Morgunblaðið - 25.03.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1975
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1975
19
r
Armannvann
SÍÐASTI leikurinn í 1. deild kvenna
fór fram í Ásgarði í Garðahreppi á
sunnudaginn og léku þar Breiðablok
og Ármann. Enn einu sinni kom í Ijós
þegar leikurinn átti að hefjast að
skráðir dómarar voru ekki mættir og
gat leikurinn því ekki hafizt á réttum
tlma. Skráðir dómarar voru Jón
Þórarinsson og Bjarni Gunnarsson.
Fyrri hálfleikur leiksins var
nokkuð jafn, en að honum loknum
var staðan 7—5 fyrir Ármann. í
seinni hálfleik hafði Ármann svo
mikla yfirburði og urðu úrslit leiksins
1 8—6 sigur Ármannsstúlknanna.
Lið UBK átti þarna sinn lélegasta
leik I vetur, en Ármannsliðið sýndi
oft góðan handknattleik og er sér-
staklega vert að geta um frammi-
stöðu Álfheiðar Emilsdóttur, mark-
varðar Ármanns, sem var I markinu í
25 mín. og fékk ekki á sig eitt
einasta mark.
Mörk Ármanns: Jóhanna 5 (1 v.), Katrín
Axelsdóttir 4 (2 v), Sigríður Rafnsdóttir og
Helga Egilsdóttir 3 hvor, Auður Rafnsdóttir,
Gyða Halldórsdóttir og Þórunn Hafstein eitt
mark hver.
Mörk Breiðabliks: Hrefna Snæhólm 3 (2
v), Kristfn Jónsdóttir 2 og Björg Gísladóttir
eitt mark.
Arnþrúður komin í færi f leik Vals og Fram. Jóhanna er lengst til hægri en Valsstúlkan sem snýr baki að
myndavélinni er Björg Jónsdóttir.
Olafur H. Jónsson fyrirliði íslenzka landsliðsins leggur sig allan fram er hann skorar eitt marka íslenzka liðsins f landsleiknum á sunnudagskvöldið. Ole Eliassen hefur orðið of seinn til varnar, aidrei þessu vant,
en á línunni takast þeir á Lars Bock (nr. 5) og Stefán Gunnarsson.
/ /
Agæt markvarzla Olafs olli þáttaskilum
og Islendingar unnu sætan sigur, 20 —16
ISLENZKA handknattleikslands-
liðið vann langþráðan sigur á
sunnudagskvöldið — sinn fyrsta í
vetur, ef frá eru skildir leikirnir
við Færeyinga, og það spiilti ekki
gleðinni, að það voru Danir sem
voru að velli lagðir. 20:16 urðu
úrslit leiksins, Islendingum í vil,
eftir að forysta hafði verið tvö
E ti: IE1E LE Uf LE LE Uf
Gönguskíði
Gæðavara.
Póstsendum.
Æ&f.
LAADUN LEIMATIADUILXA:
KILPAILUSSA JA KUNTOILUSSA
Vesturröst h/f,
Laugaveg 1 78.
Sími 16770.
ifli-UfUfLEEUfLEELEE
mörk í hálfleik, 11:9. Þessi sigur
íslenzka landsliðsins var sízt of
stór. Það hafði ekki heppnina
með sér f leiknum, skaðaðist af
fremur slakri dómgæzlu sænsku
dómaranna, og slakaði greinilega
á undir lokin, þegar góður sigur
var í höfn.
Lengi vel leit ekki vel út fyrir
íslendingana í þessum leik. Fram
yfir miðjan fyrri hálfleikinn
höfðu Danirnir jafnan yfir í
mörkum, mest er staðan var 2:5.
Það var ekki fyrr en landsliðs-
þjálfarinn, Birgir Björnsson, loks-
ins skipti Sigurgeir Sigurðssyni
markverði útaf og setti Ölaf
Benediktsson inná í hans stað að
þáttaskil urðu í leiknum. Sigur-
geir hafði varla varið skot, en
Ölafur var hins vegar í miklum
ham, og fékk ekki á sig nema eitt
mark þær 12 mínútur sem hann
var ínná í fyrri hálfleiknum, og
það úr vítakasti.
Tæpast var hægt að hrópa
húrra fyrir þeim handknattleik
sem liðin sýndu á sunnudags-
kvöldið. Danska landsliðið var að
þessu sinni til muna slakara en
þau dönsku landslið sem hingað
hafa komið á umliðnum árum,
enda að mestu skipað reynslulitl-
um leikmönnum. Aðeins fimm
þeirra leikmanna sem léku á
sunnudaginn hafa verið fasta-
menn í danska landsliðinu í vet-
ur, og léku t.d. með því í Norður-
landameistaramótinu. Þrir leik-
menn sem valdir voru í liðið til
fararinnar til Islands og Færeyja
gáfu ekki kost á sér, og meðal
þeirra var hinn kunni Jörgen
Frandsen, sem jafnan hefur verið
ákaflega mikilvægur maður í lið-
inu, og þá ekki sizt nú í vetur.
1 danska liðinu nú var nánast
engin skytta, og þar af leiðandi
byggðist sóknarleikurinn fyrst og
fremst á því að teygja á íslenzku
vörninni og reyna siðan gegnum-
brot eða skot úr hornunum, eni
þau heppnuðust mjög vel hjá lið-
inu í þessum leik. Skoraði það
eigi færri en 7 mörk á þann hátt
— öll úr hægri horninu, þar sem
jafnvel var farið inn alveg við
endamarkalínu. Víst má telja að
Danir ná ekki langt í komandi
stórmótum með þessu liði. Alla
vega ættu íslendingar að eiga þar
snöggtum meiri möguleika.
Mannvalió er alla vega meira hér,
ef þetta er með því bezta sem
danskur handknattleikur hefur
upp á að bjóða.
Það sem hér er sagt um danska
landsliðið er ekki til þess að draga
úr ágæti hins íslenzka sigurs í
leiknum. íslenzka landsliðið lék
þennan leik yfirleitt mjög skyn-
samlega og vel og í seinni hálf-
leiknum náði liðið oft að sýna það
bezta sem maður telur að í því
geti búið. Þá var oftast leikin
pressuvörn, sú er gaf góða raun á
móti Júgóslövum og Tékkum á
dögunum, og kom greinilega fram
að leikmenn liðsins eru að ná æ
betri tökum á þessum varnarleik.
Eru kvikari í hreyfingum og
ákveðnari, þannig að það gerist
tiltölulega mjög sjaldan að þær
glompur myndist sem slík vörn
býður upp á, ef menn eru ekki
nógu fljótir. i sóknarleiknum
nýttust skotin vel, en þó var það
þannig að oftsinnis var hann tæp-
lega nógu ákveðinn og ógnandi.
Má vera að það hafi verið vegna
þess að Ölafur Jónsson var þar
ekki eins atkvæðamikill og hann
hefur stundum verið, enda sér-
staklega vel gætt af dönsku vörn-
inni, sem virtist þekkja hann vel,
og gætti þess t.d. sérstaklega vel
að henn fengi ekki tækifæri til
þess að skjóta hinum frægu
undirskotum sínum.
Auk Ölafs Benediktssonar í
markinu áttu tveir aðrir leik-
menn íslenzka liðsins stórleik að
þessu sinni. Þeir voru Stefán
Gunarsson og Einar Magnússon.
Mikið má vera ef Stefán Gunnars-
son hefur ekki verið bezti maður
vallarins í þessum leik, en hann
var inná allan tfmann, og virtist
ekki skorta úthald til þess að
leika ætíð á fullu. Val hans í
landsliðið er tvímælalaust sterk-
asti leikurinn sem Birgir Björns-
son Landsliðsþjálfari hefur gert
frá því að hann tók við liðinu.
Auk þess sem Stefán stóð sig
manna bezt í vörninni, var hann
kraftmikill í sókninni. Skoraði
stórglæsilegt mark sjálfur, fiskaði
tvö vítaköst, og „blokkeraði“
feikilega vel og þá ekki sízt fyrir
Einar Magnússon, sem naut sín til
fulls fyrir bragðið. — náði skref-
unum sínum til þess að stökkva
upp, gnæfði yfir dönsku vörnina
og skoraði sjö mörk, sum hver
stórkostlega falleg.
Annars verður ekki annað sagt
en að íslenzka liðið hafi verið
mjög misjafnt í þessum leik. Auk
fyrrnefndra leikmanna komu
þeir Páll Björgvinsson og Stefán
Halldórsson vel frá leiknum, sér-
staklega þó hinn síðarnefndi, sem
ógnaði mikið með hraða sínum og
lék vörnina vel. Hins vegar voru
þeir Viðar Símonarson og Ólafur
Einarsson miður sín I leiknum.
Ölafur ógnaði mjög lítið og virtist
utanvelta þegar hann var inná, og
Viðar var mjög mistækur í vörn-
inni — sleppti mótherja sinum
alltof lausum í horninu og fengu
Danirnir þannig mörg mörk.
Langbezti maður danska liðsins
i þessum leik var Ole Eliason.
Gegndi hann svipuðu hlutverki i
liði sinu og Stefán Gunnarsson í
íslenzka lióinu. Eliasen er mikill
baráttujaxl og leikur varnarleik-
inn sérlega vel og af mikilli kunn-
áttu. Þá áttu þeir Lars Bock og
Anders Dahl-Nielsen einnig góð-
an leik, svo og Sören Andersen,
sem var skæður í hægra horninu.
Mfn. Island Danmörk
2. 0:1 Pazyj
4. Einar 1:1
5. 1:2 P. Jensen
6. 1:3 P. Jensen
7. ÓlafurE. 2:3
9. 2:4 O. Eiiasen
10. 2:5 S. Andersen
10. llörður 3:5
11. Stefán G. 4:5
12. 4:6 S. Andersen
12. Bjarni 5:6
13. Ólafur E. (v) 6:6
14. 6:7 A. Nielsen (v)
16. Einar 7:7
18. 7:8 A. Nielsen
22. Einar 8:8
24. Stefán (v) 9:8
27. Stefán (v) 10:8
29. Páll 11:8
30. 11:9 O. Eliasen (v)
Hálfleikur -33. ÓlafurJ. 12:9
34. 12:10 S. Andersen
36. Einar 13:10
38. 13:11 L. Bock
39. Einar 14:11
40. Páll 15:11
43. Stefán H. 16:11
46. Páll 17:11
46. 17:12 S. Andersen
48. Einar 18:12
48. 18:13 K. Sörensen
52. Einar 19:13
53. 19:14 E. Pedersen (v)
55. 19:15 S. Andersen
58. Stefán H (v) 20:15
60. 20:16 K. Sörensen
MÖRK ISLANDS: Einar Magnússon 7, Stefán Hall-
dórsson 4 (3 v), Páll Björgvinsson 3, Ólafur Einarsson
2 (1 v), Ólafur H. Jónsson 1, Bjarni Jónsson 1, Hörður
Sigmarsson 1, Stefán Gunnarsson 1.
MÖRK DANMERKUR: Sören Andersen 5, Anders
Dahl-Nielsen 2, Ole Eliasen 2, Palle Jensen 2, Karsten
Sörensen 2, Thomas Pazyj 1, Lars Bock 1, Eirik Bue
Pedersen 1.
VALUR endurheimti Islands-
meistaratitilinn í kvennahand-
knattleik á laugardag, þegar
Fram og Valur gerðu jafntefli í
sfðasta leik þessara liða f vetur.
Jafnteflið nægði Vals-stúlkunum,
þar sem liðið hafði engu stigi
tapað f vetur, en Fram hafði aftur
á móti tapað tveimur stigum,
gegn Val f fyrri umferðinni.
Þess gætti þegar í upphafi
leiksins að um úrslitaleik var að
ræða. Stúlkurnar voru tauga-
óstyrkar, og gerðu sig sekar um
ýmisskonar mistök, sem ekki hafa
til þeirra sézt í vetur. Þrátt fyrir
það var leikurinn spennandi allan
tímann, þó svo að Valur hefði
oftast frumkvæðið.
Fram náði forystu eftir nokk-
ura sekúndna leik, en tvö næstu
mörk voru Vals. Þá jafnaði Fram
og aftur var jafnt, 3 mörk gegn 3,
og voru þá um 15 mín. liónar af
leiknum. Það sem eftir lifði hálf-
leiksins voru Valstúlkurnar sterk-
ari, og leiddu í hálfleik 6 mörk
gegn 4.
Þegar um 5 mín. voru af siðarí
hálfleik hafði Valur enn tveggja
marka forystu, 7 gegn 5, en þá
kom góður kafli Framara, skor-
uðu þrjú næstu mörkin, 8 mörk
gegn 7, Fram í vil, og um 15 mín.
til leiksloka. Það sem eftir var
leiksins var hart b'arizt á báða
bóga og spennan í algleymingi.
Lyktirnar urðu svo þær að jafn-
tefli varð, 11 mörk gegn 11, og
jafnaði Guðrún Sverrisdóttir fyr-
ir Fram þegar ein mín. var til
leiksloka. Síðustu sek. leiksins
var Fram með boltann, en Vals-
stúlkunum tókst að verjast
sóknarlotum þeirra, og jafnteflið
var því staðreynd, og Valur
Islandsmeistari 1975.
Valur er vel að sigri kominn i
þessuae móti. Lið þeirra hefir leik-
ið jafn bezt í vetur. Að vísu hefir
liðið átt einn og einn slakan leik,
en aldrei svo að sigurinn hafi
verið í hættu. Sigrún Guðmunds-
dóttir hefir verið óstöðvandi í
leikjunum í vetur og svo var einn-
ig í þessum leik, þrátt fyrir að
hún væri tekin úr umferð nær
allan leikinn. Sigrún skoraði 7
mörk fyrir Val í leiknum gegn
Fram og mörg þeirra stórglæsi-
leg. Þá átti Ragnheiður Lárusdótt-
ir og góðan leik, einkum í vörn-
inni.
Fram, Islandsmeistarar 1974,
sýndi á köflum einn sinn bezta
leik i vetur gegn Val á laugardag-
inn. I liði Fram eru einkum þrjár
stúlkur sem bera af. Þaó eru þær
Oddný Sigsteinsdóttir, Arnþrúð-
ur Karlsdóttir og Jóhanna
Halldórsdóttir. Liðið er alls ekki
nægjanlega samstillt, og mark-
Þróttur 11. deild
Sfðasti leikurinn I 2. deild karla
var háður á laugardag. Það voru
Þróttur og KR sem áttust við. Ef
Þróttur sigraði eða jafntefli yrði,
var 1. deildarsætið Þróttar. Sú
varð og raunin, þvl Þróttur
sigraði með 22 mörkum gegn 19,
og tekur þvf sæti IR f 1. deildinni
næsta vetur. Það má með sanni
segja að Þróttur sé vel að sigrin-
um kominn, hefir aðeins tapað
þremur stigum f deildinni, öllum
Lið Þróttar sem leikur í I. deild að ári. Fremri röð frá vinstri: Bjarni Jónsson, Friðrik Friðriksson,
Guðmundur Gústafsson, Trausti Þorgrfmsson og Sveinlaugur Kristjánsson. Aftari röð: Öli Sigurðsson,
formaður handknattleiksdeildar Þróttar, Gunnar Gunnarsson, Jóhann Frímannsson, Björn Vilhjálmsson
Konráð Jónsson, Halldór Bragason og Axel Axelsson. liðsstjóri.
gegn KA, sem varð númer tvö I 2.
deildinni.
Leikurinn á laugardaginn bauð
oft upp á skemmtilegan hand-
knattleik. Einkum voru varnirnar
I essinu slnu. Barátta beggja liða
var mikil, og greinilegt að bæói
þessi lið auk KA standa mörgum
1. deildar liðanna sizt að baki.
I lið KR vantaði tvo af beztu
mönnum liðsins, þá Hilmar
Björnsson og Hauk Ottesen, sem
báðir voru staddir utan bæjar.
Það liðu fimm min. áður en
liðunum tókst að skora fyrsta
markið. Aður hafði ýmislegt
gerzt, t.d. hafði markvörður KR,
Pétur Hjálmarsson, varið viti
Bjarna Jónssonar og Símoni Unn-
dórssyni KR verið vísað af velli i 2
mín. Það var Þróttur sem loks
skoraði, og var Friðrik Friðriks-
son þar að verki. Eftir það skipt-
ust liðin á um að skora, en þegar
blásið var til leikhlés hafði Þrótt-
ur tveggja marka forystu, 10
mörk gegn 8.
Þróttarar komu inn á í síðari
hálfleik fullir eldmóös og náðu aö
auka forystuna í fjögur mörk, 12
gegn 8, eftir aðeins fjögurra mín
leik í siðari hálfleik. Þá var
Bjarna Jónssyni vikið af velli í 2
mín. og á meðan tókst KR að
minnka muninn í eitt mark, 13
gegn 12 og var þá virkilega farið
að fara um aðdáendur Þróttar. En
Þróttarar brugðust ekki traust-
inu, tókst að keyra liðið upp og
sigruðu örugglega með 22 mörk-
um gegn 19, eftir að hafa mest
náð sex marka forystu, 19 mörk
gegn 13.
Þróttur náði langþráðu tak-
marki er þeir unnu sér sæti í 1.
varzlan hefir verið höfuðverkur
liðsins í vetur. Svo var þó ekki á
laugardag, Elín varði á tíðum
ljómandi vel.
Dómarar: Kristján Örn Ingi-
bergsson og Olfert Nábye.
Mörk Vals: Sigrún 7 (3 v),
Björg Guðmundsdóttir 2, Ragn-
heiður og Elín Kristinsdótti.r eitt
mark hvor.
Mörk Fram: Arnþrúður 5 (4 v),
Oddný 4, Jóhanna og Guðrún
Sverrisdóttir eitt mark hvor.
Sigb. G.
STAÐAN
LOKASTAÐAN i 2. deiid:
Þróttur 14 12 1 1 342:233 25
KA 14 11 1 2 336:263 21
KR 14 10 0 4 305:267 20
Þór 14 7 0 7 272:264 14
Fylkir 14 6 1 7 280:301 13
UBK 14 4 0 10 268:316 8
ÍBK 14 2 2 10 211:295 6
Stjarnan 14 1 1 12 253:331 3
deild. Aó vísu hefir liðið leikið
þar áður, en langt er um liðið.
Þjálfari Þróttar í vetur hefir ver-
ió Bjarni Jónsson, landsliðsmað-
urinn, og hefir han unniðgottverk
fyrir Þrótt. Hann leikur og sjálfur
með liðinu og hefir verið aðal
driffjöðurinn í spili liðsins.
Annars hefir það verið aðall
Þróttar hve jafnvægið er gott í
liðinu. Agætir linumenn svo sem
Sveinlaugur Kristinsson og Kon-
ráð Jónsson, góðar skyttur,
Bjarni, Friðrik Friðriksson og
Halldór Bragason.
I leiknum gegn KR voru það
þeir Bjarni, Friðrik og Konráð
sem voru einna beztir Þróttara.
Lið KR lék ágætan leik á
laugardaginn. Piltarnir sýndu og
sönnuðu að i liðinu býr mun
meira heldur það hefir sýnt i
flestum leikja sinna i vetur. Þor-
varður Guðmundsson var beztur
KR-inga, en auk hans áttu þeir
Ingólfur Óskarsson, Ævar
Sigurðsson og Ingi Steinn Björg-
vinsson ágætan leik. Sá síðast-
nefndi er með meiri efnum í ís-
lenzkum handknattleik í dag.
Dómarar Björn Kristjánsson og
Jón Friðsteinsson. Mörk Þróttar:
Friðrik 5 (2v), Halldór 4, Bjarni
og Konráð 3 hvor, Sveinlaugur og
Jóhann Frímannsson 2 hvor,
Björn Vilhjálmsson, Gunnar
Gunnarsson og Trausti Þorgrims-
son eitt mark hver.
Mörk KR: Þorvarður 6 (2v),
Ingólf'ir Ævar og Símon 3 hver,
Bji, : jndal, Ingi Steinn, Jakob
Möller og Sigurður Páll eitt mark
hver.
Sigb. G.
1 1. deildar keppni kvenna
hlutu Valsstúlkurnar 27 stig af 28
mögulegum, en Fram varð í öðru
sæti með 25 stig og Armann í
þriðja sæti með 15 stig.
UfELELELELEEUfEELE
Glæsilegur
finnskur skíða-
fatnaður frá
reima $set
LAADUN LEIMAT LADUILLA:
KILPAILUSSA JA KUNTOILUSSA
Vesturröst h/f,
Laugavegi 178
Sími 16770.
IeEELEEEEEEIEU;
VALSSTÚLKURNAR ÍSLANDSMEISTARAR
EFTIR JAFNTEFLI, 11-11, GEGN FRAM