Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 48
 ABUFLAST SALA- AFGREIOSLA \^F/ 'Armúla 16 simi 38640 Þ. ÞORGRÍMSSON & CO SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 s. 1534 EYJUM s. 10880 Rvlk )SS HI'LI.A Bjami Jónasson NDIAJAR DLR Tekst Tý að ná D.H Finn á flot? Fyrsta verkefni hins nýja varðskips VARÐSKIPIÐ Týr kom í gær- morgun að strandstað brezka tog- arans D.P. Finn H-322 við Hjör- leifshöfða. Verður það fyrsta verkefni hins nýja varðskips að freista þess að ná togaranum á flot. Veður var óhagstætt á strandstað fram eftir degi í gær, en spáð var norðvestanátt og batn- andi veðri og átti þá að athuga möguleika á björgun, að sögn Péturs Sigurðssonar forstjóra Landhelgisgæzlunnar. Árdegis- flóð var klukkan rúmlega eitt í Tókstaðná 150 þús. kr. árssparnaði FJÓRIR Vélskólanem- ar voru fengnir til að stilla olíukynditæki í fjölbýlishúsi einu í Hafnarfirði í síðustu viku. Tók verkið tvær og hálfa klukkustund. Tókst nemunum að auka nýtingu tækj- anna um 4—5% en það þýðir 150 þúsund króna sparnað fyrir íbúa hússins á ári. I húsinu eru 63 íbúðir, og er ein sameiginleg kyndistöð fyrir þær allar. nótt og átti þá að reyna björgun. I athugun er að senda annað skip Tý til aðstoðar ef þörf krefur. Meginhluti áhafnar brezka tog- arans, 18 manns, kom til Reykja- víkur laust eftir klukkan 13 í gær. Að sögn Geirs Zoega, umboðs- manns brezka útgerðarfyrirtækis- ins stóðu vonir til að hægt yrði að koma þeim til Bretlands með aukaflugvél í gærkvöldi. Þrír af áhöfninni urðu eftir á strandstað, skipstjórinn, stýrimaður og vél- stjóri og ætluðu þeir að athuga möguleika á björgun. Siðdegis í gær voru væntanlegir þrír menn frá Bretlandi vegna þessa strands, framkvæmdastjóri út- gerðarfélagsins sem gerir út tog- arann, Boston Deep Sea Fisheries, svo og tveir menn frá vátryggingarfélagi togarans. í framhaldi af fréttum blaðsins í gær af björgunaraðgerðum skal tekið fram, að björgunarsveit SVFI í Álftaveri tók þátt í björg- unarstarfinu ásamt sveitinni úr Framhald á bls. 47. Ljósmynd Ol.K.M SKIPBROTSMENN — Skipverjar á brezka togaranum D.P. Finn komu til Reykjavíkur í gær að undanskildum þremur, sem urðu eftir á strandstað. Var myndin tekin er þeir komu til Loftleiðahótels- ins. Þeir kváðust hafa verið að koma frá Englandi er óhappið varð. Aðspurðir um það hvers vegna svo illa hefði tekist til með björgunaraðgerðir í byrjun sögðust þeir ekki hafa treyst lfnunni of vel vegna þess hve mikill slaki var á henni. Að lokum báðu þeir Mbl. að koma á framfæri þakklæti til björgunarmanna svo og til þeirra sem greitt hafa götu þeirra hér eftir strandið. Slök afkoma álversins 1 Straumsvík: Stórskertar tekjur Byggða- sjóðs og Hafnarfj arðarbæj ar □ -□ Sjá einnig frétt á bls. 2 □ ----------------□ FYRIRSJAANLEGT er, að af- Gúmmíbát hvolf di í s j úkr aflu tningum Þýzkur sjómað- ur drukknaði við Reykjanes ÞViiKLR sjómaður af Vestur- þýzka eftirlitsskipinu Roter Sand drukknaði út af Reykjanesi að- fararnótt s.l. fimmtudags þegar gúmmíbát hvolfdi þar með 5 sjó- menn af Roter Sand og sjúkan sjómann af þýzka togaranum Sehellfisch, en togarasjómaður- inn hafði fengið aðskotahlut í auga. Að sögn Ludwig H. Siemsen umboðsmanns þýzkra togara á Is- landi náðust sjómennirnir 5 mjög aðframkomnir. en einn var látinn þegar hann náðist. Þýzki togara- sjómaðurinn fékk alvarlegt tauga- áfall eftir slysið og var hann flutt- ur til Reykjavíkur og lagður inn á Landakotsspítala. Var hann á batavegi í gær. Lík þýzka sjó- mannsins var kistulagt í Reykja- vík, en síðan hélt Roter Sand aft- ur til aðstoðar togurunum á mið- unum, en kistunni átti að koma á einhvern þýzkan togara, sem væri á heimleið. koma álverksmiðjunnar í Straumsvík verður mun lakari I ár en gert hafði verið ráð fyrir. Samkvæmt áætlunum var reiknað með, að verksmiðjan greiddi 450 milljónir í framleiðslugjald á þessu ári, en Ragnar Halldórsson, forstjóri ísal, sagði við Mbl. í gær, að líkur bentu til þess að verk- smiðjan gæti ekki greitt nema 150 milljónir f framleiðslugjald. 1 fyrra greiddi verksmiðjan 260 milljónir í framleiðslugjald. Þetta gjald skiptist þannig, að Byggðasjóður fær 70% í sinn hlut, Hafnarfjarðarbær 25% og Iðnlánasjóður 5%. Verða þessir aðilar þannig af miklum tekjum vegna lakari afkomu ísal, en það er afleiðing minnkandi eftir- spurnar eftir áli á heimsmarkaðn- um eins og fram kemur á öðrum stað I blaðinu. I áætlunum Byggðasjóðs var gert ráð fyrir að sjóðurinn fengi í framleiðslugjald á þessu ári 320 milljónir, en samkvæmt nýjustu áætlunum fær hann ekki nema liðlega 100 milljónir. Hafnar- jarðarbær átti að fá liðlega 110 milljónir, en fær tæpar 40 milljónir ef svo fer sem horfir. Hlutur Iðniánasjóðs minnkar hlutfallslega á sama hátt. Samkvæmt upplýsingum Krist- ins Ziemsen hjá Byggðasjóði hef- ur forráðamönnum sjóðsins verið gert viðvart um þetta. Sagði hann að samkvæmt fjárlögum ætti sjóðurinn að fá ákveðið fjármagn og stæðu nú yfir viðræður við fjármálaráðuneytið hvernig bæta mætti sjóðnum þennan tekju- missi. Væri það mál óafgreitt. Kristinn Öl. Guðmundsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði að þessar skertu tekjur Hafnar- fjarðarbæjar kæmu illa við bæjar- félagið. Á fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir 112 milljónum króna í framleiðslugjald frá ál- verksmiðjunni, en nú væri útséð að það yrði ekki nema um 28 milljónir og í be'*' »alli um 40 milljónir, ef ISAL greiddi hærra gjald enhámarksgjald. Hannkvað jafnframt útséð að á árinu 1976 yrðu tekjur af þessu gjaldi einnig mjög skertar, en þó mætti þar örugglega reikna með aukn- ingu, þar sem framleiðslugjaldið ætti að hækka úr 12,5 dollurum á hvert framleitt tonn í 20 dollara. I ár mætti þó gera ráð fyrir allt að 80 milljón króna rýrðum tekjum af þessu gjaldi og við bættist að vegna frumvarps ríkisstjórnar- Framhald á bls. 47. Friðrik Olafsson: „Skáklistin mun setja ofan ef einvígið fer ekki fram ” MORGUNBLAÐIÐ hafði sam- band við Friðrik Úlafsson stór- meistara og innti eftir áliti hans á þróun mála varðandi heimsmeistaraeinvígið f skák. Friðrik sagði m.a.: „Það er vissulega mjög leiðin- legt ef þetta einvígi getur ekki farið fram, og ég tel að skáklist- in muni setja ofan ef svo verð- ur. Það er að vísu ekki útséð með það ennþá hvort Fischer teflir en líkurnar minnka óneitanlega meö hverjum deg- inum. Varðandi reglu þá sem samþykkt var um ótakmarkað- an fjölda skáka og að jafntefli teljist ekki með held ég að það sé skynsamleg ráðstöfun. Hún gæti flýtt einvlgjum, því menn vita að tilgangslaust er að gera jafntefli og reyna því eflaust að tefla stlfar til vinnings." SPA BETRA VEÐRI Á LOÐNUMIÐUNUM NÝTT LOÐNUVERÐ VAR VÆNTANLEGT SÍÐDEGIS í GÆR BRÆLA var á loðnumiðunum I Faxaflóa I fyrrinótt og fram eftir degi I gær. Spáð var norðanátt og batnandi veðri á miðunum og má því búast við góðri veiði. 40 bátar stunda enn loðnuveiðar að sögn loðnunefndar. Heildaraflinn er orðinn um 430 þúsund lestir. A miðnætti I nótt féll úr gildi verð það sem hefur verið á loðnunni að undanförnu, 1,60 krónur fyrir hvert kfló. Yfirnefnd Verðlags- ráðs sat á fundi I gærdag, og sagði Jón Sigurðsson oddamaður nefndarinnar I samtali við Mbl. I gær, að nýtt verð yrði ákveðið þá um daginn. Frá miðnætti i fyrrinótt til há- degís í gær höfðu 4 bátar tilkynnt loðnunefnd afla, samtals 870 lest- ir. Aflann fengu bátarnir 5 milur útaf Gróttu. Á föstudaginn fengu 10 batar afla, samtals 3400 lestir. Sá afli fékkst útaf Gróttu og einn- ig grunnt útaf Akranesi. 6 bátar fóru með afla til Vestmannaeyja. Löndunarbið er I flestum Faxa- flóahöfnum og við Norglobal. Eftirtaldir bátar fengu afla á föstudaginn: Jón Garðar 300, Hilmir 370, Víð- ir NK 260, Náttfari 240, Súlan 520, Vonin 180, Gísli Árni 430, Bjarni Ólafsson 300, Sigurður 600, Dagfari 200. I gær höfðu þessir bátar fengið afla: Árni Sigurður 380, Fífill 150, Héðinn 260 og Helga II 80.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.