Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 '
Kvennaárið
í hnotskurn ?
0 Sú Eineygöa (Hafnarbíó)
0 Áfram stelpur (Háskólabíó)
★ Cleopatra Jones (Austurbæjarbíó)
if Hannie Caulder (Tónabíó)
Það mætti halda að forráða-
menn kvikmyndahúsanna séu
meðal þeirra fáu, sem ætla að
virða kvennaárið nokkurs. Um
þessar mundir sýnir helmingur
kvikmyndahúsanna í Reykjavík
myndir, þar sem kvenmenn eru
aðalhetjurnar og ráða bæði lög-
um og lofum og stjórna allri
atburðarás. Hvort hér er aðeins
um kynlega tilviljun að ræða
eða samstillt átak forráðamann-
anna er hins vegar ekki vitað.
En þvi miður hafa þessi kynja-
skipti engin gæðaskipti í för
með sér. Siður en svo. í þremur
af þessum myndum ganga kon-
urnar inn í hlutverk, sem áður
hafa verið tileinkuð karlkyns-
„töffurum", þeim gengur eftir-
öpunin misvel, en er það öllum
sameiginlegt að tapa kvenleg-
um yndisþokka, sem þær hafa
þó vafalaust til að bera.
Um kvenlegan yndisþokka er
þó vart hægt að tala um í
Áframmyndum yfirleitt. Þessi
sérkennilegi myndaflokkur er
vafalaust sá úrkynjaðisti í allri
kvikmyndasögunni. Áfram
stelpur er tuttugasta og fimmta
afkvæmið í þessari makalausu
klámbrandaraseríu, þar sem
kynlífið endar niðri við höku.
Það hlýtur að vera eitthvað
bogið við kynlífið hjá þessu
fólki, sem endist til að eyða
ævinni í svona framleiðslu.
Gleopatra Jones er hins vegar
superkvendi og eins og önnur
ofurmenni, þjáist hún ekki af
neinum tilfinningalegum flækj-
um. Hennar líf er bílar og byss-
ur, slagsmál og föt. Tamara
Dobson var áður tiskusýningar-
stúlka og sá hæfileiki hennar er
gjörnýttur í myndinni. Á um
það bil mínútu fresti skiptir
hún um föt og það verður að
segja henni til lofs, að hún bar
þau ágætlega. Hins vegar hafa
öll þessi föt sennilega verið
algjör misskilningur því að í
éina skiptið, sem stúlkan lenti í
hressilegum bardaga og sýndi
sína fögru og löngu fótleggi, fór
undarlega mishá stuna um sal-
inn. Annars þræðir Cleopatra
Jones dyggilega slóðir bóndans |
James, núll, núll eitthvað með
tilheyrandi karate tilbrigðum
og því öðru, sem svartar súper-
stjörnur hafa til að bera í dag.
Hannie Caulder og Sú ein-
eygða eiga margt sameiginlegt.
Báðar þessar ágætu stúlkur eru
I upphafi myndar niðurlægðar,
þær fyllast hefnigirni og til að
ná árangri, æfa þær sig í með-
ferð á byssum eða í öðrum
árásaraðferðum. Síðan fáum
við að fylgjast með hinni
dísætu hefnd. I báðum tilvikum
eru það karldýrin sem svivirða
og undiroka þessar ágætu hetj-
ur i upphafi, og í báðum til-
vikum eru það þessi sömu karl-
dýr, sem verða fyrir hinni
hatrömmu hefnd kvenskörung-
anna. Hvort þetta er stefna
kvennaársins í hnotskurn er
umdeilanlegt, en meginhug-
myndin er þó hin sama.
Hannie Caulder er leikin af
Raquel Weleh, einni af meiri
háttar kynbombum þeirra fyrir
vestan. Vmsir muna eflaust
eftir myndinni Myra Brock-
enridge, en þar lék Welch kyn-
skipting, karlmann, sem með
skurðaðgerð var gerður að
konu. Leikstjóri Hannie Cauld-
er, Burt Kennedy, leikur sér
svolitið að þessari hugmynd i
myndinni, þar sem sagt er um
Caulder: „Hún vill vera karl-
maður.“ „Henni tekst það
aldrei.“ Myndin í heild er
undarlega dauf og leiðinleg,
miðað við það, að Burt Kennedy
hefur áður gert allþokkalega
vestra. Annars var mesta
púðrið í skúrkunum þremur,
þótt skítugir væru. Sú eineygða
er ung stúlka, sem er rænt, hún
er gerð að dópista og sett í
hóruhús. En hefndin logar í
henni og að lokum drepur hún
alla, sem að þessum glæpahring
standa. Vægast sagt er ekki
orðum éyðandi i þessa mynd,
svo mikiil hráki sem hún er.
Það sem svíður þó undan, er að
þessi mynd skuli vera komin
frá Svíum, frændum vorum,
sem oftlega hafa getið sér
frægð í heiminum einmitt fyrir
frábærar kvikmyndir.
En svo bregðast krosstré sem
önnur tré og ef þetta er afleið-
ing velferðarríkísins, þá drott-
inn, leyf mér að lifa i fátækt. Þó
liggur við að það megi benda
áhugafólki í kvikmyndagerð á
að sjá þetta fyrirbrigði, því allir
byrjendagallar eru svo aug-
ljósir, öll uppbygging svo
nakin, að hér má ýmislegt læra.
En það veit lika sá sem allt veit,
að þessi mynd hlyti mín sterk-
ustu meðmæli, ef versta mynd
ársins yrði valin.
SSP.
LAUGARÁSBÍÓ
CHARLIE WARRICK
★ ★ Kænskubrögð bragðarefs-
ins Charlie Warricks eru með
eindæmum vel úthugsuð og
takast jafnframt með ágætum
— á sennilegan hátt, þrátt fyrir
ofureflið. Samt sem áður hefur
Siegel oft tekist betur upp
(„Madigan“, „Dirty Harry“,
„Coogans Bluff“). Myndin er
nokkuð langdregin á köflum,
og þá er ekki laust við að spenn-
an detti niður og áhorfandinn
fari að BlÐA eftir næsta fjör-
kipp. Það er engan veginn nógu
gott f mynd af þessari gerð. En
öllum eru mislagðar hendur,
Siegel ekki sfður en öðrum.
Siegel er nú búinn að vinna
sér fastan sess sem einn af
meisturum „þrilleranna". (Ég
Á síðari árum hafa komið í
ljós margir eftirtektarverðir og
. efnilegir leikstjórar vestan
hafs. Menn sem á komandi
árum eiga eftir að halda á loft
nafni Bandaríkjanna í kvik-
myndaheiminum. Virðast þeir
ætla að verða engir eftirbátar
hinna frægu, bandarísku leik-
stjóra, sem nú týna óðum töl-
unni; Eord, Hathaway, Cukor,
Welles og Hawks, svo nokkur
nöfn séu nefnd.
Þeir leikstjórar sem eru að
taka við af gömlu kempunum
eru flest allír uppaldir hjá sjón-
varpinu, og í fylkingarbrjósti
þeirra eru tvímælalaust þeir
Francis Ford Coppola, Peter
Bogdanovich, Terence Malick,
John Milius, Dick Richards,
Martin Scorsese, George Roy
Hill, William Friedkin og
James Frawley. Þessi nöfn láta
flest kunnuglega i eyrum. Þau
hafa verið rækilega kynnt i
blöðum og tímaritum, þar sem
fólki hefur gefist kostur á að
kynnast persónunum sjálfum í
gegnum blaðaviðtöl og önnur
ýtarleg skrif. Flestir þessara
leikstjóra eru viðskiptavinir
áhrifamikilla umboðsfyrir-
tækja og auglýsingastofnana,
sem sjá um að nöfnum þeirra sé
haldið á loft.
Það er gott dæmi um kraft
auglýsinganna, að nafn þess
leikstjóra sem gert hefur Iang-
vinsælustu myndir síðustu ára
og hefur átt mestan þátt í sköp-
un „Nostalgiu“-æðisins, er
ekkert of vel þekkt meðal kvik-
myndahúsgesta, og er þeim fer-
ill hans lítt kunnur, þeir vita
HAFNARBÍÓ
„Sú eineygða“
if Eitthvað er farið að lækka
risið á einu sinni hátt skrifuð-
um kvikmyndaiðnaði frænda
vorra, Svfa. Þetta dæmalausa
klúðurer hvorki fugl né fiskur,
ékki einu sinni ærleg klám-
mynd, þó vesaldarlegir tilburð-
ir „leikstjórans" beinist einna
helst í þá átt.
vona að hann sé bara ekki kom-
inn með neinn Hitchcock-
complex, þvf ég hef séð Siegel
bregða fyrir f tveim eða þrem
sfðustu myndum sínum, nú sfð-
ast f þessari; þar sem hann leik-
ur Ping-Pong við kfnverska
mafiosann.
Um leikarana er ekkert nema
gott að segja, sérstaklega er
Matthau f essinu sfnu. Joe Don
Baker er vissulega enginn af-
burðaleikari, en hann hefur til
að bera vörpuleik og virðuleika
sem minnir óneitanlega ekki
lítið á gamla, góða Gary
Cooper. Tónlist Schifrin er
ómissandi að vanda.
Og f lokin vil ég þakka Laugar-
ásbfó fyrir einstaklega vel unn-
in og vönduð prógrömm á sfð-
Framhald á bls. 47.
lítið annað en að hann hefur á
undanförnum árum gert mynd-
irnar „Throughly Modern
Millie", „Butch Cassidy and the
Sundance Kid“, „The Sting“, og
nú fyrir skömmu var frumsýnd
nýjasta mynd hans, „The Great
Waldo Pepper", við mikið lof
gagnrýnenda.
Nafn þessa leikstjóra er
George Roy Hill, og hefur hann
alla tíð látið sem minnst á sér
bera og þykir feiminn og
ómannblendinn. Greinargott
viðtal við þenna hægláta og
óframhleypna náunga birtist
nýlega i mjög svo vel virtu
tímariti sem lítið sem ekkert er
lesið hér heima. Og þar sem slík
viðtöl eru, eins og fyrr segir
ákaflega fátíð, og þar að auki
skrifað af hátt skrifuðum blaða-
manni, Bill Davidson, þá er ætl-
unin að koma með glefsur úr
því á næstu síðum.
Sæbjörn Valdimarsson.
Bréfadálkar
„Eg ætla að byrja á því, að
þakka umsjónarmönnum kvik-
myndasíðunnar fyrir þeirra
framlag og hef ákveðið að not-
færa mér þann þátt er nefnist
Bréfadálkar. Hér koma þá
spurningar:
1) Er einhver von til þess, að
Gamla Bfó endursýni mynd-
irnar Point Blank, sem John
Boorman leikstýrði og Space
Odyssey, 2001?
2) Getur Sjónvarpið ekki
endursýnt mynd Stanley
Kubricks, Dr. Strangelove?
Annars væri miklu betra að
hún væri sýnd í bfó.
3) Geturðu gefið mér upp-
lýsingar um Stanley Kubrick
og myndir hans?
4) Hvaða myndum hefur
Stacy Keach leikið f?
John Huston.
1) Báðar þessar myndir hafa
þegar verið endursýndar og
Atriði úr vinsælum kvikmynd-
um eftir George Roy Hill.
verða trúlega ekki sýndar aft-
ur, að sögn fórráðamanna
Gamla bíós.
2) Þvf miður.
3) Stanley Kubrick er fædd-
ur 26. júlf, 1928 í New York.
Hann fékk snemma áhuga á
ljósmyndun og vann m.a. fyrir
tímaritið Look. 21 árs var hann
talinn einn af bestu Ijósmynd-
urum f Ameríku. Myndir: Day
of the Fight (1951), Fear and
Desire (1953), Killer's Kiss
(1955), The Killing (1956),
Paths of Glory (1957),
Spartacus (1960), Lolita
(1961), Dr. Strangelove
(1963), 2001 (1968), Clock-
vork Orange (1971 og vinnur
nú að Darry Lyndon.
4) The Heart is a Lonely
Hunter (1968), The End of the
Road (1969) The Travelling
Executioner (1970), Brewster
McCIoud (1970), Doc (enn
óséð hér), Fat City, The New
Centurions og Judge Roy Bean
1972, Goodnight, Mike og
Luther 1973.
SÆBJÓRN VALDIMARSSON
SIGURÐUR SVERRIR PALSSON
George Roy Hill