Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 47 Hvassafellið: Norðanátt hamlaði olíudælingu VIÐ höfum samband við Hvassa- fellið um hádegisbil í gær og röbb- uðum við Einar Kristinsson I. sýri- mann. Hann kvað þá ekki hafa getað unnið síðan á föstudags- kvöld við frekari dælingu úr svart- olíugeymum skipsins þar sem norðanátt og ylgja í sjóinn væri við strandstaðinn. Stapafellið fór þess vegna til Akureyrar að losa þau 45 tonn sem búið var að losa af þeim 130 tonnum sem voru um borð í Hvassafellinu. Stapafellið fór með olíuprammann með sér í togi og kvað Einar skipin væntanleg aftur seinnipart laugardags, en þá var áformað að halda áfram björgun olíunnar, því veðrið var að ganga niður. Einar kvað alla um borð hafa það ágætt, enda aðbúnaður ágæt- ur. Medvedev varaður við Moskvu,22. marz. NTB. SOVÉZKI sagnfræðingurinn Roy Medvedev var í gær kallaður fyrir rikissaksóknarann í Moskvu og beðinn þar um að hætta víð út- gáfu á tímariti, þar sem fram kemur hugmyndafræðileg gagn- rýni á stjórnmálakerfið í Sovét- ríkjunum. Einnig var hann beð- inn um að rifta samningi við bókaforlag á Vesturlöndum, um útgáfu bókar, þar sem hann styð- ur þá kenningu að Nóbelsverð- iaunahafinn Mikhail Sjolokoov hafi ekki skrifað bókina „Lygn streymir Don“. Að sögn vina Medvedevs neitaði hann að verða við kröfum saksóknarans. Nafn fermingar- barns féll niður Af lista í blaðinu yfir ferm- ingarbörn séra Jóhanns Hlíðar, sem fermast í Neskirkju 1 dag klukkan 10,30 féll niður nafn einnar fermingarstúlkunnar. Hún heitir Soffia Guðmundsdóttir, Barðaströnd 4, Seltjarnarnesi. Árvaka Selfoss I DAG hefst Árvaka Selfoss, en vakan hefur verið haldin árlega að undanförnu. Að þessu sinni hefst Arvakan með opnun listmuna- og mál- verkasýningar í safnahúsinu á Selfossi kl. 16. Hér er um að ræða samsýningu nokkurra listamanna úr héraðinu og verður hún opin daglega meðan Árvakan stendur. Á miðvikudaginn verður kvöld- vaka 1 Selfossbíói. Þar verður ýmislegt til skemmtunar, svo sem kórsöngur, fimleikasýning, spurn- ingakeppni og almennur dans. Á skfrdag verða tónleikar í Sel- fosskirkju. Þar syngur unglinga- kór frá Gautaborg. Barnaskemmtun verður í Sel- fossbíói laugardaginn fyrir páska, og um kvöldið verður „kvöldtóna- flóð“ á sama stað. Að þeirri skemmtun lokinni eða kl. 23 verður svo páskavaka í Selfoss- kirkju. Á páskadagsmorgun er messa i Selfosskirkju, en síðdegis fer fram víðavangshlaup og bæja- keppni i sundi, þar sem keppa lið Selfoss og Akraness. Siðasti dagur Árvöku er annar páskadagur. Þá verður knatt- spyrnukeppni á íþróttavellinum og lyftingamót í Selfossbíói, en Arvökunni lýkur með unglinga- dansleik í Selfossbiói um kvöldið. Mynd þessi er tekin um borð f Hvassafelli. Á henni sést hinn náttúrulegi brimbrjótur, I fjarska sést til lands. Meinleg prentvilla MEINLEG prentvilla slæddist inn f viðtal við Björn Jónsson, forseta ASl í blaðinu í gær. Undir lok viðtalsins sagði Björn, er hann ræddi um skattivilnanir: „... .Við hefðum talið þetta skila sér betur, ef þessu hefði öllu verið veitt i einn farveg og skattaívilnanir væru allar í beinu sköttunum og skattafslætti. Skattaafslátturinn, sem greiddur er út, hefði mátt hækka, og hefði þetta nýtzt betur með þvi fyrir umbjóðendur ASÍ.“ I stað orðsins hækka prentaðist orðið lækka, sem að sjálfsögðu er rangt. Mbl. biðst afsökunar á þessum mistökum. Ók á — ölvaður og réttindalaus BRONCOJEPPI ók á leigubifreið á Miklubrautinni laust eftir klukkan 13 í gær. Ökumaður jeppans stakk af á bfl sfnum en náðist stuttu sfðar. Reyndist þar vera á ferð 16 ára piltur, réttinda- laus eins og aldurinn ber með sér og auk þess ölvaður. Þá lék einnig grunur á að pilturinn hefði tekið bifreiðina ófrjálsri hendi. Lög- reglan tók piltinn í sfna vörslu. Friðrik teflir í Zagreb FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari hefur þekkst boð um að tefla á sterku skákmóti sem haldið verð- ur í Zagreb f Júgóslavfu f maí n.k. Friðrik mun fara á þetta mót þegar hann hefur lokið við að tefla á afar sterku móti í Las Palmas, en það hefst í apríl. Verð- ur það mót jafnvel sterkara en mótið í Tallin sem Friðrik er ný- kominn frá. Mótið í Zagreb verð- ur einnig sterkt. Þegar er vitað um þátttöku tveggja stórmeistara, Anderssons og Lubojevic. I júli teflir Friðrik á móti í Zurich f Sviss og i september á móti i Newcastle í Englandi. Þá hafði hann í hyggju að tefla ásamt Guð- mundi Sigurjónssyni á móti í Kaupmannahöfn i október, en ef svæðamótið verður haldið hér á tslandi á sama tíma, eins og likur eru á, mun hann taka það mót framyfir. Sameining á vinstra kanti FJÓRIR vinstrisinnaðir flokkar f Noregi hafa sameinazt i einn stjórnmálaflokk sem hefur fengið nafnið Vinstri sósfalista- flokkurinn. Að þessari sameiningu standa Sósíalistíski þjóðarflokkurinn (SF), Kommúnistaflokkurinn, Lýðræðislegi sósíalistaflokkurinn og óháðir sósialistar. Þessir flokkar buðu fram sam- eiginlega i kosningunum til Stór- þingsins 1973 undir merki Sósíal- istíska kosningabandalagsins. Þeir fengu 16 þingmenn kjörna og njóta stuðnings 10—12% kjós- enda samkvæmt síðustu skoðana- könnunum Gallups. Upphaflega gengu flokkarnir til samvinnu til að berjast gegn aðild Noregs að Efnahagsbanda- lagi Evrópu. I fyrra var ákveðið að sameina flokkana. Samkvæmt áætlun sem var samþykkt hafa þeir frest til ársloka 1976 til að sameinast fyrir fullt og allt í hinn nýja stjórnmálaflokk. Þó er vafasamt hvort kommún- istar samþykkja að flokkur þeirra verði leystur upp þar sem hörð andstaða er gegn því i flokknum. Endanleg ákvörðun verður ekki tekin fyrr en i haust. Margt bendir til þess að komm- únistar klofni i málinu. Þeir eru einnig ósammála hinum flokkun- um um hugsjónafræðilega undir- stöðu nýja flokksins. Kommún- istar vilja að undirstaðan verði „marxismi og lenínismi“. Hinir flokkarnir vilja að undirstaðan verði bara „marxismi". Klofningi út af þessum hug- sjónafræðilega ágreiningi var af- stýrt á nýafstöðnum stofnfundi Vinstri flokksins. Það var einfald- lega gert með þvi að sleppa öllum umdeildum atriðum úr grund- vallarstefnuyfirlýsingu sem var samþykkt. — Grimsby Framhald af bls. 1 bann í gangi og hefur þetta tafið fyrir löndun úr bátunum og haft í för með sér skemmdir á fiski í nokkrum tilfellum. Varð þetta m.a. til þess að upp úr sauð. Mark- aðurinn hefur verið ákaflega slappur, eins og víða gerist nú í heiminum. Anthony Crossland, þingmaður Grimsby, talaði við forsvars- menn sjómannanna í morgun og lofaði þeim, að hann skyldi taka málið upp við brezka sjávarút- vegsráðherrann þegar á mánudag og bað þá að hætta aðgerðum sín- um, en þeir létu orð hans sem vind um eyru þjóta. Hér er um að ræða áhafnir á snurvoðarbátum, sem sækja í Norðursjó og eiga skipstjórarnir sjálfir bátana." Við spurðum Jón hvort þessar aðgerðir myndu hafa einhver áhrif á Islendinga, en hann sagði það ekki vera, ekkert islenzkt skip væri á leiðinni til Grimsby, að því er hann bezt vissi. I fréttastofuskeytum til Mbl. kemur fram, að brezka stjórnin hefur skilning á vandamál- um þessara sjómanna, en er algeriega andvig því að setja á innflutningsbann eða kvóta. Er fremur hallast að því að fá Norðmenn, sem sjó- mönnunum er einkum í nöp við og aðrar fisksöluþjóðir, til að setja ákveðið verð á þann fisk, sem þeir selja til Bretlands. Stjórnin kannar nú mál þetta. — Hótun Framhald af bis. 1 herinn og vinstri flokkar ókleitt að frjálsar kosningar geti nú farið fram þar sem þeir beiti sálfræði- legum hótunum og ofbeldi, hleypi upp fundum andstæðinga sinna, gripi til hefndaraðgerða gegn frambjóðendum CDS og hóti að stela manntalslistum og kjörköss- um á kjördegi. Prófessor Amaral gaf I skyn að flokkurinn PPD (Lýðræðis- flokkur alþýðunnar) væri einnig í hættu. Pólitísk herferð er þegar hafin gegn PPD. Kommúnistar hafa sakað flokkinn um að hafa undirbúið jarðveginn fyrir bylt- ingartilraunina á dögunum. — Slök afkoma Framhald af bls. 48 innar um ráðstafanir i efnahags- málum yrðu ráðstöfunartekjur tæjarins skertar um 22 milljónir króna. Ráðstöfunartekjur Hafnar- fjarðarbæjar kvað hann því myndu rýrna um það bil um 100 milljónir króna miðað við áætlun. Þetta hefur í för með sér — sagði Kristinn, að við verðum að fresta öllum þeim framkvæmd- um, sem unnt er að fresta, gatna- gerðarframkvæmdum og bygg- ingaframkvæmdum. Hann sagði þó að unnt yrði að framkvæma það verk, sem nauðsynlegt væri vegna lagningar hitaveitu í Hafnarfjörð. Sagði hann að niður- skurður framkvæmda myndi ekki hafa áhrif á hitaveitufram- kvæmdirnar og myndu um 60% Hafnarfjarðar hafa fengið hita- veitu fyrir árslok. Kristinn Ö. Guðmundsson sagði að kappkost- að yrði, að eyðslan yrði ekki um- fram ráðstöfunartekjur bæjarins, en bæjarstjórnin myndi þó reyna að fá einhver lán til framkvæmda. — Krabbamein Framhald af bls. 1 þremur þeirra að taka limi af sjúklingum sínum, en hann bendir á að eðlileg lækning við sjúkdómnum hefði hvort eð er verið aflimun. Hann segir að með aðgerð- inni örvi hann viðnámsþrek sjúklingsins gegn krabbameins- frumunum og geri hann ónæman fyrir þeim og að þá sé ekki hitinn sem eyði krabba- meininú. — Týr Framhald af bls. 48 Vík. Fór sveitin af stað um leið og hún frétti af strandinu og brauzt á strandstað þrátt fyrir erfiða færð. Urðu björgunarmenn t.d. að skilja bíla sína eftir við Dýra- lækjakvísl og brjótast yfir kvisl- ina. Formaður sveitarinnar er Böðvar Jónsson. Samtals voru björgunarmenn 25 úr tveimur sveitum. — Kvikmyndir Framhald af bls. 46 ustu árum. Þar er auðsjáanlega lögð vinna og metnaður 1 að gera þau sem best úr garði. „Kreditlistinn“ er t.d. allur þýddur, umbrot og þýðing með ágætum. Sæbjörn Valdimarsson KILL Charley Varrick, Laugar- ásbíó. Bandarisk, 1973, leikstjóri Don Siegel. •k ir if Það hefur verið lítið um það að undanförnu, að hér væru sýndar verulega góðar sakamálamyndir, með snúnum söguþræði, fyrir utan The Sting í vetur. Charley Varrick verður hins vegar að teljast til þessa flokks mynda, þó að á köflum sé hún örlítið hæggeng, og ekki eins snúin og Sting. Charley Varrick er eldri maður, sem leggur það fyrir sig i ellinni að ræna nokkra litla banka og ætl- ar sér ekki að stela neinum umtalsverðum upphæðum í hverjum þeirra. En fyrsta ránið fer þó á annan veg og hann og félagi hans enda með 760.000 dollara milli handanna. Þetta kemur þeim mjög á óvart, en þeir uppgötva fljótlega, að megnið af þessu fé er óskráð og eign Mafíunnar. Og meðan lög- reglan eltir þá vegna tveggja morða og skitinna tvö þúsund dala, eltir Mafian þá vegna stór- fúlgu og ótta við álitshnekki. Spennan í myndinni byggist þó ekki mest á þessum eltingaleik, heldur einstökum atriðurri inn á milli. T.d. er upphafsatriðið mjög spennandi og vel upp byggt. Ræningjarnir koma ak- andi að bankanum, lögreglubíll kemur þar að og ræningjunum er sagt að þarna fyrir framan bankann megi ekki stoppa. Lög- reglubílnum er ekið burtu, undirbúningur að ráninu er hafinn, annar lögreglumann- ana fær eftirþanka um að bíll- inn sé stolinn og kallar i aðal- stöðvar til að fá staðfestingu, á meðan er bankaránið i fullum gangi, bílstjórinn bíður með bíl- inn, staðfesting fæst frá aðal- stöðvum um að billin sé stolinn og lögreglan kemur aftur að bankanum, ránið í fullum gangi, annar lögreglubíll er á leiðinni uns skyndilega er losað um þessa hleðslu, sem þarna er byggð upp. Hvorki nýtt né frumlegt en mjög þokkalega gert. Einnig leggur Siegel mik- ið upp úr öllum smáhlutverk- um, þannig að meðfram hægri þróun aðal sögunnar er myndin uppfull af litríkum augnablik- um og óhætt að mæla með henni sem dágóðri afþreyingu. SSP. — Símamál Framhald af bls. 2 þar af leiðandi ekki fylgt upp- byggingunni í þessu hverfum. 1 samtali við Morgunblaðið upp- lýsti Hafsteinn ennfremur, að nokkur dæmi væru til þess að pantanir á sima i hús i þessum hverfum hefðu legið hjá síman- um í upp undir hálft ár eða allt frá þvi að fyrstu ibúarnir tóku að flytjast i þessi hverfi nú í haust. I samtalinu við Hafstein kom einn- ig fram, að hann taldi nánast ótækt að íbúar í þessum hverfum væru símalausir. Jafnframt upplýsti hann, að lagður hefði verið sími i verzlunina fyrir þessi hverfi — alls tvö núnier en fleiri nýlögnum hefði ekki verið unnt að sinna enn sem komið væri. Ekki vildi Hafsteinn fallast á gagnrýni þess eðlis að þjónusta Bæjarsímans hefði á allan hátt verið seinvirk i Breiðholtinu og nefndi sem dæmi, að simi væri kominn í hvert hús i Breiðholti I og III og stöðin þar stækkuð um 4 þúsund númer fyrir tiltölulega stuttu. Þá yrði tekið til við að leggja síma í Skógahveríi um leið og frost væri farið nægilega úr jörðu, þ.e.a.s. ef fyrirsjáanlegur niðurskurður á framkvæmdum Pósts og síma, eins og öðrum ríkisfyrirtækjum, kæmi þar ekki til, en Hafsteinn treysti sér ekki til að segja af eða á um slíkt á þessu stigi. Hafsteinn kvað efnis- og fjár- skort mjög há allri þjónustu Bæjarsímans um þessar mundir og væri þaó önnur meginskýring- in á þvi að ekki væri hægt að sinna beiðnum íbúa i Breiðholti II. Síminn hefði éinnig í mörg önnur horn að líta við þessar erfiðu aðstæður og nefndi sem dæmi framkvæmdir á Seltjarnar- nesi, í Hafnarfirði og fleiri stöðum. Hann gat þess einnig, að þessar nýlagnir síma i hús væru mjög dýrar fyrir stofnunina og kostuðu þó nokkuð á annað hundrað þúsund krónur lögnin á sama tima og stofngjaldió væri ekki nema 16 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.