Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 36 Séra Karl Sigurbjörnsson: B-vítamín trúarinnar 2: Bœnin Síðast töluðum við um það hvernig Guð talar til okkar í Biblí- unni, og sýnir okkur vilja sinn, og hjartalag. En við megum líka tala við hann. Þvi Guð þráir samfélag við okkur mennina. Hann er eng- inn harðstjóri, sem hefur yndi af að tala yfir hausamótum þegna sinna, hann er kærleiksríkur fað- ir, sem þráir að hlusta á börn sín og njóta samvista við þau. Ka-nin er hjartsláttur trúarlífs- ins. Ef hjartað stanzar þá deyjum við. An bænar er trúin dauð. Ef hjartað slær veikt og óreglulega, þá erum við sjúk. Oreglulegt bænalíf er merki um innri sjúk- leika. En er við biðjum megum við treysta því, að heilagur andi verkar i okkur og lífið hans veitist okkur. Rétt bæn er ekki eintal þar sem annar talar, heldur samtal. Guð vill líka fá að tala við okkur. En til þess þurfum við að gefa okkur næði til að hlusta. Að bíðja er heldur ekki að betla, leggja inn pöntun fyrir hinu og öðru. Að biðja er að beygja sig undir vilja Guðs, eins og Jesús gerði. Af hinum fjórum ,,B-vítamínum trúarinnar", sem við tölum um, er bænin almennast notuð. Þeir eru sárafáir, sem aldrei hafa beðið. Samt eru margir, sem segja: „Það gagnar ekkert að biðja." E.t.v. er það svo vegna þess, að hin „víta- mínin“ 3 eru ekki notuð með. Að ræturnar þrjár: Bíblían, sakra- mentin og samfélagið, eru af- skornar, og þá getur ekkert líf. engin næring, streymt til biðjand- ans. Bænin þarf sina næringu i Guðs orði, og sakramentunum, og gagnkvæma uppörvun samfélags- ins við meðbræðurna, til þess að geta verið lifandi og ekta. Hall- grímur Pétursson segir: Bæn þína aldrei byggðu fast á brjóstviti náttúru þinnar. í Guðs orði skal hún grundvallast. Það gefur styrk trúarinnar. (Ps. 44, 17). Bænin er svar okkar við orði Guðs í Jesú Kristi. Jesús Kristur er rödd föðurins, sem kallar okk- ur út úr myrkri og dauða til sín. Þess vegna biðjum við í Jesú nafni, þ.e.: með Jesú, eins og Jesú, og í trú á Jesú, Og svo aftur sé vitnað i Passíusálmana, sem eru einhver bezta kennslubók í list bænarinnar, sem völ er á utan Bibliunnar sjálfrar, þá segir þar svo: Eg segi á móti: „Eg er hann, Jesú, sem þér af hjarta ann.“ Orð þitt lát vera eins við mig: „Elska ég,“ seg þú, „líka þig.“ Eilíft það samtal okkar sé uppbyrjað hér á jöröunni. Amen, ég bið, svo skyldi ske. Amen. Trúin lifir á bæninni, eða rétt- ara sagt þá er trúin ekkert nema bæn. Sá sem ekki þekkir Guð né trúir á hann, veit ekkert hvað bæn er. Hann getur nefnt hana sjálfsíhugun eða sjálfsefjun, eða eitthvað annað. Sumir vilja eiga Guð að, sem eins konar „Hjálp í viðlögum“, til að geta „hringt í“ þegar syrtir að. En vilja svo helzt vera lausir við hann þegar allt leikur í lyndi. Bænin er sú meðvitund trúarinnar, að vita sig umluktan nærveru Guðs, og koma fram fyrir auglit hans. HVERNIG, HVENÆR? Taktu frá stutta stund á degi hverjum til að lesa í Biblíunni og biðja. Fimm til tíu mínútum í algjörri kyrrð frammi fyrir aug- liti Guðs er vel varið. Vertu hrein- skilinn og opinn. Og mundu að hlusta. Eins og einn siðbótar- mannanna sagði, þá hefur Guð gefið okkur einn munn, en tvö eyru, til þess að við hlustum helmingi meir en við tölum. Ytri venjur eru oft til hjálpar. Að signa sig, krjúpa, spenna greipar, þetta geta allt orðið dauð- ir siðir, en í þessum ytri venjum getur lika verið fólgin viss ögun, sem nauðsynleg er. Gott er að styðjast við bænir annarra. Þær geta aldrei komið í stað þinna eigin orða, en þær geta leitt hugsanir þínar og hjálpað þér. Við erum líka misjafnlega vel upplögð, stundum er hugur- inn þreyttur. Þá er gott að geta stuðzt við prentaðar bænir og vers. Sálmabókin hefur mörgum reynzt vel, og þar er líka lítið bænakver, með bænun? fyrir hvern dag vikunnar og í sérstök- um aðstæðum. Við lok fórnar- viku 1 dag lýkur förnarviku kirkjunnar og höfðum við tal af Guðmundi Einarssyni fram- kvæmdastjóra Hjálparstofnunar kirkjunnar af því tilefni og spurðum um tilgang vikunnar: „Fórnarvikan hefur verið fast- ur liður f rekstri Hjálparstofn- unarinnar allt frá árinu 1970. Segja má að hún hafi verið eini fasti tekjuliður neyðarsjóðs stofn unarinnar og þvf harla mikilvæg undirstaða hvers kyns skyndi- hjálpar. Þvf sem þannig safnast á fórnarviku er varið til þess að styðja við þá, sem neyð og voði hverskonar hafa lagst þungt á. Á fórnarvikum síðustu ár hafa verið stór neyðartilfelli, sem safnað hefur verið til og nægir að nefna Eþfópíusöfnunina f fyrra, þegar beiðni barst frá fslenzkum kristniboðum vegna þurrkanna þar. Þá söfnuðust nálega 11 milljónir króna, sem beinlfnis urðu til að bjarga liðlega 90 þúsund mannslífum. Hvers kyns smærri hjálpar- beiðnir berast svo til daglega og það hefur sýnt sig að slfk hjálp hefur oft haft afgerandi áhrif. Þessi tegund hjálpar liggur til grundvallar þeirri fórnarviku, sem nú stendur yfir. Það er ekki verið að safna til neins ákveðins verkefnis, markmiðið er að efla almennan neyðarsjóð stofnunar- innar, sem grfpa má til f slfkum tilfellum.“ Er eitthvert ákveðið samband milli fórnarviku og föstu? „Þvf get ég bezt svarað með því að benda á grein eftir herra Sigurbjörn Einarsson biskup, f sunnudagsblaði Morgunblaðsins --------------------------------------\ Frammi fyrir augliti Guðs les: 1. Mós. 3,9. Sálm. 50, 15. Lúk. 15, 18. 1. Sam., 3, 10. Lúk. 11, 1. Matt. 6, 5—13. Jóh. 16, 23—24. Matt. 7, 7—8. Guð leitar samfélags vió okkur mennina. Hann kallar: „Hvar ertu?“ (l.'-Mós. 3, 9). Hann býður okkur aó leita til sín, og kennir okkur að biója (Lúk. 11, 1). Allt líf Jesú'var bæn. Þessvegna vog- um við aó biðja og út- hella hjörtu okkar fyr- ir Drottni. Guðmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar- innar. 16. marz s.l. En vissulega er þarna samband á milli. Menn hafa um aldaraðir minnzt píslargöngu frelsarans á föstu með þvf að leggja á einhvern hátt meira að sér en ella og má í þvf sambandi nefna föstur sem menn tíðkuðu mjög áður fyrri. Hjálparstofnun- in vill minna á þessi tengsl og vera þjónustuaðili, sem tekur við framlögum þeirra, sem fórna vilja f minningu Krists og koma þeirri fórn áfram til þeirra, sem á sama tíma líða á einhvern hátt.“ Kris tnibo ðsv ika HVAÐ er kristniboð? Jú, það er rekið vegna þess að kristnir menn hafa tekið alvarlega skip- un Jesú um að fara út og boða fagnaðarerindið. Við Isiending- ar eigum okkar fulltrúa úti f Eþfópfu eins og flestum mun kunnugt vera, nánar tiltekið í Konsó. Þar er unnið mikið starf, sem krefst mikilla fjár- muna, ekki sfzt nú eftir gengis- lækkun. Er fjárhagsáætlun Sambands fslenzkra kristni- boðsfélaga fyrir þetta ár yfir 9 milljónir. Kristniboð á ekki að vera okkur óviðkomandi ef við viljum telja okkur kristin. Stuðningur við kristniboðið gerir kleift að Guðs ríki breið- ist út og það hlýtur að vera takmark allra kristinna manna. Leggjum hönd á plóginn til stuðnings þessu mikilvæga starfi, með þvf að láta eitthvað af hendi rakna og ekki sízt með fyrirbæn. Auk boðunar vinna kristniboðar að líknar- og skólamálum og leituðu um 25.000 manns til sjúkraskýlis- ins s.l. ár. Munum að Guð þarfnast okkar handa. Hægt er að koma framlögum til kristni- boðsins á gfróreikning 65.000., og að kynnast kristniboðinu nánar á sfðustu samkomu kristniboðsvikunnar í KFUM húsinu kl. 20:30 f kvöld. Umsjón: Jóhannes Tómasson Gunnar E. Finnbogason. Yale vörulyftari Til sölu Yale rafknúinn vörulyftari, lítið notaður. Upplýsingar gefnar í síma 1 7244. JRorjjunblíibiþ nucivsincnR ^*-*22480 Jörð til sölu góð bújörð í Fljótshlíðinni til sölu. Upplýsinqar gefur Agnar Gústafsson hrl, Austurstræti 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.