Morgunblaðið - 23.03.1975, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975
Guðni Þ. Guðmundsson stundar
nám í orgelleik við Tónlistarskólann i
Kaupmannahöfn. ætlar að Ijúka þar
meira organistaprófi á næsta ári eftir
7 ára nám þar. Hann hefur lagt hönd
á sitthvað annað með náminu á
þessum Hafnarárum sínum, er m.a.
organisti í Vestrefangelsinu, stjórnar
25 manna blönduðum kór, leikur
iðulega fyrir sjúklinga i sjúkrahúsum
og aldraða á elliheimilum og efnir til
hljómleika í fangelsi. Í eitt ár ráku
Guðní og kona hans. Elin Heiðberg
Lýðsdóttir, gistiheimili fyrir ættingja
islenzkra sjúklinga á spitölum i Höfn
og á sumrin hefur Guðni iðulega
spilað létta músik og dansmúsik á
hótelum i Noregi og Danmörku og
fór í jólaleyfinu i fyrra með
hljómsveit á norsku skemmtiferða-
skipi til Afríku. Hann hefur þvi
kynnzt margvislegu fólki og við ýms-
ar aðstæður og okkur þótti forvitni
legt að spjalla við hann, þegar hann
var á ferðinni á íslandi í siðustu viku.
Fyrst stikluðum við aðeins á
námsferlinum. Guðni byrjaði að leika á
pianó hjá Herði Sigurgeirssyni í
Vestmannaeyjum, þegar hann var 10
ára gamall. Síðar lauk hann
söngkennaraprófi frá Tónlistar-
skólanum i Reykjavik, sem hefur
mjög góða kennara, sagði hann.
Þar sem honum var kunnugt um að
víða vantaði organista fór hann að svo
búnu til að nema orgelleik í
Kaupmannahöfn, þar sem náminu er
skipt i 3 hluta i Tónlistarskólanum.
Fyrst þarf að taka tveggja ára forskóla,
sem veítir minna organistapróf, síðan
að fara gegnum aðaldeild og taka próf
upp í sérstaka lokadeild, en þaðan er
tekið meira organistapróf, sem Guðni
hyggst gera að ári liðnu
Þó að skólanámið sé aerið verkefni,
hefur Guðni sl. 3 ár verið organisti i
Vestrefangelsinu, sem er stærsta
fangelsið í Danmörku. Þar eð þetta er
varðhaldsfangelsi, þar sem menn bíða
dóms, þá eru þar aldrei færri en 600
fangar, sem geta beðið þarna eftir
dómi í ár eða allt upp í hálft annað ár.
Þarna í fangelsinu eru guðsþjónustur á
dönsku, ensku og finnsku og kaþólskar
messur og kvaðst Guðni spila fjórum
sinnum i viku í fangelsiskirkjunni, en
hann hefur 10 fanga kór í dönsku
messunum og helmingur þeirra syng
ur einnig í ensku messunum. Hann er
því eínn af þeim fáu, sem hafa leyti
til að ganga inn í klefana til
gæzluvistarfanganna og spjalla við þá.
Hann þarf að velja söngmenn og æfa
kórinn og talið er að hann nái betur til
söngmannanna með því að þekkja þá
sem kunningja. Þeir labba því oft með
honum upp í kirkju, sem er i miðju
fangelsinu, og enginn vörður er í
kirkjunni.
Aðeins einu sinni kvaðst Guðni hafa
orðið hræddur við þessar aðstæður.
Morðingi einn hafði sótt um að fá að
komast í kórinn. Prestarnir voru
svolítið hikandi við að láta hann fara
einan með honum út í kirkjuna, þar
sem hann væri ekki nógu öruggur.
Annar fangi, sem tekinn hafði verið
fyrir hasssmygl, var þvi tekinn í prófun
um leið Guðni sat við orgelið innst í
horni, þannig að hann komst ekkí fram
fyrir þá, Sá hættulegi söng Ijómandi
vel, en allt í einu þögnuðu þeir, komu
nær og hölluðu sér þegjandi yfir
organistann. Hanh sagði ekkert heldur
og lét ekki á því bera að hann væri
órólegur. En hann var með lykla að
öllu fangelsinu i vasanum. Eftir langa
stund, að honum fannst, kom annar
þeirra auga á trompettinn, sem stóð
uppi við orgelið, og fór að spyrja um
hann, og Guðni tók að spila. Við það
virtist spennan, sem lá í loftinu hverfa.
— Það er nokkuð mikið álag að vera
þarna og ég hugsa að ég hætti í vor,
sagði Guðni. Fangarnír, sem biða þess
að fá dóm og vera fluttir út i
dvalarfangelsin til að afplána hann, eru
auðvitað margir slæmir á taugum. Þeir
tala oft við mann um sin mál, þegar
maður kemur inn I klefann til þeirra.
Og stundum bresta þeir í grát, ef
sungnir eru viðkvæmir sálmar eða
verða alveg óðir, svo ég verð að fara
með þá niður í eitt skipti var ég svo
heppinn að presturinn kom inn fyrir
tilviljun og gat hjálpað mér að koma
einum inn til sin aftur. Oft heyrir
maður þarna hörmulegar sögur i
fangelsíssjúkrahúsinu eru margir
eiturlyfjaneytendur, sem biða dóms
vegna sölu á hassi eða morfini eða
einhverju öðru, því þetta fólk gerir
hvað sem er til að fá eiturlyfin. Þarna
má sjá 1 7— 1 8 ára stúlkur, sem líta út
eins og hungruðu börnin í
Biafrastríðínu. Eru ekkert nema skinn
og bein og varla von um að þær lifí
þetta af
-— í fangelsinu er líka óhugn-
anlega míkið af barnamorð-
ingjum sagði Guðni. Þeir hafa
sumir kvænst konum, sem áttu
börn fyrir, og mörg dæmi eru um, að
teir hafi svo misþyrmt börnunum og
— Nei, ég spila ekki við íslenzku
guðsþjónusturnar, syng bara i kórnum
með konunum. En ég spila oft á
elliheimilum og sjúkrahúsum, leik þá
undir fyrir fólk sem fer til að skemmta
þar. Þegar maður hefur gert þetta einu
sinni, fréttist það og leitað er til manns.
Og ég hefi aldrei getað sagt nei, það er
kannski ókostur. Ég æfi lika kór,
Samkór Skovlunde, og við höfum
haldið hljómleika úti á landi. Ég leik þá
oft verk á orgelið og kórinn syngur og
stundum hafa lúðrasveitir komið til liðs
við okkur. Eins hefi ég leikið á
skemmtistöðum á sumrin, t.d. tvisvar í
Noregi. Hafði hljómsveit í Hönefoss en
var einn á hóteli f Hamar. Einnig á
skemmtistöðum á Jótlandi og víðar. 1
fyrra, þegar olíubannið var sett á, þá
mátti maður ekki aka bil frá kl. 11 á
laugardagskvöldi til klukkan 6 á
mánudagsmorgni, en ég var oft að
spila fram á nótt utan við borgina Þá
gisti ég oftast í Vestrefangelsi, því
þangað mátti ég aka. En í fangelsinu
efni ég oft til tónleika, og fæ þá
hljóðfæraleikara úr skólanum með
mér. Þá höfum við blandaða dagskrá.
Ef við Ijúkum með einhverju fjörugu og
léttu lagi, þá klappa fangarnir og
stappa niður fótunum og kalla: Extra
nummer!
— í fyrra fór ég í þriggja vikna ferð
með þriggja manna hljómsveit og
söngkonu á norka skemmti-
ferðaskipinu Priness Ragn-
hild til Afriku. Það var mjög
skemmtilegt. Ég lék á rafmagnsorgel
ýmist fyrir dansi eða undir hjá
söngvurum og skemmtikröftum og
konan fékk að koma með. Viðfórum til
Marokko, Tenerife og Madeira. Alltaf
var gott veður, nema á leiðinni milli
Tenerife og Madeira Þá var
aftakaveður og hljóðfærin runnu þvert
yfir gólfið. Við bundum orgelið niður
og ég reyndi að sitja fast við og
héldum áfram að leika, nema hvað
trommarinn gafst upp. Ekki þýddi að
leika dansmúsik, en fólkið hafði gott af
því að hlusta á „hyggemúsik." Það sat
þarna með gubbudallana við hliðina á
sér i salnum.
— Jú, það er mjög fróðlegt að
kynnast svona margvíslegu lífi. Til
dæmis hefur það kennt mér að vera á
móti því að leyft verði að brugga
sterkan bjór hér á íslandi. Þegar ég var
að spila á næturklúbbi í mánuð úti á
Jótlandi einu sinni kynntist ég til
dæmis verktaka og fór með honum
klukkan 5 að morgni á bjórkrá, þar
sem verkamennirnir hans komu alltaf
klukkan 5—6. Þá byrjuðu þeir daginn
með heitri súpu bjór og snafsi áður en
þeir hófu vinnuna Síðan halda þeir sér
við á bjórnum yfir daginn. Víðar sést
þetta. Til dæmis eru margir orðnir
drukknir af bjórþambi kl. 3—4 á
daginn við höfnina. Ég hefi þekkt
konur og börn frá svona heimilum.
Mennirnir eiga ekki fyrir mat, en alltaf
fyrir bjór og svo er lumbrað á konunni
þegar heim er komið og hún kvartar.
Eins drekkur fólk mikið bjór á
skemmtistöðunum, því það er orðið
svo dýrt að koma þangað. Raunar
hefur dregizt mjög saman hjá þeim
núna.
Guðni hefur aldrei þaldið tónleika á
íslandi, en nú áformar hann að koma
heim í október og efna þá til tónleika í
Háteigskirkju með danska bás
únuleikaranum Carsten Svanberg,
Einn fanginn gerði mosaikmynd af organista fangelsisins Guðna P. Guðmundssyni, og hefur greinilega
náð svipnum vel.
Organisti í stærsta
fangelsinn í Höfn
jafnvel drepið þau. En lifið er nú einu
sinni þannig, að þær fyrirgefa þeim
jafnvel þetta. Einni man ég eftir, sem
hafði átt þrjú börn, en maðurinn hafði
drepið eitt þeirra með barsmið. Samt
vildi hún giftast honum og bíða hans i
5—6 ár, eftir að hann fengi dóm. Þau
giftu sig i fangelsinu. Yfirleitt verða
þessi morð i æði, börnin gráta og
maðurinn er slæmur á taugum.
— Sjá eftir því? Það er ekki gott að
segja, og raunar misjafnt Þarna er
mikið af óvenjulegu fólki, í kórnum hjá
mér er t d stór og sterkur maður, sem
hafði lifað af þvi að hræða, pina og
stela frá fötluðu fólki. En þegar hann
var tekinn og settur inn, þá lét konan
hans ekki frá sér heyra i nokkra daga
og prestarnir gátu ekki fundið hana
fyrir hann. Þá féll hann saman og grét i
marga daga Það kemur manni
óneitanlega dálítið kynlega fyrir sjónir,
að maður, sem ræðst hiklaust á þá sem
enga björg geta sér veitt og hefur ekki
áhyggjur af, skuli finna svona til og
hafa áhyggjur af einni manneskju.
Annar maður í kórnum hafði fengið 8
ára dóm og farið í minna
dvalarfangelsi. Eftir fjögur ár fékk hann
að fara heim í viku í jólafrí, en kom
ekki aftur Eftir þriggja mánaða leit
fundu þeir hann. Þá kom hann aftur i
Vestrafangelsið Hann falsar tékka og
þessháttar. Meðan hann var laus, var
hann búinn að falsa út 140 þúsund
danskar krónur eða 2,8 millj. Margir
þessara manna geta ekki og vilja ekki
hætta, þegar þeir eru lausir, og það
kemur fram, þegar maður er að spjalla
við þá. Annars finnst mörgum þeirra
bara ágætt að vera þarna. Það fer mjög
vel um þá og margir hafa litasjónvarp
og stereotæki í klefunum hjá sér. Fyrst
þegar ég kom þangað, voru Ijósin
slökkt klukkan 1 1, en nú er það ekki
lengur gert. En fangarnir eru lokaðir
inni og það fer illa með suma að þurfa
að bíða svo lengi eftir dóminum.
Fangar hafa oft sagt við mig að fínt sé
að koma í fangelsi i Höfn. Enda gæta
þeir þess að brjóta ekki af sér á Spáni
eða í Suðurlöndum, þangað sem þeir
fara gjarnan eftir að hafa náð sér i fé
með innbrotum eða þjófnaði. Þeir
koma svo aftur heim, þegar það er upp
urið, til að afla meira. En þá nær
danska lögreglan oftast í þá Hún er
mjög slyng við það. Eins hefi ég rekizt
á drykkjusjúklinga, sem hafa brotið af
sér til þess að vera stungið inn og
þarmeð neyddir til að hætta um sinn.
Og eins fólk, sem viljandi kemur inn í
Tftó er músikalskur hundur, sem kann aö meta orgelmúsík. Þegar
Guðni leikur á þetta ffna 9 sadda pfpuorgel f fbúðinni hans, leggur
Tító sig með ánægjusvip. En taki hann trompetinn, spangólar hann í
mótmælaskyni.
Viðtal við Guðna
Þ. Guðmundsson
fangelsið um jólin. Ég hefi verið áð
hugsa um það, að ef byggt yrði stórt
ríkisfangelsi hér, eins og talað hefur
verið um, þá þyrfti að búa betur og
öðruvlsi um hnútana.
— Islendinga? Jú, ég hefi hitt
íslendinga. Prestarnir skrifuðu mér til
dæmis einu sinni og spurðu hvort ég
hefði ekki islenzkar bækur handa
tveimur Islenzkum föngum. Ég fór til
þeirra og þeir voru fjarska fegnir að
heyra íslenzku, því þeir töluðu ekki
annað mál. Sem betur fer voru þessir
sendir heim. Fleiri hafa verið þarna, en
ég leita þá ekkert sérstaklega uppi.
nema þeir óski eftir að tala við mig.
— Jú, við hjónin kynntumst að
sjálfsögðu mörgum íslendingum,
þegar við rákum íslenzka heímilið fyrir
aðstandendur sjúklinga á sjúkrahúsum
I Höfn, sem Gísli Friðbjarnarson
byrjaði á. Það var mikil þörf fyrir það,
en eftir að læknarnir hér á íslandi fóru
að gera heilauppskurði, varð miklu
minna um að sjúklingar væru sendir á
danska spítala. Þarna var oft fólk undir
miklu álagi, og stundum sjúklingar
sem biðu eftir flugfari heim og í
helgarfríi af spitalanum. (slenzki
presturinn í Höfn, sr. Hreinn, sinnti
þessu fólki mjög mikið og var ólatur
við að koma, ef einhver þurfti á honum
að halda.
sem leikur í lúðrasveit drottn
íngarinnar, en þeir hafa mikið
leikið saman. Þá verður klassísk
kirkjumúsik á dagskrá Og fái hann
sæmilega stöðu, þegar hann hefur
lokið námi, þá vill hann flytja heim. —
Annars reiknar hann með að fara til
Þýzkalands og einbeita sér að
orgelleiknum eftir að lýkur skyldu við
alls konar aukafög í skólanum.
En hvað þá um pípuorgelið í íbúð
þeirra hjóna í Kaupmannahöfn? Það
hY99st Guðni flytja með sér heim.
Þetta er skínandi gott níu radda
pípuorgel, sem hann var svo heppinn
að fá sundurtætt á 10 þúsund danskar
krónur. Hver rödd kostar annars 20
þúsund danskar krónur eða 180
þúsund, sem mun vera 4,8 milljónir
ísl. krónur. Þetta orgel hafði vikið fyrir
öðru í kirkju einni og ekki orðið af því
að eigandinn setti það upp. — Ef til
kemur, þá verð ég að fá góðan oregl
smið til að taka það niður og komast
að samkomulagi við hann um að koma
til íslands og setja það upp heima,
segir Guðni. En það verður ekki hægt
fyrr en maður er búinn að kaupa sér
einhvern samastað. Þetta er semsagt
óljóst, annað en að ég hyggst Ijúka
prófi eftireittár, bætti hann við i lokin.
— E. Pá.