- hald, bæði frá neytendum og af opinberri hálfu, því að um hend- ur þeirra er hana stunda færi mikið fjármagn. I samræmi við málefnasamning ríkisstjórnarinn- ar verður undirbúin löggjöf um viðskiptahætti, verðmyndun og verðgæzlu, sagði Ölafur Jó- hannesson. Verður gerð tilraun til loðnuveiða að sumarlagi? RÆTT hefur verið um möguleika á að veiða loðnu að sumarlagi. Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, sagði, að undanfarín ár hefði oft verið rætt um þennan möguleika, en til þess að hann yrði fram- kvæmanlegur þyrftu að fara fram rannsóknir og tilraunaveiðar. Það væri t.d. alls ekki ljóst, hvaða veiðarfæri hentuðu bezt, herpinót eða flotvarpa. Ekki er ljóst, hvort hafrannsóknarstofnunin muni í sumar láta slfkar tilraunaveiðar fara fram, en Jakob kvað það til umræðu. Jakob Jakobsson sagði, að lítið /æri vitað um tækifæri til slíkra veiða, en loðnustofninn væri í hafinu milli Islands, Grænlands og Jan Mayen á sumrin. Fannst oft loðna á síldarárunum. Fyrir nokkrum árum var gerð tilraun til veiða að sumarlagi og fiskaðist þá eitthvert magn, en ekki mikið. Var það 1969, en síðan hefur ekki verið gerð tilraun. Jakob sagðist gera ráð fyrir að skipin þyrftu að sækja loðnuna út undir ísröndina, en hann kvað fitu hennar vera mjög breytilega frá ári til árs. Þetta kvað hann þurfa að kanna. Loðnuveíðibann er í gildi í sum- ar til 1. ágúst, en eftir þann tíma er talið að hún sé orðin mjög feit. Getur því lýsisverð þá haft tals- verð áhrif á það, hvort veiðarnar borga sig eða ekki. Er óskaplega erfitt að segja um veiðilíkur. Fyrir þremur árum sendu Norð- menn tilraunaskip, sem var að veiðum i 3 vikur og fékk ekki nema fáeinar tunnur af loðnu út af Vestfjörðum og víðar. Er alls ekki vist, hvaða veiðarfæri henti bezt. Jakob sagði að alls ekki væri vist að herpinót hentaði bezt, flot- varpa gæti alveg eins komið til greina, ef loðnan stæði djúpt. Jakob sagði að á síldarárunum hefði það komið fyrir að menn hefðu kastað á loðnu í misgripum fyrir síld. Skyldusparnað- ur í framkvæmd I FRUMVARPI rfkisstjórnarinnar um ráðstafanir í efnahags- og fjármálum er lagt til, að skattgreiðendur, sem ekki hafa náð 67 ára aldri, greiði 5% skyldusparnað af tekjum yfir ákveðnu marki. Skyldusparnaðurinn greiðist jafnhliða þinggjöldum til ríkissjóðs og er endurgreiddur í verðtryggðum spariskfrteinum, sem eru innleysanleg frá fyrsta febrúar 1978. Við útreikning skyldusparnaðar skv. frumvarpinu er farið eftir þessum reglum: a. Einstaklingar: 5% af skattgjaldstekjum skattársins 1974 að frádregnum 1.000.000 kr., auk 75.000 kr. fyrir hvert barn sem er á framfæri þeirra. b. Samsköttuð hjón: 5% af skattgjaldstekjum skattársins 1974 að frádregnum 1.250.000 kr., auk 75.000 kr. fyrir hvert barn sem er á framfæri þeirra. c. Hjón sem telja fram hvort f sínu lagi: 5% af skattgjaldstekjum hvors um sig, að frádregnum 750.000 kr. hjá hvoru, auk 37.750 kr. hjá hvoru fyrir hvert barn sém er á framfæri þeirra. Nemi munur útsvarsskyldra tekna og skattgjaldstekna hærri upphæð en 200.000 kr. hjá einstaklingi og hvoru hjóna sem telja fram hvort í sfnu iagi en 300.000 kr. hjá samsköttuðum hjónum skal hækka skattgjaldstekjur samkvæmt staflfnum a., b. og c. um þá upphæð sem munurinn er umfram þessar upphæðir, eftir þvf sem við á, og reiknast skyldusparnaður þá miðað við þessar upphækkuðu skattgjaldstekjur, sbr. stafliði a., b. og c. Sérstakar skorður eru reistar við því hver frádráttur vegna afskriftarreglna getur orðið mikill. Lagt er til að skyldusparnaður sé ekki greiddur af lægri tekjum en hér segir, og er þá annars vegar miðað við nettótekjur en hins vegar áætlaðar brúttótekjur á viðkomandi tekjubili miðað við meðalfrádrátt til skatts: Nettótekjur Brúttótekjur Einhleypingur, barnlaus .......... 1.000.000 1.150.000 Barnlaus hjón .................... 1.250.000 1.550.000 Hjón með 2 börn .................. 1.400.000 1.800.000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.