Morgunblaðið - 23.03.1975, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975
Guðni Rúnar Agnarsson, 19 ára.
nemandi i Menntaskólanum við
Tjörnina.
Afangar
Áfangar á föstudagskvöldum
kl. 22.40. Umsjónarmenn Guðni
Rúnar Agnarsson og Ásmundur
Jónsson.
Þeir Guðni og Ásmundur hófu
stjórn þátarins í ágúst 1974, en
siðan var gert hlé á útsendingu
þáttarins, þar til eftir áramót, að
hann kom á dagskrá að nýju. Þeir
félagar höfðu haft áhuga á að sjá
um útvarpsþátt og sömdu þvi
handrit að kynningu á hljómsveit
í tveggja tíma þætti. Sendu þeir
útvarpinu siðan handritið til at-
hugunar og voru nokkru siðar
kallaðir i prufuupptöku. Voru þeir
síðan ráðnir umsjónarmenn þátt-
arins.
Stefna þeirra i lagavali er sú að
vera með aðra popptónlist en
heyrist venjulega í þáttum út-
varpsins og eins að vera með
fleiri hliðar en venjulega heyrast.
t.d. jazzrokk, soul o.fl. Þeir hafa
flutt talsvert aðgömlumlögum og
rakið sögulega tónlistarævi
kunnra hljómlistarmanna. „Við
reynum að hafa eitthvað fyrir
alla," segja þeir.
Um tónlistarflutning útvarpsins
segja þeir:
„Það þyrfti að koma önnur
stöð með léttri tónlist og þá e.t.v.
auglýsingum inn á milli, eins og
tiðkast erlendis. Núna eru margir
gallar á poppflutningnum: Þátt-
unum er naumt skammtaður timi.
Betri þætti þyrfti á laugardags-
og sunnudagskvöldum og þá
gjarnan lengur en til hálftólf.
Jassinn er skammarlega litill i
útvarpinu, en hins vegar eru
kynningarþætti eins og þættir
Atla Heimis spor i rétta átt. Ann-
ars er útvarpið búið að koma þvi
til leiðar. að unglingar hlusta ekki
mikið á það; þeir finna litið við
sitt hæfi. Og þannig er um marga
fullorðna líka Margir gagnrýna
flutning klassiskrar tónlistar og
sinfónia, enda er slikur flutningur
nú úreltur i útvarpi — þessi
tónlist skilar sér svo miklu verr i
útvarpi en af plötum.
En ef það ætti eð breyta þessu
öllu, þyrfti víst að koma á fót
annarri stöð og myndi hún þó
vart nægja alveg."
Ásmundur Jónsson, 20 ára, nem-
andi í Menntaskólanum við
Tjörnina.
---------------------------
Popphornið
POPPHORNIÐ, að föstudögum
kl. 16:25. Umsjónarmaður: Vign-
ir Sveinsson, 20 ára, við nám í
radiósímvirkjun hjá Landsiman-
um.
Vignir hefur verið umsjónar-
maður Popphornsins frá þvi i
maílok 1974. Hann er einnig
plötusnúður í Klúbbnum og hefur
verið þar i rúmt ár.
Vignir kveðst kynna mikið af
ameriskri soul-tónlist í þáttum
sínum — hún er uppáhaldstónlist
hans — en jafnframt einnig önn-
ur vinsæl lög eftir atvikum.
Hann hefur yfirleitt beinar út-
sendingar á þáttum sínum og
segist kunna mun betur við þau
vinnubrögð en að taka þættina
upp á segulband, eins og hann .
gerði áður. Orsökin fyrir þvi. að
hann fór út i beinu útsendingarn-
ar var sú, að i auglýsingaflóðinu
fyrir jólin skarst alltaf stór hluti
af tima þáttanna, þannig að
kannski voru ekki notaðar nema
20—25 mínútur af þeim 45 min-
útna þáttum, sem hann var búinn
að taka upp. Þvi ákvað hann að
senda þættina bara beint út. um
leið og auglýsingalestri lyki.
Um popptónlistarflutninginn i
heild segir Vignir: „Að mínum
dómi eru þættirnir ekki of fáir, en
þeir þyrftu að fá lengri og betri
tima. Unglingarnir þyrftu að fá
meira af popptónlist á kvöldin,
það er þeirra tfmi. Ég vildi lika
gjarnan breyta tima Popphorns-
ins; það eru allir á ferð og flugi á
þeim tíma, sem þættirnir eru nú
sendir út, og mega ekki vera að
því að hlusta. Og ég myndi gjarn-
an þiggja lengri tíma hverju
sinni."
Lög unga fólksins
LÖG unga fólksins á þriðjudögum
kl. 20:00. Umsjónarmaður ann-
ars hvers þáttar (á móti Sverri
Sverrissyni): Ragnheiður Drifa
Steinþórsdóttir, 27 ára, gjaldkeri
hjá Rikisútvarpinu.
Ragnheiður hefur séð um þátt-
inn frá f ágúst 1971, er hún tók
við af Gerði G. Bjarklind. Ragn-
heiður hafði frétt af því. að Gerð-
ur ætlaði að hætta umsjón starfs-
ins, og sótti þá um starfið. Hún
hefur ekki starfað að tónlistar-
flutningi eða kynningum að öðru
leyti.
Lagavalið stjórnast að sjálf-
sögðu fyrst og fremst af óskum
hlustenda, en stjórnandinn getur
þó mótað stefnuna nokkuð.
Ragnheiður kvaðst telja popp-
tónlistarflutning útvarpsins all-
sæmilegan, og þó: „Ég er orðin
hálfleið á óskalagaþáttum, enda
þótt ég sjái um einn slikan sjálf.
Um hina þættina er það að segja,
að mér finnst oft sem ekki séu
nægar kynningar. Stjórnendurnir
segja bara: Næst syngur þessi
þetta lag — og búið. Þeir þyrftu
að kynna flytjendurna betur."
Slagsíðan
kynnir
stj órnendur
poppþátta
útvarpsins
------------------------------\
Tíu á toppnum
Tíu á toppnum á laugardögum
kl. 16.40. Umsjónarmaður Örn
Petersen, 22 ára, skrifstofumað-
ur og fararstjóri hjá Sunnu, flug-
þjónn hjá Air Viking og fram-
kvæmdastjóri Klúbbs 32.
Örn hefur séð um þáttinn frá
upphafi, þ.e. i maí 1973, en hafði
áður séð um Popphornið frá !
nóvember 1972. Hann var fyrsti
plötusnúðurinn ! Sigtúni og siðar
! Klúbbnum. Hann hefur einnig
séð um poppþátt ! Vísi.
í lagavali fyrir þáttinn hefur
Örn ekki mikið svigrúm, ! raun
aðeins nýju lögin fjögur! hverjum
þætti. Við val þeirra kveðst hann
taka mið af vinsældum fyrri laga
viðkomandi listamanna, af er-
lendum vinsældalistum og af ósk-
um frá hlustendum.
Um tónlistarstefnu útvarpsins
hefur hann sitthvað að segja:
„Það þarf að breyta tímasetn-
ingu einstakra þátta, t.d. þyrfti
að vera létt tónlistarefni á laugar-
dagskvöldum, þegar fólk vill
skemmta sér, ! staðinn fyrir að
flytja þá búnaðarspjall og óperu-
kynningar eins og nú er gert.
Popphornin eru einnig á slæmum
tima og mættu færast til. Einnig
mætti fjölga þáttum á morgnana.
Þá vantar léttan tónlistarþátt eft-
ir hádegið, fyrir fólk í vinnu og á
heimilum. Það mætti færa sið-
degissöguna aftar, ef þyrfti. Svo
þarf að endurskoða og endur-
skipuleggja danslagaflutninginn
á laugardags- og sunnudags-
kvöldum, hann er allt of gamal-
dags.
Varðandi stjórnunina almennt
vil ég segja, að sú hlustenda-
könnun, sem gjarnan er vitnað !
og byggt á, gefur ekki rétta mynd
af popptónlistaráhuga, þv! að hún
náði bara til fólks 1 8 ára og eldri.
Þá vantar meira aðhald og um-
sjón með poppþáttunum af hálfu
stofnunarinnar. Starfsfólk tónlist-
ardeildarinnar hefur ekki vit á
poppmálum né áhuga á þeim. Og
svo er furðulegt, að ekki skuli
mega flytja viðtöl við islenzka
hljómlistarmenn i poppþáttunum,
á sama tima og t.d. Jón B.
Gunnlaugsson og fleiri flytja slikt
efni! sínum þáttum."
Lög unga fólksins
LÖG unga fólksins á þriðjudögum
kl. 20:00. Umsjónarmaður ann-
ars hvers þáttar (á móti Ragn-
heiði Dr!fu Steinþórsdóttur):
Sverrir Sverrisson, 20 ára, nemi !
Menntaskólanum i Reykjavík.
Sverrir hóf umsjón með þættin-
um i ma! 1974. Hann þekkti
Ragnheiði Drffu frá gamalli t!ð og
þegar staða annars umsjónar-
mannsins losnaði, sótti Sverrir
um starfið. Hann hefur einnig !
félagi við annan séð um popp-
þáttinn Klásúlur i Þjóðviljanum i
vetur.
í lagavalinu ráða óskir hlust-
enda auðvitað mestu, segir
Sverrir, en þó geta stjórnendurnir
ráðið nokkru, þv! að ! hverri viku
berast óskir um 50—80 lög, en i
þættinum er aðeins unnt að leika
um 1 5 lög.
Um tónlistarstefnu útvarpsins
sagði Sverrir:
,', Poppið er alls ekki eins rétt-
látt og annað efni ! dagskránni,
sem sést t.d. á þvi, að Lög unga
fólksins og aðrir þættir verða allt-
af fyrir barðinu á röskun dag-
skrárinnar; þá er alltaf tekið af
okkur, t.d. fyrir þingræður eða
annað. Svo er tfminn fyrir Lög
unga fólksins alltof naumur. Við
getum aðeins flutt um fjórðung
þess. sem beðið er um, en aðrir
óskalagaþættir fá mun lengri
tima og fá þó mun minna af
óskum.
Annars get ég ekki almenni-
lega dæmt um poppþættina I
heild, þv! að þeir eru flestir á
þeim tlma dags, þegar ég sem
menntaskólanemi get ekki hlust-
að. Ég hef þv! Iftið heyrt af þeim.
Þess vegna þarf að breyta tfma-
setningunni. Annars virðist mér
aðaláherzlan vera lögð á klass-
fska tónlist i tónlistardeildinni, að
poppið sé þar aukaatriði, og ég
held að því hljóti hlutfallslega að
vera meira af klassiskri tónlist
og minna af poppi en eðlilegt
mætti teljast."
( '
Popphomið
POPPHORNIÐ, á mánudögum kl.
16:25. Umsjónarmaður: Magnús
Magnússon. 25 ára, viðskipta-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun.
Magnús hóf umsjón Popp-
hornsins i ársbyrjun 1974. Til-
drög þess voru þau, að hann
frétti af þvi, að kunningi hans
væri að hætta umsjón Popp-
horns, og sótti þv! um starfið og
fékk það. Magnús hafði áður ver-
ið plötusnúður ! Tónabæ í nær
fimm ár og hafði á menntaskóla-
árum sínum leikið ! hljómsveit-
um.
Magnús kveðst einkum hafa
þrennt i huga, er hann velur efni
í þætti sina: Að kynna nýja
tónlist, að kynna þær hljóm-
sveitir, sem áheyrendur óska eft-
ir, sé það gert bréflega. og að
leika þá tónlist, sem hann sjálfur
telur góða.
Um popptónlistarflutning
hljóðvarpsins i heild hafði
Magnús þetta að segja: „Ég tel
það kerfi poppþátta, sem nú er
við lýði, gott. en bara of lítið. Það
þyrfti að fjölga þáttum, en skipt
ingin ! óskalagaþætti annars veg-
ar og hins vegar þætti eins og
Popphornið, sem kynna tónlist,
sem ekki er i óskalagaþáttum, er
ágæt. Sérstaklega þyrfti að auka
popptónlistarflutning á kvöldin,
einkum eftir kl. 10, og á laugar-
dags- og sunnudagskvöldum
þyrfti að bæta lagavalið. Það er
ekki hægt að vera alltaf með
þessa ræla og tangóa, sem eng-
inn nennir að dansa ! heimahús-
um. Tlmasetning Popphornsins á
daginn er í lagi. Þessi timi var
augljóslega valinn ! upphafi til
að keppa við Kanaútvarpið. sem
flytur popptónlist nánast allan
sólarhringinn. Hvað minn þátt
varðar hef ég ekki annað að segja
en það, að á meðan ég fæ að
vera sjálfráður ! stjórnun hans, þá
er ég ánægður."