Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 1 Móðir mín og fósturmóðir. h ÞÓRA FRÍMANNSDÓTTIR frá Skagastrónd, Þórólfsgötu 5, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirðí þriðjudaginn 25. þ.m. kl. 2 e.h. Aðalheiður Frimannsdóttir Eðvarð Ragnarsson. Útför ^ h GUÐRÚNAR ELÍASDÓTTUR sem lézt 1 9. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 26. marz kl. 1 3.30. Blóm vínsamlegast afbeðin. en þeir sem vildu minnast hennar eru vinsamlegast beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd vandamanna. Guðmunda Dagbjartsdóttir, Pétur Magnússon. t Móðir okkar SIGRÍÐUR J. SIGURÐARDÓTTIR Vesturvallagótu 10, verður jarðsungin frá Dómkírkjunni þriðjudaginn 25. marz kl. 10 30 Dóra Jóhannsdóttir, Elísabet Jóhannsdóttir, Sigurður Jóhannsson. t Inmlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar, broður og föður y TORFA HAFSTEINS BALDURSSONAR. Ingibjörg Torfadóttir, Ingibjörg Torfadóttir. Baldur Sveinsson, Ásgeir Torfason, Þórir Baldursson Freyja Torfadóttir. Maðurinn minn, t MAGNÚS F. JÓNSSON, Hagamel 47, andaðist að kvöldi 14 marz. Jarðarförin er ákveðin frá Neskírkju mánudaginn 24 marz kl. 1 3.30. Guðfinna Björnsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, JÓHANNES ELÍASSON, bankastjóri sem andaðíst að kvöldi 1 7. marz, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 25 marz kl. 14 Þeim, sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Sigurbjörg Þorvaldsdóttir, Róslín Jóhannesdóttir. Kristin Jóhannesdóttir, Þorvaldur Jóhannesson. t Unnusti minn, sonur okkar, dóttursonur og bróðir, ÓSKARBRAGASON, Meistaravöllum 21, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. þim kl. 10f.h. Fyrír hönd annarra vandamanna, ^ Þóra Kristiansen Ésther Halldórsdóttir, Bragi Sigurbergsson, Magnea Tómasdóttir, Halldór ísleifsson, Halldór Bragason, Trausti Bragason. t Þökkum innilega öllum þeim mikla fjölda vina og ættingja, nær og fjær, sem vottað hafa okkur samúð sína, og minnst með ástúð og virðingu, á margvíslegan hátt, konu minnar, móður okkar, tengdamóð- ur og ömmu ÁSDÍSAR GUÐMUNDSDÓTTUR Hraunteigi 9 við andlát hennar og útför Ásbjörn Stefánssori Guðmundur Karl Ásbjörnsson Elizabeth Hangartner-Ásbjörnsson Lilja Ásdís Þormar Halldór Þormar Ingólfur Örn Ásbjörnsson Arnþrúður Sæmundsdóttir Ragnhildur Ásbjörnsdóttir og barnabörn. Steingrímur Magnús- son — Minningarorð Fæddur 15. júnf 1908. Dáinn 13. mars 1975. „Hér féll grein af góðum stofni, grisjaði dauðinn meir.en nóg.“ Það er alltaf mikill mannskaði, þegar góður, göfugur drengur fellur í valinn, þó nokkuð aldraður sé, og búinn að vinna þjóð sinni marga áratugi, af mikl- um dugnaði og trúmennsku, en svo var um Steingrím Magnússon. Þá er og mikill harmur kveðinn að ástvinum hins látna manns, konu hans og börnum. Tekur það og á tilfinningar vina hans og vandamanna. Steingrimur Magnússon var fæddur að Hafurstaðakoti á Skagaströnd 15. júní 1908, en þar höfðu foreldrar hans, Guðrún Einarsdóttir og Magnús Stein- grímsson, búið í eitt ár. Stein- grímur ólst upp með foreldrum sínum til fermingaraldurs, en fór þá að vinna fyrir sér á eigin spýt- ur á ýmsum stöðum í Húnavatns- sýslu og víðar. Þegar á unglings- árum þótti Steingrímur hlut- gengur til allra sveitastarfa. Var dugnaður hans og dyggð annáluð af öllum er honum kynntust, jafnt þeirra sem aðeins voru áhorf- endur sem hinna er nutu verka hans. Þegar á ungdómsárum rækti Steingrímur Magnússon allar fornar dyggðir og þær heilla- dísir voru nánir fylginautar hans til hinstu stundar. Steingrímur kvæntist 14. maí 1932 Ríkey Magnúsdóttur sem þá var til heimilis á Bollastöðum í Blöndu- dal, og reistu þau bú ári seinna á Torfustöðum í Svartárdal í Húna- vatnssýslu. Ríkey Magnúsdóttir er fædd 11. júlí 1911 í Ásmundar- nesi í Kaldrananeshreppi, Strandasýslu, en fluttist á bernskuárum austur yfir Húna- flóa. Þau hjónin Steingrímur og Rikey bjuggu 14 ár á Torfustöð- um, á þeim árum keyptu þau jörð- ina. Á þessum frumbýlingsárum Iagði Steingrímur mesta áherslu á að stækka búið, sem var lítið í byrjun, enda fjölgaði búpeningi ört, og var ekki slegið slöku við, stundum unnið nótt með degi ef á þurfti að halda, sem oft var. Á Torfustöðum er mikið og gott hag- lendi, og því fóru skepnur þar oft létt, gekk því búið yel fram. Árið 1947 seldi Steingrímur Torfustaði og keypti i staðinn landnámsjörðina Eyvindarstaði í Blöndudal. Sama ár fluttust þau hjón að Eyvindarstöðum með börnum sínum. Eyvindarstaðir eru mikil og góð jörð. Þegar þau hjón komu að Eyvindarstöðum var þar reisulegur bær en gamall orðinn og nokkuð hrörlegur, sama var um gripahúsin sem voru mörg og stór. Túnið var all stórt á þeirra tíma visu. Steingrímur tók þegar til höndunum af sínum al- kunna dugnaði við uppbyggingu og ræktun. Byggði hann fbúðar- hús úr steini og setti járnþök á gripahúsin. Túnstærð og töðufall margfaldaðist. Þau hjónin Stein- grímur og Ríkey voru samhent í hvívetna, og því farnaðist bú- t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför, RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR, Skólavörðustíg 14. Fyrir hönd vandamanna. Þorsteinn Kristjánsson. skapurinn vel, og uppeldi barnanna með ágætum. Börn þeirra hjóna Steingríms og Ríkeyjar eru 5, þrjár dætur og tveir synir. Tvær dætranna, Guð- rún og María eru giftar heima i átthögum sínum, en Magney er hér í Reykjavík, gift. Synirnir tveir, Bragi Bergmann og Stein- grimur Magnús, eru og búsettir hér í Reykjavík, báðir kvæntir. Öll eru börnin ágætlega gefin og mannvænleg að öllu leyti. Fyrir 8 árum fiuttust þau hjón hingað til Reykjavíkur vegna þess að heilsa Steingríms var að bila, svo hann þoldi ekki ekki erfið- ustu búskaparstörf og allt of lang- an vinnudag. Samt settist hann ekki i helgan stein, fékk sér vinnu sem til féll, vann lengst hjá bænum, og vann af kappi sem fyrr. Við hjónin þökkum frænda minum og nafna fölskva- lausu vináttu hans og margar ánægjulegar samverustundir. Við vitum að hann á góða heimvon, og fylgjum honum í anda til ljósa- landa eilifðarinnar. Ekkjunni Ríkey Magnúsdóttur í Miðtúni 15 og börnum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Steingr. Davíðsson. Jósep Ragnar Heiöberg -Minning Fæddur 22. júlf 1928 Dáinn 14. marz 1975 Þegar ég renni huganum yfir komur mínar á Laufásveg 2 a, rifjast margt upp — meðal annars allar hinar ógleymanlegu velgerð- ir, er ég naut á heimili hjónanna þar, Þóreyjar og Jóns Heiðberg. Þar var mér veitt allt, sem unnt var að láta í té. Hinn mikli mann- vinur, Jón Heiðberg; stórkaup- maður, kona hans og börn voru samtaka um að hjálpa þeim, sem bágt áttu, og létta þeim byrðar lífsins. Börn þeirra hjóna voru vel mönnuð og ágætum kostum búin og líktust foreldrum sínum um velvild og hjálpsemi. Þar kom, að Jón Heiðberg féll fyrir elli- og sjúkleika, en Þórey, kona hans lifir mann sinn, farin að þreki og heilsu. Elsti sonurinn, Jósep Ragnar, tók við stjórn verzlunarfyrir- tækisins að föður sínum látnum. Hann var verzlunarmenntaður úr Verzlunarskóla íslands og hafði auk þess starfað lengi við fyrir- tækið, áður en faðir hans féll frá. Jósep Ragnar var kvæntur góðri. konu og átti með henni fjögur börn, sem öll eru ung að árum, — eitt enn ófermt. Fjölskyldan hef- ur mætt margvíslegum erfiðleik- um á undanförnum árum. En þyngsta áfallið hlaut hún hinn 14. þ.m. er Jósep Ragnar, stoð og stytta heimilisins, varð bráð- kvaddur. Stendur því ekkja hans uppi með fjögur forsjárlaus ung- menni. Jósep Ragnar var aðeins 46 ára, er hann lézt, glæsimenni að útliti, hæfileikamaður og drengur góður. Með þessum fáu línum vil ég þakka honum alla velvild og vináttu, sem hann hefur sýnt mér um ævina. Þó geymir þögnin bezt allar hinar ljúfu minningar mínar um hann og þakkarkennd mína til foreldra hans, systkina, eigin- konu og barna. Guð styrki fjöl- skyldu hans í raunum hennar og erfiðleikum. Vinur minn Jósep Ragnar sem öllum vildi vel. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Arný Filippusdóttir, Hveragerði. MagnúsA. Arna- son, Ketu-Minning Fæddur 6. ágúst 1891. Dáinn 10. febrúar 1975. Magnús var fæddur að Lundi í Stíflu, Holtshreppi í Skagafjarð- arsýslu, 6. ágúst árið 1891. For- eldrar hans voru Árni Magnússon og Baldvina Ásgrímsdóttir er buggu í Lundi frá 1887 til 1898. Hann var ættaður frá Iilugastöð- um í Austurfljótum, sonur hjón- anna er þar bjuggu frá 1874 til 1883, Magnúsar Ásmundssonar og Ingibjargar Sölvadóttur. Foreldr- ar Baldvínu voru Ásgrímur As- mundsson og Guðrún Sveinsdóttir er bjuggu á Skeiði i Fljótum frá t Sonur minn, bróðir okkar og mágur ARNÓRAUÐUNSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þríðjudaginn 25. marz kl. 13.30. Auðunn Bragi Sveinsson, Sveinn Auðunsson. Erika Steinman, Kristín Auðunsdóttir, Haukur Ágústsson, Emil Auðunsson, Ólafur Auðunsson. 1847 til 1874. Þessar ættir eru bændaættir 1 beztu röð hér um sveitir. Þau Arni og Baldvina hófu búskap í Lundi árið 1887 og flytja þaðan árið 1898 að Enni á Höfðáströnd og þaðan árið 1903 að Ketu á Skaga. Og þar með er búferlaflutningi þeirra hjóna að mestu lokið um langan tíma. Þó könnuðu þau skagann víðar en á Ketu, — bjuggu bæði á Syðra- Marlandi og Neðra-Nesi og við þá jörð féll þeim einna bezt bújarða sinna. Landgæði fyrir búsmala var mest og bezt i Lundi, en Neðra-Nes hafði fleira til síns gagns en landgæði. Þau Arni og Baldvina færðu Skefilsstaða- hreppi mjög álitlegan hóp upp- rennandi æsku. Æsku, ér átti eft ir að sýna og sanna mikinn mann- dóm um langt árabil Einn son átti Árni áður en hann giftist, Guð- brand Arnason I Saurbæ, — fór hann ekki með þessari fjölskyldu og ekki úr Fljótum. Á Skaga barst þessi fjölskylda Framhald á bls. 37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.